Leita í fréttum mbl.is

Rangfærslum Viðreisnarfylkingar svarað

skilmerkilega af Arnari Jónssyni Sjálfstæðismanni,

Þetta blekkingalið þar sem Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín og Benedikt Jóhannesson fara mikinn, leikur sér að halda því fram að innganga í Íslands í NATO hafi verið sambærileg við inngöngu í ESB, upptöku EVRU og þátttöku í væntanlegum Evrópuher.

Arnar Jónsson skrifar í Morgunblað dagsins:

..."4. Samanburður við aðild Íslands að NATO er með öllu óviðeigandi í þessu samhengi, því samstarf á vettvangi varnarbandalagsins hefur alla tíð miðað að því að forða erlendum afskiptum af innanríkismálum bandalagsríkjanna og tryggja rétt þeirra til að stýra innri málum sínum sjálf.

NATO er ekki samtök með yfirþjóðlegu valdi eins og ESB – og getur því ekki skuldbundið aðildarríki sín til neins sem þau ekki samþykkja sjálf hverju sinni..."

Ekkert er því fráleitara heldur en blekkingar ef ekki beinar lygar þessara fullveldissala að þetta tvennt sé á einhver hátt sambærilegt.

ESB er yfirþjóðlegt vald sem sífellt færir sig upp á skaftið með að rýra sjálfsákvörðunarrétt þjóðríkjanna. Menn horfi nú síðast til viðskipta þess við Pólland og Ungverjaland þar sem ESB telur sig eiga síðasta orð í öllum málum.

Það yrði skelfilegt ef kjósendur létu blekkjast til að breyta breytinganna vegna eins  og Píratinn Björn Leví leggur til án nokkurrar glóru í rökstuðningi frekar en fyrri daginn á miðopnu sama blaðs.

Niðurlag greinar Arnars er svona:

"...Sem almennur borgari vil ég sporna gegn því að spilað sé með tilfinningar kjósenda. Þegar alið er á ótta og öfund á kostnað yfirvegunar og hlutlægra röksemda er hinu raunverulega markmiði rökræðna kastað fyrir borð.

Ég vil að stjórnmálaumræðan einkennist af eiginlegri sannleiksleit og miði að því að leita svara við því hvaða skoðanir geta talist réttmætar, en ekki um það, lítt hugsað, sem telst falla fjöldanum best í geð þá stundina. Ég aðhyllist hvorki öfgar né þröngsýni.

Málflutningur minn sameinar sígilt íhald og frjálslyndi, grunngildi Sjálfstæðisflokksins þegar við stofnun hans 1929, en báðar þessar stefnur miða að því að verja samfélag frjálsra einstaklinga og rétt þeirra til að búa við stjórn valdhafa sem þeir sjálfir hafa kosið. Sjálfsábyrgð og sjálfsforræði eru gildi sem reynst hafa vel og ber að verja til framtíðar. Það verður ekki gert nema með því að færa fram heilbrigðan efa og hvetja til gagnrýninnar hugsunar.

Ég vil standa vörð um rétt okkar til að fá að hugsa. Þetta er frumskilyrði þess að við getum verið heilsteyptar manneskjur, þ.e. að okkur leyfist að vera heil og sönn í einkalífi, faglega og opinberlega. Hvorki ríki, fjölmiðlar, stórfyrirtæki, sérfræðingar né siðapostular eiga að fá að fyrirskipa hvað öllum á að finnast siðferðilega, siðfræðilega, faglega, fræðilega eða persónulega.

Tryggja þarf jafnt vinsælum sem óvinsælum skoðunum vernd og standa vörð um rétt manna til að vera ósammála, enda er það forsenda allrar framþróunar og í þessu kristallast munurinn á lýðræði og alræði.

Ef menn vilja engu að síður kalla framangreind sjónarmið mín „stórhættuleg“ fyrir atvinnulíf og samkeppnishæfni, eins og Þorgerður K. Gunnarsdóttir í Morgunblaðinu 16. júlí sl., þá hef ég ekkert að óttast í þeim rökræðum og mun hvergi víkja af þeirri götu sem ég hef markað í skrifum mínum. Vonandi gefast mér sem flest tækifæri til þess í aðdraganda kosninganna 25. september nk."

Við þetta er í raun engu að bæta. Munurinn á Píratabullinu sem hafa ekki hugmynd um hvaðan þeir koma eða hvert þeir eru að fara er augljós ef menn vilja á annað borð hugsa um stjórnmál og hvert þau geta leitt.

Ef menn hafna sjálfstæðisstefnunni þá skiptir eiginlega litlu máli hvað þeir kjósa. Það er aðeins rangfærslur, stjórnlyndi og þvinganir sem í boði hjá forsjárflokkunum á hinum vængnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 16
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 3418310

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband