Leita í fréttum mbl.is

Trump vinnur

Guðmundur stóri vinur minn Björnsson í Florida segir:

"....Að því er fram kemur í opinberum tölum hafa nær 530 þúsund greinst með kórónuveiruna í Flórída-ríki, þar af hafa 8.108 einstaklingar látist. Íbúar ríkisins eru alls um 21,5 milljónir talsins.

Segir Guðmundur að veiran hafi náð sér á strik þegar skemmtistaðir og barir voru opnaðir. „Það voru gerð mistök með því að opna barina og strendurnar of fljótt. Það er ekki hægt að saka yfirvöld um allt því fólk missir á endanum þolinmæðina,“ segir Guðmundur og bætir við að Bandaríkjamenn bíði í raun eftir því að bóluefni finnist.

Spurður um þátt Donald Trumps Bandaríkjaforseta í ástandinu segir Guðmundur að hann botni lítið í afstöðu Íslendinga til hans. „Ég er svona heldur Trump-megin í tilverunni.

Það er fullt af Bandaríkjamönnum sem eru hrifnir af því hvað hann er sjálfstæður og ópólitískur, en hann er auðvitað mjög umdeildur. Ég verð alltaf hálfhvumsa þegar Íslendingar gagnrýna Trump en fara svo heim og kjósa Dag B. Eggertsson, sem er að eyðileggja borgina.“

Mikið er ég sammála vini mínum Guðmundi prófessor.Reykjavík er í hers höndum heimsku og fáfræði.

Trump er að reyna að bæta heiminn.Hann er friðarsinni og er að reyna að vernda Vesturlönd gegn kínversku plágunni sem sækir fram með lygum og undirferli, undirboðum og ásælni.

Þessar skoðanakannanir sem sem verið er að segja okkur frá á RÚV að vestan byggjast á örlitlum úrtökum, svipuðum fjölda og við erum að nota.

Biden sem verður að halda úr alfaraleið svo að fólk sjái ekki hversu veikur hann er, er búinn að finna blökkukonuna sem menn voru að bíða eftir að hann fyrirsjáanlega gerði að varaforsetaefni sínu.

Það er engin von til þess að hann lifi af kappræður við Trump vegna veikinda sinna.Kamela Harris vinnur ekki ein og sér.Demokratarnir eru búnir að tapa.

Trump er búinn að vinna spái ég enda betra fyrir heiminn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er löngu búin að sjá kosti Trumps. Það byrjaði með sérstöku áhorfi fyrir og eftir að hann var kosinn forseti. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.8.2020 kl. 03:30

2 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Afstaða Íslendinga til Trump er svipuð og til Davíðs Oddssonar og Sigmundar Davíðs. Þessir menn eru algjörlega ófyrirsjáanlegir, þeir t.d. standa við kosningaloforð. Íslendingar fengu tækifæri til að kjósa mann sem var augljóslega að vinna fyrir Íslendinga en tóku það ekki.

Við höldum áfram að sigla að feigðarósi á reyndar meiri hraða en ég hef séð lengi.

Risastórt ríkisvald og litlir þegnar.

Kristinn Bjarnason, 12.8.2020 kl. 06:38

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek á árinni með þér Halldór Jónsson, og það er undarlegt hvað margir Íslendingar fnæsa og frussa veirum útum allt þegar þeyra heyra minnst á forseta Bandaríkjanna, en þeir eru þó einu raun vinir okkar Íslendinga og hafa sannað það mörgum sinnum.

 

Ein staðreynd liggur ljós fyrir og hún er sú að við stæðum mun betur ef við ættum svona mann sem sem hefði greind og þor til að segja skoðun sína án þess að frussa.

Hrólfur Þ Hraundal, 12.8.2020 kl. 07:23

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek á árinni með þér Halldór Jónsson, og það er undarlegt hvað margir Íslendingar fnæsa og frussa veirum útum allt þegar heyra minnst á forseta Bandaríkjanna, en þar eru þó einu raun vinir okkar Íslendinga og hafa þeir sannað það mörgum sinnum þrátt fyrir skítkast frá vangefnum héðan.

 

Ein staðreynd liggur ljós fyrir og hún er sú að við stæðum mun betur ef við ættum svona mann sem sem hefði greind og þor til að segja skoðun sína án þess að frussa.

Hrólfur Þ Hraundal, 12.8.2020 kl. 07:29

5 identicon

Þú átt góðan og vitran vin Guðmund Björnsson í FLORIDA. Hann skilur ekki hugsanir RÚVverja, opinbera embættismenn, leikara og fleiri "bugaða", sem tala niður ágæti hans á ÖLLUM SVIÐUM og enginn áttar sig á af hverju. Eru þeir ÖFUNDSJÚKIR og gramir af eigin getuleysi?.

Hamrar, skóflur, hakar og járnkarlar voru okkar verkfæri til vegagerðar og byggingu húsa um 1940. Síðar komu Bretar og AMERIKUMENN, sem allt gátu með alla sína tækni og vélbúnað. Þeir byggðu KEFAP og allar flugbrautir með nýjustu tækni. Síðar gáfu þeir OKKUR allt, brautir og húsakost.

Ég endurtek AMERIKU,Landið sem gerði ALLT fyrir ÍSLENDINGA. NATO eru OKKAR samherjar, en EKKI AULAGANGUR, ÓSTJÓRN og GETULEYSI esb landa, sem hafa rústað Kristinni Evrópu.

TRUMP er/verður með 500 miljónir skammta tilbúna fyrir USA og vinaþjóðir næstkomandi október. Donald J.TRUMP vinnur stór sigur við næstu kosningar

 

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 12.8.2020 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband