Leita í fréttum mbl.is

Borgarstjórann burt

er innihald auglýsingar frá Bolla Kristinssyni.

Ég minnist þess ekki úr pólitíkinni að menn hafi auglýst svona ákveðið gegn einstökum stjórnmálamanni.

Bolli segir skoðun sína umbúðalaust svo:

"Staðan í miðbæ Reykjavíkur er ískyggileg.

Laugavegurinn, sem áður var aðalverslunargata bæjarins, hefur á örskömmum tíma orðið að draugagötu fyrir tilverknað borgaryfirvalda.

Fjöldi rótgróinna verslana hefur flúið miðbæinn nú að undanförnu, ótal fyrirtæki lagt upp laupana og eftir stendur auðnin ein. Þarna ræður mestu heft aðgengi með lokunum gatna og fækkun bílastæða, en allt að 4000 stæði hafa verið tekin af okkur borgarbúum á síðustu árum.

Viðskiptavinir komast ekki í bæinn og leita annað. Verslanir og veitingahús fá því engin viðskipti. Um þessar mundir eru yfir 30 verslunarpláss tóm við Laugaveginn og gætu trúlega orðið 50 í vetur.

Þetta ástand verður ekki skrifað á neina farsótt eða aukna netverslun. Borgarstjórn Reykjavíkur með Dag B. Eggertsson í broddi fylkingar ber fulla ábyrgð á því sem hér hefur átt sér stað."

 

Og svo enn kemur upptalning á syndaregistri læknisins:

"1. Borgarbúar eru fastir í umferðarteppum alla daga, kvölds og morgna, vegna aðgerðarleysis og skemmdarstarfsemi borgaryfirvalda í samgöngumálum.

2. Umferðartafirnar hafa í för með sér gríðarlega mengun en rannsóknir hafa leitt í ljós að eyðsla bílvéla eykst um 131% í umferðarteppum samanborið við hindrunarlausa umferð.

3. Svifryk í borginni fer ítrekað yfir heilsuverndarmörk. Draga mætti stórlega úr því með því að hreinsa göturnar og rykbinda. Borgaryfirvöld hafa skellt skollaeyrum við slíkum ábendingum.

4. Bragginn í Nauthólsvík var reistur á ábyrgð borgarstjórans. Hann átti að kosta 158 milljónir en endaði í 415 með dönskum puntstráum og öllu tilheyrandi.

5. Reynt er að spilla allri flugstarfsemi í borginni og hrekja flugvöllinn burt sem skapar allt að 1000 manns atvinnu.

6. Grænu svæðin í borginni fá ekki að vera í friði fyrir áformum um þrengingu byggðar, þar á meðal er ráðist á Elliðaárdalinn, náttúruperlu í miðju borgarlandinu.

7. Hvergi er haft samráð við borgarbúa um nýbyggingar. Skemmst er að minnast fyrirhugaðra húsa á saltfiskreitnum við Sjómannaskólann sem reist verða í fullkominni óþökk nágranna.

8. Skólamálin eru hneisa hvarvetna. Ekkert samráð hefur verið haft varðandi Korpuskóla og Rimaskóla svo dæmi sé tekið.

9. Framkvæmdir við nýjan innsiglingarvita fóru tvöfalt fram út kostnaðaráætlun.

10. Umhirða grænna svæða er til háborinnar skammar. Tún eru illa slegin, illgresi kæfir runna og rusl og veggjakrot blasir við hvert sem litið er. Malarhrúgan úti við Eiðsgranda er táknræn fyrir sóðaskapinn sem einkennir borgaryfirvöld.

11. Sorphirðugjöld hafa hækkað mikið undanfarin ár en samt sem áður hefur þjónustan versnað stórlega og sorpílát eru aðeins tæmd hálfsmánaðarlega með öllum þeim óþrifnaði sem því fylgir, að ekki sé minnst á rottuganginn.

12. Biðlistar eftir félagslegri þjónustu lengjast dag frá degi og þannig hefur ástandið verið lengi.

13. Kostnaður við Mathöll á Hlemmi fór 79% fram úr áætlun.

14. Á vakt borgarstjórans hafa orðið alvarleg mengunarslys sem hann hefur skirrst við að taka á af festu. Borgaryfirvöld vissu vel að sjósundsfólk synti í skólpmenguðum sjó vikum saman.

15. Norræn rannsókn leiddi í ljós að 6,3 milljónir plastagana berast úr skólphreinsistöðinni við Klettagarða á hverri klukkustund. Plastagnir eru alvarleg ógn við lífríki heimshafanna og Reykjavík ætti sem höfuðborg sjávarútvegsþjóðar að vera í fararbroddi við verndun lífríkis hafsins. Lítið hefur farið fyrir umbótum í þessu efni.

16. Víða hefur verið ráðist í óskiljanlegar gatnaframkvæmdir með gríðarlegum tilkostnaði. Nægir á benda á Birkimel, Sæmundargötu, Borgartún, Hverfisgötu og Grensásveg, að ógleymdri Hofsvallagötu með alls konar hrákasmíð, fuglahúsum og fleiru.

17. Borgarlínan – sem enginn veit hvað er – nema hvað hún á að kosta á annað hundrað milljarða hið minnsta. Þessu sukki var fagnað með sérstakri veislu borgarbrodda sem skattgreiðendur voru látnir greiða hálfa milljón króna fyrir.

18. Eyðilegging besta kostsins fyrir Sundabraut, svokallaðri innri leið, gerir það að verkum að kostnaður margfaldast.

19. Reykjavíkurborg er de facto gjaldþrota og hefur verið um langa hríð.

Þannig mætti halda lengi áfram að telja og þarf enginn að velkjast í vafa um að Dagur B. Eggertsson er versti borgarstjóri Reykjavíkur frá upphafi.

Sammælumst um að kjósa hann aldrei aftur! Endurreisn borgarinnar getur ekki hafist fyrr en niðurrifsöflin hafa verið brotin á bak aftur.

Bolli Kristinsson kaupmaður og Reykvíkingur"

Hér fast að orði kveðið og ekkert sem ég fæ séð sem er ofmælt eða ýkt.

Það er með ólíkindum ef skoðanakannanir sýna vinsældir Borgarstjórnarmeirihlutans með þeim hætti að líkur ´seu á endurkjöri hans. Það getur ekki skýrst öðruvísi en sem fölsun eða að svo mikill flótti hafi átt sér stað úr Borginni að fáir hugsandi menn séu þar eftir.

Það er ástæða til að minnast þess að Dagur B Eggertsson var í raun kosinn frá í síðustu kosningum. Aðeins Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Pírati lét stjórnast af persónulegu hatri á Eyþóri Arnalds vegna fjölskyldumála sinna frá Selfoss árum hans til að vera til sölu fyrir Dag Bé. til áframhaldandi seti í ráðhúsinu. Og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir fylgdi sem salt í sár kjósenda.

Það eru góð tíðindi að Helga Vala sækist eftir að verða foringi í lið Dags Bé.Egertssonar. Fátt fólk er betur til þess fallið að fæla kjósendur frá þeim lista.

En Bolli Kristinsson sýnir enn og aftur að hann er maður sterkrar sannfæringar fyrir umhverfi sínu og sparar sig hvergi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband