Leita í fréttum mbl.is

Hvað les ég?

úr kosningunum?

*Aðild að Evrópusambandinu er hafnað. 

*Loftslagsmál hafa lítið vægi.

*Hálendisþjóðgarður er ekki áhugamál.

*Innflytjendamál hafa lítið vægi.

*V.G. eru aðeins að tapa 1 þingmanni.

*Aukinni fíkniefnanotkun er hafnað.

*Stjórnarskráráhugi er lítill. 

*Fólk vill færri og stærri stjórnmálaflokka. 

*Fólk vill kjósa til Alþingis.

*Fólk vill aðstoð við fátæka.

*Óánægja með kvótakerfið er ekki almenn.

*Fólk trúir ekki hverju sem er.

 

Þetta les ég sem fyrstu skilaboð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eða: 

Miðflokkurinn tapaði miklu út á að reyna að skapa hræðslu við hælisleitendur og útlendinga. "Glæpagengin" frekar en Miðflokk virðast skilaboðin vera.

Viðreisn bætti við sitt fylgi með Evrópusambands og evru tali.

Sjálfstæðisflokkurinn tapaði fylgi, einhverjir taka ekki loforðin trúanleg eftir fyrri loforð.

Framsókn græddi mikið á því að hafa engin stefnumál og ætla að vera uppfyllingarefni í einhverri næstu ríkisstjórn.

VG duttu niður í sitt gamla kjörfylgi eftir samstarf við Sjálfstæðisflokk og hefðu fallið neðar væri ekki fyrir vinsældir formannsins.

Flokkur fólksins boðaði aðstoð við fátæka, öryrkja og aldraða en stuðningurinn var innan við 9%.

Rúmur þriðjungur kjósenda hafnaði gamla fjórflokknum.  

Fólk var sennilega ekki að kjósa um helstu áhugamál Halldórs Jónssonar.

Vagn (IP-tala skráð) 27.9.2021 kl. 14:44

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Leiðrétting: Fólk vill ekki aðstoð við fátæka, heldur gera hana óþarfa, með því að útrýma fátækt.

Guðmundur Ásgeirsson, 27.9.2021 kl. 23:04

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þjóðin kaus einfaldlega "non nonsense" stjórnmál og hafnaði róti með stjórnarskrá og grunnatvinnuvegi landsins.  Hún reyndist ekki ginnkeypt fyrir loftköstulum eða spillingarbrigslum.  Í stuttu máli: heilbrigð skynsemi kom, sá og sigraði, en afdankaðri hugmyndafræði sósíalismans í ýmsum birtingarmyndum var hafnað.

Bjarni Jónsson, 28.9.2021 kl. 11:15

4 Smámynd: Halldór Jónsson

>Nú verður gaman að fylgjast með þegar nýkomminn Gunnar Smári Egilsson  fer að skipta fengnum með meðframbjóðendum sínum á kommalistandum en mér var sagt að þeir fái 120.milljónir úr ríkissjóði fyrir framboðið. 

Hvernig skyldi bróðernið koma út?

Halldór Jónsson, 28.9.2021 kl. 15:46

5 identicon

Vildi Sjálfstæðisflokkurinn Arnar Þór Jónsson á þing?  

Vildi Sjálfstæðisflokkurinn Brynjar Níelsson á þing?

Vildi Sjálfstæðisflokkurinn Vilhjálm Bjarnason á þing?

Nei

Nei

Nei, það var séð til þess að þeim var bolað frá, með því að færa þá niður, líkt og Vilhjálmur Bjarnason lýsir afar vel í grein sem fékkst ekki birt í Mogganum, fyrr en eftir kosningar.

Kæri Halldór, þú hefur sjálfur lýst því þegar þú varst sviptur málfrelsi á fundi flokksins í Kópavogi um ESB orkupakkana.

Kæri Halldór, þú veist jafn vel og ég að fámenn nómenklatúra ræður öllu í Valhöll.

Kæri Halldór, sem genetískur og gegnheill sjálfstæðismaður, ert þú skyldur mér í anda, og ég hvet þig því til að rassskella áfram hina sovétsku nómenklatúru hirð sem D er orðinn.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.9.2021 kl. 16:55

6 identicon

Ætli Sjálfstæðisflokkurinn opinberi hvað mikið af milljarðinum sem hann fær verði skipt í evrur til að verja verðgildið og hvað mikið fer á einhvern Panamareikning?

Vagn (IP-tala skráð) 28.9.2021 kl. 17:29

7 Smámynd: Bjarni Jónsson

Nýkomminn er á bólakafi í sukki og svínaríi, eins og hann er vanur, og nú á kostnað ríkissjóðs, sem hann hugðist gera út á í miklum mæli með svigurmælum í garð atvinnurekenda, einkum sjávarútvegsins, og í garð valinkunnra sómamanna í þjóðfélaginu.  Ef það er rétt, að þetta meindýr fái MISK 120 frá skattgreiðendum fyrir eintóman bolaskít, þá er það þyngra en tárum taki og vitnar um hreðjatak sósíalismans á ríkissjóði.  

Bjarni Jónsson, 29.9.2021 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband