Leita í fréttum mbl.is

Af hverjum andskotanum

erum við að skapa okkur þessi vandamál á landamærunum?

Af hverju segjum við ekki flugrekendum og Norrænu að enginn fái að fara frá borði sem ekki er bólusettur, mótefnamældur eða með nýtt smitpróf við komuna til landsins? Það er þeirra vandmál.

Af hverjum andskotanum erum við að skapa okkur þá áhættu að leyfa farþegaflytjendum að koma hingað með öll þessi vandamál?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einu vandamálin sem eru í gangi eru þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa sett upp fyrir eitthvað sem er lítið alvarlegra en slæmt flensu ár.  

Þegar MERS veiran (sami stofn og SARS) fór á stjá ef ég man rétt 2003, veira sem er 10x líklegri til að draga fólk til dauða en covid veiran þá var ekkert gert, mannkynið er ennþá lifandi.

Þegar fyrri SARS veiran sem var 2.5x líklegri til að draga fólki til dauða (undanfari þessarar) fór á flakk (2007?) þá var ekkert gert og viti menn, mannkynið er ennþá lifandi. 

Núna erum við með vægasta(IFR) afbrigðið af þessari veiru til þessa og allt verður brjálað, aðgerðir stjórnvalda eiga eftir að valda miklu fleiri dauðsföllum og skaða heldur en þessi veira gæti nokkurntíman gert.

Halldór (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 16:56

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Það er ekki bæði sleppt og haldið, og í stað þess að feisa hinn raunverulega vanda, þá er það billeg lausn að skella skuldinni á aðra en þá sem ábyrgðina bera.

Sóttvarnir halda ef þær tækla raunveruleikann.  Og það er vitað að skimun, 5-7 daga sóttkví, seinni skimun, útiloka innlend veirusmit.

Þeir sem flytja farþega til landsins, og mundu að fólk hefur rétt að koma hingað, jafnt innlendir sem eiga heima hér, sem og erlendir sem eiga hingað erindi, hafa aldrei sett sig á móti þessu fyrirkomulagi sóttvarna á landamærunum.

Það eru innlendir sem það gera, og þú þekki mætavel þeirra síðustu hervirki.  En í stað þess að skamma þá, þá ertu svo kjarklaus, að þú agnúast út í þá sem enga ábyrgð bera, aðra en þá að tryggja samgöngur þjóðarinnar við útlönd.

Ekki er mikið ris þar að baki.

Lestu pistil Jóns Magnússonar í dag Halldór, hann hreykir sig af því að vera sjálfstæðismaður, og bendir á að ógæfufólkið sem vann með honum, að það er líka í flokknum þínum.

Ókei, eigi berðu ábyrgð á gjörðum allra sem í flokk þínum eru Halldór, en ég man ekki betur en að ég sé nýbúinn að lesa pistil hjá þér þar sem þú tjáir hreykinn að nú sé nýtilkominn félagsskapur innan Sjálfstæðisflokksins sem kennir sig við sjálfstæði.

Og formaður þess félagsskapar, sem þér fannst mælast svo vel, er þessi sami Jón Magnússon.

Og þú rífst við Norrænu, kallast þetta ekki að hengja heilt bakarí fyrir smið Halldór.

Þetta kallast allavega að þekkja ekki óvini sína.

Og þú veist hvernig það endar.

Það er ekki bæði sleppt og haldið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.4.2021 kl. 18:35

3 identicon

Það er oft gaman að lesa bloggið þitt þegar þú hoppar upp á nef þitt yfir ástandi sem hefur ekki verið til staðar í daga og stundum marga mánuði. Það er oft eins og þú fáir fréttirnar með skipi og vitir ekkert hvað er að ske í kringum þig.

Flugrekendur og Norræna hafa í nokkrar vikur ekki hleypt neinum um borð sem ekki er bólusettur, mótefnamældur eða með nýtt smitpróf. En við komuna til landsins er þeim samt gert að fara í skimanir og sóttkví. Samanber U20 landsliðið sem eftir 8 skimanir og sóttkví meðan dvalist var rúma viku erlendis þurfti við komuna heim að gista á sóttvarnarhóteli yfir páskana og fara tvisvar í skimun.

Vagn (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 22:08

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Flugrekendur og Norræna hafa í nokkrar vikur ekki hleypt neinum um borð sem ekki er bólusettur, mótefnamældur eða með nýtt smitpróf. En við komuna til landsins er þeim samt gert að fara í skimanir og sóttkví. Samanber U20 landsliðið sem eftir 8 skimanir og sóttkví meðan dvalist var rúma viku erlendis þurfti við komuna heim að gista á sóttvarnarhóteli yfir páskana og fara tvisvar í skimun.

Merkilegt er það þá að öll þessi smit skapast eftir þennan stutta spöl til landsins ef þetta væri rétt hjá Kerrunni

Halldór Jónsson, 7.4.2021 kl. 00:28

5 identicon

"Öll þessi smit" eitt eða tvö á dag í landi þar sem ekki hefur tekist að finna uppruna margra smita og afmá innanlandssmit. Á meðan virk smit eru aðallega hjá fólki sem ekkert tengist ferðalögum og hefur ekki umgengist komufarþega munu hertar reglur eða lokun landamæra ekki skila neinu. 

Vagn (IP-tala skráð) 7.4.2021 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418200

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband