Leita í fréttum mbl.is

Namibía og Ísland

eiga margt sameiginlegt.

Í Namibíu ríkir Swapo einn flokka svipað og er í Kína með Kommúnistaflokk Maós.

Á Íslandi ríkti Framsóknarflokkurinn lengi í skjóli atkvæðamisvægis sem gaf flokknum miklu meiri völd og áhrif en kjörfylgið sagði til um. Mútugreiðslur voru þá alsiða á Íslandi og spilling alþekkt.Værir þú ekki í réttu vinfengi komst þú ekkert.

Í Namibíu ríkir ástand sem okkar góða fólk nær ekki upp í nefið á sér fyrir hneykslun. Fyrir að skal Þorsteinn Már helst dæmdur frá kjóli og kalli. Allt Kveiks málið hefur kostað Samherja milljarða þrátt fyrir að hafa spilað eftir Namibískum reglum til fiskveiða.Heinaste fer ekki á sjó en Jóhannes Stefánsson í sinni vendettu spígsporar um með réttarstöðu grunaðs hvað sem það nú þýðir fyrir hann, RÚV eða Samherja.

Páll Vilhjálmsson bloggkóngur skrifar:

"

Namibía er eins flokks ríki SWAPO-hreyfingarinnar sem vann landinu sjálfstæði fyrir 30 árum. Hvergi í veröldinni er meira efnahagslegt ójafnrétti, að Suður-Afríku undanskilinni, segir í viðtengdri frétt.

Það liggur í augum uppi að í eins flokks ríki með heimsmet í ójafnri skiptingu gæða er grasserandi spilling. Flokkurinn er ríkið og flokksfélagar sitja við kjötkatlana. Þar sem spilling er lenska verður réttlætið utangarðs.

Víkur nú sögunni að Íslandi, sem er eins fjölmiðils ríki í þeim skilningi að aðeins einn fjölmiðill hefur burði til að hrinda af stokkunum mótmælabylgju sem ógnar grunnstoðum samfélagsins, ríkisstjórn og embættiskerfi. RÚV felldi ríkisstjórn Sigmundar Davíðs og gerði áhlaup á hæstarétt.

Nýjasta tilraun RÚV í samfélagsverkfræði er að kenna Samherja um spillingu í Nambibíu. Í skjóli fáfræði almennings þykist RÚV hafa fundið óspilltan embættismann í Nambibíu, Paulus Noa, sem ítrekað er teflt fram í fréttum RÚV í málatilbúnaði gegn Samherja.

Noa er gimsteinn í namibíska spillingarsorpinu, eru skilaboð RÚV. Uppljóstrarinn, Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi verkefnisstjóri Samherja í Namibíu, er bandamaður Noa. Jóhannes hefur játað mútugreiðslur og nýtur friðhelgi Noa sem stýrir rannsókn á Samherjamálinu.

Jóhannes er smáfiskur en Samherji feitur göltur að flá. Deilur Samherja við namibíska viðskiptafélaga eru kunnar löngu áður en RÚV opinberaði sína þátttöku með Kveiks-þætti í byrjun nóvember. Þar eru verulegir hagsmunir í húfi. Kveiks-þátturinn gaf namibískum stjórnvöldum tilefni til að kyrrsetja skipið Heinaste sem barist var um í réttarkerfinu nokkrum mánuðum áður.

Umgengni RÚV við sannleikann gefur ekki tilefni til að ætla að kurlin í Samherja-Namibíumálinu séu öll komin til grafar. 

Í samráði við starfsmenn Seðlabanka Íslands tók RÚV þátt í atlögu að Samherja vegna rannsóknar á gjaldeyrisviðskiptum. Myndavélar RÚV voru mættar þegar húsleit fór fram hjá Samherja og fréttir samdar er sakfelldu útgerðina fyrirfram. Samherji aftur vann dómsmálið í kjölfarið. Sneypuför Seðlabanka og RÚV var bæði álitshnekkir og skóp vandræði. Aðalsamstarfsmaður RÚV í bankanum stóð frammi fyrir afhjúpun.

RÚV er umhugað að verja sinn mann í Seðlabankanum. Í viðtali við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra strax eftir Kveiks-þáttinn var beinlínis farið fram á það að Katrín hlutaðist til um að samsæri Seðlabanka og RÚV yrði ekki rannsakað.

RÚV tapaði Seðlabanka-Samherjamálinu en hyggst bæta um betur og jafna sakirnar í Samherja-Namibíumálinu. RÚV líkist að því leyti SWAPO í Namibíu að báðar valdastofnanirnar hugsa um það eitt að verja stöðu sína. Réttlæti og sannindi eru fullkomin aukaatriði."

Þetta er hin raunverulega staða í starfsemi Samherja í Namibíu.

Kollegi Grétar H. Óskarsson var flugmálastjóri í Namibíu ein 5 ár. Af hverju er ekki talað við hann um ástand mála í  því landi?

Hvernig málin Namibía-Ísland blasi við honum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæli með flugmálastjóranum Grétari H.Óskarssyni til umsagnar í Namibíu-ÍSLANDS málinu, sem er hugsanlega jafn-SLÆMT og vinna RÚV - á móti SIGMUNDI DAVÍÐ formanns Framsóknar /MIÐFLOKKSINS og "Ofurflokkssins" við næstu ALÞINGIS kosningar, þar sem ÍSLAND verður í FYRSTASÆTI, en EKKI í ALÞJÓÐAMESSI evrópu.

Minnkum ríkisreksturinn og notum SÖGU og SÖLUMENN við söluna á ómenguðum afurðum okkar innanlands og erlendis. 

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 7.8.2020 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418315

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband