Leita í fréttum mbl.is

Mikið var!

Koen Kjartan Van de Putte, fulltrúi belgíska raforkufyrirtækisins Bolt, afhenti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í gær þúsund upprunaábyrgðir fyrir græna raforku, íslenskum stjórnvöldum til eignar. Afhendingin var endapunktur samfélagsmiðlaátaks fyrirtækisins í Belgíu, sem gengur út á að vekja fólk til hugsunar um upprunavottanir fyrir græna raforku, og var athyglinni beint að Íslandi.

„Við notum það bara sem dæmi þar sem allir vita að Ísland er eyja og héðan liggur enginn kapall með rafmagn til Evrópu. Þess vegna er augljóst að raforka sem seld er í Evrópu með íslenskum upprunavottunum er eftir sem áður sama óhreina orkan,“ sagði Koen Kjartan í samtali við mbl.is í gær. Benti hann á að úti í Belgíu haldi fjölmargir að þeir séu í raun að kaupa græna raforku, þegar hún sé í raun aðeins dulbúin sem slík með umræddum vottorðum sem ganga kaupum og sölum á evrópskum markaði.

Báðir telja orkuna græna

„Íslenskir orkuframleiðendur fá „upprunaábyrgðir“ sem þeir svo selja belgískum framleiðendum óhreinnar orku. Þeir aftur nota ábyrgðarbréfin til grænþvottar á sölusamningum sínum.Þannig telja bæði Íslendingar og Belgar að orkan sem þeir nota sé græn. En það er vitanlega ómögulegt, kílóvattstundin verður bara notuð einu sinni. Hin kílóvattstundin er óhrein,“ sagði í tilkynningu frá Bolt í gær. Koen Kjartan segir það ljóst að þetta fyrirkomulag gangi ekki upp. Að hans sögn kostar eitt upprunaábyrgðarbréf um tuttugu evrusent, eða sem nemur rúmlega þrjátíu krónum. „Og það þarf einungis þrjú svona bréf fyrir raforkufyrirtæki til að grænþvo orku fyrir eitt heimili í heilt ár. Samt borga heimilin miklu meira fyrir græna orku en þá venjulegu.“ Almenningur sé ekki meðvitaður um þetta, hvorki í Belgíu né hér á Íslandi, hvað þá víðar í Evrópu ef því er að skipta. „Af hverju ættu raforkufyrirtæki erlendis að vilja framleiða græna orku, ef þau geta bara keypt þennan miða, skellt honum á svörtu orkuna sína og þannig grænþvegið hana til viðskiptavina sinna, og selt hana mun dýrara verði?“

Margir Íslendingar hafa haft skömm á sölu Landsvirkjunar á þessum aflátsbréfum þó að drjugar fjárhæðir hafi fengist fyrir þessar falsanir sem öllum eru augljósar.

Við framtaki Kjartans segir maður einfaldlega,Mikið var!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Græn afsláttarbréf eru búin til fyrir first-level thinkers.

Allir meðalgreindir + sem hugsa  um hugmyndina eða setja hana niður á blað til reyna að sjá hvað gerist þegar markaðurinn fer að ráða ferðinni, sjá strax að þetta er galin hugmynd en vinstra hyskið kemst aldrei þangað.

Katrín og Bjarni Ben eru bæði first-level thinkers og þau munu halda áfram þáttöku í þessu rugli þangað til einhverjum tekst að koma vitinu fyrir þau, ef það er það hægt.

Guðmundur Jónsson, 8.8.2020 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418230

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband