Leita í fréttum mbl.is

Burt með þau

stöndum í lappirnar og förum eftir lögum og reglum en ekki tilfinningum.

"Til stóð að vísa þeim úr landi í febrúar

Dooa og Ibrahim segjast hafa orðið fyrir ofsóknum í Egyptalandi vegna þátttöku Ibrahim í stjórnmálastarfi. Útlendingastofnun synjaði þeim um vernd í lok júlí í fyrra og mat að fjölskyldan væri örugg í Egyptalandi.

Var sú ákvörðun staðfest af kærunefnd útlendingamála rúmum 15 mánuðum síðar en til stóð að fjölskyldunni yrði vísað úr landi í febrúar. Tafðist það vegna heimsfaraldurs kórónaveiru.

Magnús D. Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, hefur áður sagt þau vera ósammála niðurstöðunni og að þau óttist mjög að verða bæði handtekin í Egyptalandi. Þá hafa á tólfta þúsund manns sett nafn sitt við undirskriftalista þar sem brottvísun fjölskyldunnar er mótmælt."

Af hverju á að láta upphlaupslið ráða lögum og lofum?

Hversvegna bíða 80 manns sem svipað er ástatt um brottvísunar?Af hverju líðst þetta sleifarlag hjá Útlendingastofnun? 

Þetta fólk á ekkert erindi hérna og á skilyrðislaust að fara eins og lög og reglur mæla fyrir um.

Stjórnmálastarf mannsins í egypsku fjölskyldunni  er þátttaka í múslímska bræðralaginu sem eru jafnvel hryðjuverkasamtök. Þurfum við að taka afstöðu í slíku innanríkismáli Egypta? Fjölskyldan er búin að njóta gestrisni okkar alveg nógu lengi og má bara vera þakklát fyrir.

 

Við getum fengið þúsundir af svona fjölskyldum til að koma hingað og leggjast upp á okkur.Höfum við efni á svona afgreiðslum?

Burt með þetta egypska fólk og hina 80.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tæp 8.000 Íslendinga hafa skrifað nafn sitt undir þennan lista, eða rétt tæp 4% íslensku þjóðarinnar.  Restina af undirskriftunum, rúm 3.000, á fólk af erlendu bergi brotið, eða um 10% erlendra sem hér búa.

Með öðrum orðum, 96,0% Íslendinga kjósa með þögninni að láta ekki undan yfirgangi frekjuliðsins.  Og um 90% þeirra sem er af erlendu bergi brotið og búa hér og vinna, vilja heldur ekkert af frekjuliðinu vita.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 14.9.2020 kl. 23:52

2 identicon

Dómsmálaráðherrann Áslaug Arna áttar sig á ÞESSU mikilvæga máli varðandi fámennt ÍSLAND. Mér sýndist Katrín vera sammála Áslaugu?

Það verður "hófadinur" hjá hugsandi ÍSLENDINGUM, ef ekkert verður að gert. 

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 14.9.2020 kl. 23:56

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er makalaust hvað stjórnvöld hér eru svifasein og loppin.

 

Burtu með þessa lífsgæða betlara og frekju lið og burtu með EES og allt það rusl sem því fylgir og svo þarf að stemma stigu við fjölda flokka sem sitja á þingi.

 

 

 

Hrólfur Þ Hraundal, 15.9.2020 kl. 08:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418368

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband