Leita í fréttum mbl.is

Netalögn í neyð?

í Reynisfjöru gæti hugsanlega verið nothæf leið?

Ef lagt væri net með flotholtum og sökkum meðfram  fjörunni á kannski fráfallsmörkum gætu landeigendur fengið fisk í soðið upp í kostnað.

En manneskja sem hefði tekið út í öldu gæti kannski fest hönd á lögninni í nauðungarferð sinni út?

Þyrfti þetta að vera svo mikil sjónmengun? Bjargvesti á ferðafólk væru líka hugsanlega skynsamleg.  

Þau eru hörmuleg þessi slys sem  þarna hafa orðið og gott ef einhverja neyðarráðstöfun væri hægt að gera sem ekki þarf að kosta allt of mikið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Ég vissi ekki að þú værir fiskimaður Halldór.

En ef svo er þá hefur þú aðeins lagt net í lygnu vatni.

Kraftarnir fyrir utan Reynisfjöru eru það miklir að netalögn þarf að vera á miklu dýpi, ekkert lifandi festist í því neti.

Nema hugsanlega þeir sem eru góðglaðir, þeir fljóta lengi.

Virk neyðarráðstöfun er að setja upp skilti með nafni og mynd af þeim sem hundsuðu aðvörunarskilti, og drukknuðu í kjölfarið.

Þeim fjölgar kannski aðeins, líkt og þið ellismellirnir sem teljið börnin verðuga fulltrúa flokksins í kóvid hremmingum þjóðarinnar, en svo bítur raunveruleikinn.

Fjölgun dauðsfalla kveikir á hinum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.11.2021 kl. 16:16

2 identicon

Sterkasta net sem þekkist og nokkrar sökkur á stærð við bílskúr í þessu mikla brimi og hafstraumum. Það gæti gengið nokkra mánuði meðan snilldin sekkur eins og gullskip í sandinn.

Björgunarvesti kosta húsnæði og starfsfólk 24/7 til að sjá um afgreiðslu, þrif og viðhald. Stofnkostnaður 50-150 milljónir og rekstrarkostnaður á mánuði ekki undir 10 milljónum.

Vagn (IP-tala skráð) 12.11.2021 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418442

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband