Leita í fréttum mbl.is

Meira Mega!

Leiðarinn varar við þeim skelfingum sem framundan geta verið íslenskum stjórnmálum ef litlu flokkarnir ljótu komast til áhrifa í haust.

Þó ekki sé allt gáfulegt sem frá núverandi ríkisstjórn hefur komið þá getur lengi vont versnað sem dæmin sanna.

Leiðarinn segir:

"Nú er hálft ár í kosningar. Flokkum fjölgar og sumir þeirra sem fyrir eru hafa upp á fátt að bjóða. Systurflokkarnir, Samfylking og Viðreisn, sjá ekkert nema Evrópusambandið og hafa að öðru leyti lítið fram að færa. ESB er ekki efnilegur dráttarklár í næstu kosningum, ef að líkum lætur. Kommisserar þessa nútíma sovétkerfis sem klúðruðu bóluefnamálum sínum með sögulegum hætti náðu hins vegar að bólusetja almenning svo hressilega gegn sér að það þarf ekki fleiri skammta í bráð gegn þeirri veiru.

En það eru fleiri tilefni til sömu niðurstöðu. Á það benti Ásgeir Ingvarsson í prýðilegri grein sinni nýlega. Þar sagði meðal annars: „BBC fjallaði nýlega um það skýrslufargan sem núna fylgir útflutningi á breskum fiski til Evrópu. Mig grunar að það hafi vakað fyrir blaðamönnunum að sýna hvers konar reginmistök það voru að ganga úr ESB en þvert á móti sýnir umfjöllunin hvað Evrópusambandið er orðið mikið óhræsi.

Í dag þarf, samkvæmt úttekt BBC, að framvísa samtals 71 blaðsíðu af flóknum eyðublöðum og vottorðum til að koma einum bílfarmi af fiski í gegnum tollinn Evrópumegin. Að fylla út pappírana kostar ótal vinnustundir og vitaskuld má ekkert klikka því minni háttar mistök á einu eyðublaði þýða að viðkvæm varan situr föst á landamærunum. Geta breskir útflytjendur sjávarafurða núna vænst þess að vörur þeirra séu um það bil sólarhring lengur að berast í hendur kaupenda í Evrópu.

En það sem Bretar eru að upplifa er einfaldlega það sama og öll heimsbyggðin hefur hingað til þurft að þola af hálfu ESB. Einu sinni var hún algjörlega ómótstæðileg: létt og lipurt bandalag sjálfstæðra þjóða með það göfuga markmið að tryggja frið í álfunni og bæta hag almennings með því að hámarka frelsi í viðskiptum. Í dag er hún orðin þunglamaleg, eigingjörn og dyntótt, og utan um innri markaðinn er búið að reisa háa múra reglugerða og formkrafa til að verja evrópska framleiðendur fyrir erlendri samkeppni.

Erlendir framleiðendur og evrópskir neytendur skipta tjóninu á milli sín: Heimilin í Róm, Ríga og Rúðuborg þurfa að borga hærra verð fyrir brasilískar appelsínur og kínverskar sokkabuxur svo vel tengdir garðyrkjubændur í Portúgal og sokkaprjónarar í Þýskalandi eigi auðveldara með að halda rekstri sínum gangandi.

Þetta hafa gagnrýnendur ESB bent á um árabil og skortir ekki dæmin um hvernig frelsishugsjónin hefur þurft að víkja fyrir verndun sérhagsmuna. Þegar Brexit þjóðaratkvæðagreiðslan var haldin árið 2016 voru í gildi í Evrópusambandinu um 12.600 sértollar á innflutning af öllu mögulegu tagi, og hefur þeim bara fjölgað síðan þá.“ Eini árangur ESB upp á síðkastið er að bólusetja almenning rækilega gegn þessari skrifræðisblokk } Einn bílfarmur – 71 síða!

               Öngþveiti í Brüssel

 

 

Reglugerð ESB um útflutningshömlur á bóluefni er skýlaust brot á EESsamningnum.

Það er skýringin á óvenjuhörðum viðbrögðum íslenskra stjórnvalda, sem létu sér ekki nægja orð Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar, um að þetta yrði ekkert mál, auðvitað fengi Ísland sitt bóluefni, sama hvað stæði í reglugerðinni, heldur krefjast þess að henni verði breytt.

Áhyggjuefnin eru þó fleiri. Það er annarlegt að ESB láti lög og reglur lönd og leið í bóluefnastríði sínu við Breta. Það er uggvænlegt að EESsamningurinn hafi engu skipt. Það er ekki traustvekjandi að reglugerðin hafi flogið í gegn þótt hún gengi gegn alþjóðaskuldbindingum á borð við EES-samninginn, Mannréttindasáttmála Evrópu og standist tæplega Lissabonsáttmálann heldur. Með ólíkindum er að enginn hafi hugleitt pólitískar afleiðingar hennar. Og það er fráleitt að blekið hafi ekki verið þornað á reglugerðinni þegar forsetinn segist sniðganga hana að hentisemi. Bóluefnakreppan hefur dregið fram hvernig ESB er orðið, þar ríkir nú fúsk, gerræði og öngþveiti."

Ef Samfylkingarsullið á að komast til valda undir forystu Loga Más, Þorgerðar Katrínar, Benedikts Zoega, Þorsteins Pálssonar, Ola Bieltvedt, Píratapakksins og ámóta liðs sem er hvarvetna að finna í stjórnkerfi landsins, þá verða núverandi vandamál hjóm eitt.

Því er Mega-Mogginn í dag allrar athygli verður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er stórkostlegt að rýna Morgunblaðið í dag varðandi áhættu okkar og öngþveitið í Brussel. Þetta verður að vera okkar aðal baráttumál ÍSLENDINGA um næstu kosningar. Við kjósum ekki ESB sinna og húskarla til Alþingis.

Þingvellir, Öxarárfoss, Sagan, Ritstörf, Bókmenntir og Landafundir ÍSLENDINGA vöktu heimsathygli. Við vorum í fyrsta sæti og erum enn. Látum ekki Alþjóða og Glóbalista ráða ferðum okkar varðandi orkuna og virkjanir og ómengaða framleiðslu á öllum sviðum.

Ég kýs þann stjórnmálaflokk, sem keyrir að fullu með ÍSLANDI, en ekki með getu, gagnleysi og öngþveiti ESB. 

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 26.3.2021 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband