Leita í fréttum mbl.is

Gunnar Rúnar

Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur er varðveitt safn Gunnars Rúnars Ólafssonar ljósmyndara ( 1917-1965).

Gunnar Rúnar

 

"Gunnar Rúnar var auglýsinga- og iðnaðarljósmyndari en hann dó langt um aldur fram árið 1965. Í safni Gunnars Rúnars eru margar frábærar myndir sem m.a. sýna Höfuðborgarsvæðið í uppbyggingu, mannlíf, myndir frá ýmsum íslenskum fyrirtækjum svo eitthvað sé nefnd.

Gunnar Rúnar ferðaðist einnig um landið og tók myndir af fólki heima á sveitabæjum. Í þessum ferðum var Þórdís Bjarnadóttir (1925-2012) kona Gunnars Rúnars oft með í för ásamt börnum þeirra. Ósjaldan sat Þórdís fyrir á myndum Gunnars Rúnars og einng börn þeirra. Þórdís lést á síðasta ári.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur hvetur alla til að kynna sér verk Gunnars Rúnars á heimasíðu Ljósmyndasafnsins.http://ljosmyndasafn.reykjavik.is/fotoweb/grid.fwx""

Mér ákaflega ljúft að minnast Gunnars og konu hans Doddýar. Hvernig þau opnuðu heimili sitt í Garðabæ fyrir mér stráklingnum og hvernig Gunnar Rúnar var óþreytandi við að kenna mér ljósmyndavinnu.Hann var með vinnustofu í kjallaranum þar sem hann vann sín listaverk.Maður framkallaði í bakka með sígarettu glóð til að ákveða hvenær væri tíminn fyrir fixerinn og eftir þvott í baðkerinu beið stækkarinn eftir að filmurnar væru þurrar.

Hann kenndi og hjálpaði kunningjum mínum og var jafn elskulegur við alla. Ég fór stundum með honum að mynda á Speed Graphic með flash-perur fyrir Moggann og var magnað að sjá hann vinna og hvernig hann sá það maður sá ekki sjálfur.

Hann lifði líklega ekki sérlega heilsusamlegu lífi heldur erilsömu og streitufullu lífi atvinnuljósmyndarans enda dó hann löngu fyrir aldur fram.

Gunnar Rúnar var einstaklega góður maður og vinur vina sinna sem ég minnist með hlýhug. Ég hvet alla sem hafa áhuga á ljósmyndun að kynna sér verk hans.

flugþrá

Ég átti þess kost að ferðast lítillega með honum þegar hann var að störfum úti á landi og það var upplifun að sjá hann vinna. Hann sagði heilar sögur með linsunni, mest í svart hvítu.

Hvernig hann nær flugþrá unga drengsins við Douglasinn er ekki sjálfgefin saga af þrá eftir því óþekkta.Bara eitt sýnishorn af því sem Gunnar Rúnar sá umfram okkur marga aðra ljósmyndara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband