19.2.2022 | 14:19
2 marktækir menn
rita um vegakerfi í Morgunblaðið.
Þeir Þórarinn Hjaltason og Gestur Ólafsson myndi ég telja að vissu ekki minna um samgöngur heldur en Hjálmar Sveinsson,Þórdís Lóa og Dagur B. Eggertsson þó viðurkenndir hjólhestasérfræðingar séu ef til vill umfram annað fólk.
Þeir tveir skrifa svo:
Ekki fer á milli mála að samgöngukerfi hvers lands er mikilvægasta þjónustukerfið fyrir það fólk sem þar býr. Hvernig það er byggt upp skiptir líka sköpum fyrir velferð íbúanna.
Skipulag og hönnun samgöngukerfis getur ráðið úrslitum um framtíð og möguleika bæði fólks og fyrirtækja á viðkomandi svæði. Á herðum fulltrúa okkar Íslendinga í sveitarstjórnum og á Alþingi hvílir sú ábyrgð að fara vel og skynsamlega með þá takmörkuðu fjármuni sem fólk og fyrirtæki skapa og þeim er trúað fyrir. Með ráðstöfun þessa fjár og ekki síst í samgöngukerfi landsins ræðst að verulegu leyti sú velferð sem þjóðin getur notið enda er hér oft um flókna ráðstöfun fjár að ræða sem oft nemur mörg hundruð milljörðum bæði í byggingu og rekstri.
Þessu gerðu þeir forfeður okkar, sem sömdu fyrstu skipulagslög Íslands fyrir réttum 100 árum, sér fulla grein fyrir. Þeir töldu þá réttilega að þekking landsmanna í einstökum sveitarfélögum á þessu sviði dygði ekki til að fara forsvaranlega með þann mikla vanda, flækjustig, vald og ábyrgð sem fólgin er í skipulagi svona mikilvægs kerfis og því væri ríkisvaldinu einu treystandi í þeim efnum.
Þetta breyttist samt allt með nýjum skipulagslögum árið 1995, en þá var allt skipulagsvald flutt frá ríkinu til sveitarfélaga á Íslandi.
Í dag ber sveitarfélögum þannig að vinna skipulagsáætlanir þar sem m.a. er sýnd fyrirhuguð landnotkun og helstu vegir. Þá er undir hælinn lagt hvort gætt sé nauðsynlegrar heildarsýnar við skipulag, ekki síst þegar mörg sveitarfélög eiga hlut að máli.
Samgönguáætlanir eru hins vegar unnar af samgöngustofnunum ríkisins og staðfestar af Alþingi.
Þegar ágreiningur kemur upp milli aðila getur það leitt til óhóflegs dráttar á nauðsynlegum framkvæmdum eða framkvæmda sem eru beinlínis skaðlegar eða óþarflega dýrar fyrir viðkomandi svæði. Sama máli gegnir um nauðsynlega samræmingu á skipulagi sveitarfélaganna við stefnu ríkisins viðvíkjandi æskilegri uppbyggingu á samgöngukerfi þjóðarinnar.
Hér nægir að benda á skipulag flugvallar í Reykjavík og Sundabraut sem hafa verið að velkjast í kerfinu um áratuga skeið. Aðrar þjóðir sem hafa gert sér fulla grein fyrir mikilvægi þessara mála hafa tekið þau mun fastari tökum og gerðum við rétt í að horfa til þeirra við skipulag þjóðvega hér á landi.
Þýskaland
Þjóðverjar áttuðu sig snemma á mikilvægi vel skipulagðs vegakerfis og þar kviknuðu hugmyndir um að byggja upp samræmt þjóðvegakerfi fyrir allt landið um 1925.
Ein hugmynd einkaaðila var þá að leggja þjóðveg frá Hamborg, gegnum Frankfurt, til Basel í Sviss. Fyrsti leggurinn af þessu kerfi, milli Kölnar og Bonn, var tekinn í notkun árið 1932, með tvær akreinar í hvora átt.
Strax og Hitler komst til valda, árið 1933, var lögð mikil áhersla á byggingu þessa þjóðhagslega mikilvæga þjóðveganets, sem þó var ekki aðallega í hernaðartilgangi því þeir flutningar fóru yfirleitt fram með járnbrautum til þess að spara olíu. Þessar stofnbrautir (þ. Autobahn) voru fyrstu háhraða þjóðvegir í heimi, með takmörkuðum tengingum. Fyrsti hlutinn frá Frankfurt am Main til Darmstadt var opnaður árið 1935. Í heild er þetta þjóðvegakerfi nú um 13.200 km og flytur um þriðjung af bílaumferð í Þýskalandi.
Þetta kerfi háhraða þjóðvega á stóran þátt í þróun og velmegun Þýskalands.
Danmörk
Í Danmörku sjá Vegagerðin og ráðherra um skipulag þjóðvega og hafa ásamt þinginu æðsta valdið í skipulagi þeirra.
Að vísu eru þar í lögum ákvæði um samráð við sveitarfélög, en ekkert fer á milli mála hvar úrskurðarvaldið liggur, ef upp kemur ágreiningur milli aðila.
Gott dæmi um það er fyrirhugaður mótorvegur, Motorring V(5), meðfram vesturjaðri Kaupmannahafnarsvæðisins, 70 km að lengd. Hönnun vegarins er skammt á veg komin og því hefur ríkisvaldið tekið frá um 1 km breitt belti, þ.e. 70 km2 , til þess að tryggja hagstæðustu legu vegarins. Nýbyggingar hafa verið bannaðar á þessu svæði í áratugi.
England
Stofnunin Highways England sér um skipulag þjóðvega á Englandi. Skipulagsferlið fyrir mikilvæga (e. strategic) þjóðvegi (e. motorway, trunk road) er hluti af The Nationally Significant Infrastructure Project planning process.
Þessi stofnun er að öllu leyti í eigu ríkisins og þannig þarf hún einungis að biðja um samþykki ríkisins, þótt nauðsynlegt sé að kynna sveitarfélögum og almenningi viðkomandi framkvæmd og vinna umhverfismat. Samgönguráðherra getur einnig veitt Highways England leyfi til að stjórna uppbyggingu innan veghelgunarsvæðis, þ.e. 67 m frá miðlínu. Í ofangreindum löndum má sjá að samgönguyfirvöld gera sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að skipuleggja og byggja upp samræmt og hagkvæmt þjóðvegakerfi og ríkisvaldið gegnir þar leiðandi hlutverki.
Þótt valddreifing geti verið af hinu góða þarf samt að tryggja nauðsynlega heildarsýn og skýra ábyrgð við skipulag og uppbyggingu samgöngukerfis okkar Íslendinga.
Í ljósi þessa virðist full ástæða til þess að skerpa betur á skipulagi og ábyrgð á þessum málum hér á landi. Ekki er allt unnið með fjölda þeirra sem koma að viðkomandi ákvarðanatöku.
Þessir tveir marktæku menn eru að mínum dómi :
Gestur Ólafsson og Þórarin Hjaltason
Gestur Ólafsson er skipulagsfræðingur. Þórarinn er samgönguverkfræðingur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 3419867
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ekki má gleyma því að í BNA stuðlaði Roosewelt með New Deal að Turnpike lagningum á svipu'ðum tíma sem ég kann ekki nægilega vel að rekja
Halldór Jónsson, 19.2.2022 kl. 14:22
Að hugsa sér að Þórdís Lós skrifar á sama tíma um Sundabraut rétt eins og að hún og hennar lið hafi verið stuðningsmenn hennar alla tíð?
.Þvílík óskammfeilni?
Halldór Jónsson, 19.2.2022 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.