Leita í fréttum mbl.is

Blásandi BYR !

Frétt hefur komið um það að Steingrímur J. f.h.ríkissjóðs ætli  að leggja fram 10 milljarða til að blása á í seglin hjá BYR. Caddið er orðið alltof lágt á þeim bæ. Ólögleg stjórnin í bankanum(kosin með atkvæðafölsun og umboðssvikum) gerir ekki neitt í málinu nema að verðlauna afreksmanninn í bankastjórastólnum með áframhaldandi setu. Nú hefur enn bæst í bunkann sem bendir til þess að reikningurinn síðasti hafi verið fegraður af endurskoðandanum. Tap bankans á síðasta starfsári nam einum milljarði fyrir hverja milljón sem sá bankastjóri hafði í laun. Geri aðrir betur !  Málum fyrri bankastjórnar og bankastjórans vegna stofnfjárbréfasölu þessara aðila með meira en milljarðsláni á yfirdrætti  úr bankanum sjálfum, hefur verið vísað til sérstaks saksóknara vegna mögulegra umboðssvika. Samt er bara allt í lagi og ekkert gert. Allt í þessu fína og" business as usual."

Stofnfé þeirra sem voru prettaðir til að auka stofnféð um sömu upphæð og tapið eiga að þynnast út í ekki neitt.  Ríkið var áður búið að lána VBS og Saga Capital risalán á málamyndavöxtum til langs tíma. Nú heyrist ekkert í ríkinu nema bara að leggja fram óafturkræft framlag og búa til enn einn ríkisbankann.  Ekki að spyrja stofnfjáreigendur hvort þeir vilji hugsanlega kaupa meira stofnfé á Sögulegum/VBS kjörum?

En það vill kannski enginn kaupa meira stofnfé ef sama liðið og fulltrúar sömu afla eiga alltaf að sitja kyrrt við stjórnvölinn á hverju sem gengur ?

Meiri ríkisvæðingu! Það er blásandi BYR í seglin á strönduðu skipi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ljótt er ef satt er og því miður er svo komið að öllu verður trúað upp á stjórnendur þessa dæmalausa fyrirtækis. Það vekur aftur athygli á þætti endurskoðenda í þessu fyrirtæki sem og mörgum öðrum viðlíka. Ég tel að nú sé ekki lengur við unað að endurskoðunarfyrirtæki sleppi við sjálfstæða rannsókn á aðild þeirra í aðdraganda hrunsins síðastliðið haust.

Árni Gunnarsson, 2.11.2009 kl. 20:27

2 identicon

jón ásgeir og co greiddu sér 13.5 milljarða í arð úr byr....og nú eigum við að klára dæmið fyrir hann enn og aftur

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 3.11.2009 kl. 17:25

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Og Árni, endurskoðandinn Sigurður, sem þáði litlar 30 milljóir fyrir sinn snúð, er í forsæti á opinberum fundum um þessar mundir, getur hann útskýrt hversvegna að BYR er kominn á hausinn og verður að fá 10 milljarða björgun örfáum mánuðum eftir að endurskoðandinn skrifaði uppá að allt væri í lagi í árslok 2008 ?

Þá kaus Nóatúnsfjölkyldan fulltrúa sína í stjórnina með atkvæðum barna sinna sem skulduðu atkvæðin uppí Glitni. Karen, svona eru vinir Jóns Ásgeir góðir við hann. 

Halldór Jónsson, 4.11.2009 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418293

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband