Leita í fréttum mbl.is

X-D fyrir Ísland.

Það er reginmiskilningur hjá kommúnistum, vinstrimönnum og ofbeldismönnum, að hrunið hafi verið Sjálfstæðisflokknum eða sjálfstæðisstefnunni að kenna. Hrunið varð af því að stofnanir þjóðfélagsins undir forystu einstakra manna brugðust ekki við í tíma, hvorki í Seðlabanka, Fjármálaeftirliti eða annarsstaðar.

Aðildin að EES og glannaleg einkavæðing bankanna í kjölfar þess, sköpuðu þær aðstæður sem leiddu til þess að bankarnir  lentu smám saman að hluta til í höndum ótíndra glæpamanna,  sem svo áttu heimskuleg og hættuleg  viðskipti við aðra glæpamenn.  Svo kom  alþjóðakreppan  skyndilega  á lánsfjármakaði og þá hrundi spilaborg yfir fíflin sem stjórnuðu bönkunum. Og öll þjóðin dansaði meðvirk líka í kringum veizluborðið, gleymum því ekki. 

Þeir voru búnir að segja okkur að þeir væru þvílík séní , sem yrðu að hafa tugmilljónir í kaup á mánuði. En í rauninni voru þeir bara aular með enga reynslu í bankamálum. Hálfvitar með lúkurnar á kafi í gotteríiskrukkunni fyrir sjálfa sig.  Framferði þeirra, sem var bæði afglapaháttur og svo glæpsamlegt í einhverjum tilvikum,  orsakaði hversu hrunið varð svakalegt.

Það var ekki  Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur sem er sekur,   þó svo að einhverjir  afglapanna og líka glæpamannanna teljist félagar í þeim flokki. Margir þeirra fylgdu líka öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum.   

Sjálfstæðisflokkurinn er því ekki sekur um neitt þjóðarmorð eða tilræði.   Hann er hinsvegar það stjórnmálaafl,  sem nú verður að styrkja gegn sókn alræðisaflanna rauðu . Hann einn getur veitt það viðnám sem þjóðin þarf. Veiking Sjálfstæðisflokksins kemur niður á lífskjörum fólksins til lengri tíma með aukinni skattheimtu og hverskyns miðstýringu, ófrelsi og kúgun.

Sjálfstæðisstefnan sjálf hefur ekkert breyst. Hún er óbreytt frá 1929. Einstakir menn geta brugðið af leið eða staðið sig illa. En  Sjálfstæðisflokkurinn sem hugsjón og stefna hefur ekki brugðist.

X-D í næstu kosningum til þess að bjarga Íslandi.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Menn þurfa að hætta að velta sér upp úr því sem liðið er. Vel má vera að Sjálfstæðisflokkurinn hafi farið að nokkru illa að ráði sínu en flokkurinn hefur eins og aðrir flokkar stefnu til að takast á við þau vandamál sem hafa nú skapast.

Hilmar Gunnlaugsson, 7.3.2009 kl. 18:02

2 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Hvernig er það með flokkana eru þeir ekki samtök einstaklinga sem hafa komið sér saman um að gera einhverja hluti ? Sjálfstæðisflokkurinn er ef til vill persóna í huga sumra en ekki hagsmunasamtök. En það sem raunverulega kom fyrir flokkinn var að forysta hans brást gersamlega í einkavinavæðingu bankanna. Eftir einkavinavæðinguna þá annað hvort sofnaði flokkurinn eða var alltaf meiningin að gefa vildarvinunum frjálsan gróða-tauminn. einhverjir forustumenn hafa hagnast á ástandinu. Ef til vill koma einhver ný nöfn uppúr pottinum í Karabískueyjunum. Helstu akritektar Sjálfstæðisflokksins voru Hannes (þjófurinn úr súper-gaggó ) Davíð Seðló sem hafði næg verkfæri til að stöðva gróðann en gerði ekkert í því.

Ragnar L Benediktsson, 7.3.2009 kl. 18:29

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Heyr, Halldór.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.3.2009 kl. 19:21

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek heilshugar undir þetta með þér, Halldór, að því tilskyldur að ekki sé brugðið af leið hvað varðar ESB aðild. Innan ESB er engin sjálfstæðisstefna og þar af leiðandi enginn Sjálfstæðisflokkur.

Svo vona ég að sjálfstæðismenn hætti að láta leiða sig að gapastokknum til að biðjast afsökunar á einhverju sem engin leið er að skilgreina. Iðrun byggist á því að einstaklingur geri sér grein fyrir broti sínu og vilji bæta fyrir það. Ef hann veit ekki nákvæmlega hvert brotið var, hvernig getur hann þá bætt fyrir það?

Í dag er enginn svo vitlaus að vilja endurtaka brjálæði síðustu ára, en það má ekki draga svo máttinn úr mönnum að þeir láti kúga sig til að slá af kröfum um frelsi einstaklingsins og þá ekki síður frelsi til orða og athafna.

Ragnhildur Kolka, 7.3.2009 kl. 21:14

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

XD- fyrir Ísland ?

Ekki hugnast mér það Ísland, ég er búinn að prófa það og vona að hamingjan forði mínum afkomendum frá þeim óhugnaði.

Nú ríður á að vera bjartsýnn og reisa nýtt Ísland í friði fyrir Sjálfstæðisflokknum og hans siðlausu græðgisvæðingu.

Árni Gunnarsson, 7.3.2009 kl. 21:38

6 Smámynd: Oddur Ólafsson

Afneitunin er sterk.

Sjálfstæðisflokkurinn er sekur.

Þið komuð fíflunum að.

Þið sem ekki viðurkennið það sitjið forheft eftir í gömlu hjólförunum.

Oddur Ólafsson, 7.3.2009 kl. 22:33

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ragnhildur Kolka, Hilmar og Heimir, takk fyrir.

O sankta simplicita sagði Bruno þegar gamla konan bætti kurli á bálköstinn hans.

Halldór Jónsson, 7.3.2009 kl. 23:36

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mér þykir vænt um landið mitt og vildi óska að því væri betur stjórnað. Það er fátt um fína drætti og ekki hugnast mér að hylla þá menn sem settu Ísland á hausinn. Helst að menn reyni að bæta bölið með því að benda á annað verra. Því miður, mig tekur það mjög sárt að  viðurkenna að kannski hefur þú rétt fyrir þér Halldór. Samt verður maður að vona Íslandi leggist eitthvað til.

Sigurður Þórðarson, 8.3.2009 kl. 00:47

9 Smámynd: Þór Jóhannesson

Merkilegt að sjá þessi gömlu hró lifa í svona sjálfsblekkingu og boða svartari tíma fyrir framtíð barna Íslands með áframhaldandi spillingu og auðvaldsvernd í boði Sjálfstæðisflokkinn.

Það sem ætlar þó að bjarga Íslandi frá veruleikafirringu gamlingjanna er unga fólkið enda segja skoðanakannanir að vel yfir 40% Íslendinga á milli 18 og 30 ára ætli að kjósa VG.

Í ungdómnum fellst vonin á meðan öldungarnir reyna að hvetja til áframhaldandi spillingar og byggingu flokksræðis Sjálfstæðisflokksins í boði auðvaldsins - sem allir vita að eru sannir eigendur Sjálfstæðisflokksins.

Þór Jóhannesson, 8.3.2009 kl. 02:38

10 Smámynd: HOMO CONSUMUS

,,Menn þurfa að hætta að velta sér upp úr því sem liðið er .."

segir Hilmar hér að ofan.

- hvernig geturðu sagt svona? hvernig geturðu bara ákveðið að gleyma óteljandi leikfléttum banka- og eignamanna, skipulögðum blekkingum þeirra, glórulausu fjárhættuspili?

og það með nánast ÖLL fjöregg íslensku þjóðarinnar - orðsporið líka?

hvernig er hægt að vera svo brynjaður af skrápi afneitunar, að sök Sjálfstæðisflokksins er bara helst minni en engin?

og hvernig getur þú, nafni minn, höfundur færslunnar,  haldið því fram að Sjálfstæðisflokkurinn beri ekki ábyrgð á þessu geggjaða fjárhættuspili með öll fjöregg íslensku þjóðarinnar?

enginn ber eins mikla ábyrgð og þessi risaeðla, Sjálfstæðisflokkurinn. 

og þessi færsla hjá þér, nafni, er hlægilegt yfirklór skrifað af einhverjum annarlegum hvötum rétt fyrir kosningar, - líklega svo þú sjálfur getir sofnað í nótt. 

allir Sjálfstæðismenn ættu að hafa sóma og siðvit til þess að þegja í a.m.k. eitt ár. 

eða eins og einhver orðaði það: 

,, þegið þið á meðan við hin þrífum til eftir ykkur".

en þetta eru meira en þrif; þessar leikreglur sem Sjálfstæðisflokkurinn ber öllum öðrum flokkum meiri ábyrgð á, þetta hefur kostað íslensku þjóðina nánast öll sín verðmæti - ef kvótinn er talinn með - og eins allt sitt orðspor erlendis.

ég er sosum ekkert að segja þér nein tíðindi, nafni, bara hissa á færslu sem hefði kannski sómt sér árið 1970 - ef þá. 

það er líka eitt sem sérhver Íslendingur veit alveg upp á hár: 

ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur til valda, munu fáir ef nokkrir ,,löglegu" glæpamannanna hljóta nokkurn dóm. 

allt yrði gert til að tefja rannsókn, vinir ráðnir til að ,,rannsaka" vini sína, og allir myndu þeir sleppa gerendur og vitorðsmenn - því það var EKKERT ÓEÐLILEGT, EKKERT ÓLÖGLEGT á ferðinni.

.. og af því að menn eiga auðvitað ekkert að vera að velta sér upp úr fortíðinni.

,,if we forget the past we are condemned to repeat it." 

Halldór Carlsson

HOMO CONSUMUS, 8.3.2009 kl. 05:15

11 Smámynd: Páll A. Þorgeirsson

Það er mikið á þig lagt Halldór og marga aðra sjálfstæðismenn að búa við svona hrikalega AFNEITUN og SJÁLFSBLEKKINGU.  Þegar hún er á þessu stigi þá er hún víst ólæknandi. 

Páll A. Þorgeirsson, 8.3.2009 kl. 10:26

12 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Frábær færsla hjá þér og ég tek undir hvert einasta orð!

X-D 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 8.3.2009 kl. 10:57

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvaða flokka studdu Jón Ásgeir Jóhannesson, Ólafur Ólafsson,Robert Tenghuis, Lýður og Ágúst Guðmundssynir, Finnur Ingólfsson, Siguður Einarsson, Heiðar Már, Gunnlaugur Sigmundsson og Sigmundur Davíð ? Ég man ekki eftir þeim á landsfundum Sjálfstæðisflokksins ?  

Ég held að ég vilji heldur vera eins og ég er heldur en yngri en 40 ára og ætla að kjósa VG og Steingrím eða Jóhönnu og Samfylkinguna.

Halldór Jónsson, 8.3.2009 kl. 11:14

14 identicon

Heill og sæll; minn forni spjallvinur, sem og aðrir þátttakendur, hér á síðu !

Halldór ! Þó ekki væri; nema fyrir undirlægjuhátt vaxandi, til ESB, meðfram skilyrðislausri þjónkun, við bandarísku heimsvaldasinnanna, er flokks foraðið; Sjálfstæðisflokkurinn búinn, að fyrirgera tilverurétti sínum, meðal lands og fólks og fénaðar alls.

Þátttaka þessa flokks; í hruni samfélagsins - myndi fylla marga doðrantana, í nánari frásögu - ef út í yrði farið.

Minni enn á; brýna nauðsyn samvinnu okkar, við Kanada - Grænland - Færeyjar - Noreg og Rússland, á komandi árum, sem öflugrar viðspyrnu, við ofríki heimsvaldasinna; allra, á okkar slóðum, sem víðar.

Með beztu kveðjum; sem oftar /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.3.2009 kl. 16:06

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Satt að segja er ég undrandi á þeim hugarheimi  sem birtist í skrifum nafna míns Carlssonar og Þórs. Báru þeir sem seldu farmiðana með Titanic ábyrgð á slysinu ? Eða fangaverðirnir í Auswitch á tilvist búðanna,  svo maður vitni í Ásmund Stefánsson sem ykur ætti að vera þóknanlegur ? 

Hvernig í veröldinni haldið þið að 1500 manns á landsfundi Sjálfstæðismanna láti einhverja klíku segja sér fyrir verkum ? Einhverjir flokkseigendur ráði samþykktum flokksins ?

Flokksforysta er valin til að framkvæma samþykktir landsfundar í Sjálfstæðisflokknum. Svo ætti líka að vera í öðrum flokkum.  En fólk sem kannski aldrei hefur starfað í stjórnmálaflokkum heldur oft þeim firrum fram að stjórnmálaflokkar séu prívatfyrirtæki einstakra manna og lúti vilja klíkunnar.

 Góðir foringjar hafa allstaðar mikil áhrif, annars væru þeir ekki foringjar. Skipstjóri er ráðinn til að stjórna. Hann er yfirleitt rekinn ef hann strandar dallinum eða fiskar ekki eins og Jón Baldvin segir.

Jón Ásgeir hefur haldið því  fram að forysta Sjálfstæðisflokksins  láti stjórnast af persónulegu hatri á sér og geti beitt bæði lögreglu og dómsvaldi gegn sér. Er það ekki heldur billeg málsvörn að halda því fram að að menn séu endilega  ofsóttir ef yfirvöldum  líkar ekki viðskiptaframferði þeirra ?

Fyrirgefið, en mér  finnst þið heldur barnalegir í alhæfingu þess að Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur sé sekur um eitthvað . Ég get auðvitað ekki borið ábyrgð á einstökum flokksmönnum Sjálfstæðsiflokksins, hvað þá Framsóknarflokksins,  frekar en miðasalinn á Titanicbryggju á slysinu.   

En ég held að þið ættuð að lesa ykkur betur til um Sjálfstæðisflokkinn   áður en þið setjið fram svona sérfræðiálit ykkar.

Halldór Jónsson, 8.3.2009 kl. 18:56

16 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Eins og ég nefndi hér áður Halldór Carlsson er margt uppbyggilegt í gangi hjá Sjálfstæðisflokknum. Ekki eigum við að líta framhjá því?

Hilmar Gunnlaugsson, 8.3.2009 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband