Leita í fréttum mbl.is

Fyrirlitnar skoðanir

eru greinilega þeirra sem ekki aðhyllast ESB og Evróputrúboðið.

Málgagn ESB hér á landi,Fréttablaðið, vill stjórna tilfinningum og skoðunum fólks á stóru sem smáu.Þannig á að gjöra veg ESB beinan.

Einn leigupenni blaðsins, Aðalheiður Ámundadóttir, lýkur leiðara Fréttablaðsins í dag þannig:

"..Stjórnvöldum er vorkunn. Fjölmiðlafólk finnur fyrir þessum ótta líka enda er ógnin raunveruleg.

Andúð á innflytjendum er raunveruleg á Íslandi. Þegar slík andúð verður til þess að við getum ekki talað saman, miðlað upplýsingum og tekið ákvarðanir byggðar á þeim verður hún ógn við þjóðaröryggi.

Það er lífsspursmál að auka umburðarlyndi og náungakærleik hér á landi. Útlendingaandúð og fordómar eru ekki síður ógn við þjóðaröryggi en hryðjuverk, skipulögð brotastarfsemi og farsóttir.

Ef stjórnvöld geta ekki veitt borgurum upplýsingar af ótta við fordómafull viðbrögð, þurfum við að horfast í augu við að okkur sé ekki treystandi fyrir upplýsingum. Þá eigum við gegnsæið ekki lengur skilið. Við þurfum að horfast í augu við og viðurkenna þetta.

Reiðialda hefur farið um landið undanfarna daga vegna meintra sóttvarnabrota. Látum okkur frekar renna þá reiði en hella olíu á eld útlendingaandúðar og verum traustsins verð.

Þau smit sem komast inn fyrir landamærin verða aldrei pólskum innflytjendum að kenna.

Þau eru ekki síst afleiðing af vanmætti okkar til að ráða niðurlögum haturs og umburðarleysis. Við verðum að gera betur."

Það er greinilega bannað að hafa skoðun á fullveldi Íslands og frelsi til að hugsa sjálfstætt í alþjóðamálum. Fréttablaðið á að ákveða hvað okkur finnst í innflytjendamálum og afstöðunni til ESB. Ég á ekki að hugsa slíkt fyrir mig hvað þá aðrir óupplýstir fullveldissinnar.Við eigum að falla fram og krjúpa fyrir Fréttablaðinu.

Ég tel mig vera sjálfan lausan við altæka útlendingaandúð enda dvalist langdvölum með öðrum þjóðum. Ég virði þær mismikið skal viðurkennt. En að ég megi ekki hafa skoðanir á heppilegum innflytjendum  eða hugsa fyrir mig sjálfan vil ég ekki láta Hafskips-Helga,Aðalheiði, Talna Bensa eða  Sigmund Erni ákveða fyrir mig.

Grundvallarafstaða mín er einfaldlega sú að vilji innflytjendur ekki semja sig að okkar siðum og lögum þá þrýtur mér þolinmæði.Sem betur fer er slíkt sárasjaldgæft og oft á tíðum okkur sjálfum að kenna.

Gin Dobry. Velkomnir allir sem okkur og okkar lög og skoðanir vilja virða en ekki fyrirlíta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Standandi dagskipunin frá yfirstjórn moggans til fréttamanna er að í blaðinu sé að minnsta kosti ein ný eða gömul neikvæð frétt um ESB. "Finnum fréttina" er orðinn vinsæll leikur á mörgum heimilum. Mogginn veit hvernig á að stjórna tilfinningum, hugsunum og skoðunum sinna dyggustu lesenda og veit að þeir vilja að mogginn segi þeim hvaða sjálfstæðu skoðanir þeir eigi að hafa. Og seint þreytast þeir á því að segja hversu sjálfstæðar skoðanir þeirra séu, allir sem einn í fullkomnum samhljóm svo ekki skeikar orði.

Það sem þú telur þig vera og það sem aðrir sjá í þér er tvennt ólíkt. Hugsunarháttur þinn er svo fjarlægur flestum Íslendingum, siðum okkar, menningu og gildum að þú værir efstur á þínum eigin lista óæskilegra værir þú útlendingur.

Sé það rétt hjá þér að hugsunarháttur þinn sé ekkert í líkingu við það sem þú skrifar og segir er spurning hvort þú raulir ekki þennan textabút meðan þú sannfærir sjálfan þig um egin ágæti og misskilning heimsins.

Vagn (IP-tala skráð) 21.4.2021 kl. 21:45

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Kerran kemur mér sífellt á óvart hversu algerlega hugsun hennar er fjarlæg hinu venjulega. Hvernig hún veit hugsanir ritstjóra Mbl.í æsar, og mínar raunar líka þó öllu ómerkari séu.

Hvernig skyldi hún vilja hafa þjóðskipulagið ef einhver hlustaði á hana?

Þekkir hún eitthvað sem hún telur fagurt í mannheimi? 

Halldór Jónsson, 22.4.2021 kl. 14:10

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvernig skyldi þá dagskipun Hafskips-Helga vera á Fréttablaðinu? Ein grein frá Þorsteini Pálssyni og helst önnur frá Bieltved um inngöngu í ESB?

Halldór Jónsson, 22.4.2021 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418323

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband