Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Fasistarnir á ferðinni !

Nú raða þeir sér upp þrír í röð umhverfisfasistarnir í Baugstíðindunum sem vilja rífa upp lúpínuna og kerfilinn, þau Svandís, Sveinn og Jón . Hugsanlega þora þeir tveir ekki annað en skrifa undir vitleysuna úr Svandísi af ótta við að verða annars reknir því maður þekkir þá tvo annars af öðru en heimsku og ofstopa.

Ég hef verið með erlendum ferðamönnum undanfarið í rútubílum. Þeir hafa óspart látið í ljósi aðdáun sína á lúpínunni sem nú hefur skartað sínu fegursta og sögunni af henni,  hvernig öll þessi dýrð spratt af einu umslagi í farteski Hákonar Bjarnason þegar hann kom frá Alaska, Og þegar Sitkagrenið gnæfir uppúr lúpínubreiðunum þá vita þeir að Ísland ól einn slíkan framsýnismann, sem vildi bæta Fjallkonunni það tjón sem skammsýnismenn og neyðarbrauð aldanna hafði valdið henni. Lupina nootkatensis er hyllt sem einn besti innflytjandi sem þetta land hefur eignast. Þegar maður segir þeim svo söguna af Svandísi þá standa þeir agndofa.

Ég hvet fólk til að fara inná síðuna hans Ágústar H. Bjarnason frænda míns, www.agbjarn.blog.is krækja hér á síðunni og bera saman myndir núna frá Haukadalsheiði og frá 1960. Ekkert af þessu hefði orðið ef umhverfisfasistinn Svandís Svavarsdóttir hefði fengið einhverju ráðið.

Það er mín einlæg von að meinvætturin Svandís Svavarsdóttir hverfi sem fyrst úr ráðuneytinu áður en hún veldur þessari þjóð meiri skaða. Sem er þó orðinn ærinn þegar ef allt skyldi telja sem hún er búin að vinna þjóðinni með heimskupörum sínum. 


Fáheyrður fréttaflutningur Baugsvarpsins

Skondið að sjá hvernig Baugsvarp 2 sýnir frá landsfundi Sjálfstæðismanna í kvöld. Fyrst er sýnt viðtal við Þorstein Pálsson, kynntur sem fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins,  sem þarf raunar elstu menn til að muna eftir í því embætti á öldinni sem leið.

 Þorsteinn lýsir óánægju Sjálfstæðismanna með samþykktir landsfundar gegn ESB. Síðan eru sýndar myndir frá landsfundi, þar sem Þorsteinn var hvergi viðstaddur fremur en margra síðustu fundi.  Maður fékk á tilfinninguna að verið sé að leiða áhorfendur að því að Þorsteinn þessi, fyrrum ritstjóri Baugs,  sé að tala fyrir fjöldann í klofnum flokki. Þorsteinn talaði hvergi á þessum fundi þó hann láti nú mjög af Ólafi kóngi án þess að hafa heyrt hann né séð. 

Í ríkissjónvarpinu var sýnt frá fundi Þorsteins með óánægðum Sjálfstæðismönnum. Örfáir sýndist manni standa að baki Ragnheiðar Ríkharðsdóttur sem var voða óánægð að eigin sögn. Guðbjörn tenór sást ekki en hann gekk útaf landsfundinum þegar tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi fjölda atkvæða, líklega 95 %. 

 Mér sýnist að klofningurinn nái ekki 5 % af landsfundi og þá varla meiru á landsvísu. Ég get því ekki séð að uppúr þeim klofningi komi stór hópur til liðs við Samfylkinguna, sem er nú eini flokkurinn sem inngönguna styður með fylgi undir 25 % samkvæmt könnun í Mbl. 

Getur þetta kallast klofningur nema ef menn trúa svona fáheyrðum fréttaflutningi Baugsveldisins?


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418282

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband