Leita í fréttum mbl.is

Val á framboðslista

hjá litlu ljótu flokkunum fer fram í reykfylltum bakherbergjum þar sem lýðræðið er fjarstatt.

Svo fór hjá Viðreisn í þetta sinn:

Bene­dikt Jó­hann­es­son mun ekki vera í fram­boði fyr­ir Viðreisn í alþing­is­kosn­ing­un­um sem fram fara í haust. Upp­still­ing­ar­nefnd bauð Bene­dikt neðsta sæti á lista. „Af aug­ljós­um ástæðum afþakkaði ég það,“ skrif­ar Bene­dikt í færslu á Face­book þar sem hann grein­ir frá þessu. 

Bene­dikt greindi frá því síðastliðið haust að hann gæfi kost á sér í odd­vita­sæti á suðvest­ur­horn­inu, hvort sem væri í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­anna eða í Krag­an­um, fyr­ir alþing­is­kosn­ing­arn­ar, en Bene­dikt er fyrr­ver­andi formaður og ráðherra Viðreisn­ar. 

Viðreisn hef­ur fjóra menn á þingi: Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur og Jón Stein­dór Valdi­mars­son í Krag­an­um, Hönnu Katrínu Friðriks­son í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Þor­björgu Sig­ríði Gunn­laugs­dótt­ur í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Öll sækj­ast þau áfram eft­ir þing­mennsku.

Bene­dikt grein­ir frá því að hann hafi lagt til að próf­kjör færi fram þar sem marg­ir gæfu kost á sér til að leiða lista Viðreisn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu. Reykja­vík­ur­ráð flokks­ins hafi þó ákveðið að fara aðra leið og varð upp­still­ing fyr­ir val­inu, líkt og tíðkast hef­ur hjá Viðreisn frá því að flokk­ur­inn var stofnaður árið 2016. 

Þor­steinn Páls­son, formaður upp­still­ing­ar­nefnd­ar, bað mig að hitta sig síðastliðinn þriðju­dag. Á fundi okk­ar sagði hann mér, að það væri ein­róma niðurstaða nefnd­ar­inn­ar að bjóða mér neðsta sæti list­ans. Af aug­ljós­um ástæðum afþakkaði ég það,“ skrif­ar Bene­dikt. 

Hann mun því ekki verða í fram­boði fyr­ir Viðreisn í kom­andi kosn­ing­um, en seg­ist þó ekki hætt­ur í stjórn­mál­um: 

„Þar með er útséð um að ég verði í fram­boði fyr­ir Viðreisn að þessu sinni, en ég held áfram í póli­tík og styð nú sem fyrr grunn­stefnu Viðreisn­ar, enda hygg ég að ég hafi skrifað megnið af henni. Sjald­an hef­ur verið brýnni þörf fyr­ir ein­beitta, frjáls­lynda rödd í sam­fé­lag­inu og ég mun ekki láta mitt eft­ir liggja.“

Gamalt máltæki segir að fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá.Það sannast á Talna-Bensa sem fleirum.

Sömu fréttir berast frá öðrum litlu flokkunum. Allstaðar er það þröng  klíkustarfsemi sem ræður för. Miðstýrt val á gæðingum sem einhverjir nafnleysingjar framkvæma í skjóli nætur.

Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn treystir flokksmönnum til þess að velja á framboðslistana. Flokkurinn hefur reynt aðrar aðferðir en alltaf með ömurlegum árangri.

Af hverju flykkist ekki fólkið til flokksins sem hins eina hreina lýðræðisflokks í framboði á Íslandi?

Það er greinilega vegna þess að flokkurinn hefur ekki sinnt PR-málum sínum nægilega og því orðið undir í lygagerningaveðri litlu flokkanna sem framleiða óhróður á öllum rásum þar sem þeir eiga yfirleitt greitt aðgengi.

Kjósendur hefðu gott af því að hugleiða þann mun sem er á lýðræði og flokksræði. Af hverju Pútín er öruggur í framboði án mótframboða. Af hverju Ágústi Ólafi er hafnað, Af hverju Andrés Ingi hrekst úr flokki sínum, Lilju Rafney er sparkað og þannig áfram. Þetta fólk þorir ekki að leggja eigin verðleika í dóma kjósenda.

Hjá Sjálfstæðisflokknum eru kjósendur spurði að því hverjum þeir treysti best. Auðvitað fást oft niðurstöður sem mönnum ekki líkar við. En yfirleitt hefur það sýnt sig að það er hættulegra að fitla við niðurstöður slíkra prófkjara heldur en hagnaðurinn er af leiðréttingum á vilja kjósenda.

Prófkjör Sjálfstæðismanna eru nú í fyrrihluta júní. Hvatt er til þátttöku allra flokksmanna sem þannig geta haft varanleg áhrif á stefnu og gang flokksins á komandi kjörtímabili. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það eru ekki allir eins sterkir og Steingrimur sem stofnaði sinn eigin flokk og var þar alla tíð formaður VG. Þar til hann var viss um að Katrín mundi valda formennsku flokksins. Nú dregur hann sig í hlé.

Helga Kristjánsdóttir, 21.5.2021 kl. 18:44

2 identicon

Af hverju er Pútín öruggur í framboði án mótframboða? Af hverju er Bjarni Ben öruggur í framboði án mótframboða? Af hverju fá almennir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins ekki að kjósa forystu flokksins? Af hverju er stefna flokksins ákveðin í reykfylltum bakherbergjum sem litli Sjálfstæðismaðurinn hefur ekki aðgang að? Af hverju er það stefna Sjálfstæðisflokksins að almenningur fái ekki að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB? Af hverju hundsar Sjálfstæðisflokkurinn niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur að breytingum á stjórnarskránni?  Er það lýðræðisást að hætti Sjálfstæðisflokksins? Er lýðræði Sjálfstæðisflokksins eins og heimili þar sem kosið er um hver fer út með ruslið en pabbinn ræður öllu öðru? Eru almennir flokksmenn valdalaus lítilsvirt peð á borði flokkseigendafélagsins?

Vagn (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 20:39

3 identicon

Ekki var farið eftir utkomu i profkjöri XD i SV kjördæmi i siðastu

kosningum og Gunnari Birgissyni var bolað burt ur Kopavogi

XD ahyllist bara aula eins og VG

Hakon Isaksson (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 22:24

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Svona fíflaskrif eru ekki boðleg nema af því að Kerran á í hlut. Hann hefur ekki hugmynd um hvernig forysta Sjálfstæðisflokksins eða formaður er valinn.

Af hverju hundsar Sjálfstæðisflokkurinn niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur að breytingum á stjórnarskránni?  Er það lýðræðisást að hætti Sjálfstæðisflokksins?

Það er marghrakið að þetta var dæmt dautt og ómerkt.

Af hverju er það stefna Sjálfstæðisflokksins að almenningur fái ekki að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB?

Þessu hefur aldrei verið hafnað af Sjálfstæðisflokknum. 

Mikið vildi ég að þúi hættir að forpesta bloggsíðuna mína með mestu vitleysunum sem upp úr þér renna. Stöku sinnum ertu vitrænn og þessvegna hef ég umborið þig. 

Halldór Jónsson, 22.5.2021 kl. 14:45

5 identicon

"Frambjóðendur tíu flokka sem eru í framboði hafa svarað játandi spurningunni hvort þingmönnum beri siðferðisleg og pólitísk skylda til að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem Alþingi boðar til. Eini flokkurinn sem eru í framboði sem eiga engan fulltrúa sem svarar þeirri spurningu játandi eru Sjálfstæðisflokkurinn."    https://kjarninn.is/frettir/2017-10-25-frambjodendur-allra-flokka-nema-tveggja-vilja-virda-thjodaratkvaedi-um-nyja-stjornarskra/

"Bjarni Benediktsson var í dag endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins með 96,2% atkvæða á landsfundi flokksins sem fram fer í Laugardalshöll.   Alls greiddu 762 atkvæði í formannskjörinu og hlaut Bjarni 710 af þeim. Aðrir hlutu 28 atkvæði og auðir og ógildir seðlar voru 24."   Stærri hélt ég Sjálfstæðisflokkinn vera.

þjóðaratkvæðagreiðslan um tillögur að breytingum á stjórnarskránni var hvergi dæmd dauð og ómerk.

„Landsfundur (Sjálfstæðisflokksins) telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið. Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Og síðan var lofað þjóðaratkvæðagreiðslu á fyrri hluta kjörtímabilsins. Efndir Sjálfstæðisflokksins voru eftir bókinni. Þjóðin fékk ekki að kjósa. Lýðræðisástin ristir ekki djúpt.

Vagn (IP-tala skráð) 22.5.2021 kl. 16:31

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Rússar munu aldrei "skila" Krímskaga

Lafrov spurði Katrínu út í afléttingu Íslendinga á viðskiptbanni og fékk þvert NEI
Því var ég hugsa hvort nokkur flokkur á Alþingi væri með það á stefnuskrá sinni að draga þessa vitleysu hans Gunnars Braga og ESB til baka?

ESB mun aldrei draga viðskiptabannið til baka því stóru ríkin settu inn undanþágur fyrir öllu sem skiptir þau máli.

Grímur Kjartansson, 22.5.2021 kl. 23:23

7 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Hvernig túlkar þú síðustu fréttir af prófkjöri sjalla í norð austur, 

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 23.5.2021 kl. 16:59

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er fyrir Kerruna að sjálfsögðu, en skammtastærðin hefur kannski einhver áhrif til viðbótar.

Halldór Jónsson, 23.5.2021 kl. 22:13

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já og formaðurinn býr ekki að vinsældum vegna þeirrar framgöngu. En hann barði þetta í gegn það er rétt.

Halldór Jónsson, 23.5.2021 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 3418233

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband