Leita í fréttum mbl.is

Jón Magnússon

lögmaðurinn ljúfi skrifar um vandamál sem stendur okkur Íslendingum nærri en fæst ekki rætt vegna þöggunar í þjóðfélaginu.

Jón skrifar:

"

Verulega hefur dregið úr ferðum venjulegs fólks á milli landa eftir að Covid faraldurinn brast á í Evrópu. Allskonar takmarkanir eru settar, m.a. þarf fólk að vera með grímur, ekki má hafa handfarangur um borð í flugvélum (hvaða tilgangi sem það nú þjónar)ferðaframboð er takmarkað og ferðalangar þurfa að fara í skimun eða jafnvel 14 daga sóttkví. 

Önnur ferðaþjónusta, sem studd er dyggilega af auðkýfingnum Soros, Guteres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og nytsömum sakleysingjum í Evrópu blómstrar samt sem aldrei fyrr.  Það er ferðaþjónusta glæpahringja með ólöglega innflytjendur.

Umsvif ólöglegu ferðaþjónustunnar hefur aukist það mikið í Covid faraldrinum, að starfsfólk á strandgæsluskipum í Bretlandi segir að flotinn þurfi að skerast í leikinn. Alls hafa 3000 ólöglegir innflytjendur komið til Bretlands þann tíma ársins sem C-19 hefur geisað, en þeir voru alls 1.892 allt árið í fyrra. Þessir ólöglegu ferðamenn þurfa ekki að sýna passa enda eru þeir yfirleitt búnir að henda þeim til að villa á sér heimildir. Þeir fara ekki í skimun fyrr en þeir leita fyrst eftir ókeypis velferðarþjónustu. 

Starfsfólk breskra strandgæsluskipa segist ekki geta ráðið við báta með 40 ólöglegum innflytjendum eða fleiri og þess vegna verði flotinn að skerast í leikinn skv. því sem Daily Telegraph segir í frétt þ.4.8. s.l. 

Á sama tíma segir tímaritið The Economist frá því með hvaða hætti glæpahringir og fleiri undirbúi ólöglega innflytjendur fyrir að komast ólöglega til Evrópu. Það er vísað á lögmenn, sem eru hjálplegir, mannúðarsamtök, hvernig á að ganga í hagkvæmnishjónabönd eða koma sér upp fölsuðum vinnusamningum. 

Einnig eru leiðbeiningar um það hvernig á að komast hjá því að ólöglegum innflytjendum verði vísað úr landi og fái stöðu sem fólks sem nýtur alþjóðlegarar verndar eins og það heitir á pólitísku nýmáli stjórnmála- og fréttaelítunar. Þar er m.a. bent á, að fólk haldi því fram, að þau séu börn, séu að leita að föður sínum, konu, börnum eða komi frá stríðshrjáðum löndum og til þess að geta haldið þessu fram, þarf að henda vegabréfum og reyna að halda sér sem lengst í lyginni þangað til að yfirvöld gefast upp. 

Ólöglega ferðaþjónusta glæpamannanna sem standa í því að smygla fólki til Evrópu hefur allar þessar upplýsingar á reiðum höndum og hjálpfúsir nytsamir sakleysingjar í Evrópu hamast við að standa með smyglurunum í misskildu mannúðarskyni. 

Þrátt fyrir að vitað sé, að meir en 90% þeirra ólöglegu innflytjenda sem koma til Vestur Evrópu eru ekki að flýja stríð, handtöku eða hörmungar heima fyrir, hefur Evrópa undir forustu Guteres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna tekið upp vitlausustu löggjöf sem til er í málefnum ólöglegra innflytjenda, sem voru síðar skírðir hælisleitendur og loks umsækjendur um alþjóðlega vernd. Skv. þessum lögum þ.á.m. íslensku útlendingalögunum er sönnunarbyrði alfarið lögð á ríkisvaldið en engin á ólöglega innflytjandann. Það má ekki einu sinni gera einfaldar prófanir og rannsóknir á því hvort viðkomandi er að segja satt eða ljúga t.d. hvað varðar aldursgreiningu. Íslenska ríkisstjórnin gekk síðan þennan planka á enda með því að samþykkja svokallaðan Marokkó sáttamála varðandi hælisleitendur.

Venjulegt fólk þarf að nota vegabréf til að komast á milli landa. Ólöglegu innflytjendurnir gera það ekki og framvísa ekki neinu slíku. Af hverju kemst það þá inn í land eins og Ísland sem er eyja og ólöglegu innflytjendurnir koma allir með flugi? Það er vegna þess að íslensk stjórnvöld gera ekki nauðsynlegar ráðstafanir eins og t.d. að krefjast þess, að flytji flugfélag ólöglegan innflytjenda án vegabréfs, þá verði það að koma þeim sama aðila aftur til upphafsstaðar ferðarinnar á sinn eigin kostnað. 

Venjulegur ferðamaður að og frá Íslandi þarf sjálfur að greiða fyrir fæði, uppihald, læknisþjónustu, sálfræðiþjónustu, tannlæknaþjónustu o.s.frv. Ólöglegu innflytjandinn gerir það ekki. Allur kostnaður vegna þeirra er tekinn frá skattgreiðendum. Kostnaður íslenska ríkisins vegna þessarar ólöglegu ferðaþjónustu kostar skattgreiðendur marga milljarða á ári.

Þegar fyrir liggur hvers eðlis ferðaþjónusta ólöglegra innflytjenda er, þá má ætla að einhverjir stjórnmálamenn telji eðlilegt m.a. vegna afleiðinga Covid að standa vörð um velferð eigin borgara og hagsmuni frekar en að stuðla að ólöglegum flutningum ólöglegra innflytjenda til landsins."

Af hverju fást þessi mál ekki rædd eins og önnur mál?

Eru hagsmunir lögfræðinga af hælisleitendum eins og Helgu Völu þingmanns Samfylkingarinnar svo miklir að ekki megi hrófla við þessu aðstreymi iðjuleysinga? Þeir fylla Sóttvarnahúsin svo okkar fólk fær ekki pláss og eru ekkert nema byrði á samfélaginu eins og Helga Vala sem mergsýgur ríkið vegna þessa fólks?

Hvað er að þessu kerfi öllu saman spyr Jón Magnússon réttilega.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HEIMURINN ALLUR er undir ÁLAGI. ALÞJÓÐASAMVINNAN bjargar engu. Síst fámennum ÍSLENDINGUM norður í höfum. Þessar hugsanir JÓNS MAGNÚSSONAR lögmanns hins ljúfa, eins og Halldór orðar það ættu ALLIR ÍSLENDINGAR  að lesa.

ÓHEFTUR innflutningur frá "ÓLÍKUM" löndum er ekki góð stjórnun ríkisstjórnar, sem þegar hafa sannast á Norðurlöndum, Bretlandi og í Evrópu, sem ekki ráða við VANDAMÁLIN.

Kristin vesturheimur, sem skapaði VÍSINDI og FRAMFARIR er undir ÁLAGI vegna getuleysis í sameinaðri esb Evrópu.

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 7.8.2020 kl. 11:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér er sagt að Helga Vala þingmaður Samfylkingar sé framarlega í flokki þeirra lögfræðinga sem hafa atvinnu af því að lengja meðferð hælisleitendamála á landamærunum.Sem sagt vífillengjur í málefnum hælilsietenda séu atvinnuskapandi.

Halldór Jónsson, 9.8.2020 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband