23.10.2020 | 12:58
Við viljum Villa !
á þing. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum lektor undirstrikar enn á ný víðsýni sína og víðtæka reynslu af lífinu og fjölbreyttri atvinnuþátttöku sinni skrifar í Mogga dagsins.
Mér finnst ekki úr vegi að taka þetta upp þar sem manni er sagt að æ færri lesi blöð sér til gagns og að hlutur Mogga sé ekki sá sami og var.Þeir fáu sérvitringar sem heimsækja þetta blogg reka kannski augun í þetta og þá er vel þar sem Mogginn borgar kostnaðinn af bloggsíðunni.
En Villi segir:
"Sá er þetta ritar hefur fylgst með atvinnulífi í sem næst 60 ár. Einhverjum kann að þykja það mörg ár miðað við aldur. Svo bar til þá er ég var 9 ára gamall að ég var sendur í sveit í bæ. Þar voru himinn og fjöll öðruvísi en í Reykjavík. Frjálst framtak, sem ég sá í Reykjavík, var reykhús í Klömbrum á Klambratúni og síðar kartöflurækt í Kringlumýri, þar sem nú er Kringlan.
Nýr himinn og ný fjöll
Hinn nýi himinn og nýju fjöll voru austur á Djúpavogi við Berufjörð. Atvinnulíf byggðist á sjávarútvegi. Þar var Kaupfélag með frystihús og tvo báta, og fjórir bátar hjá frjálsu framtaki skipstjóra og fjölskyldum þeirra. Svo voru nokkrir, sem gerðu út vörubíla. Sumardvalirnar urðu þrjár og á síðasta sumrinu var söltuð síld, og reyndar sú fjórða á bæ á Berufjarðarströnd. Ári áður hafði ég saltað síld undir enn öðrum himni við önnur fjöll í Neskaupstað. Það var launuð vinna á Mánaplaninu og þar fékk ég greiddar 39 krónur fyrir eina tunnu saltaða. Söltunarstöðin Máni var frjálst framtak í návist Síldarvinnslunnar, sem ekki hafði byrjað sína stórútgerð. Daginn eftir fermingu mína, tveimur dögum fyrir fjórtán ára afmælisdaginn, hóf ég launaða vinnu hjá menningarfélagi hins frjálsa framtaks, Almenna bókafélaginu. Ég hef verið í launuðu starfi hjá smákapítalistum og ríkisstofnunum í full 55 ár.
Hverjir eru smákapítalistar?
Sennilega er ekkert hugtak jafn útjaskað og afflutt og kapítalismi, eða auðhyggja, ef reynt er að færa hugtakið á íslensku. Í bók eftir þýska fræðimanninn Max Weber fjallar hann um Auðhyggju og siðfræði mótmælenda. Meginboðskapur Max Weber fjallaði um iðjusemi og sparsemi mótmælenda, sérstaklega kalvínista. Með gildum rökum má heimfæra rök Max Weber um auðhyggju, iðjusemi og sparsemi til viðhorfa sósíalista í Neskaupstað, sem stofnuðu og ráku Síldarvinnsluna. Það má einnig heimfæra rök Max Weber til viðhorfa sr. Friðriks Friðrikssonar í starfsemi KFUM&K. Iðjusemi og sparsemi er forsenda auðhyggju og frjáls sparnaðar. Mammon kemur fyrst við sögu í græðgi og undirferli. Þá er fjandinn laus.
Viðhorf auðhyggumanna
Viðhorf atvinnurekenda á Akranesi og í Bolungarvík voru svipuð og viðhorf sósíalista í Neskaupstað. Það mátti engin vinnufús hönd vera án atvinnu. Á öllum þessum stöðum, hvort heldur Akranesi og Bolungarvík þar sem einstaklingar höfðu forystu í atvinnulífi, eða á Djúpavogi þar sem samvinnuhreyfingin hafði forystu í atvinnulífi, eða í Neskaupstað þar sem sósíalistar höfðu forystu í atvinnulífi, allir virðast undir áhrifum Max Weber, vitandi eða óafvitandi. Á öllum þessum stöðum voru einyrkjar og smáatvinnurekendur með atvinnurekstur, sem sinntu nauðsynlegri starfsemi fyrir samfélagið.
Reynslan frá Vestmannaeyjum
Umfangsmest reynsla mín af atvinnulífi er í starfi mínu í Útvegsbankanum í Vestmannaeyjum. Veganesti mitt til þess starfa frá bankastjóranum í Reykjavík, að því er ég taldi sósíalista; var ekki rífa kjaft við kallana í Vestmannaeyjum því þar eru þeir miklir menn. Í Vestmannaeyjum voru þrjú stór frystihús, átta loðnubátar og fjórir togarar, sem fjölgaði í sjö, og fjöldi minni báta. Eigendur nokkurra loðnubáta og minni bátanna voru skipstjórar, smáatvinnurekendur, sem létu sér annt um sinn atvinnurekstur og ekki síður sinn mannskap, og rétt eins og sr. Friðrik, höfðu umhyggju fyrir sínu fólki. Auk útgerðarmanna var fjöldi smáatvinnurekenda, sem ráku margs konar þjónustustarfsemi, til að veita bæjarbúum og atvinnulífi þjónustu. Mér hefur alltaf verið mjög hlýtt til þeirrar þjónustu, sem netagerðir veita útgerðarfyrirtækjum. Enginn veiðir fisk án veiðarfæra.
Breytingar í kjölfar breyttrar fiskveiðistjórnunar
Þegar stjórnvöld töldu rétt og eðlilegt að takmarka sókn í fiskistofna, var aflahlutdeild úthlutað til bráðabirgða á grundvelli veiðireynslu. Sú úthlutun á aflaheimildum átti aldrei að verða varanleg eða grundvöllur eignarheimildar. Samþjöppun er aldrei hægt að réttlæta með hagkvæmni einni saman. Það kann að draga úr hagkvæmni með eðlilegri gjaldtöku. Þá færist arður af auðlind til samfélagsins. Það er vissulega arður til samfélagsins að ekki þarf að fella gengi vegna aflabrests eða verðfalls. Það er alveg ljóst að löggjafinn hefur allar heimildir til að endurúthluta eða taka leigu af aflaheimildum á grundvelli löggjafar. Til þess þarf ekki heimild í stjórnarskrár.
Samþjöppun og fækkun smákapítalista
Á þeim 35 árum, sem liðin eru frá úthlutun aflaheimilda, hefur ein stétt horfið. Það eru smákapítalistarnir, nema ef til vill trillukarlarnir, sem stunda strandveiðar. Að því var aldrei stefnt. Hvergi er hið frjálsa framtak eins augljóst og í eðli og innræti trillukarlsins. Enda sagði einn samherji íslenskra trillukarla, sem jafnframt var bóndi en dæmdur og húðstrýktur fyrir snærisþjófnað, Jón Hreggviðsson bóndi á Rein, mér er samahvort ég er sekur eða saklaus, ég vil aðeins hafa bátinn minn í friði. Með bátnum og snærinu öðlaðist Jón Hreggviðsson sjálfstæði til að verða mikill maður. Mun það skaða íslenska fiskistofna ef trillukörlum er heimilt að stunda veiðar umhverfis Ísland? Vissulega er það fiskur af grunnsævi, en það má ná orminum úr holdinu. Margir háskólanemar hafa komist hjá námslánum með því að vera trillukarlar og trillukonur að sumri. Á Suðurnesjum hafa aflaheimildir flust í burtu. Með því hafa atvinnuhættir breyst. Suðurnes er þjónustusamfélag. Það er mikill fjöldi smákapítalista og einyrkja, sem veita flugtengdri starfsemi ferðaþjónustu sína þjónustu.
Breytingar í Reykjavík
Það er í raun allra eðlilegasti hlutur að atvinnuhættir breytast. Reykjavík hefur breyst úr framleiðslusamfélagi í þjónustusamfélag. Eitt sinn voru 25 togarar gerðir út frá Reykjavík. Þeir öfluðu fyrir fimm stór frystihús. Þau eru öll horfin. Framleiðniaukning í framleiðslusamfélagi krefst aðfanga úr þjónustusamfélagi. Atvinnuleysi hefur ekki aukist og lífskjör hafa ekki versnað við að reykhús hefur lokað á Klambratúni og kartöflurækt er horfin úr Kringlumýri.
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn gleymt trillukörlum?
Það er álitamál hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur gleymt sínu traustasta stuðningsfólki.
Frelsi og framtak í atvinnumálum er ekki aðeins fyrir útvalda.
En eins og skáldið sagði:
Og
margir
vinna mikið
og lengi að því
að mega loks vera
að því
að vera
(Andræði, Sigfús Bjartmarsson)"
Vilhjálmur Bjarnason fyrrum lektor við Háskóla Íslands var Alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í áravís. Hann tók þátt í prófkjöri flokksins og lenti í öruggu sæti.Fyrir aðför formanns flokksins að úrslitum prófkjörsins samkvæmt reglum flokksins og Kjördæmisráði fékk formaður því framgegnt að Vilii var lækkaður niður um sæti til að leiðrétta kynjahalla listans.Við sætinu tók Bryndís Haraldsdóttir úr Mosfellsbæ. Hún hefur auðvitað ekkert staðið sig illa sem glæsileg kona vel gerð til munns og handa.En hvort þessi aðferð formanns breytti einhverju um fylgi Sjálfstæðisflokksins á eftir að koma í ljós.
Vilhjálmur, eða Villi Bjarna eins og þjóðin kallar hann dregur enga dul á það að hann ætlar sér í framboð aftur. 68 ára fer hann að nálgast lágmarksaldur sem menn þurfa til að bjóða sig fram í Forsetaembætti Bandaríkjanna.En það má víst ekki ræða hérlendis þar sem sem flestir eiga að vera á framfærslu og kjósa Samfylkingarflokkanna sem vilja gera allt fyrir alla. Og sérdeilis Trump skyldi nú vinna verður jarmið háværara í Ingu Snæland sem vill útrýma fátækt hjá öllum sem höllum fæti standa.
Villi er ekki frá því að kosið verði í vor frekar en í haust þannig að hann er til alls vís. Eitt er víst að ég tel Villa eiga fullt erindi inn í þingmannahópinn og tel að það muni ekki lækka þá greindarvísitölu sem þar er að finna eftir að fylgjast talsvert með ræðum Pírata á þeim ágæta stað í sjónvarpinu.
Hugmynd að slagorði fyrir kosningarnar:
Við viljum Villa!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.