Leita í fréttum mbl.is

"Það voru mistök að Finnland skyldi taka upp evru"

"Viðskipta- og þróunarráðherra Finnlands, Paavo Väyrynen, segir í viðtali að það hafi verið mistök að Finnland skyldi að ganga í myntbandalag Evrópusambandsins. "Að taka upp evru án þess að Svíþjóð væri með voru mistök."

Sænski skógar- og tréiðnaðurinn hefur varðveitt samkeppnishæfni sína vegna þess að Svíar hafa sænsku krónuna. Hún stillir af samkeppnishæfni iðnaðarins. "Við erum í hinu dýra myntbandalagi og Svíar hlaupa með viðskiptin". Samkvæmt fréttinni hefur verið mikið fall í viðskiptum og tekjum Finnlands af einni stærstu auðlind sinni: skógræktun og skógarhöggi - allt vegna hinnar dýru evru. "
Er ekki upplagt fyrir íslenzka krata og aðra evruspekinga að hugleiða samkeppnishæfni Íslendinga í saltfiski og síld þegar þeir hafa tekið upp evru  meðan Norðmenn eru með sína krónu ?
Hvað er að krónunni okkar annað en svívirðileg meðferð okkar sjálfra á henni ?
 Verðtryggða krónan okkar sterkasti gjaldmiðill í heimi.
Sá besti til að eiga en sá versti til að skulda. Það er nefnilega betra að eiga en skulda og þannig á það að vera.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Og það væru mistök fyrir okkur, Halldór, að skipta út krónu fyrir gjaldmiðil sem hagkerfi okkar er ekki í takti við.

Finnar gerðu mistök þegar þeir skiptu út markinu fyrir evru án þess að huga að ákvörðunum helstu viðskiptavinir sinna. Írar eru í mikið til sömu stöðu. Þeir tóku upp evru en helsta viðskiptaland þeirra er Bretland og Bretar halda í sína mynt.

Vel má vera að sá tími komi að það henti okkur að taka upp aðra mynt. En það þarf að vera að vel athuguðu máli og við þurfum að tryggja að hagkerfi okkar sé í takt við það hagkerfi sem við tengjum okkur við.

Ef við hættum ekki þessari "svívirðilegu meðferð okkar á krónunni" eins og þú segir, þá er tómt mál að taka upp annan gjaldmiðil.

Ragnhildur Kolka, 1.5.2009 kl. 20:44

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Fróðlegar vangaveltur hjá ykkur. Mér heyrist samt atvinnurekendur uppgefnir á krónunni og við verðum að taka mark á þeim.

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 21:34

3 identicon

Baldur: Ef við ættum að verða við öllu sem atvinnurekendur biðja um þá værum við enn að velta því fyrir okkur hvernig við ættum að geta fengið AGS til landsins og samt lækkað stýrivexti. Öðruvísi hefði ekki verið hægt að verða við kröfu SA.

Stór hluti af málflutningi hagsmunsamtaka er viðbragð við umkvörtunarefnum hverju sinni, væl á Íslensku. Það er ekkert heildstætt og úthugsað hagsmunamat þarna á bakvið. Á meðan að króna er við lýði kvarta menn undan gengissveiflum og öðru sem því fylgir. Ef eitthvað annað kemur í staðin væla þeir jafn hátt og biðja um mótvægisaðgerðir vegna ósveigjanlegs gengis.

Auðvitað á að hlusta á hagsmunasamtök en það verður að skilja að málflutningur þeirra er það sem hann er.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 22:26

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Áhugaverð röksemd. Hagsmunasamtök vinna vitaskuld að hagsmunum fárra og hafa engan áhuga á heildarsýn.

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 22:35

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir öllsömul, ég er sjaldan sammála öllum ræðumönnum en er það eiginlega núna.

Halldór Jónsson, 2.5.2009 kl. 10:17

6 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Halldór, þínar skoðanir breytast aldrei hvað sem á dynur, eftir 18 ára óstjórn Sjálfstæðisflokksins stendur þú eins og hundur á roði og lofsyngur þennan flokk og alla hans ráðmennsku. Þú vilt halda í ísl. krónuna, hvernig mun okkur farnast með hana í framtíðinni? Þeir sem vita nákvæmlega hvernig okkur muni reiða af eftir inngöngu í ES munu ekki síður geta sagt okkur allt um framtíðina ef við göngum ekki inn og ætlum að búa við krónuna áfram.

Besta ráðið sem ég gef þér er að þú lesir grein Jóns Steinssonar hagfræðings í Morgunblaðiðnu 27. apríl sl.

Með bestu kveðjum.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 2.5.2009 kl. 10:46

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Afturhöld og íhöld allra landa vilja að gengi gjaldeyris þeirra sveiflist eftir verði á frumatvinnugreinum. Gengi okkar sveiflist eftir markaðsverði á þorski, í Noregi eftir verði á olíu, Finnsland og Svíþjóð eftir verði á timbri.

Spyrjið hinsvegar iðnað og ferðaþjónustu hvort þeir vilji lifa og gera áætlanir í slíku umhverfi. Spyrjið Nokia í Finnlandi hvort það sé ekki auðveldara að markaðsetja síma með stöðugan gjaldmiðil. Það sem að CCP og Marel dreymir um.  Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 2.5.2009 kl. 11:02

8 identicon

Gunnlaugur: Í leiðinni má biðja þá finnsku í leiðinni um graf sem sýnir atvinnuleysisþróun hjá þeim síðustu 15 ár.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 12:03

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Google Þýðing frá finnsku til ensku


Väyrynen: The euro was a mistake to Finland

30.4.2009 10:22

A A

HELSINGIN SANOMAT

 

 

Paavo Väyrynen

External Trade and Development Minister Paavo Väyrynen (Center), criticizes the Finnish decision to join the 1990s, the European Economic and Monetary Union (EMU). Väyrynen, "says the East-Savo newspaper interview that Finland should have been the Swedish way to keep the monetary union and the euro currency outside.

Väyrynen is opposed in the forest ankealla situation. In Finland, the forest giants make heavy losses, while the Swedish companies have benefited from a favorable rate for the krona.

"I said back then that we should not have to go EMU, at least without the country. Now, the Swedish forestry industry benefits from the expensive euro," Väyrynen said in East Savolle.

Väyrynen admits that it is difficult to assess to what extent the Finnish forest industry's current difficulties are the result of expensive euro. Eron Sweden sees him, however, Stora Enso's position. The forest is a giant, previously told the transfer production to Sweden and Eastern Europe, foreign currency interest.

Slóð:  Þýðing frá finnsku til ensku

Einn góður vinur minn vildi vita hvaðan ég hefði þetta.

Halldór Jónsson, 2.5.2009 kl. 12:59

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Var nokkuð vandamál að markaðssetja vöru sína í evru eða dollar á davíðstímanum ? Innlendur kostnaður var í krónum, varan eld í stöðugum gjaldmiðli. Enginn þurfti að halda á krónum lengur en hann vildi sjálfur. Þú máttir  gera upp í evrum ef þú vildir. Hvað er að öllu þessu fólki að sjá ekki að það er viðskiptafrelsið sem skiptir öllu máli.

Halldór Jónsson, 2.5.2009 kl. 13:02

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hárrétt, Halldór. Það var nákvæmlega ekkert að í þessu landi fyrir bankahrunið. Þá var allt í sóma. Hverfum aftur til Davíðstímans.

Baldur Hermannsson, 2.5.2009 kl. 13:33

12 Smámynd: P.Valdimar Guðjónsson

Rónarnir koma óorði á brennivínið.  Auðrónarnir komu óorði á krónuna.  Það komust í sjóðina og bankana menn sem höguðu sér líkt og ráðnir væru Austurstrætisrónar í lagergeymslu ÁTVR.

Frankenstein reis upp.  Eftirlit, aðhald og stjórnun peningastefnu var ekki sem skyldi það er ljóst.  Skepnan fór á flipp og fyllerí.

En hvort hentar betur smáþjóð. Sveigjanleiki í mynt eða stífni.

Við þurfum sennilega enn meiri sveigjanleika en þó var í góðærinu.   Á móti miklu strangara regluverk innan rammanns og strangara fjármálaeftirlit.

Það er ekki tilviljun að smáþjóðir hafa talið hag sínum betur borgið utan þessa klúbbs.   Við erum ekkert öðruvísi nema síður sé.  Enn frekar með þessar mörgu auðlindir og hátt menntunarstig.

P.Valdimar Guðjónsson, 2.5.2009 kl. 13:57

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Auðróni!

Orð dagsins!

Baldur Hermannsson, 2.5.2009 kl. 14:04

14 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Ég var að horfa á þátt á sænsku stöðinni um eymdina sem er í ymsum evrulöndum. Hafi ég einhverntíma trúað því að evran reddaði öllu hér núna(sem ég hef reyndar gert í fáfræði minni)geri ég það ekki lengur. það er mikil ábyrgð að gleypa allt hrátt í þessum málum. Landið okkar er ríkt þó það sé það ekki í peningaseðlum. það yrði hlustað meir á þig ef þú værir óflokksbundinn. Mig langar að vita hvað finnst um vatnsauðinn okkar.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.5.2009 kl. 15:35

15 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þessi Evru umræða er öll á þvílíkum villigötum því það eru engar líkur á að við verðum í stakk búin til að taka upp Evru fyrr en í fyrsta lagi eftir 5 ef ekki 10 ár.  Fyrr verður ekki kominn nægur stöðugleiki á íslenskt efnhagslíf eða gengi krónunnar til þess að ESB taki það yfirleitt í mál að leyfa okkur að taka upp þenna gjaldmiðil og kannski verður þá búið að leggja hann af.  Höldum okkur því við að leysa þau vandamál sem þarf að leysa með okkar krónu og tökum svo upp þetta Evruhjal aftur eftir svona 4 - 5 ár.

Atvinnurekendur munu alltaf kenna öðrum en sjálfum sér um það að geta ekki rekið fyrirtækin, svona eins og kartöflubændur sem ýmist eru með svo rýra uppskeru að þeir geta varla lifað af greininni eða þá að uppskeran er svo góð að þeir fá nánast ekkert fyrir hvert kíló af kartöflunum.  Og þá myndi lítlu skipta hvort þar væru Evrur eða bara gamlar íslenskar krónur.

En þó svo að við höldum okkar krónu, þá getum við alltaf gert samninga um viðskipti í Evrum og svo má svo sem alveg veita fyrirtækjum sem eru í miklum erlendum viðskiptum heimild til að gera upp sína ársreikninga í Evrum eða öðrum gjaldmiðlum.

Ómar Bjarki Smárason, 2.5.2009 kl. 16:44

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir öll. Anna, mér finnst svo gráupplagt fyrir Ísland að leita eftir fríverslun til vesturs til viðbótar við EES. Við erum rík þjóð mitt á milli áhrifasvæðanna. Við getum nánast allt. Við eigum vatnið, loftið, fiskinn og kannski olíuna líka. Fámenn þjóð í ríku landi. Við þurfum bara að fara vel með þjóðernið og krónuna. Hvorutveggja er of dýrmætt til að kasta því á glæ. Við þurfum bara að halda aftur af heimskunni sem alltaf hrjáir okkur.

Halldór Jónsson, 2.5.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 3418433

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband