6.7.2009 | 22:07
Mátulegt á þá ?
Hversvegna eigum við að vera að borga Icesave ? Hvað koma athafnir íslenzkra glæpamanna mér við ? Eða þjóðinni allri ? Ekkjunni með eyririnn sinn ? Öryrkjanum með ómegn sitt ? Einstæðu móðurinni ? Ófæddu börnunum ?
Mér finnast ráðamenn okkar vera ráðalaust fólk. Fáráðlingar og rolur. Að detta í hug að leggja tvöfalda Versalasamninga á okkar bognu bök ! Okkur sem vorum ekki einu sinni í stríði !
Krimmarnir í Landsbankanum beittu með galdraþulum fyrir meðaljóninn í Bretlandi og Hollandi með loforðum um hærri vexti. Gróðafíknin tældi þeirra heimskingja til þeirra íslenzku bófa, sem flögguðu með " The National Bank of Iceland" . Hver treysti ekki þjóðarbanka Íslands til að borga hæstu vexti ?
Það var galið að selja Björgólfi þetta nafn með bankanum, nýkomnum frá Rússlandi. Hann var líka fljótur að opna útibú í Pétursborg eftir kaupin. Þetta er eins og selja einhverjum íslenzka fánann og segja honum að fara í víking með hann. Leyfi Buccaneers til að ræna yfir heimshöfin með ríkisábyrgð ?
Hvað gátu þeir Sigurjón Digri og hinir í Landsbankanum ekki svikið marga bara með svona stóru nafni, sem beinlínis ber í sér fyrirheit um ríkisábyrgð ? Var þetta ekki stór þáttur í því að fá útlendinga til að leggja inná Icesave ?
Við sem þjóð getum hinsvegar ekki borið ábyrgð á því að íslenzkir krimmar féfletti útlendinga. Ekki frekar en Nígería tekur ábyrgð á að einhverjir Nígeríumenn lofuðu Íslendingum sem öðrum líka gulli og grænum skógum. Þeir plötuðu marga Íslendinga sem ég þekki. Þeir titluðu sig sem einhverja Prof.Dr.UmbaGumba og sögðust vera beint inni í ráðuneytunum og þyrftu að koma peningum inná íslenzka reikninga. Gegn furstalega háum vöxtum. Og jafnvel greindustu menn féllu fyrir gróðafíkninni. Alveg eins og litlir og stórir Bretar og Hollendingar fyrir Icesave.
Sem var bara the big Icescam ! Samstofna við hið alsvarta Nigeriuscam, nema þeir eru hvítir í framan í Landsbankanum.
Þeir sömu Íslendingar og létu ginnast af Nígeriscamminu vilja ekkert tala um þetta. En áreiðanlega datt þeim aldrei í huga að lögsækja Nígeríustjórn fyrir. Hvað þá svörtu þrjótana sjálfa.
Þessvegna er það svo arfavitlaust að halda að Íslendingar eigi að borga fyrir Icesave sem bankakrimmarnir okkar fundu upp. Þeim var bara nær þessum ösnum sem létu þá gabba sig.
Mátulegt á þá !
Þessi helvíti í íslenzku bönkunum göbbuðu mig til að kaupa hlutabréf í þessum bönkum sínum. Allt tapað og ég sit uppi með það að hafa verið reyktur! En ég er ekki að heimta að Seðlabanki Íslands eða Fjármálaeftirlitið eigi að bæta mér skaðann. Ég var fíflið ! Og ég vissi líka að Murphy segir að það sé ósiðlegt að láta fífl halda peningunum sínum og hefði þessvegna átt að gruna þá um græsku. Allt kom fyrir ekki, þeir náðu mér helvítin atarna þó að ég sæi við Nígeríubófunum á sínum tíma .
Til hvers á ég þá að vera að borga fyrir bresk og hollenzk fífl ?
Mátulegt á þá !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Er ekki málið að nafn Landsbankans hefur villt Bretum og Hollendingum sýn og þeir haldið að þetta væri "National Bank of Iceland" sem hann var ekki, þó hann hafi kannski einu sinni verið það.... þannig að þetta heila mál er byggt á misskilningi... svona "lost in translation dæmi".... snjallir lögfræðingar hljóta að geta sýnt fram á það, ef þeir eru ekki allir allt of uppteknir að því að verja "auðvisana"..... og kannsk hefði ríkið átt að selja Björgúlfunum Lánsbanka en ekki Landsbankann!!!
Ómar Bjarki Smárason, 6.7.2009 kl. 23:23
Steingrímur, það hefur enginn ráðherra lögformlegt leyfi til að skuldsetja ríkið nema með samþykki alþingis. Hafi einhver sagt eitthvað sem mætti túlka svona þá er það aldrei bindandi nema með aðkomu þjóðþings. Til þess er þingið. Ef þessar fyrri umræður væru ígildi samnings þyrfti ekki allan þennan málarekstur hér. Ég held þú misskiljir heiður. það er enginn heiður í að samþykkja skuldir á Ísland umfram þær sem því ber og eyðileggja innviði þess til áratuga. Sagan mun ekki fara fögrum orðum um þá sem lögformlega sökkva íslandi, hvar er kjarkurinn sem var á Kópavogsfundinum þegar sagt var: "Vér mótmælum allir".
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 7.7.2009 kl. 07:24
Kollege Steingrímur
Ég held að fólk hafi nú ekki hlustað fyrst á Davíð tala vel um íslenzka banka og svo lesið og fallið fyrir auglýsingum frá National Bank of Iceland um hærri vexti. Hefði hann talað illa um bankana þá hefðu fleiri en þú talið slíkt þjóðhættulegt, sem neikvæð umræða um banka er alltaf. Vill nokkur yfirleitt ræða íslenzka banka núna ?
Ómar,
þetta var Lánsbanki. Nú geta Bjöggarnir ekki borgað lánið sem þeir fengu hjá kaupþingi til að kaupa bankann af ríkinu.
Adda,
Var það ekki á Menntaskólafundinum sem þingmenn tóku undir með Jóni Sigurðssyni og sögðu þetta við Trampe greifa. En vér mótmælum allir hlýtur að vera það sem við segjum núna við Icesave.
Pétur Blöndal segisr að við megum aldrei skuldbinda okkur meira en 1 % af landsframleiðslu árlega vegna Icesave. Ríkisábyrgðin verði að toppa þar.
Hvað segir Steingrímur um það ?
Halldór Jónsson, 7.7.2009 kl. 07:48
Landsbankaskammirnar eru búnir að gera meiri skráveifu en Nígeríusvindlararnir .Tökum dæmi :."Adu Oniakweli þarf að flytja mikið fé til Englands en þarf að stofna reikning en fær ekki af pólitískum ástæðum.Getur þú stofnað 200 punda reikning fyrir hann með margföldum hagnaði og .................." Nei flestir sjá í gegnum þetta. En það var mjög erfitt að standast Icesave loforðin enda með Ísland sem bakhjarl og Ísland naut mikils traust fyrir 1-2 árum síðan.Auglýsingarnar og vefurinn var mjög flottur.Við erum búnir að tapa traustinu sem við höfðum.
Hörður Halldórsson, 7.7.2009 kl. 10:51
The National Bank of Iceland. Hver treystir ekki svona nafni jafnvel þó að Icesave hafi aðeins verið í 16 sæti hvað innlánsvexti varðar sem í boði voru á markaði. Ég held að þeir hafi farið langt á þessu flotta nafni.
Þeir Landsbankamenn voru hinsvegar meðvitaðir um að þeir voru að fremja hættulega hluti þar sem þeir tímdu ekki að að stofna dótturfélag á Englandi. Þeir vissu alveg hvað þetta gat kostað.Þar liggur alvarleikinn í athæfi þeirra. Einbeittur og meðvitaður brotavilji myndi einhver kalla það. Og íslenzk stjórnvöld gerðu ekkert til að stoppa þá.
Halldór Jónsson, 7.7.2009 kl. 13:39
Ótrúlega vel skrifuð grein hjá þér - mikil & góð speki eins og ávalt frá þér! Í mínum huga hafa íslenskir bankaeigendur framið stærstu BANKARÁN sögunnar - meiriháttar afrek hjá þeim - en frekar skítinn tilfinning að íslenski SAUÐURINN eigi að greiða hluta ránsfengsins til baka - bara af því að þessi GLÆPAMENN fæddust á Íslandi.... Síðast þegar ég vissi voru þetta EINKABANKAR og það skiptir lagalega séð litlu máli hvað "Solla stirða, ekki meir Geir & Björgvin Sig "blaðra & bulla" slíkt hefur enginn lagaleg gildi - þó vissulega hafi þeirra HEIMSKULEGA blaður vissulega siðferðislegt gildi!" Á þjóðin að taka á sig allar þessar birgðar af því að HEIMSKIR & SPILTIR íslenskir stjórnmálamenn þáðu "mútur & verndartolla frá útrásar skúrkunum?" Ég fagna því þegar allt þetta lið (DRASL) verður sent í fangelsi og látið sæta ábyrgð fyrir íslenskum dómstólum. Sköm þeirra er ÆVARANDI..!
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson, 7.7.2009 kl. 14:15
Það gerir fólk ekki að fíflum að vera platað af banka. En að maður hafi sagt e-ð í viðtali úti í bæ, eru tæplega rök fyrir því að ríkissjóður Íslands sé ábyrgur fyrir tapinu. Hvað með allt fólkið sem var logið að og platað af starfsmönnum innan bankanna og annarra lánafyrirtækja og tapaði? Ekki hefur ríkissjóður bætt mér upp neitt tap þó slíkur starfsmaður hafi valdið mér stórtapi.
Elle_, 9.7.2009 kl. 21:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.