Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Ekki brást Dorrit

væntingum mínum og gerði miklu meira en ég bjóst við í uppþotinu við þingsetninguna. Ég held að hún hafi gert mikið til að lægja öldurnar og vernda þingmennina. Raunar var líka sómi að Ólafi Forseta þegar hann fylgdi Dorrit og fór til fjöldans með henni.

Eggjakastarar sem dyljast í fjöldanum eru til skammar. Oftar en ekki með lambhúshettur til að dylja sig. Fólk ætti helst að rífa slíkan höfuðbúnað af svona liði þegar það skýst um fjölmennið eins og rottur eða óeinkennisklæddir lögreglumenn ættu að handjárna þá fyrir aftan bak. Svo má leysa þá og skrá þegar atburðuinn er afstaðinn. En hvað um það, skrílslæti eru tiil skammar og gera málstaðnum engan greiða enda gerendurnir líklega skoðanalaus lýður sem vill bara koma illu af stað og fá útrás fyrir sínar lægstu hvatir.

En ég var stoltur af Forsetafrú minni sem sýni að hún er kona í krapinu. Ekki brást hún Dorrit mér  frekar en fyrri daginn. 


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband