Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Í hvaða banka er Bjartur?

þegar hann ber það á borðfyrir áhorfendur Sjónvarpsins að það sé reikningsdæmi hvenær maður borgi nýtt hátæknisjúkrahús, sem kostar 50 milljarða, upp að fullu með 2.5 milljarðs hagræðingu á ári? Og gleymir því líka að það á að nota gamla ónýta spítalann áfram líka og tengja hann þeim nýja.

Í huga venjulegs fólks sem þarf að sæta afarkostum ríkisbankanna í vöxtum og afborgunum er svarið nefnilega: ALDREI !

Hátæknisjúrkrahús borgar sig aldrei upp á fjármálaforsendum Guðbjarts Hannessonar ráðherra velferðar.


Vandi heimilanna

má hugsanlega hugsa sér að sé sú breyting sem orðin er á vísitölu meðalgengis í viðskiptavog Seðlabanka. Hún var 117.5 1.jan 2007. Eftir það hófst samhæfð samráðsatlaga íslensku bankanna, að gengi krónunnar. Þeir sem sáu líklega þá feigð sína framundan þegar þeir fengju ekki fleiri erlend lán sem varð svo í okt.2008 við fall Lehmans bræðra og fóru því að hamstra gjaldeyri og stórskertu með því lífskjör þeirra sem þeir segjast elska svo mikið.(Eru hýenur falleg dýr?). Nú vilja þeir hinsvegar fá borgað uppí topp þó að afskriftir milli gömlu og nýju bankanna skipti gríðarlegum upphæðum við endurreisn þeirra. Neytandinn á einskis að njóta af því segja ráðamenn bæði þjóða og banka.Segi ráðamenn eitthvað annað á tyllidögum þá klára þeir ekki dæmið og skjaldborgin er víst órisin ennþá að margra mati.

Nú er þessi vog 201,2 eða það þarf að slá af 48 % af verðbótunum á höfuðstólnum til að komast niður á sama stað og 2007.Ný lán koma þessu ekki við. Skuldir bankakerfisins eru líklega um og yfir 20 þúsund milljarðar. Vandi allra er sá að skuldirnar er um 10 þúsund milljörðum hærri en þær voru í ásrbyrjun 2007. Vandinn er sá að bankarnir, þeir sömu og stóðu fyrir atlögunni að krónunni með nokkurnveginn sama mannskap og nú, vilja láta borga sér þessa 10 þúsund milljarða til baka eins og þeir leggja sig.Þeim finnst þeir eiga þetta og mega þetta.Heimilisfólki sem mótmælir hér og á Wall Street, finnst þetta ekki.Bankar beri sinn hluta ábyrgða vegna glannaskapar og gírugra blekkinga. Eða hvernig vilja Banksterarnir okkar skýra áhlaup sitt á Íbúðalánasjóð 2004 öðruvísi? Áhlaup sem setti allt úr skorðum og reið efnahagskerfinu endanlega til andskotans.

Fasteignaveðin sem stóðu á móti þessu hafa rýrnað um þriðjung eða svo þannig að nýjustu lántakendurnir eiga ekki neitt í sínum íbúðum í dag. En áttu þeir skuldugustu nokkurntíman nokkuð?.Var ekki eiginfjárkrafan farin veg allrar veraldar? 90 % og 100 % lán er ekki ávísun á eign.

Íbúðalánasjóður segist eiag eigið fé uppá ca. 2% af brúttó sem eru bókfærðir sem 10 milljarðar.Útistandandi skuldir íbúðalána eru þá hugsanlega 500 milljarðar í lánum.Tæpur helmingurinn er þá svona 250 milljarðar sem kerfið er að krefja heimilin um í dag umfram það sem verið hefði án hrunsins.

Ef kæmi fram stjórnmálamaður sem segði að vð skyldum færa niður öll húsnæðislán íbúðalánasjóðs og banka niður í töluna frá 1.jan 2007, væri það talið nægilegt? Yrði honum trúað? Hvaðan eigum við að fá þessa 250 milljarða? Það er greinilegt að þá eigum við ekki til frekar en að útistandandi lánin eru fuglar í hendi. Þau eiga eftir að borgast.

Er þá ekki hægt að segja, að skuldbreytingin felist í því, að þetta fé verði reiknað út í hverju einsöku tilvikiaftur til 2007 og sett aftur fyrir síðasta gjaldaga núverandi bréfs og þær upphæðir byrji þá sem ný lán í vístölutryggðum krónum.Þeir sem voru komnir vel á veg með að greiða sín lán finna varla mikið fyrir þessu. Þeir sem voru með ný lán á hruntímanum fá frið og frest og viðráðanlega greiðslubyrði og hugsanlega hækkar íbúðin einhverntíman uppí eitthvað skynsamlegt.Þeirra forsendur hefðu allavega ekki stökkbreytst nema að íbúðarverðið er lágt um þessar mundir. En breytist það ekki eins og annað? Ekkert hefur þá tapast á pappírnum segjum við líka sé þessi leið farin.

Þeir sem ekki vilja ganga að þessu yrði gefinn kostur á að mega skila lyklunum til Íbúðalánasjóðanna án frekari innheimtuaðgerða og flytja úr landi skuldlausir ef þeir vilja, eða byrja bara uppá nýtt. Þá þarf að afsetja þessar íbúðir og verðið ræðst þá alfarið af markaðsaðstæðum.það tekur auðvitað tíma. En allir vetur enda taka og aftur kemur vor í bæ.

Spurning mín er þá sú. Sætta heimilin sig við eitthvað svona sem lausn? Eða vilja þau yfirgíruð neyslu-og bílalánin líka niðurskrifuð? Væri það það að öllu sanngjarnt?

Hvað sem gert er, þá verða veðandlagslán að hafa þann eiginleka, að menn skili veðinu í lagi og séu þá lausir allra mála en verði ekki þrælar ævilangt og lengra.Auðvitað verða endalaus afbrigði sem þarf að leysa.Einu sinni var Lilja Mósesdóttir með einhverjar svona hugmyndir en hún er sálfsagt núin að týna þeim eins og tryggðapöntunum frá Steigrími J.

Hversu stór er þessi vandi heimilanna? Þurfa heimilin ekki að setja fram tölurnar eins og þau sjá þær? Og sjá þá betur hvað er hægt yfirleitt að leysa?

Er viljinn hugsanlega ekki bara allt sem þarf? Sýna djörfung og dug og rífa okkur og þjóðina upp á r.....Og láta bankana makka rétt eins og hann Einar Olgeirsson orðaði það í gamla daga.

Eða er þetta bull frá byrjun hjá mér?

Hvað segið þið vísu bloggarar?


Atvinnuleysið yfir 20.000 manns

að minnsta kosti.

Gunnar Heiðarsson bloggvinur minn segir svo:

"Steingrímur sér atvinnuleysið minnka og notast þá við tölur um þá sem eru á atvinnuleysisbótum. Hann gleymir þeim sem hafa flúið land, hann gleymir þeim sem eru fallnir af atvinnuleysisbótum og komnir á sveitina og hann gleymir þeim fjölda sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum vegna þess að þeir voru einyrkjar.

Þegar samnlagðar tölur allra þessara hópa eru skoðaðar kemur í ljós að raunverulegt atvinnuleysi er nærri 20.000 manns. Sú tala liggur mun nær þeirri tölu sem kemur í ljós þegar fækkun starfa er skoðuð. Það er eini raunverulegi mælikvarðinn."

Ég var sjálfur búinn að geyma einyrkjunum. Og gleymdi líka einyrkjanum sjálfum mér sem er kominn á aldur en get ekki lifað á ellistyrknum og verð og vil líka vinna svo lengi sem ég andann dreg og heilsan endist. Það eina sem ég bið um er þjóðfélag þar sem eitthvað er að gerast í, þjóðfélag þar sem vinna er fyrir hverja fúsa hönd.

Við erum fleiri svona eins og ég, sem ég þekki persónulega sem eru eins settir atvinnulega og eins þenkjandi. Fullorðnir menn sem brenna í andanum að fá eitthvað að gera. Þessvegna viljum við koma ráðleysi Steingríms J. og skilningsleysi Jóhönnu frá völdum sem allra fyrst því útséð er að nokkuð muni breytast meðan þau skötuhjú eru við völd. Þau draga þessa þjóð niður og framlengja píslir hennar.

Tuttuguþúsund manns án atvinnu er það sem í boði þeirra er.

Er ekki nóg komið og fullreynt með þau?

Halldór Jónsson, 5.10.2011 kl. 15:12


Af hverju borðar fólkið ekki bara kökur

ef það á ekki brauð?

5.906 hafa flutt úr landi síðan Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætisráðherra.4 menn á dag meðan Jóhanna túlkar hávaðann við Alþingishúsið sem mótmæli við stjórnarandstöðuna.Ein íbúð tæmist á hverjum degi.

Á AMX stendur: ..."Smáfuglarnir hafa í morgun rannsakað tölur Hagstofunnar um búferlaflutninga. Þar kemur fram að frá árinu 2008 hafi 5.906 Íslendingar flutt frá Íslandi umfram þá sem fluttu til landsins. Erlendir verkamenn eru ekki inni í þessum tölum þar sem aðeins er átt við þá sem skráðir eru íslenskir ríkisborgarar....

Tölurnar eru sláandi og til marks um algjört vonleysi þúsunda Íslendinga. Nær ótrúlegt er að síðustu fjögur árin hafi að jafnaði fjórir Íslendingar á dag ákveðið að flytjast búferlum frá Íslandi. Það merkir að fjórum fleiri Íslendingar á dag flytjast frá landinu en til þess. Það er heil fjölskylda á hverjum einasta degi!

Jóhanna Sigurðardóttir hefur hækkað alla skatta, hækkað gjöld, þanið út hið opinbera og ráðist gegn atvinnulífinu. Íslendingar flýja nú í þúsundavís.

Til að setja tölurnar í samhengi má hugsa sér að ein íbúð tæmist á degi hverjum og sú fjölskylda sem þar bjó sé nú flutt til útlanda og sest þar að. Þetta er veruleikinn undir vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur."

Smáfuglarnir velta því fyrir sér hvort Íslendingar sætti sig við þennan veruleika næstu 570 dagana fram að kosningum? Ef svo þá munu 2.280 Íslendingar - 4 á dag - flýja land til viðbótar. Hversu margir af þessu fólki eru læknar? Eða kennarar? Eða fólk sem þörf er á hér á Íslandi?

Smáfuglarnir ítreka töluna, 5.906 frá því að Jóhanna tók við völdum."

Bætum þessum tölum við skráð atvinnuleysi. Þá getum við farið að hlusta á Steingrím J Sigfússon tala um landrisið sem er alveg handan við hornið í samhengi.

Heilsugæslustofnanir um allt land eiga að skera niður hjá sér um 60-70 milljónir hver. Allstaðar er hörfað frá draumnum um norræna velferðarstjórn.

Alþingi ætlar á meðan þetta fer fram að fara að leika sér með að boða til þjóðaratkvæðis um tillögur Stjórnlagaráðs. Þór Saari virðist vera kominn í sandkassaleik niður við Austurvöll og nýstirnið Guðmundur Steingrímsson með honum.

Af hverju borðar fólkið ekki bara kökur ef það á ekki brauð?


Galin áform

og óframkvæmanleg boðaði Ólafur Ragnar við þingsetninguna, Björn Bjarnason hefur dregið saman nokkur aðalatriði um þessi mál á síðu sinni. Grípum niður í grein hans:

... Ólafur Ragnar misbeitti forsetavaldinu og veitti umboð til að mynduð yrði minnihlutastjórn án þess að beita hefðbundnum aðferðum í stjórnarmyndunarviðræðum.

Nú 33 mánuðum eftir stjórnarmyndunina og tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum sem Ólafur Ragnar ýtti úr vör síðar en báðar urðu ríkisstjórninni til niðurlægingar flytur hann ræðu við þingsetningu þar sem hann hæðist að ríkisstjórninni í túlkun sinni á tillögum stjórnlagaráðs og setur alþingi afarkosti við stjórnarskrárbreytingar, annars verði forsetakosningar 30. júní 2012 marklausar.

Í ræðu sinni minnti Ólafur Ragnar á að stjórnarskránni yrði ekki breytt nema á tveimur þingum með kosningum á milli. Með því að lýsa þeirri einföldu staðreynd hnekkti hann tali Jóhönnu Sigurðardóttur um að kjósa mætti um tillögur stjórnlagaráðs við forsetakosningarnar 30. júní 2012 og þar með væntanlega breyta stjórnarskránni. Er raunar með nokkrum ólíkindum að forseti lýðveldisins setji á þann hátt ofaní við forsætisráðherrann um stjórnskipunarmál. Sannar það enn veika stöðu Jóhönnu í hinu háa embætti sínu að unnt sé að „hanka“ hana á slíku grundvallaratriði.

Jóhanna sagði í Kastljósi sjónvarpsins fimmtudaginn 29. september að hún vildi ekki kosningar „í augnablikinu“. Ólafur Ragnar krafðist í raun kosninga „í augnablikinu“ í þingsetningarræðunni þegar hann taldi óhjákvæmilegt að þingið tæki af skarið um nýja stjórnarskrá og þar með stöðu forseta Íslands fyrir forsetakosningarnar 30. júní 2012.

...Ólafur Ragnar segir að stjórnlagaráðið hafi „dregið mjög úr valdi ríkisstjórnar og einstakra ráðherra“. Þeir muni ekki lengur eiga sæti á Alþingi né heldur fastan seturétt á þingflokksfundum; atbeini þeirra við setningu laga sé verulega takmarkaður. Ráðherrar muni ekki að jafnaði geta tekið þátt í umræðum á alþingi nema þeir séu sérstaklega til kvaddir. Einnig sé skertur réttur ráðherra til að skipa í embætti.

Forseti telur tillögur stjórnlagaráðsins einnig þess eðlis að vægi stjórnmálaflokka og flokksforingja í gangvirki stjórnkerfisins verði til muna minna en verið hafi allan lýðveldistímann. Alþingi verði í ríkum mæli vettvangur einstaklinga sem náð hefðu kjöri í krafti persónufylgis; tök flokkanna á störfum þingsins myndu veikjast til muna.

Um tillögur stjórnlagaráðs um forseta Íslands segir Ólafur Ragnar að þær muni „efla umsvif forsetans á vettvangi stjórnkerfisins, færa embættinu aukna ábyrgð“. Stjórnlagaráðið vilji ekki breyta ákvæðum í 26. gr. núverandi stjórnarskrár, það er um málskotsréttinn svonefnda. Engin takmörk séu því sett um hvaða mál komi þar til greina vilji forseti neita að skrifa undir lög frá alþingi. Forseti þurfi að samþykkja val á dómurum og ríkissaksóknara og geti aðeins tveir þriðju hlutar Alþingis hnekkt ákvörðun hans.

Hlutverk forseta við myndun ríkisstjórna taki einnig miklum breytingum; verði mun sjálfstæðara. Í stað þess að formenn stjórnmálaflokka móti valkosti forsetans eins og tíðkast hafi frá lýðveldisstofnun myndi forseti sjálfur hafa frumkvæði að viðræðum við einstaka þingmenn og þingflokka. Hann gerði síðan tillögur til Alþingis um forsætisráðherra og væri þá ekki bundinn af því að velja þingmann til þess embættis.Yrði fyrsta tillaga forsetans ekki samþykkt hæfi hann að nýju viðræður við þingmenn og þingflokka.

Í stað þess forystuhlutverks sem formenn flokka hafi í áratugi haft við myndun ríkisstjórna feli tillögur stjórnlagaráðs í sér nýja skipan þar sem beinar viðræður forsetans við þingmenn yrðu afgerandi. Ríkisráð yrði lagt niður og ráðherrar mundu ekki lengur leggja lagafrumvörp fyrir forseta til samþykkis. Það yrði verkefni forseta alþingis sem jafnframt yrði í forföllum forseta eini handhafi forsetavalds. Forsætisráðherra hefði ekki tillögurétt um þingrof. Það yrði ákveðið af alþingi og staðfest af forseta. Þannig ykju tillögurnar á ýmsan hátt bein tengsl forseta Íslands og alþingis.

Ólafur Ragnar segir tillögur stjórnlagaráðs fela í sér mun valdameiri forseta en þjóðin þekki nú. Hann telur þess vegna brýnt „að afstaða Alþingis til þessara tillagna liggi fyrir í tæka tíð“ fyrir forsetakosningarnar 30. júní 2012. „Annars bæri Alþingi ábyrgð á því að þjóðin vissi ekki hver staða forsetans yrði í stjórnskipun landsins þegar hún gengur að kjörborðinu. Forsetakosningarnar yrðu þá algjör óvissuferð,“ sagði Ólafur Ragnar...."

Ræða Ólafs Ragnars við þingsetninguna er með hreinum ólíkindum og er raunar óskiljanleg venjulegu fólki. Björn Bjarnson á þakkir skildar fyrir að greina höfuðatriðin í sinni samantekt.

Öll ræða Ólafs Ragnars snerist um áform um tvennar Alþingiskosningar kosningar fyrir endurkjör Ólafs Ragnars árið 2012.

Hreint galin áform.


Ísland styður Sharíalög í Lýbíu

sem uppskeru árásar okkar á það ríki.

Í grein Ámunda flugstjóra í Mbl.í dag kemur fram að við höfum bæði hjálpað Bretum og Frökkum við að stela olíunni af Lýbíumönnum og fengið þeim innfæddu Sharíalög til að lifa eftir með öllu því sem þeim fylgir,- umskurn kvenna meðtalin.

Þetta hlýtur að vera ein merkasta arfleið ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Vinstri Hreyfingarinnar-Græns Framboðs sem vert er að óska til dæmis Atla Gíslasyni sérstaklega til hamingju með.

Hvort skyldi hag alþýðu í Lýbíu vera háttað betur eða verr eftir þetta herhlaup Íslendinga suður þangað? Skyldi niðurstaðan verða aðeins sú að skipt verði um harðstjóra og Lýbíumönnum fenginn annar betur að sér í múslímaspeki en hófsmaðurinn Gaddafi?

Hvað kostar það Lýbíumenn að við Íslendingar skyldum koma þeim undir Sharíalög? Og geta ekki Bretar gefið Íslendingum afslátt á Icesave vegna borðliggjandi olíugróða þeirra?

Stoltir megum við vera Íslendingar af stuðningi okkar við Sharíalög.Er ekki við hæfi að við tökum þau upp sjálfir?


Eitthvað rotið í ríki Ísraels

sýnist manni eftir lestur greinar ísraelska sagnfræðingsins Benny Morris um land sitt í Newsweek.

Ríkið sem stofnað var til á grundvelli jöfnuðar og stighækkandi teksjuskatts í anda hins snauða Ben Gurions býr núna við það að efsti tugur launþega aflar 31 % teknanna og 15 % Júðanna sjálfra og 20 % allra Ísraela, lifir undir fátæktarmörkum við flatan tekjuskatt í landinu. Neðstu 10 % afla 1.5 % af launatekjunum. Sungið er á samkundum Bibi)væntanlega Benjamin) á 3 íbúðir, þessvegna átt þú enga. Arabiski minnihlutinn í landinu telur sig æ meira hliðholla Arabönum í nágrannaríkjunum og vill skilgreininguna á Ísrael sem Júðaríki burt. Hátækniiðnaður Ísraela heldur þjóðfélaginu uppi og kostar völd hægrimanna,sem stuðla að frekara misrétti með styrkjum til landnemabyggða og strangtrúarhópa, sem leggja ekkert til samfélagsins .

Stöugur fólksflótti og spekileki er frá landinu af þeim betur settu og menntuðu. Strangtrúar-Júðar sem hvorki vinna né gegna herþjónustu eiga 8 börn á móti 3 venjulegra heimila og hafa áhrif þeirra á þinginu því vaxið úr hófi. Í Berlín(sic!) einni eru núna 10.000 brottfluttir Ísraelar sem borga þar 15.000 króna leikskólagjald á móti 140.000 í Ísrael. Benjamín Netanyahu er teiknaður í SS búningi með Hitlersskegg í egypsku blaði sem tákn um vaxandi andsemítiskar tilfinngar í mið-Austurlöndum.

Höfundur er ekki meira en svo viss um að Ísraelsríki eigi sér langa framtíð. Hluti af því sé Aröbunum sjálfum að kenna því Arafat neitaði tilboði Ísraela árið 2000 um að taka við 100 % af Gaza og 95 % af vesturbakkanum, vildi allt eða ekkert.

Hvaða áhrif hefur þetta á heiminn og Ísland?

Gætum við reynt að bjóða ungum og menntuðum Ísraelum landvist hér sem flóttamönnum? Reyna að troða upp í spekilekann sem við búum við og fylla flóttmannakvótana með slíku menntafólki í stað ómenntaðs og framandi fólks sem streymir hingað?

Upplausn Ísraelsríkis innanfrá kallar á meiri átök í Bandaríkjunum sem óneitanlega hafa haldið uppi tilveru Ísraelsríkis með fé og vopnavaldi um allan þess aldur fyrir áhrif Gyðinga.Þetta minnkar líka vonir manna um einhvern frið fyrir botni Miðjarðarhafs og þetta dregur úr mætti Ísraela þegar vaxandi hópur þegnanna neitar að þjóna Ísraelsher. Auðvitað sökkva öll lífskjör í þessum heimshluta ef hlutur ísraelskra bænda, hátækniiðnaðar og menntafólks færi minnkandi.

Það er eitthvað meira en lítið rotið í ríkinu Ísrael en maður hefur hugsanlega gert sér grein fyrir.


Staðgreiðslu af lífeyrissjóðsgjöldum

má draga af öllum inngreiðslum í sjóðina  sem greidd eru í landinu.

Lífeyrissjóðafurstarnir,  sem ég ekki kaus,  hafa ekki sýnt eigendunum lífeyrisins, mér,  það, að þeir séu sérlega flinkir við að passa það sem þeim er trúað fyrir. Þeir eru hinsvegar ekki í vandræðum með að  lækka lífeyririnn þegar spekúleringar þeirra hafa klikkað og skella þá skuldinni bara á einhverja aðra en sjálfa sig eins og til dæmis Lehman Brothers og Jón Ásgeir.

Þegar þeir hinsvegar  tapa þá  eru þeir að tapa peningum ríkisins líka, þar sem ríkið fær aldrei staðgreiðsluna af því sem þeir töpuðu. Í atvinnurekstri er það fangelsissök að stela skattskuldum eins og að skila ekki staðgreiðslu eða virðisaukaskatti. Hversvegna gildir annað um tap hjá lífeyrissjóðunum? Í Kópavogi voru menn sem engu stálu hinsvegar ákærðir fyrir að reyna að passa uppá að tapa ekki peningum lífeyrissjóðsins. Og eir sitja með málið yfir sér núna í tvö ár án þess að neitt sé gert. Er ekki allt eins, liðið Steingríms?

Hversu mikil vissa er fyrir því að Framtakssjóður græði á sínum fjárhættuspilaæfingum? Af hverju keypti Warren Buffet ekki N1 ef það var svona sniðugt?

Ef við færum þessa leið eru vandamál ríkissjóðs leyst og bið getum borgað bæði lögreglunni og spítölunum, jafnvel byggt nýju vitleysuna sem einhver ætlaði víst að borga með símapeningunum, og átt afgang.

Má ekki spyrja Pétur Blöndal að því, hvort ekki hægt sé að draga staðgreiðsluna af öllum iðgjöldunum í stað aðeins séreignariðgjöldunum?


Framtakssjóður

er skrímsli þar sem sjálftökumenn á lífeyrissparnaði landsmanna í 16 lífeyrissjóðum búa til ósnertanlegan einnkaklúbb til að spekúlera með peninginn.Framtakssjóður Íslands á að spekúlera með minn lífeyri án þess að ég eða þú hafi neitt um það að segja.

Þessi sjóður hefur nú keypt ráðandi hlut í N1, sem var áður Olíufélagið hf, ESSO, þar sem ég var stoltur hluthafi. Ólafur í Samskip, þessi sem býr í Sviss, þar sem engin lög gilda um framsal glæpamanna, tók af mér hlutabréfið án þess að ég væri um það spurður. Síðan safnaði þetta félag í eigu Engeyjarættarinnar og undir stjórn "rekstrarmanns ársins" 63 milljörðum í skuldum og fór svo kirfilega á hausinn að það var hreint lögbrot að láta það starfa áfram en gefa það ekki upp til gjaldþrotaskipta.En svo var aldeilis ekki þar sem engin lög gilda yfir ríkisvædda bankana.

Í stað þess að láta lögmál markaðarins gilda er rekstrinum haldið áfram og nú með skyldusparnaði almennings undir forystu einhverra silkihúfna, sem enginn kaus. Svona í Evrópubandalagsstíl kommisara og pennaskafta. Hvers á Atlantsolía að gjalda? Eða Olís. Eða Skeljungshylkið sem Express-Pálmi skildi eftir sig þegar hann eyðilagði það góða og gamla félag sem nú er sagt komið í hendur strákanna og eiginkvenna þeirra með Húsasmiðjupeningana? Það á að nota mína peninga til að gera olíudreifingu í landinu enn óhagkvæmari í stað þess að einfalda dæmið og leysa N1 upp. Hversvegna hugsa þessir menn svona? Hver kaus þá til að fá þessa aðstöðu?

Hverskonar þjóðfélag er þetta grannt skoðað? Finnst engum neitt að því hvernig spilling Nómenklatúrunnar er látin óáreitt? Sér enginn neitt athugavert við samráð banka og sparisjóða við að kúga peninga af almenningi? Samstarfsnefnd oíufélaga þótti ekki nógu góð. En Samtök fjármálafyrirtækja eru í lagi? Ríkisvædd spilling?

Hvar er samkeppni bankanna? Eða birtist samkepnni lífeyrissjóða í Framtakssjóði?


Forsetinn skeiðar út í móa

þegar hann fer að setja þinginu fyrir um hvað það eigi að fjalla í setningarræðu sinni. En öll ræðan snérist í rauninni um Stjórnarskrármál og hvaða áhrif tillögur stjórnlagaráðs hefðu á endurkjör hans eða framboðsgrundvöll annarra á sumri komanda.  Algerlert ofmat á þýðingu einhverrar nýrrar Stjórnarskrár fyrir daglegt líf í landi verðbólgu, atvinnuleysis og landflótta. Ef atkvæðisréttur væri jafnaður er í raun ekkert að núverandi plaggi, sem kemur í veg fyrir að nota það lengi enn. Ein lítil viðbót frá Alþingi dygði til þess.

Að Alþingi eigi að fara að eyða öllum sínum tíma í að fjalla um torskilda  túrbó-tillögu Thorvaldar Gylfasonar og meðreiðarsveina hans í stjórnlagaráði er út í hött við þær aðstæður sem við blasa. Verkefnið sem Ólafur Ragnar fjallaði um er svo miklu stærra og yfirgripsmeira en svo, að því verði lokið í einhverjum hvelli með öðrum málum fyrir næstu Forsetakosningar. Enda hugmyndir hans um mikilvægi embættis síns nú og í framtíðinni  heldur ekki í hlutfalli við raunverleika þjóðarinnar.

Hefur ekki einmitt  dr.Ólafur sannað það best sjálfur með embættisfærslu sinni, að Stjórnarskráin í núverandi mynd dugar okkur alveg og þess vegna liggi ekkert á að breyta henni í einhverju hastverki núna?  Það eru svo margir mætir menn búnir að reyna að smíða nýja stjórnaskrár sem ævistarf án þess að hafa getað leyst það til fulls, að þessi fyrirliggjandi moðsuðugerð, sem snýr öllu á haus í stjórnskipuninni, fyrir utan að vera þversagnafull og illa grunduð í mörgum atriðum, á ekkert erindi til þess að taka upp tíma Alþingis frá viðblasandi vandamálum eins og atvinnuleysi, gjaldþrotum heimilanna og framtíð atvinnurekstrarins. Væntingar fólksins standa til allt annars af Alþingi Íslendinga.

Forði okkur hamingjan frá því að Alþingi fari að ræða þessa stjórnlagaráðshugarflugu Jóhönnu Sigurðardóttur sem stofnað var til í einu af hennar brelluköstum til að blekkja fólkið og afvegaleiða frá allsherjar vandamálum þjóðarinnar og getuleysi hennar sjálfrar til að leysa þau.

Megi Alþingi snúa sér að vandamálum samfélagsins en láti ekki Forsetann skeiða með sig út í málþófsmóa um  stjórnarskrá og drepa þannig mikilvægustu málunum á dreif eina ferðina enn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418426

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband