Leita í fréttum mbl.is

Búrfell var ekki mistök

þegar við réðumst í þær framkvæmdir og álverið.

Nú er opinbert fé notað í stórum stíl til að berjast á móti virkjun fallvatnanna á þeirri forsendu að taka megi orkuna af stóriðjunni og afhenda hana heimilunum og þá þurfi ekki fleiri virkjanir og vernda þurfi eitthvað túristaútsýni.

Allskyns félagsvísindatröll og spekingar hlaupa um velli og boða þessa trú og byggja allt á því að hamfarahlýnun loftslags sé í gangi sem engin sönnun er fyrir. Það virðist engin meðábyrgðartilfinning  mannkyns  í gangi meðal okkar Íslendinga að betra sé að framleiða ál á Íslandi með fallvatni en með kolum í Kína.Þess vegna beri okkur alveg eins skylda til að virkja græna orku fyrir mannkynið í stað þess að styðja við notkun mengandi  orku í Kína eins og að takmarka útblástur á CO2 sem framlag til mannskynsins eins og notað er sem rök fyrir skattlagningu hérlendis. Vill enginn sjá samhengi þarna á milli?

Búrfell og álverið í Straumsvík voru ekki mistök  heldur er orðin bráðanauðsyn að endurvekja þá hugsun og hætta að hlusta á virkjanaféndur eins og Ómar Ragnarsson og Hjörleif Guttormsson og fara að hugsa um eitthvað vitrænt til að framleiða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég studdi Búrfellsvirkjun á sínum tíma og sömuleiðis virkjanirnar sem voru næstar þar fyrir ofan.  

Ég keypti þá rösksemd að í tengslum við álverið risi mikill iðnaður vegna framleiðslu á alls kyns vörum úr áli hér á landi. 

Það reyndist tálsýn. Ein verksmiðja fyrir þakplötur á hús úr áli erlendis framleiðiir meira af þeim á einum degi en nægir fyrir alla notkun okkar á heilu ári. 

Ómar Ragnarsson, 5.12.2021 kl. 19:22

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég studdi Búrfellsvirkjun, Sigölduvirkjun og Hrauneyjarfossvirkjun auk smíði álvers við Straumsvík á sínum tíma. 

Ómar Ragnarsson, 5.12.2021 kl. 22:11

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Fyirgefðu Ómar, en hefurðu breytt um skoðun varðandi virkjanir? Hvað viltu í dag?

Halldór Jónsson, 6.12.2021 kl. 03:01

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ætli það hafi ekki verið Einstein sem sagði á sínum tíma ekki væri hægt að leiðrétta mistök með þvi að nota sama hugsunarhátt og skapaði þau til að reyna að leysa þau. 

Vandamál nútímans eru til orðin vegna offjölgunar og óseðjandi þorsta eftir orku og öðrum auðlindum langt umfram það sem jörðin á til. 

Fyrsta álverið framleiddi 35 þúsund tonn á ári en nú þarf hvert álver tíu sinnum meira, 350 þúsund tonn á ári,til að bera sig og við Íslendingar framleiðum fimm sinnum meiri orku en við þurfum fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. 

Ekki nóg með það, það er búið að leggja drög að því að við framleiðum 15 til 20 sinnum meiri orku en við þurfum fyrir okkur sjálf og fara hamförum um einstæða náttúru á heimsvísu á sama tíma sem Bandaríkjamenn telja ómerkari náttúruverðmæti heilög vé sem aldrei verði snert. 

Ég leyfi mér aðeins að setja spurningarmerki við veldisvöxt á eyðslu og orkuþorsta okkar daga. 

Ómar Ragnarsson, 6.12.2021 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband