Leita í fréttum mbl.is

Enn úti !

Fréttir helgarinnar og blaðaskrif um viðskiptin á fullu hjá Kaupþingsgreifunum vekja mann til umhugsunar um hvernig tekið var á Enrongæjunum í Bandaríkjunum.  Okkar gæjar eru enn á fullu úti í London að selja Kaupþing í Luxemburg til Libýu svo að við getum ekki skoðað neinar bækur þar í framtíðinni.

Það er líka upplýst í Morgunblaðinu hvernig  sömu menn hreinsuðu Kaupþing innanfrá fyrir hrunið. Þeir halda  bara áfram að víla og díla. Ekkert gert í að tala við þá einslega þrátt fyrir nefndir og ráð.  Þeir eru bara enn úti og virðast hafa nóg fyrir stafni.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Harðarson

Kærar þakkir fyrir þetta Halldór, ég stalst til að birta þennan pistil þinn með smá inngangi. Við erum algerlega sammála í þessu.

Bjarni Harðarson, 8.3.2009 kl. 12:44

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

500 milljarðarnir sem þeir "lánuðu" sjálfum sér jafngilda um fjórum Kárahnjúkavirkjunum með uppistöðulónum, jarðgöngum og öllu (á verðlagi 6. mars 2008 133 milljarða kr.), eða svo sem tveim Kárahnjúkavirkjunum ásamt tveim álverum í Reyðarfirði.

Ágúst H Bjarnason, 8.3.2009 kl. 15:23

3 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Og hverjir stjórna rannsóknarferlinu, var það ekki Geir  Haarde og co ?

Ragnar L Benediktsson, 8.3.2009 kl. 19:32

4 Smámynd: Björn Finnbogason

Halldór!, þetta eru bara allt aumingjar sem við höfum kosið yfir okkur.  Svo erum við að fá tómar gungur í staðinn!  Ef ég ætti að leggja pening undir myndi ég veðja á að þetta lið sleppi allt og við sitjum í súpunni.  Ég vil halda sér landsfund sjálfstæðismanna sem héldu þessum flokki uppi á síðustu öld!  Ætli Egilshöll sé laus?

Björn Finnbogason, 9.3.2009 kl. 02:19

5 identicon

Einmitt kæri tengdafaðir hárrétt hjá þér

Það er alltaf verið að fá okkur til að horfa á eitthvað sem skiptir ekki máli.  Við megum ekki dvelja við þetta.   Fjölmiðlar eru ömurlegir, eina vitræna upplýsingamiðlunin og umræðan virðist koma í gegnum Silfur Egils, þó hún sé langt frá þvíað vera fullkomin.  Þessa óvissu um undanskot getur enginn haft yfir höfði sér hvorki við almúginn né hlutaðeigandi gerendur. 

Hvernig væri að fara og með vekjaraklukkurnar niður á austurvöll og láta þær hringja inn þessa rannsókn því tíminn er löngu kominn.

Hvernig var þetta aftur???

Allt upp á borðið öllum steinum velt við ?????

Engum steinum hefur verið velt við í sambandi við eigendur og lykilstarfsmenn bankanna. ???

Höfum við fengið að vita hverjir eru í stjórnum þessara fyrirtækja sem ríkið hefur yfirtekið??

Hvað mikið var afskrifað hjá þessum fyrirtækjum ????????

Fyrir hvaða verð eru fyrirtækin eru seld öðrum aðiljum (við borgum afganginn ????

Á meðan má ekkert gera fyrir þau heimili sem eru að reyna að halda sér gangandi þrátt fyrir áföllin sem hafa dunið yfir.

Það má bara hjálpa þeim sem eru þegar komnir í vanskil og skuldasúpan er svo mikil að þeir ná sér aldrei.  Oft er þetta fólkið sem var í vanskilum 2001, 2002, 2003, 2004, 2005,2006,2007,2008 og verður gjaldþrota núna því það margborgar sig.  Þetta er líka mál sem ekki má ræða í dag.

VÖKNUM umræða er góð

Guðrún Atladóttir (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband