Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Er þetta fólk í lagi ?

Málgagn ríkisstjórnarinnar skýrir svo frá: 

"Tilboðið sem átti að leggja fyrir hollensku og bresku samninganefndirnar í kvöld var ekki lagt fram vegna þess að stjórnarandstaðan lagðist gegn því. Þeim þótti tilboðið bæði lélegt og vanhugsað.

Meðal skilyrða í samningaviðræðunum er samstaða stjórnar og stjórnarandstöðunnar hér á landi. Stjórnarandstaðan var ekki sátt við tilboðið sem varð til þess að það var ekki lagt fyrir erlendu samninganefndirnar.

Samkvæmt heimildum Vísis þá stóð til að gera annað tilboð um helgina en stjórnarandstaðan fékk klukkustund til þess að fara yfir það áður en það átti að leggja það fyrir samninganefndir Hollendinga og Breta. Stjórnarandstaðan sætti sig ekki við það og því var fallið frá að senda tilboðið."

Liggur ríkisstjórninni svona á með að koma okkur á klafann, að þeir geta ekki hamið sig eða farið að þeim samningum sem þeir voru búnir að gera við stjórnarandstöðuna ? Svíður þeim Indriða og Svavari svona sárt niðurlægingin sem þeir urðu fyrir eftir "glæsilegu niðurstöðuna"  ?

Snýst þetta um réttlætingu persóna eða hagsmuni þjóðar ? Þeir semja tilboðin og hinir eiga að stimpla. Er fyrirlitningin stjórnarinnar á dómgreind stjórnarandstöðunnar svona  alger ?

Er þetta fólk bara í lagi ?


"Alþjóðasamfélagið "


Magnús Thoroddsen skrifar skynsamlega um Icesave málið að mínum dómi í Mogga í dag.

 

Grípum niður í grein Magnúsar:

  

….”Mánuðum saman hefir því verið haldið fram af hálfu ríkisstjórnar Íslands að við verðum að greiða Icesave-skuld þessa, ella setji fyrirbæri er hún kallar »alþjóðasamfélagið« oss út af »viðskiptasakramentinu« og hér fari allt í kalda kol, enda sé ekki unnt að ná betri samningum við Breta og Hollendinga en þeim er samninganefnin sáluga hafi marið svo snilldarlega í gegn hinn 6. júní 2009.

 

En bíðum nú við, ef eitthvað er til, annars staðar en í áróðursheimi íslenzku ríkisstjórnarinnar sem heitir »alþjóðasamfélagið«, hlýtur það þá ekki að fara að lögum?

 Verður þá ekki að kanna rækilega hvaða lög það eru sem leggja rígþunga greiðslubyrði á íslenzka skattgreiðendur vegna skulda er einkaaðiljar hafa stofnað til.

Þetta var því miður ekki gert af hálfu ríkisstjórnarinnar (né af fyrri ríkisstjórn) þótt lagaskyldan sé vitanlega grundvallaratriðið í þessu efni. Þetta var að sjálfsögðu skelfileg yfirsjón af hálfu ríkisstjórnarinnar, sem verður að bæta úr. Það er ekki of seint því að hér er um grundvallaratriði að ræða, sem allt annað veltur á.

  Sem betur fer sváfu ekki allir á verðinum í þessu efni eins og ríkisstjórn Íslands. Þeir Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður og Stefán Már Stefánsson prófessor hafa ritað margar greinar um þetta efni (síðar bættist Sigurður Líndal prófessor í þeirra hóp) og birt í Morgunblaðinu þar sem greiðsluskylda Íslendinga er véfengd með skýrum hætti og rökföstum. Í þessu sambandi má t.d. vitna til greina nefndra lögfræðinga í Morgunblaðinu hinn 12., 13., 14. og 15. janúar 2010. Þessir menn eiga skilið þjóðarþakkir fyrir framtak sitt og ósérplægni í þessu máli.

Einnig er rétt að vekja athygli á grein eftir Alain Lipietz, franskan hagfræðing og fyrrverandi þingmann Evrópuþingsins, sem var eftirlitsaðili í bæði skiptin er breytingar voru gerðar á tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar nr. 94/19 EC er birtist í Morgunblaðinu hinn 12. febrúar 2010. Vegna starfa sinna á Evrópuþinginu gerþekkir maður þessi ákvæði og gildissvið reglna Evrópusambandsins um innstæðutryggingar. Þá er og rétt að benda á hvað þeir Sören Wibe, prófessor og fyrrverandi þingmaður á Evrópuþinginu, og Arne Hyttnes, forstjóri Innstæðutryggingasjóðsins norska, hafa um þetta efni að segja (Mbl. 4. og 18. febrúar 2010.) Í greinum þessum ber allt að sama brunni: Lagaheimildir skortir til að leggja greiðslubyrði vegna Icesave-skuldanna á íslenzka ríkið.

 Þessu til frekari áréttingar ber að hafa í huga að hvorki Bretar né Hollendingar hafa þorað að vísa máli þessu til dómstóla til endanlegrar úrlausnar svo sem venja er til þá tveir deila og ekki næst samkomulag þeirra í milli. Og það sem meira er, Evrópusambandið hefir nú sjálft ákveðið að gerbreyta tilskipunum sínum um innstæðutryggingar þar sem núgildandi reglur eru ófullnægjandi á þessu sviði.

Allt segir þetta sína sögu og er málstað Íslands til geysilegs styrks þótt enn daufheyrist ríkisstjórn Íslands við þessum álitum og þrástagist á því að við verðum að taka á okkur sanngjarna greiðslubyrði vegna Icesave-skuldanna. En menn hljóta þá að spyrja sig: Hvar er sanngirnin í þessu máli þegar lagagrundvöllurinn brestur? …..”

  

….”Góðir Íslendingar! Við skulum öll mæta á kjörstað hinn 6. marz nk. og fella - já kolfella - þennan nauðungarsamning um Icesave, rétt eins og forfeður okkar felldu Sambandslagasamninginn árið 1944, og sýna þannig og sanna, gagnvart okkur sjálfum og umheimi öllum, að við eigum ekki þessa ríkisstjórn skilið og neitum alfarið að beygja okkur undir skuldaok nýlendukúgaranna.

  

Þegar þessu þjóðþrifaverki er lokið tjáum við Bretum og Hollendingum að málið hafi nú hlotið þá lýðræðislegu meðferð sem stjórnarskrá hins íslenzka lýðveldis frá 1944 mæli fyrir um. Frekari samningaviðræður séu því þýðingarlausar en ef þessi ríki telji sig eiga einhvern lögvarinn kröfurétt á hendur íslenzka ríkinu vegna Icesave skuli þau sækja þann rétt fyrir dómi.

 

Varnarþing hins íslenzka lýðveldis sé hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. “

 

Héðan frá Guðs eigin landi veltir maður fyrir sér hvernig Bretar og Hollendingar hefði gengið fram ef Landsbankinn okkar hefði verið bandarískt félag ? Ætli Gordon Brown hefði beitt hryðjuverkalögum á Sám frænda ? Ætli Obama væri á harðahlaupum eftir Bretum og Hollendingum um að grátbiðja þá um að semja við sig ? Ætli einhverjir bandarískir lögmenn hefðu ekki látið sér heyra með mótbárur um lagarétt eins og framangreindir lögmenn okkar sem vísað er til ?

 

Magnús á þakkir skyldar fyrir það að vekja athygli á klisjunni “alþjóðasamfélagið” sem þeir vinstri menn hafa fundið upp. Sérstaklega hafa kratarnir verið iðnir við að koma því að í áróðri Baugsmiðlanna, að þarna sé átt við Evrópubandalagið sem er um fimmtungur af ríkjum heims.

 

Og þá skulu menn hafa í huga að þessi fimmtungur  er raunverulega gamalt nýlenduveldi Breta, Frakka, Þjóðverja og að einhverju leyti Hollendinga, Belga og Danmerkur. Þessum ríkjum fylgja svo einhverjir tveir tugir leppríkja, sem sitja og standa eins og herraþjóðirnar boða, því þeir halda að þannig fái þeir meiri lán.  Það er hinsvegar að renna upp fyrir Grikkjum, Spánverjum, Írum og fleirum að það verður styttra í hjálpræðinu en þeir vonuðust til. Og nýlenduveldin eru líka hugsanlega að tortíma sjálfum sér innan frá, með vaxandi innflutningi framandi múslímaþjóða sem vinnufafls, þannig að eftir einhverja áratugi getur orðið  spurning um hestaflatölu hreyfilsins sem knýr ferlíkið áfram í dag.

 

Er ekki furðulegt hvernig Íslendingar eru að þeytast um á eftir Bretum og Hollendingum að biðja um að fá að undirgangast drápsskuldbindingar, sem þeim hugsanlega koma ekkert við, vegna þess að annars fáist ekki lán hjá “alþjóðasamfélaginu”  til að borga næsta árs afborganir ?

 

Annars á maður sosum ekki ekki að vera hissa þegar maður lítur yfir liðið sem myndar þingmeirihlutann. En í honum virðist helst aðeins vera ein manneskja vera sem gerir sér grein fyrir því hvar hún er stödd og hvar Íslendingar eru staddir. Og fyrsti stafurinn er ekki Jóhanna. 

 

Skjaldborgin um heimilin er eitthvað sem bíður betri tíma og uppboðsauglýsingum fjölgar dag frá degi. Atvinnuleysi og andflótti vex.  En klisjan um "Alþjóðasamfélagið" er kirjuð þar bæði seint og snemma. 


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband