Leita í fréttum mbl.is

Bankakerfið og -pí-lögmál Halldórs.

Á Íslandi eru um 5000 bankastarfsmenn sem veita þjónustu í eitthvað 150 útibúum. Í Bandaríkjunum voru bankastarfsmenn um 1.8 milljón árið 2004 og störfuðu í tæplega 88 þúsund útibúum. Ég geri ráð fyrir að störfum hafi ekki fjölgað og að útibúum hafi frekar fækkað í Bandaríkjunum á síðustu og verstu tímum.

 Það er einfalt að margfalda þessar bandarísku tölur með þúsund til þess að sjá að það er eitthvað rotið í Danaveldi eins og Hamlet hefði orðað það. Bankastarfsmenn á Íslandi eru nærri þrisvar sinnum of margir og útibúin eru helmingi of mörg ef maður mætti nota gömlu góðu "miðað við fólksfjölda" regluna . 

Miðað við pí-lögmálið mitt þá er það nærri því að gilda um fjölda bankastarfsmanna okkar á móti Bandaríkjunum. En pí-lögmál Halldórs hljóðaði þannig, að allt væri pí-sinnum dýrara á Íslandi en í USA. Nema brennivín sem er hér meira en tvö-pí sinnum  dýrara hér en þar. Þetta getur sveiflast til innan skemmri tímabila, þegar mikið gengur á í gengismálum. En til lengri tíma litið þá gildir þetta lögmál nokkuð vel sem viðmiðunarregla við meðalaðstæður.

Íslendingar eru líklega svona miklu meiri fjármálaþrjótar en Kanar að það þurfi pí sinnum meira mannafl til að rukka menn hérlendis en þarlendis.  Meðalkaup bankastarfsmanna í USA var 68 þúsund dollarar árið 2006. Þá tóku yfirséníin í Kaupþingi sér tæpa  milljón dollara á mánuði í laun og kaupauka, af því þeir voru svo klárir að þeirra jafningjar fundust hvergi á jarðkúlunni. Fimmtán manna makar voru jafnvel óþekktir í Hellismannasögu þar sem fjögramaki var efstur heljarmenna.

Ekki er við að búast að þessar tölur breytist við þá allsherjar ríkisvæðingu bankakerfisins  sem nú er hafin undir nýrri ráðstjórn Alþýðulýðveldisins Íslands.

(Það vita allir að pí er nálægt 22/7 er það ekki ?)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Góður pistill hjá þér Halldór eins og alltaf.

Það er eitt annað sem gaman væri að einhver skoðaði. Hvernig er með lánin sem bankarnir lánuðu fólki til íbúðarkaupa og annars. Hverjir eiga þessi lán núna. Voru bankarnir ekki búnir að setja þessi lán sem tryggingar til erlendra banka. Lenda kanski íslenskir íbúðaeigendur í því eftir nokkur ár að erlendir bankar koma og krefja þá um greiðslu á láni sem fólk er þegar búið að borga til gjaldþrota banka. 

Sigurjón Jónsson, 6.5.2009 kl. 10:08

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Stóru ríkin hafa alltaf stærðarhagkvæmni sem við náum aldrei.  Ég held þú gætir tekið nokkurn veginn alla þætti íslensks samfélags, borið þá saman við Bandaríkin og komist að því að á Íslandi ættu að vera 3-4 meðalstórar matvörubúðir, 5 sjoppur, 10 hárgreiðslustofur og einn banki með 2-3 útibúum.

Þú gætir líka skoðað hina hliðina, þ.e. hvað við ættum að vera að gefa út margar bækur eða tónlistardiska á ári miðað við sama hlutfall og annars staðar.  Hvað ættu að vera hér margar sinfóníuhljómsveitir o.s.fr.v.  Mjög oft erum við úr öllum takti við það sem almennt gerist sem ýmist er gott eða slæmt eftir eðli máls.

Við erum bara svona öfga-action-vertíðarþjóð og það er líklega það sem gerir okkur svolítið skemmtileg en jafnframt svolítið skrítin.  Við tókum hæstu uppsveifluna (líklega að Dubai undanskyldu) og tökum líklega dýpstu niðursveifluna.  Hér er aldrei lognmolla, hvort sem það er í veðurfarslegu tilliti eða félagslegu.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 6.5.2009 kl. 14:01

3 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Eitthvað nálægt 3,14. Sumir hafa gaman af hafa einkanúmer á bílunum sínum. Flóran orðin nokkuð skrautleg í þeim efnum. Í reglugerðinni er tekið fram að þau megi ekki innihalda neitt dónalegt. Ég heyrði þó um daginn að eitt númerið væri 22/7KA. Þetta er að sjálfsögðu hroðalega dónó og það ætti að taka skráningarmennina og refsa þeir harðlega.

Sigurður Sveinsson, 6.5.2009 kl. 14:45

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ja Sigurjón

Nú er ég ekki klár á köttinn. En ef það fer eins og sumir tala um, að skilja vafapappírana eftir í þrotabúunum þá getur þetta skeð. Við verðum að breyta þessum gjaldþrotalögum okkar strax  svo að fólk eigi yfirleitt viðreisnarvon sem lendir í hamförunum.Ég var að andskotast í þessu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og mér fannst tekið undir þetta. En það var vist skakkur flokkur til að röfla í.

Skemmtileg greining hjá þér Sigurður Viktor, við erum um margt sérstakir, En af hverju þurfum við að borga jafnmikið fyrir benzínpottinn og Kaninn fyrir gallónið. Er það ekki líka pí ?

Sigurður, er þetta virkilega satt ? Eitursnjallt hjá viðkomandi ef hann komst í gegnum nálaraugað með þetta.

Halldór Jónsson, 6.5.2009 kl. 17:46

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Kannski er það vegna þess að í USA er hægt að skila inn veðinu og vera þarmeð laus allra mála, meðan að hér er hægt að ráða fólk í að elta mann til dauðadags ef lánin vaxa umfram veð og greiðslugetu.

Héðinn Björnsson, 8.5.2009 kl. 00:23

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Einmitt Héðinn,

Það er þetta sem verður að breytast hérna.

Það er bí bí og ga ga að fólk sem skuldar segjum 40 milljónir í gengisláni og missir hana í hendur bankans fyrir 10 milljónir því enginn anar býður á uppboðinu.

Þetta fólk  skuli til æviloka vera eltt fyrir hinar 30 milljónirnar, þó að þó geri sig gjaldþrota við uppboðið.

Halldór Jónsson, 8.5.2009 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband