Leita í fréttum mbl.is

Er krafan um almenningssamgöngur?

Frétt í Morgunblaðinu:

"Tæplega 4.400 bílaleigubílar hafa verið teknir úr umferð það sem af er ári. Alls hafa um níu þúsund bílar verið teknir úr flotum bílaleiga, en samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur um helmingur þeirra verið seldur en hinn helmingurinn mun vera án númera.

Fyrstu sjö mánuði ársins seldust 5.673 nýir fólksbílar, eða um þriðjungi færri en á sama tímabili í fyrra. Samdrátturinn felst mest í mun færri bílaleigubílum, en fjöldi þeirra dróst saman um 60% fyrstu sjö mánuði ársins. Liðlega 9.300 færri bílaleigubílar voru í umferð nú í júlí en í sama mánuði á síðasta ári. Þá höfðu ríflega sexfalt fleiri bílar verið teknir úr umferð en árið áður.

Alls voru rúmlega 15.600 bílaleigubílar í umferð í júlí, en leita þarf aftur til ársins 2014 til þess að finna færri bílaleigubíla á götunum. Vextir bílalána einnig lækkað

Sennilegt er að margir af þeim bílaleigubílum sem nú eru án númera verði settir á sölu á næstu mánuðum. Rétti ferðaþjónustan ekki úr kútnum á næstunni má svo búast við að fleiri bílar bætist við þann fjölda.

Kórónuveiran hefur haft meiri áhrif á bílamarkaðinn, sem birtast í sögulega lágum vöxtum. Vextir af lánum til bíla- og tækjakaupa hafa lækkað samhliða vaxtalækkunum Seðlabankans, en sú þróun hefur vafalaust örvað söluna. Vaxtakjör eru mismunandi eftir fjármögnunarhlutfallinu, en gróft á litið má segja að vextir á bílalánum hafi almennt lækkað um tvö prósent."

Skoði maður blöðin þá sýnist manni umfjöllunin vera um bíla og aftur einkabíla. Ekki strætóa, hjól eða labbitúra. 

Þorarinn Hjaltason umferðarverkfræðingur telur augljóst að Reykjavík sé bílaborg eins og aðrar ungar borgir Vesturlanda og færir glögg rök fyrir.

Einkabíllinn er sá samgöngumáti sem nútímamaðurinn hefur valið sér og engin almenn krafa er um auknar almenningssamgöngur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband