Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011
6.11.2011 | 22:32
Frábær þáttur í RÚV
um Ingimar Eydal tónsnilling og fyrirmyndarmann sem lést 1993 langt fyrir aldur fram.
Ingimar Eydal var einstakur maður sem var í stöðugri framför í list sinni til æviloka. Hljómsveit hans hljómar í ljósvakanum enn eins og ekkert hafi í skorist og nýtur ávallt vinsælda.
Mjög gaman að sjá hvernig allt leit út á þessum dögum á Akureyri. Nú eru þessir tímar liðnir og allt orðið með öðrum brag.
Þessi þáttur var frábær að mínu mati og hefði mín vegna mátt vera miklu lengri.
6.11.2011 | 22:23
Sjónskertir
6.11.2011 | 17:49
Hvernig ætlar Hanna Birna?
að svara fyrir Sjálfstæðisflokkinn inni á Alþingi ef hún er ekki þingmaður? Ætlar hún að sitja á þingpöllunum og vera með skeytasendingar þaðan? Eða hvernig?
Hver á að svara fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Alþingi þegar Steingrímur J. steytir hnefana opg krefst svara um það hvað Sjálfstæðisflokkurinn vilji í þessu máli eða hinu ? Á bara að þegja? Eða biðja um þinghlé meðan hringjt er í Hönnu Birnu eins og gert er í Útsvari? Og hver á að hringja? Varaformaður?
Gengur þetta upp tæknilega?
6.11.2011 | 11:56
288 bílar
á sólarhring fóru um Héðinsfjarðargöng uplýsti Kristján Möller sigri hrósandi í Sprengisandsþætti á Bylgjunni. En þar sátu þeir saman landsbyggðarþingmennirnir Kristján. Tryggvi Þór Herbertsson og framsóknarkonan Eygló Harðardóttir.
Ekki ein rödd spurði af hverju ekki væri tekið veggjald í þessum göngum. Ef tekið væri gjald þarna segjum 500 kall þá sjá menn að þarna gætu komið inn einhverjir milljónatugir upp í kostnaðinn. Það er hægt að hafa svona innheimtu algerlega sjálfvirka og þarf enga vöktun, bæði með E-Pass og myndavélum. Hvort vilja menn heldur, að láta bora ein svona göng á 10-20 ára fresti og hafa frítt í þau eða bora ein göng árlega og láta borga í þau? Bora Seyðisfjarðargöng á morgun með því að láta þau borga sig niður eins og Vaðlaheiðargöng? Og því gætum við í Tungunum ekki fengið olíumöl á veginn frá nýja Flúðaveginum upp efri Tungufljótsbrú strax gegn því að allir borgi veggjald þangað til að búið er að borga flýtikostnaðinn? E-Pass og myndavélar sjá um innheimtuna? Ekkert vesen ekkert stress.
Tryggvi Þór flutti sitt erindi um að hagstjórn gæti jafnað út sveiflurnar í gjaldmiðlunum. Áreiðanlega rétt og satt hjá Tryggva. En af því að hann er á atkvæðaveiðum líka, þá minntist hann ekkert á það, hvað áhrif verkalýðshreyfingin hefur á verðbólguna með aðgerðum sínum. "Hvernig datt ykkur í hug að semja um svona kauphækkanir" spurði Seðlabankamaðurinn og fékk aðvitað ekki vitrænt svar hjá forystumönnum.
288 fríbílar eða 288 borgandi bílar, það er spurningin.
5.11.2011 | 19:30
Víðsýna ESB-stefnu?
"segir Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra Evrópumanna, og óttast að marki Sjálfstæðisflokkurinn ekki víðsýna stefnu gagnvart Evrópusambandinu og evrunni á landsfundinum þá glati flokkurinn atkvæðum óvissra kjósenda. Svo segir í frétt um málið. Hvað á maðurinn við? Hvernig lítur víðsýn stefna gagnvart ESB út? Er hún með eða á móti? Eða getur hún verið hvorutveggja? Ég vona fastlega að Benedikt skýri þetta út fyrir landsfundinum eftir hálfan mánuð.
Mér hefur sýnst að Íslendingar séu þegar hálfir í gini ljónsins og aðeins afturlappirnar standi út. Við erum búnir að kokgleypa svo mikið af regluverki Evrópu að það hálfa væri nóg. Hér morar allt í Evrópustöðlum og er svo sem allt gott um það að segja að menn fari eftir einhverjum vitrænum aðferðafræðum. En staðlar ættu þá líka að gilda um framferði stjórnsýslu gagnvart almenningi. Á því er mikill misbrestur í okkar samfélagi þar sem embættishroki er vaxandi meinsemd í samfélaginu.
Sem dæmi vil ég nefna að það er eiginlega búið að drepa niður allt einkaflug og svifflug í landinu til þess að þjónkast eða yfirfullnægja reglugerðum EASA, sem líklega eiga ekkert erindi hér uppá víðernið.Og upptaka EASA-FLC mun svo eyðileggja blindflugsréttind þeirra einkaflugmanna sem hafa notað þau árum saman til flugöryggis þegar þær verða innleiddar. En þær eru nú að vinna slíkt tjón á hundraðþúsund flugmönnum í Evrópu. Bandarískar FAA-reglur eiga hér mun betur við enda æ fleiri flugvélar okkar að leita bandarískrar skráningar eins og kaupskipaflotinn okkar sálugi, sem flúði Ísland undan verkalýðsfélögunum fyrir margt löngu. En ekkert kaupskip er lengur skráð hér á landi.
Bandarísku reglurnar um flugmál dugðu okkur ágætlega meðan við höfðum þær.Enda Bandaríkin langt á undan Evrópumönnum í flugmálum sem öðru. En eftir að við fórum að taka upp eftiröpun og uppsuðu Evrópumanna á bandarískum stöðlum, þar sem líklega þýskir grillufángarar höfðu bætt í urmul af konstöntum og smáletri, þá fór að kárna gamanið. Og hér spruttu upp embættismenn sem virtust hafa himinn höndum tekið til að nota nýfengnar reglur sem hrís á undirsáta sína, horaða íslenska alþýðu. Flugmálastjórn virðist álíta sig sérstaka umboðsmenn ESB í því að toga allar reglugerðir í hástig til að klekkja á grasrót flugsins. Helst engar undantekningar ótilneyddir í stað þess að gera allt sem þeir geta til að milda áhrif og álögur aukins regluverks.
Þetta upplifa einkaflugmenn sem beina óvild stofnunarinnar við allt einkaflug sem er kominn á þvílíkt stig að það sýnist þeim nauðsynlegt að skera alla stofnunina upp og bursta til það starfsfólk sem þar tröllríður húsum. Ég var á fjölmennum fundi á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem mikill hiti var í mönnum. Það var rætt að nauðsyn bæri til að safna undirskriftum og krefjast brottreksturs flugmálastjóra og tiltekinna starfsmanna hans. Ég horfði á Árna Johnsen þruma á Alþingi um sama mál og skildi hann vel eftir að hlusta á menn lýsa viðskiptum sínum við Flugmálastjórn og bar þar hæst tiltekinn starfsmann. Eftir að hafa hlýtt á upplestur á bréfi flugmálastjórnar um einfalt ferjuflug vélar frá Selfossi til Reykjavíkur varð mér ljóst í hvert óefni er komið með þessa stofnun, sem er miklu kaþólskari en páfinn eins og Árni sagði á Alþingi. Ég efaðist þarna ekki um að Spaugstofan hefði getað gert góðan þátt úr þessu bréfi einu þvílkt fágæti kansellíis og embættismennsku sem þar birtist. En þetta er bara ekki spaug heldur veruleiki einkaflugmanna sem rífa hár sitt.
Þetta er alvörumál þegar almenningur er farinn að líta svona á ríkisstofnun þjóðar sinnar. Rammvilltir búrókratar eru langt komnir að drepa allt almannaflug niður á Íslandi. Við þessa menn virðist ekki hægt að ræða á mannamáli lengur, það er deginum ljósara. Þá virðist þurfa að fjarlægja úr stjórnsýslunni hið fyrsta og koma inn með nýtt fólk sem skilur að embætti er samstofna við ambátt. Embættismenn eiga að þjóna fólkinu sem ambáttir en ekki öfugt eins og fundarmenn teldu að flugmálastjórn væri dæmi um. Eftir meira en 30 ára útgerð einkaflugvéla gafst ég upp og er hættur. Amk. þangað til að viðmótinu, gjaldttökum og álögum verður breytt og nýtt líf kemur í þetta land. Ég var kominn á fremsta hlunn með að fá bandaríska skráningu á mína flugvél eins og færst hefur í vöxt hérlendis, en nú ætlar Flugmálastjórn að setja undir þann leka til að að auka vandræði manna enn frekar. Ég skora á Alþingismenn að hindra þetta nýja ofbeldisútspil Flugmálastjórnar á hendur einkaflugi í landinu.
Þó ég skipti ekki máli lengur vegna fúlrar kennitölu minnar, þá man ég aðra tíma Agnars Kofoed Hansen og raunar Péturs Einarssonar líka og ég fullyrði að undir stjórn þessara manna voru hlutirnir með öðrum brag.Þeir greiddu götu einkaflugs með ráðum og dáð. Þeir skildu hvaðan uppspretta flugmanna er.
En nú heyrist mér öldin vera önnur þegar enginn viðstaddra mælir Flugmálstjórn bót og horfir til landauðnar í almannaflugi. Ef þetta er þessi víðsýna ESB stefna sem Benedikt Jóhannesson er að auglýsa eftir og er að birtast hjá Flugmálastjórn með þessum afleiðingum þá er annaðhvort ekki pláss fyrir hana hjá Sjálfstæðisflokknum eða þar er ekki pláss fyrir mig.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.11.2011 kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.11.2011 | 19:07
Gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn?
að fá þennan formannslag er spurningin sem landsfundarfulltrúar verða að velta fyrir sér.
Já segja margir og sín er ástæðan hjá hverjum. Bjarni er ómögulegur segir einn, sniðugt að fá konu segir annar, góður samanburður við Stalínismann í vinstri flokkunum, rússnesk kosning í VG með Steingrím í 78 %, Samfylkingin hafði ekki þrek til að að bjóða upp á annað en Jóhönnu gömlu sem hlaut slaka kosningu. Sjáið svo Sjálfstæðisflokkinn, hann þorir að kjósa. Hanna Birna er flott segir einn, annar segir hún er leiðinleg og húmorslaus og uppalin af Kjartani Gunnarssyni, eftir hana liggur ekki neitt pólitiskt nema "til í allt án Villa." og samstarfslund við Gnarr og Dag B. og bla bla bla sem mikið kemur frá öðrum flokkum skulu Sjálfstæðismenn ekki gleyma, því rógstunga þeirra nagar dag sem nátt.
Allt saman eru þetta góðar vangaveltur. Það er ekki eins og að frambjóðendurna greini mikið á um skoðanir. Bæði vilja ekki í ESB, bæði vilja halda í krónuna, bæði vilja efla atvinnumálin. Fyrir mörgum landsfundarfulltrúa hlýtur þetta að vera spurning um það hvor frambjóðandinn sé heppilegri til að leiða flokkinn í stjórnarandstöðunni, sem hann er fyrisjáanlega staddur í fyrirkvíðanlega lengi enn. Hvor er líklegri til að afla breiðs fylgis? Hvor verður ákvarðanadjarfari þegar tækifærin bjóðast?
Hanna Birna er mælsk í meira lagi og enginn kemur að tómum kofanum hjá henni. Slíkt getur vakið andúð þeirra sem minna mega sín. Hún er ekkert sérstaklega mjúk á manninn en enginn dregur í efa að hún hefur orðið talsverða reynslu í pólitísku starfi. Hún er svo sem engin hrein mey í þeim efnum og enn muna menn skilaboðin frá Sjálfstæðislokknum í Borginni sem sögðu:"Til í allt án Villa" hver svo sem höfundurinn var. Hún er fallinn borgarstjóri og burtrekinn forseti borgarstjórnar Gnarrins og Dags B. Hún er falleg kona og stór og myndarleg og vel menntuð er hún hérlendis og erlendis. Hún er 4 árum eldri en Bjarni, hún er fjölskyldukona með 2 börn. Hún á langan feril að baki í störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, starfsmaður, framkvæmdastjóri,borgarfulltrúi, Borgarstjóri.
Bjarni er flottur fjölskyldufaðir með 4 börn frá 0-20 ára. Bjarni er líka með glæsilegustu mönnum og ræðumaður góður. Hann er hreinskiptinn, kjarkaður og upplitsdjarfur og hefur engar sögur af pólitísku undirferli á bakinu. Hann er með Vafninginn með sér hvert sem hann fer, því það er alveg sama hversu oft hann fer yfir málið og leggur spilin á borðið svo allir skilja, óvinirnir byrja alltaf aftur með það. Svo er hann af ríku fólki ú Engeyjarætt sem hann getur líklega ekkert gert að. Hann virðist nokkuð fljótur til ákvarðana, kannski of fljótur framan af formannsferlinum þegar hann réði framkvæmdastjóra án mikils samráðs við aðra og sagðist ætla að skila löglegum framlagspeningunum, og því er líklega búið að veðsetja Valhöll í fyrsta sinn. Og svo greiddi hann atkvæði með Icesave með Tryggva Þór Herbertssyni og öllum þingflokknum nema 5, þeim Unni Brá, Sigurði Kára, Birgi ármannssyni, Pétri Blöndal og Guðlaugi Þór sem sat hjá. Bjarni er með mörg bitför og klór flokksmanna sinna í á bakinu en virðist samt hafa herst við hverja raun og vill fá að halda áfram störfum. Fylgi flokksins hefur vaxið jafnt og þétt alla hans formannstíð og nálgast brátt hámark.
Skiljanlega hlýtur Bjarni að vera fúll þegar Hann Birna segir: Nú get ég!. Alveg án þess að geta sannað það. Bjarni er sitjandi þingmaður en Hanna Birna ekki. Sumir telja að það sé ekki gott fyrirkomulag fyrir formann Sjálfstæðisflokksins hreint tæknilega séð að vera ekki á þingi. Hanna Birna blæs á það, en getur heldur ekki afsannað það.
Það er ekki hægt að segja annað að þetta sé vel fram boðið úrvalsfólk. Spurningin til landsfundar er aðeins sú: Hvor frambjóðandinn er líklegri til að leiða flokkinn til sigurs?
Landsfundur er gáfuð skepna og gerir aldrei mistök. Hann klárar þetta eins og annað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.11.2011 | 16:52
Þá er Hanna Birna komin
fram til að hleypa fjöri í Landsfund Sjálfstæðismanna. Nú hafa menn um nóg að tala í kaffistofunni og geta falið miðstjórn og þingflokknum framgang mála meðan þeir eru uppteknir. Kannski skiptir ekkert heldur svo miklu máli í þjóðfélaginu að það taki því að æsa sig yfir því. Látum okkur því líða í draumi og upphafningu um landsfundarsali, hver er með, hver er á móti...?
Er Hanna Birna ekki örugglega á móti ESB? Er Hanna Birna með þessu eða á móti hinu? Hvað segir hann Bjarni? Hvert er samband Hönnu Birnu við Jóhönnu Sig.? Ragnheiði Ríkharðs., Óllöfu Norðdahl. Hvar stendur hún í kvótamálunum? Fylgist með næsta þætti í foringjaleikriti Sjálfstæðisflokksins í boði S....
Þá er Hanna Birna er komin til að frelsa Sjálfstæðisflokkinn og allri óvissu eytt. Hep hep.. !
3.11.2011 | 13:38
Ófriður í aðsigi
virðist vera fyrir botni Miðjarðarhafs. Bandaríkin og Nató virðast nálægt því að ákveða að kjarnorkuvæðingu einræðisríkisins Íran verði að stöðva. Í kjölfar þess munu verða tíðindi í írönskum kvenfrelsismálum og múslímsk öfgatrú mun bíða hnekki.
Ófriðurinn mun valda raunhagvexti á Vesturlöndum og Bandaríkjunum þó hlutabréf lækki, olía mun væntanlega hækka minna til lengri tíma sem væru góð tíðindi fyrir Íslendinga. Nú verður fróðlegt að vita hvernig okkar utanríkisráðherra greiðir atkvæði í Nató ef hann er þá ekki búinn að því.
Við munum líklega lifa áhugaverða tíma á næstunni.
3.11.2011 | 13:01
Hvar er traustið?
hrópaði Steingrímur í evangelíi sínu á Landsfundi VG. Traustið hefði líklega skolast burt í flaumnum úr skolprörinu frá Hádegismóum og rætnum skrifum bloggara að manni skildist. Fólk yrði að hafa trú á honum og hans leiðsögn ef vel ætti að vera. Og allur þingheimur klappaði og kaus hann formann með 78 % atvkæða. Spurning hvort hann ætti ekki að taka upp heiti gríska kollega síns sem nafnbót og heita héreftir Steingrímur J. Evangelos. Því nauðsynlegt er að menn trúi evangelí spámannanna eigi að vera gagn að.
Það er nokkuð sama hvar maður kemur og hittir fólk úr atvinnulífinu á landi og spyr frétta. Þetta fólk hefur einhvernveginn ekki traust á framtíðinni. Stefna fyrirtækjanna í verslun og iðnaði virðist frekar vera að reyna að halda sjó við fallandi eftirspurn og vaxandi kaupslaka almennings. Sá sem keypti bensín í síðusta mánuði fyrir þrjúþúsund hann kaupir fyrir tvöþúsund núna. Það minnkar í körfunni. Það virðist allt vera að dragast saman og landið sést ekki rísa. Iðnaðarmenn tala um flutning úr landi þar sem verkefnin minnki. Bankarnir hans eru sagðir stútfullir af peningum. En þá virðist gruna að ástandið hangi á einhverjum bláþræði og minnsti andblær geti orðið að áhlaupi innistæðueigenda. Lánaviljinn er sagður mjög takmarkaður.
Af opinberri hálfu hefur ekki sést mikil viðleitni í því að skilja á milli fjárfestingarhluta og viðskiptahluta bankanna, sem var þó talið nauðsynlegt til framtíðar. Mestur hluti hagnaðar bankanna er sagður núna koma af annarri starfsemi en venjulegri bankastarfsemi. Sem er skiljanlegt því að fæstir aðspurðra segjast vilja taka lán því þeir viti ekki til hvers. Þeir treysta ekki framtíðinni undir þessari ríkisstjórn lengur og binda ekki vonir við hana um úrbætur. Það eina sem virðist fyrirsjáanlegt er að álögur aukast, niðurskurður vex og innheimtan harðnar. Hvatningarorðin sem fólkið býst við frá ríkisstjórn sinni virðast ekki heyrast. Við þessar aðstæður kemur boð um vaxtahækkun frá Mávi Seðla. Alþingismenn virðast hinsvegar vera meira uppteknir af hverskyns smásmygli í opinberum innkaupum en umræðum um atvinnuástandið og landsflóttann.
Kreppan myndi ekki sjást utan úr geimnum því traust er ósýnilegt eins og hver önnur lofttegund. Evrópusambandið sæjist ekki heldur af sömu ástæðum. Steingrímur sést og Jóhanna. Úr geimnum séð gæti allt virst með eðlilegum hætti. Ríkisstjórnin Íslands virðast samt helst setja traust sitt á loftið tómt og eitthvað annað, sem er líka ósýnilegt. Líka í Norðausturkjördæmi við Bakka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 15:49
Forystufárið
í Sjálfstæðisflokknum stendur með byljum. Það er þó nægilega raunverulegt til þess að beri á því að fólk sé að sækjast eftir landsfundarsætum sem menn vilja kenna til liðssafnaða eða skoðanahópa, Er illt til þess að vita að einhverjir hafi meiri hug á að koma landsfundinum undir einhverja spennu um mál sem hafa minni áhrif til langframa en sú alvöru baráttu sem flokkurinn stendur í á þessum alvarlegu tímum.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins fara mikinn í að reyna að hafa áhrif á landsfundinn fyrirfram. Þeir leggja mikið kapp á að segja fréttir af forystufárinu eða því hversu óánægðir Sjálfstæðismenn séu með forystu Bjarna Benediktssonar og hversu heitt hann þrái Hönnu Birnu, hversu óánægðir hinn stóri armur Evrópusinna undir forystu Benedikts,Þorsteins,Þorgerðar og Ragnheiðar sé innan flokksins.
Allt vinnur þetta auðvitað að því að trufla starfsemi landsfundarins svo hann tali ekki um vandamálin heldur einhver spennumál, þar sem allir eru að plotta í kaffistofum og lobbíum en mæta ekki til þingstarfa.
Sá sem býður sig fram til forystu í samkeppni við annan sterkan frambjóðanda verður líka að vita hvernig hann ætlar að stjórna í sigrinum með klofinn flokk að baki sér. Það eimir oft illa eftir af slíkum vígaferlum eins og menn geta velt fyrir sér eftir að lesa Sturlungu eða skoða nýliðnari dæmi. Það er ekki nóg að vinna orrustu, menn þurfa líka að vinna friðinn sem á eftir kemur. Sturlunga greinir vel frá þeim vandamálum sem við er að glíma eftir mikla atburði.
Hreint tæknilega væri erfitt fyrir nýjan formann í starfandi stjórnmálaflokki, sem ekki væri þingmaður, að stjórna þingflokknum. Varla yrði þingflokkurinn hinn sáttfúsasti fram að kosningum, þar sem varla engin sár hefðu gróið á þeim tíma. Og sagan sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum.
Sigri annar af tveimur þingmönnum sem takast á, væri meira jafnræði á þingflokksfundum. Þó mætti búast við að sá sem tapaði myndi hverfa á braut fljótlega eftir það og hans kraftar þannig tapast flokknum. En ólíklega myndi einhver ekki vilja hefna hans þó síðar yrði.
Formannaslagur á landsfundi er því með nokkrum ólíkindum þó að skiljanlega reyni menn að halda spennunni á umræðunni með loðmullulegum yfirlýsingum á ýmsum kaffisamkomum úti í bæ. Og víst er að vandséð yrði með áhrif slíks á stjórnmálastarfið.
Svo maður tali nú mannamál þá tel ég það ekki Sjálfstæðislfokknum til framdráttar að breyta landsfundi sínum í einskonar poppmessu um formennskuna. Þjóðinni ríður hinsvegar meira á því, hvað flokkurinn ætlar að gera í næstu framtíð og hvað hann getur gert.
Winston Churchill sagði einhvern veginn svona um forystu sína á stríðsárunum:
" The Nation had the Lions Heart. It was but for me to give the roar."(Þjóðin átti ljónshjartað, mitt hlutverk var helst að öskra).
Það skiptir aldrei sköpum hver er talsmaður og hversu lengi og auðvitað var Winston í lífshættu á þessum tímum eins og aðrir. Það er endanlega stefnan og hugsjónin sem skiptir máli í sögu lýðræðisþjóðar. Við skulum sleppa því að ræða andstyggileg dæmi um afbrigði í þessu sambandi því forsenda lýðræðis á að vera heiðarleiki en ekki óábyrgt gjamm í utanflokksfólki.
Forystufár er því frekar skemmtiatriði og óvinafagnaður en meginviðfangsefni í stjórnmálaflokki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko