Leita í fréttum mbl.is

Rétta fólkið?

eru þau Þórhildur Sunna sem situr sem fastast á þingi eftir sekt sína sem hefði átt að leiða til afsagnar og Logi Már til að krefjast afsagnar Bjarna Ben vegna yfirsjónar í fjöldatakmörkun.

Nú vantar bara að RÚV taki kröftuglega undir með þessu dáindisfólki sem kunna bara eina tillögu í fjármálum: Hækka útlát og auka tap ríkissjóðs.

Skyldu þessi skötuhjú vera rétta fólkið sem þjóðin treystir betur en Bjarna Benediktssyni til að stjórna þjóðinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Fjarri því. Ekki treysti ég öðrum en Bjarna fyrir fjármálastjórn þjóðarinnar. Þetta var sérlega óheppilegt. Ég get ekki sagt annað. Gleðileg jól.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2020 kl. 14:07

2 Smámynd: Hörður Þormar

Ósköp eru það léleg rök til varnar afglöpum Bjarna Benediktssonar  að "hinir" séu ekkert skárri.

En þrátt fyrir það:

Gleðileg jól!

Hörður Þormar, 24.12.2020 kl. 15:20

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Logi kvaðst telja eðlilegt að Bjarni íhugaði stöðu sína og hugsanlega afsögn. Það er ekki það sama og að krefjast afsagnar. 

Erfitt er að sjá hvernig hægt verði að kenna RÚV um þetta. Samfélagsmiðlar höfðu logað og búið að segja frá þessu á öðrum ljósvakamiðlum þegar RUV sagði frá þessu. 

Ómar Ragnarsson, 24.12.2020 kl. 15:23

4 identicon

Sæll Halldór.

Í hugum flestra þegar Bjarni Benediktsson er annarsvegar
koma upp lyndiseinkennin: ráðvandur, grandvar, réttlátur.

Með því að langflestir eiga það sammerkt með mér
að vekja mundi hlátur fremur en annað ef nefnt yrði
þá er skiljanlegt að öfund og afbrýði gegnumsýri
hin grandvöru hjörtu í stað þess að í nokkru sjáist að
stórhátíð kristinna manna gengur í garð eftir
nokkrar klukkustundir.

Ég á ekki von á að Líkaböng hringi í dag enda vandséður
annar eins hópur uppþotsmanna sem hæst hrópar.
Þar heggur sá er hlífa skyldi og gerði vel í því að
þeyta ekki grjótblökk úr glerhúsi sínu.

Ísspangir sem áður léðu efnivið sinn til yfirgöngu
hefðu skilað slíku fólki til síns heima.
(sbr. þjóðsögu þar um)

Húsari. (IP-tala skráð) 24.12.2020 kl. 15:34

5 identicon

Rétta spurningin er ekki hvort einhver treysti Loga og Þórhildi Sunnu heldur hvort hægt sé að treysta Bjarna. Hjá mörgum þjóðum kallar svona hegðun á tafarlausa afsögn. Svona hugsanagangur og hegðun er að kosta okkur milljarða. Margfalt meira en allir flóttamenn og hælisleitendur frá lýðveldisstofnun. En við eigum víst ekki pólitíkusa með siðferði sem við getum státað okkur af eða einhverja virðingu fyrir okkur. Þannig að Bjarni situr sennilega áfram eins og kúkur á stofugólfi. Og við sættum okkur við það, heimskir sauðir ljúfir sem lömb, að fjármálaráðherra hafi ekki kunnað við að fara úr skónum til að telja yfir 10.

Vagn (IP-tala skráð) 25.12.2020 kl. 00:40

6 identicon

Varðandi Þórhildi Sunnu, þá hefði hún átt að segja af sér á sínum tíma og hið sama gildir um Bjarna Ben.  Hann sýndi gríðarlegan dómgreindar- og trúnarbrest.  Það þýðir ekki að skrifa á facebook "afsakið" og þar með er málið dautt.  Hann verður að taka ábyrgð á gjörðum sínum.

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 25.12.2020 kl. 11:01

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

RUV brást þér ekki

þar var áðan með laaangt viðtal við

Eirík B viðutanprófessor

sem telur að VG séu alveg miður sín

og að BB hafi brugðist kjósendum VG

Grímur Kjartansson, 25.12.2020 kl. 12:31

8 identicon

Að Barni Ben segi af sér vegna fjöldatakmarkana er hátt skotið.

Aðalmál í mínum huga eru "æstir" ESB sinnar í flokkum, sem mega hverfa af virtu ALÞINGI vegna ástar og umhyggju fyrir embættisveldinu í Brussel. Horfum til BRETLANDS, sem hefur yfirgefið getu og gagnleysi ESB.

Fullveldi og sjálfstæði OKKAR ásamt 200 mílna fiskveiði lögsögu er í HÆTTU.  Spörum miljarða á ári og kjósum OKKUR frá öllum skyldum við stjórnleysi Evrópu.

Stjórnum sjálfir öllum okkar vandamálum og seljum sjálfir okkar ómenguðu framleiðslu, sem er eftirsótt af heiminum. Spörum miljarða kostnað sem fara í Alþjóðarugl og "drauma".

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 25.12.2020 kl. 20:35

9 identicon

Kjósum ESB sinna frá virtu ALÞINGI, sem vinna gegn ÍSLANDI. ÞJÓÐARLEIÐTOGA og "nationalista" vanta á okkar ALÞINGI. Vinnum með ÍSLANDI ekki á móti ÍSLANDI. Þeir sem svíkja á ALÞINGI verða "útlægir"?

Ráðherrar og Alþingismenn, sem "vinna gagn" fyrir Þjóðina og okkur KJÓSENDUR eiga að hafa föst LAUN.

ÞEIR, mega fá "umbun" launa fyrir vel unnin störf: UTANRÍKISMÁL, eins og Alþjóða"draumar" Gretu Tunberg, ESB og pólutiskt vafstur og svika demokrata Vestanhafs mundi spara fátækum RÍKISSJÓÐI milljarða. 

BÆNDAUR með ómengaða framleiðslu og eru vissulega hluti af HÁLENDINU. ÞEIR skaffa tugþúsunda starfa á Landinu OKKAR.

GRÓÐURHÚSIN blakta fyrir gæðin og ómengaða ræktun með heita vatninu. RAFMAGNIÐ þarf að lækka fyrir heimamarkað og til útflutnings. ERLENDIR dásama gæðin frá ÍSLANDI.

SJÁVARÚTVEGURINN, norðurhöfin, vísindin, framleiðslan og vinnslan ber af á heimsvísu. ALLIR vilja ÍSLENSKT.

Er rétt að fylla Háskólann af erlendu fólki til að læra allt um heita-vatnið og einstæða Heitavatnsorkuna?

Því miður höfum við fyllt landið okkar af vandamálum Evrópu og Norðurlanda.  Þennan óhefta innflutning ólíkra þjóða verður að grandskoða og stöðva.  300/þúsund ÍSLENDINGAR ráða ekki við þetta farg ESB sinna í getulausri Evrópu.

ÞJÓÐARLEIÐTOGAR: opnið ykkur fyrir ÍSLAND og ÍSLENDINGA. Það er ósk ALLRA ÍSLENDINGA og þeirra, sem búa hér.  KEYRUM Á OKKAR HRAÐA OG EIGIN VISKU.

AÐEINS tveir stjórnmálaflokkar tala fyrir NÝJU ÍSLANDI með afbragðs FORMÖNNUM. 

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 26.12.2020 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3418314

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband