Leita í fréttum mbl.is

Trump og Biden

voru í hanaatinu í kvöld sem var öllu prúðmannlegra en leiðinlegra en það fyrra. Ég asnaðist til að vaka og skrifa þetta í framhaldi.

Það er farið yfir svo víðan völl að maður fær engin tæmandi svör við neinu.

Trump var ósvífnari í að skjóta á Biden sem svaraði aldrei beinu beint að mér fannst. 

Þeir þvældu mikið um Covid án nokkur árangurs nema Trump sagðist vongæður um bóluefnin á næstu vikum hjá Johnson&Johnson, Pfizer og Moderna.Þeir voru sammála um að staðan væri alvarleg og mörg mistök hefðu verið gerð. En munurinn væri áberandi eftir fylkjum og þeirra flokkar hefðu staðið sig betur en hinn að sjálfsögðu.

Gegnumgangandi spurning Trump var hversvegna Biden þættist nú ætla að gera allt gott sem hann hefði ekki gert á þeim 8 árum sem hann var við völdin sem varforseti? Af hverju væri allt svona miklu auðveldara núna? Biden sagði á nú yrði hann forseti en  ekki varaforseti en fór ekki út í neinn rökstuðning fyrir slagorðunum(sem mér fannst í Samfylkingarstíl Loga Más.)

Trump sagði að hann Biden hefði verið á móti fracking í olíuvinnslunni og vildi vindmyllur og sólarsellur í staðinn í orkumálum sem væru miklir mengunarvaldar í byggingu og dræpu fugla meðan náttúrlegt gas frá olíuiðnaðinum mengaði ekki. Biden reyndi að segjast hafa átt við opinbert land til að bjarga sér frá þessu.

Trump sagðist hafa gert Bandaríkin óháð erlendri orku í fyrsta sinn í sögunni. Hann hefði ekki átt samleið með París þar sem Kína og Indland væru ekki með fyrr en eftir mörg ár  og Bandaríkin menguðu nú minnst af öllum ríkjum.  Líka hefði hann gert mest af öllu forsetum fyrir blökkumenn í Bandaríkjunum af öllum forsetum Bandaríkjanna frá Abram Lincoln.Hann væri minnsti rasistinn af öllum viðstöddum þó hann sæi ekki einu sinni framan í fólkið í myrkrinu. Biden ætlaði að þvæla honum eitthvað í þessu með samlíkingunni við Lincoln en rann á rassinn með það. Tíminn er líka svo naumur að það næst ekki að klára neitt.

Trump klúðraði mörgu með lélegum undirbúningi, endurtekningum  og málskrúði í óðamælgi og (helvítis) handapati.

Sérlega klúðraði hann lokaspurningunni sem Biden var búinn að æfa vandlega og raða saman öllum málum ("kosningalygum") sínum vandlega á dæmigerðan hátt atvinnustjórnmálamannsins. Ætlaði  að gera allt fyrir alla  bara ef hann væri kosinn.

Sem menn verða að gera upp við sig hvort þeir kaupa þessa ræðu af manni sem er búinn að vera áratugi í stjórnmálum og áreiðanlega ekki staðið við allt á fyrri tímum eða reyna að meta áhættuna sjálfir núna 3.nóvember.

En vel kom hann fyrir og er fallegur og trúverðugur í framan  sem er auðvitað ekkert að marka. Því fegurðin er aðeins skinndjúp en illskan gengur inn að beini segir Murphy.

Trump talaði ekki sem pólitískur sölumaður í lokaorðum sínum og ávarpaði ekki kjósendur sína eða með beiðnum um atkvæði. Hann væri á leið með að endurreisa efnhag Bandaríkjanna. Hann ætlaði ekki að hækka skatta til þess eins og Biden sem ætlaði að gera það.

Það rifjuðust upp fyrir mér orð sem einn viðmælandi minn spurði mig að um Trump: Er honum kannski virkilega alveg sama hvort hann vinnur eða tapar?

 

Ég var ekkert ánægður með Trump í það heila tekið en ég get hafa haft rangt fyrir mér með staðalhugmyndir mínar hvernig stjórnmálamenn eigi að koma fram sem mér fannst Biden miklu fremur leika það hlutverk eins og ég býst við af reynsluboltum  hvað trúðshátt og  ósvífnar lygar varðar.En ég er ekki trúaður á Biden sem forseta og set stórt spurningamerki við þessa Kamelu Harris,

Trump er ekki æfður stjórnmálamaður né afburða ræðumaður heldur viðskiptamaður sem framkvæmir hlutina án mikilla langorðaðra afsakana. Notar twitter sem engum hafði dottið í hug að gera í þessu starfi.Og áróðursmaður er hann sem kann að halda athyglinni á sér hvort heldur hann er í sókn eða vörn og hversu grimmilega er að honum sótt alla daga af engum smáveldum og peningaafli.

Biden reyndi að ásaka hann um skattaskýlingar af klókindum sínum til að borga lítið í skatta en Trump sagðist vera búinn að borga milljónir dollara í fyrirfram greidda skatta.En hvernig varðst þú svona ríkur skyndilega Joe með öll þín hús út um allt?  

Mér fannst ég sjá að heilabilunin gægist fram stöku sinnum þegar Biden eins og missti þráðinn og stamar en þetta var sjaldan og hann spólaði sig út úr því fljótt og vel.En ég set spurningamerki við framhaldið hjá honum, það er eitthvað í gangi í höfðinu á honum sem enginn veit hvaða stefnu tekur og hvenær.

Sem sagt stíll Trumps var mér lítt að skapi en staðreyndirnar eru allar á sínum stað hjá honum. Erlend samskipti bara á góma og gengu klögumálin á víxl vegna Rússa, Iran, Kina og Norður Kóreu. Hann spurði Biden hvort talvan (hans Hunters) væri áróðursverk Rússanna en Biden svaraði i því ekki en sagði að hann hefði aldrei tekið við eyri frá erlendum ríkjum.

Þar fannst mér hann taka mikla áhættu að kveða svona fast að á þessum hættutíma.

Honum getur orðið hált á þessu þegar fram líða stundir og í ljós kemur á hverju hann hefur auðgast svo mikið og á mörg hús eins og Trump sagði hann eiga og hvort hann væri ekki bara Mister Big Guy í tölvupóstunum frá Rússlandi með öll prósentin sem sá ætti að fá. Biden svaraði því ekki frekar en öðru.

Í heild fannst mér stjórnandinn vera hlynntari Biden, eins og hún væri að eitthvað að vernda hann fyrir andstæðingnum. En Trump fannst mér ekki flytja sitt mál vel eins og fyrr segir og var miklu minna grimmur en ég bjóst við út af málunum sem skipta munu máli þegar farið verður að rannsaka allt ofan í kjölinn ef það næst fyrir kosningarnar.

 

 ps: Fremur en að fara að stela vinnu blaðamanns Moggans sem skrifaði líka um þetta á sama tím aog ég tilfæri é hér nokkrar klausur frá honum til að skapa betri mynd af þessu fyrir þann sem slystast til að kesa þetta blogg:

Moggi segir m.a. :

"

„Ég vil loka á veiruna, ekki loka land­inu“ sagði Biden, spurður út í hvernig hann hefði brugðist við far­aldr­in­um. Trump sagði þá að Biden tali ekki um annað en lok­an­ir og út­göngu­bann. Trump seg­ist vilja opna skóla, smit­hætta sé lít­il inn­an skóla og ekki sé hægt að halda land­inu í lamasessi. „Lausn­in get­ur ekki verið verri en vanda­málið,“ sagði Trump. Biden sagði þá að fyr­ir­tæki og ein­stak­ling­ar verði að geta opnað starf­semi sína og farið út í sam­fé­lagið á nýju á ör­ugg­an hátt. Trump hafi ekki tryggt það.

Þá fær­um við okk­ur úr umræðum um Covid-19 í þjóðarör­yggi. Greint hef­ur verið frá því að bæði Íran og Rúss­land hafi reynt að hafa áhrif á for­seta­kosn­ing­arn­ar. Biden sagði að þær þjóðir sem ógni full­veldi Banda­ríkj­anna þurfi að svara fyr­ir það verði hann kjör­inn for­seti. „Ég skil ekki af hverju þessi for­seti vill ekki tak­ast á við Pútín þegar Pútín greiðir leigu­morðingj­um fyr­ir að myrða banda­ríska her­menn.“

Hvað varðar loft­lags­breyt­ing­ar seg­ir Trump að drykkjar­vatn í Banda­ríkj­un­um sé krist­al­tært og að kol­efn­is­los­un sé í lág­marki í Banda­ríkj­un­um. Hann seg­ir að Kína, Ind­land og Rúss­land séu „skít­ug“ lönd. Hann muni ekki fórna at­vinnu­tæki­fær­um og fyr­ir­tækj­um til að taka þátt í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. „Við höf­um unnið frá­bært starf fyr­ir um­hverfið. Við höf­um hrein­asta vatnið, hrein­asta loftið,“ sagði Trump. Biden sagði þá að tím­inn til að grípa til aðgerða og snúa við loft­lags­breyt­ing­um sé naum­ur. Hann seg­ir Trump hafa sett Banda­ríkja­menn í afar slæma stöðu með því að snúa við lög­gjöf Obama sem snýr að um­hverf­is- og loft­lags­áhrif­um. Biden sagði að í hans áætl­un­um er varða loft­lags­breyt­ing­ar fel­ist ýmis at­vinnu­tæki­færi fyr­ir Banda­ríkja­menn ásamt því að hægt sé að tryggja framtíð kom­andi kyn­slóða. Trump hafði þá að Biden viti ekk­ert um lofts­lagið, hans áætlan­ir muni ein­ung­is leiða til þess að millj­ón­ir missi störf sín.

Trump seg­ist ekki hafa tekið við nein­um fjár­greiðslum frá Rússlandi. Þvert á móti hafi Biden fengið 3,5 millj­ón­ir doll­ara greidd­ar frá rúss­nesk­um áhrifa­mönn­um. „Það hef­ur eng­in verið harðari gagn­vart Rússlandi en Don­ald Trump.“ Biden sagðist þá aldrei hafa tekið við greiðslu frá er­lend­um aðilum. „Ég hef gefið út all­ar mín­ar skatta­skýrsl­ur. Þú hef­ur ekki gefið neina. Hvað ertu að fela,“ spurði Biden for­set­inn þá. „Birtu skatta­skýrsl­urn­ar þínar eða hættu að tala um spill­ingu.“

Hvað varðar landa­mæra­eft­ir­lit og stefnu­mál í inn­flytj­enda­mál­um kom Biden hart niður á Trump varðandi aðskilnað for­eldra og barna við landa­mær­in. Trump sagði að þau börn sem ekki hafa verið sam­einuð við for­eldra sína að nýju fái „góða umönn­un“. Trump sagði þá að Biden hafi verið vara­for­seti í 8 ár og aldrei gert neitt í mál­efn­um inn­flytj­enda. Biden sagði þá að hann hafi gert mis­tök, hann og Obama hafi brugðist of seint við. Það muni ekki ger­ast verði hann kjör­inn for­seti.

Trump seg­ir að Biden sé frjáls­lynd­ari en Bernie Sand­ers og að áætlan­ir hans utan um heil­brigðis­trygg­ing­ar sé ekki annað en rík­i­s­væðing heil­brigðisþjón­ustu. „Hann gleym­ir hverj­um hann er í fram­boði á móti. Þú ert í fram­boði á móti Joe Biden. Ég sigraði for­kosn­ing­arn­ar af því ég var ósam­mála hinum fram­bjóðend­un­um,“ sagði Biden þá. Trump brást við með því að segja að verðbréfa­markaður­inn muni hrynja nái Biden kjöri. Biden svaraði þá að venju­legt fólk lifi ekki af verðbréfa­markaðinum.

01:53

Hvað varðar heil­brigsðis­trygg­ing­ar seg­ist Trump ætla að leggja fram „frá­bæra áætl­un“ sem geti komið í staðinn fyr­ir Obamacare. Biden sagði þá að Trump hafi talað um slíka áætl­un í lang­an tíma en al­menn­ing­ur sé enn engu nær um hvað slík áætl­un eigi að snú­ast um. Biden seg­ir mik­il­vægt að Banda­ríkja­mann geti nýtt sér op­in­ber­ar heil­brigðis­trygg­ing­ar kjósi þeir það. Það eigi að vera und­ir hverj­um og ein­um komið hvort að borg­ar­ar velji að nýta sér op­in­ber­ar heil­brigðis­trygg­ing­ar. Trump sagði þá að Biden hafi verið í Banda­ríkjaþingi í fleiri ára­tugi en aldrei lagt fram áætl­un utan um heil­brigðis­trygg­ing­ar áður.

01:46

Nú hef­ur umræðan færst að mál­efn­um Norður-Kór­eu. Biden seg­ist ekki ætla hitta Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kór­eu, án fyr­ir­fram ákveðinna skil­mála. Trump sagði þá að Obama og Biden hafi reynt að hitta hann, en að Kim Jong-un hafi ein­fald­lega ekki líkað vel við Obama.

Biden og Trump hafa skipst á að saka hvorn ann­an um að hafa átt í vafa­söm­um viðskipt­um er­lend­is, meðal ann­ars í Kína. Trump hef­ur meðal ann­ars talað um viðskipti Hun­ter Biden í Úkraínu og víðar sem hann seg­ir hafa verið „hræðileg“. Biden sagði þá að viðskipti Hun­ter í Úkraínu hafi verið rann­sökuð og ekk­ert at­huga­vert hafi verið við þau.

Trump seg­ist hafa greitt at­vinnu­rek­end­um í land­búnaði millj­arða doll­ara sem hann hafi fengið frá Kína. Biden sagði þá að Kína hafi ekk­ert greitt, um­rætt fé hafi komið frá skatt­greiðend­um. Biden sagði þá að aðal­málið væri hvort að hinn hefðbundi Banda­ríkjamaður hefði það betra í dag en fyr­ir fjór­um árum. „Týpísk­ur stjórn­mála­maður, ég er ekki týpísk­ur stjórn­mála­maður,“ sagði Trump þá og sakaði Biden um að færa umræðuna frá Kína.

Trump nýtti tæki­færið til að beina spjót­um sín­um að Biden og sagði meðal ann­ars að sá síðar­nefndi muni hækka skatta og fleira. Biden aft­ur á móti sagði að per­sóna þjóðar­inn­ar væri und­ir í kosn­ing­un­um. Hann sagðist velja von fram yfir ótta og að hann yrði for­seti allra, bæði þeirra sem kusu hann en ekki síður þeirra sem kusu Trump."

 

Þarna hefur Moggi náð ýmsu betur en ég svo ég læt þetta fylgja til upplýsingar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halldór. Stam er ekki heilabilun. Þessi della að Biden sé heilabilaður er hálf ömurleg míta. Ef þeir sem segja þetta vissu bara hvað heilabilun hefur í för með sér? Þetta er ekki eitthvað sem menn hafa í flimtingum.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 23.10.2020 kl. 08:14

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Svona stam  er ekki góðs viti Jósef minn, þetta er ekki stam í venjulegum skilningi. Ég þekki heilabilun svolítið og hún ekkert sem kemur alltí einu heldur eru forstig.Við skulum vona það besta fyrir Joe.

Halldór Jónsson, 23.10.2020 kl. 11:24

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Halldór.

Bandaríska þjóðin kaus Trump af því að hún vildi ekki fá stjórnmálamann. Hún vildi fá atahafnamann. Mann sem afhendir vöruna á réttum tíma og stendur við það sem hann lofar. 

Það sama gildir núna. Þjóðin vill jarðýtuna Trump en ekki stjórnmálamanninn Biden.

Trump er ekki stjórnmálamaður og hann gerir allt til að koma þeirri staðreynd á framfæri og tekst það vel.

Svo já: veggir fína fólksins munu halda áfram að hristast og myndarammarnir á munu halda áfram að hanga skakkar. Jarðýtan er ekki enn búin með verkið sem Trump bauð í.

Grunnurinn er kominn og burðarvirkið líka. Á næsta kjörtímabili mun hann setja þakið á og klára fráganginn að utan og lóðina. Síðan mun flokkur Repúblikana flytja inn og búa óáreittur í húsinu í langan tíma.

Þannig er nú það.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 23.10.2020 kl. 11:51

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Mæltu manna heilastur Gunnar 

Halldór Jónsson, 23.10.2020 kl. 15:51

5 identicon

Trump er bara Jón Gnarr bandaríkjanna, Gunnar. Endingin er bara eitt kjörtímabil rétt eins og hjá Jóni. Óánægjuframboð. Engin sérstök jarðýta . Ég man nú eftir í vegavinnunni í den að Jobbinn stóð alltaf fyrir sínu og skilaði góðu verki. Er bara ekki kominn tími á Jobba?

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 23.10.2020 kl. 18:55

6 identicon

 Sæll Halldór.

Mér finnst það eftirtektarvert að Jo Biden skuli ekki
eiga einn einasta kunningja eða vin innan eða utan demókrataflokksins sem bendir honum á að hann
þjáist þegar af minnisglöpum og undirliggjandi
getí verið alvarlegur sjúkdómur.

Trump lék sama leikinn og í fyrri umræðum að þjarma
að honum í lok umræðunnar þegar hann var orðinn þreyttur
með þeim árangri að Biden gjörtapaði í þessum kappræðum.

Mér finnst sorglegt að sjá að þessi maður eyði síðustu
árum ævi sinnar í þetta rugl jafn augljóst sem það er
hvað hann er farinn að heilsu.

Trump galt fyrir það að hafa ekki lært af mistökum sínum frá
fyrri kappræðum og það setti sinn svip á frammistöðu hans;
hann vann ekki heimavinnuna eða þá sízt skárri sem hinn er verri!

Enda þetta á því sem þótti heldur klént á fyrri tíð:

Allt fer þetta einhvern veg, Halldór minn!

Húsari. (IP-tala skráð) 23.10.2020 kl. 21:26

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Trump sagði eitt hvasst við Joe sem ég tók eftir þagar Rússlandstengslin og mútugreiðslur  bara á góma:

Þú ert spilltur stjórnmálamaður Joe. 

Halldór Jónsson, 24.10.2020 kl. 14:14

8 identicon

Ég fell alltaf fyrir skoðunum Gunnars Rögnvaldssonar varðandi Leiðtogann TRUMP.  Hann er baráttumaður fyrir AMERIKU og Vesturlönd.

Andlegur máttur fylgir KARLINUM varðandi næstu kosningar 3.nóvember.  ALLAR tölur "dæmdra" DEMÓKRATA, sem lifa á "RÍKISHÍTINNI" verða fyrir miklu áfalli til næstu ára.  

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 24.10.2020 kl. 14:58

9 identicon

 Sæll Halldór.

Það er nú einmitt málið því það þarf verulega siðblindu til
að þykjast vera í framboði en þegar er ráðið
að Kamala Harris verði fyrsta konan til 
að gegna embætti forseta Bandaríkjanna.

Joe Biden skrollar og rúllar á orðunum og sem aldrei
fyrr í lok kappræðunnar sem er einmitt einkenni heilabilaðra.

Þetta vita lesendur þínir, Halldór.

Eru líkur á því að heil þjóð og stærsta herveldi heims
kjósi yfir sig Joe Biden til forseta þegar þetta liggur fyrir?

Segir það svo ekki nokkuð um eigendur þeirra sem gera skoðanakannanir ef svo færi í annað skipti í röð að
þeir hafa kolrangt fyrir sér.

Ef allt er eðlilegt ætti sigur Trumps að vera afdráttarlaus
og svo mikill að þau tonn af atkvæðaseðlum sem demókratar
hafa mokað á pósthúsin hafi ekkert að segja; sigur Trumps afgerandi og afdráttarlaus 3. nóvember 2020.

Húsari. (IP-tala skráð) 24.10.2020 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband