Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Lánið afskrifað í bókum Fons!

er varla fréttnæmt þegar fréttir berast af því að Pálmi í Fons og félagi Jóhannes hafi lánað Panamafélaginu Pace 3 milljarða og afskrifað það samdægurs. Væntanlega séð of seint að þeir hjá Pace myndu ekki borga því þeir væri líka í forsetabísness eins og Pálmi og Jói. Enda smáupphæð á þeirra tíma mælikvarða hjá Fons. Nú eru nýjir tímar og Pálmi hefur miklu hlutverki að gegna með því að eiga og reka Iceland Express til að flytja fölann landann í sólina. En hið sterka fjárfestingarfélag Fons með fjárfestingargetuna uppá 10 milljarða er löngu farið á hausinn og kröfuhafar mega éta það sem úti frýs. Einhver leiðinda skiptastjóri er með kjaft.Skilur hann ekki eðli og nauðsyn aflúsunar? En skuldafráganga er kölluð aflúsun á æðra bísnessmáli sem menn geta lært um í Ameríku í MBA námi ef ekki á Íslandi.

Ef ég hefði þegið 71 milljón frá einhverjum vini mínum og skrifað jafnvel málamyndareikning á hans fyrirtæki til að setja í sitt bókhald þá hefði ég farið beint í grjótið ef ég hefði ekki skilað 14 milljónum til ríkisins í formi virðisaukaskatts.Og ef ég hefði ekki talið afganginn fram sem skattskyldar tekjur, þá hefði ég líka farið í steininn fyrir það.

Ef hann vinur minn hefði lánað mér þessa peninga og látið sitt fyrirtæki afskrifa það jafnharðan í sínu bókhaldi, þá hefði hann lækkað skattskyldar tekjur sins félags um sömu upphæð. Ég hefði hinsvegar orðið að telja upphæðina fram og borga tekjuskatt af gjöfinni. Farið í steininn ef ég hefði ekki borgað í öllum tilvikum.

En ef ég héti til dæmis Pálmi og væri einskonar þjóðfrelsari í Glóbal bísness og þyrfti endilega að tapa þremur milljörðum á einni transaksjón, þá bara afskrifar maður og borgar bara skatt af því sem eftir er. Gæti þýtt svona 600 miljónir í sparaðan tekjuskatt hjá mínu þjóðþrifafyrirtæki. Og ef svo vildi til að félagið sem maður lánar er í útlöndum, þá getur skattstofuna hér ekkert vitað um það hvort erlenda félagið borgar tekjuskatt af niðurfellingunni.

Maður skilur vel að menn nenni ekki tala við fjölmiðla eins vtlausir og fréttamennn eru nú annars. Gefi engar upplýsingar um svona smáeinkamál eins og bókhalds-og skattahagræði. Maður sendir kannski orðsendingar á Baugsfréttastofurnar um að þetta hafi allt verið fullkomlega eðlilegt. Ríkisútvarpið og skattstofan vonandi bæði ánægð. Arngrímur Ísberg hefur fyrir löngu sýnt fram á að völundarhús viðskipalífsins er vandratað fyrir óupplýsta alþýðusem sér kannski ekki réttu tenginguna við málin. Vonandi fær Fons að tilnefna Jóhannes í dóminn ef málið kemur fyrir Héraðsdóm?

Á meðan bara afskrifum við svona smáupphæðir í bókhaldi Fons!


Er þetta hægt?

hvernig ríkisstjórnin lætur Þjóðhagsstofnun, sem ætti að vera skipuð hagfræðimenntuðu fólki, senda í fjölmiðla sína tilkynningar í "steingrímskum stíl" um að hér sé landið að rísa og hagvöxtur að hefjast! Þessu er svo blásið yfir þjóðina á öllum miðlum stjórnarinnar frá RÚV og niður.Einkaneyslan og eyðslana á sérignarsparnaðnum eiga að keyra þessa björtu framtíð áfram.

Aðeins Morgunblaðið vekur athygli á því að einkaneyslan dróst saman um 1.6% á fyrstu 3 mánuðum ársins í ar og frjárfestingin, sem á að bera þetta allt uppi, hrundi saman um 7 %

Er þetta hægt?


Góður, betri, bestur !

burtu voru reknir

Illur, verri verstur

voru aftur teknir.

Mér datt þessi húsgangur í hug þegar ég hlustaði á hann Eirík Stefánsson og Höskuld á Útvarpi Sögu í dag. Eiríkur sagaði að búsáhaldabyltingin hefði ekki breytt neinu. Vinstri menn hefðu getað fengið fólkið til að kjósa sig í stað íhaldsins og framsóknar. En það hefði ekkert breyst? Það væru sömu valdablokkirnar sem héldu öllum þráðum í höndum sér. Lífeyrissjóðirnir sætu á sínum gullhrúgum og gerðu ekkert. LÍÚ heldi um kvótann og gerði út Sjálfstæðisflokkinn sem hagsmunagæsluarm sinn.   Alþingismenn væru ekki hugsjónamenn heldur fulltrúar einhverra sérhagsmuna. Þeir væru þarna ekki af hugsjón. Þeir væru allir að verja einhverja hagsmuni. Stjórnmálamönnum dytti því ekkert í hug sem yrði þjóðinni lyftistöng enda launin þannig að enginn kærði sig um að standa í þingmennsku. Fjórflokkurinn ríkti hér óumbreytanlegur. Nýir flokkar hefðu aldrei fengið nema 4 þingmenn þegar reynt væri að breyta einhverju nema þegar Albert gerði Borgaraflokkinn og fékk 7.  Nú væri talað um að fá ungt og vel menntað fólk til valda og láta það stjórna.

 En hverjir hefðu stjórnað í hruninu spurði Eiríkur? Var það ekki  allt háskólafólkið, hagfræðingar og hámenntamennirnir. Allit voru keyptir í greiningardeildir bankanna til að dásama efnahagsundrið og keyra upp hlutabréfaverðið. Nú ætti að gera Ingibjörgu Sólrúnu að sendiherra.Fyrir hvað spurði Eiríkur? Hún yrði svosem ekkert verri sendiherra en hver önnur kona en hvað hefði hún til þess unnið?

Höskuldur sagði að besta fólkið væri sem óðast að flytja úr landi því það nennti þessu fokki hér ekki lengur.  Fólkið var fjúkandi illt og kaus Sjálfstæðisflokkinn í burtu, kenndi honum um hrun Lehmannsbræðra og glæpaverk bankastrákanna og verstu útrásarvíkinganna. Kaus Jón G.Narr fyrir borgarstjóra.

Það sem það sá ekki fyrir hvernig málin myndu þróast. Hversu illa gengur í þjóðlífinu. Enginn læknir hefur flust til landsins í 3 ár. Umönnunarstéttirnar flytja nú unnvörpum burt. Enda getum við ekki borgað fyrir þær.

Höskuldur vildi velta upp framtíðinni og ellinni upp með Eiríki. Hann sagði að best væri fyrir eldri borgara að gerast glæpamenn og fara á Litla Hraun í sérherbergi með tölvu og sjónvarpi í og fínum baðherbergjum  stað þess að vera sett í fjölbýli með öðrum gamalmennum og verða spúlað með slöngu einu sinni í mánuði þegar væri komin nógu mikil  fýla af því. Því við hefðum ekki ráð á að sjá um gamla fókið lengur. 

Höskuldur fann ekki íslenska orðið brain drain en það hefur verið kallaður atgerfisflótti á íslensku. Og það er áreiðanlega í fullum gangi hjá okkur um þessar mundir. Fólkið er að flýja framtíðarleysið. Þetta fólk mun ekki sjá fyrir okkur í ellinni.

Aldrei þessu vant var ég núna nokkuð ánægður með Eirík Stefánsson enda maðurinn bæði greindur og víðlesinn.  Eiríkur virðist hinsvegar virkilega trúa því að ný stjórnarskrá frá nefndinni gæti bjargað landinu. Ekki deili ég nú þeirri skoðun með honum. Ég held að nákvæmlega ekkert muni gerast. Þó að einhver bitastæð tillaga slysaðist fram þá verður hún kafskotin af hagsmunaaðilunum sem Eiríkur var áður búinn að tala um.

Er það kannski hin pólitíska stefna á bak við tjöldin að keyra hér allt nægilega mikið niður í svaðið þar til að fólkið sem eftir er sér sitt óvænna og samþykkir að ganga í Evrópusambandið? 

Hvað er fólkið að hugsa þegar það kýs eins og segir í vísunni um þann góða og betri?


Arabarnir eru óhamingjusamir!

Þeir eru ekki ánægðir á Gaza. Þeir eru ekki ánægðir í Egyptalandi. Þeir eru ekki ánægðir í Líbýu. Þeir eru ekki ánægðir í Marokkó. Þeir eru ekki ánægðir í Íran. Þeir eru ekki ánægðir í Írak. Þeir eru ekki ánægðir í Jemen. Þeir eru ekki ánægðir í Afganistan. Þeir eru ekkiánægðir í Pakistan. Þeir eru ekki ánægðir í Sýrlandi. Þeir eru ekki ánægðir í Líbanon. Svo hvar eru þeir ánægðir?
 
Þeir eru ánægðir á Englandi. Þeir eru ánægðir í Frakklandi Þeir eru ánægðir á Ítalíu. Þeir eru ánægðir í Þýskalandi. Þeir eru ánægðir í Svíþjóð. Þeir eru ánægðir í Bandaríkjunum.
Þeir eru ánægðir í Noregi. Þeir eru ánægðir í hverju landi sem er ekki múslimarrík !.
 
Og hverjum kenna þeir um alla óhamingju sína?
 
Ekki Íslam. Ekki Múhameð Ekki forystumönnum sínum . Ekki sér sjálfum.
 
Það eru löndin sem þar sem þeir eru ánægðir í að búa sem er undirrót óhamingju þeirra.

Ég fékk þennan senda frá Ameríku.  Það fer dálítið í taugarnar á þeim hvernig þessi múslímaheimur lætur alltaf við oikkur á vesturlöndum. En ykkur?

Er það virkilega?

svo að allar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar beinist að því að gera okkar veg sem holóttastan og blautastan? Láta okkur þjást nægilega í ráðleysi, úrræðaleysi, atvinnuleysi og landflótta sem helsta efnahagsúrræði uppgefinnar stjórnar heilagrar Jóhönnu?

Gera okkur lífið svo leitt og leiðinlegt að við greiðum inngöngu í Evrópusambandið atkvæði á þeim forsendum að kjör okkar geti ekki versnað né yfirboðarar og leiðtogar okkar ekki orðið vitlausari en þeir núverandi þó þeir búi í Brüssel? Alþingismenn á Evrópuþingi skárri en þeir sem greiddu Icesave atkvæði á okkar þingi? Eigum vð nokkursstaðar skjól?

Við verðum svo uppgefin og vonlaus að við segjum já? Þetta sé allt partur í samsæri Samfylkingar og Steingríms Jóhanns og hans hluta af VG gegn landi og þjóð á leiðinni inn í EU ? Að hugsa sér að maður skuli hafa trúað Steingrími Jóhanni einhvern tímann þegar hann var að þenja sig á Alþingi Íalendinga um vondarf náttúrur Sjálfstæðisflokksins? Hvernig ætlar þessi maður í þessum flokki nokkurn tímann aftur að ná eyrum okkar kjósenda? Hefur hann efnt eitt einasta kosningaloforð frekar en Jón Gnarr? Megum vð þá ekki vera heimskari en allt sem heimskt er?

No problem segir Össur úti í Brüssel og brosir eins breitt og kyndauður lax með kjaftfylli af ánamöðkum. Er ekki dauður lax líka betri lax í pottinn en sleppilax?


Yfirburðir Fréttablaðsins?

eru mikið auglýstir í því blaði. Þar er tekin upplagstala blaðsins og landsmönnum tilkynnt að þetta jafngildi lestri blaðsins.

Læsu menn þetta blað almennt ætti þegar að vera kominn yfirburðastuðningur við inngöngu í Evrópusambandið, svo eindreginn stuðningur er við það mál leynir á síðum blaðsins. Og ef áróður yfirleitt er einhlítur til árangurs. Það má eiginlega segja að evrópusmabandsaðild  sé eina stefnumál blaðsins sem eitthvað að kveður og sker blaðið sig í engu frá Samfylkingunni, sem er einskonar eins máls flokkur þegar sjávarútvegsmálum sleppir.

Morgunblaðið beitti mig lævísri aðferð á dögunum. Það gaf mér áskrift í mánuð.Þennan mánuð les ég blaðið, sem nú kemur með Fréttablaðinu fyrir klukkan sjö á morgnana, með morgunkaffinu og les yfirleitt leiðarann og fleira upphátt fyrir konuna. Svo eru það minningargreinarnar sem maður skoðar á þessum aldri. Maður undrast hvernig blaðið hefur ráð á heilsíðum undir minningargreinar um börn. Verður ekki blaðið að fara að minnka plássið fyrir hvern og einn genginn dánumann, smækka letrið eða selja aðgang? En sálfræðingar segja sumir að það sé þetta sem heldur Mogganum á lífi og víst er að án þeirra vill maður ekki vera. Hinsvegar skil ég alls ekki útgáfu fylgiritsins Finns, sem ég sé engan tilgang í. Ættu ekki framhaldsminningargreinar að vera þar í ?   

 

Ég fletti svo Fréttablaðinu á eftir á vissum stað, lít yfir forsíðuna,  skoða kannski síðu 2, fletti svo áfram,  les Jónínu ef hún er, sjaldan eða aldrei leiðarana sem eru yfirleitt ekki um neitt sem ég hef áhuga á, Þorvald Gylfason tel ég mér skylt að lesa þó ekki nema væri til að æsa mig upp og svo stöku greinar sem vekja áhuga minn. Þegar kemur aftur fyrir miðju hendi ég blaðinu. Ef það dettur á klósettgólfið og baksíðan snýr upp sé ég hugsanlega auglýsingu án þess að leggja hana sérstaklega á minnið þar sem maður er hættur að safna dauðum hlutum.

Ég held að menn eigi að taka súluritin um lestur Fréttblaðsins á móti Morgunblaðinu með gát. Ég held að fylgi stjórnmálaflokkanna sé betri mælikvarði á lesturinn en upplagstölur. Svo er Mogginn með einn stærsta vef landsins þar sem landsmenn koma margir við á. Mogginn rekur líka bloggsíður okkar og þar geta hinir minni spámenn eins og ég fengið útrás fyrir geðvonsku sína, sem ekki er þá að þvælast fyrir skoðanamyndun í landinu.

Ég held bara að það verði erfitt að venja sig af Mogganum eftir að hann hefur beitt mann þessari lævísu aðferð sem hefur verið kennd við fíkniefnasalana, með að gefa fyrstu skammtana fría. Allavega kvíði ég því ef hann hættir að koma.

 


Æ,æ Steingrímur

ósköp er að vita hvað þú berð þig illa yfir því að hafa ekki getað komið fleirum í gálgann en Geir Haarde í viðtali við útlenda fréttastofu. Og eins og eins og hjá stóra meistaranum þínum, þá var þetta ekkert persónulegt hjá þér að greiða þessu ákærumáli atkvæði. Stalín hafði heldur ekkert að gera með dómana yfir Búkharín og félaga hans, sem voru skotnir í Moskvu með velþóknun íslenskra kommúnista eins og Halldórs Kiljans Laxness. Ekkert persónulegt en nauðsynlegt!

Ég held að þér finnist alveg réttlætanlegt að réttarkerfinu megi beita í þágu réttra valdhafa. Þú lést minnir mig  reka stjórn og framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Kópavogskaupstaðar frá völdum klukkan hálfellefu að kvöldi fyrir tveimur árum. Þú barst við broti á reglum sjóðsins við þær óvanalegar aðstæður sem þá ríktu í þjóðlífinu.  Meint brotið var það, að stjórnin lánaði eiganda sjóðsins og ábyrgðaraðila, sjálfum Kópavogskaupstað,  hluta af lausu fé sjóðsins til ávöxtunar. þetta var á tíma sem allir bankar voru lokaðir og engu var að treysta. Bæjarkassinn borgaði bestu vexti og þá einu fáanlegu á þjófamarkaðnum sem þá var þekktur sem íslenskur fjármálaveruleiki. 

Það sem í ljós strax var auðvitað að engu hafði verið stolið heldur bestu ávöxtun hafði verið náð á eignir sjóðsins borið saman við alla lífeyrissjóði landsins.  En það var greinilega ekki tilgangurinn að rannsaka eitt né neitt. Tilgangurinn var að slasa Gunnar Birgisson, bæjarstjóra, sjálfstæðismann og  stjórnarmann í sjóðnum nægilega pólitískt til að hann biði varanlegan skaða af. Það tókst hjá þér Steingrímur og er það eiginlega undantekning hvað aðrar stjórnarathafnir þínar varðar.

Sem kom á daginn að Gunnar skaðaðist nægilega til að verða hrakinn úr embætti bæjarstjóra þegar grafið hafði verið nægilega  undan trausti hans. Aumingja framkvæmdastjóri sjóðsins hefur saklaus mátt þola atvinnuleysi síðan og allir stjórnamenn hafa orðið að búa við skugga ákæruvaldsins síðan. Enda bersýnilega tilgangurinn hjá þér nákvæmlega eins og afstaða þín til ákærunnar á Geir Haarde lýsir. Ég held að þeir séu fáir sem taka mark á krókódílstárum þínum eða þinna meðreiðarsveina  í þessu sambandi.

Síðan hefur nefnilega ekkert gerst frekar en lífeyrissjóðsmálið hafi aldrei verið til. Enda finnst enginn glæpur. Skyldi tilgangurinn þá hafa nokkurntímann  frá upphafi verið annar sá sem hér er lýst? . Allir málsaðilar búa ennþá undir ákærunni og ekkert gerist af hálfu ákæruvaldsins né annara yfirlvalda.

Mér sýnist Þú vera  fyrirmynd þinni nokkuð trúr hvað pólítískt  innræti varðar þó að þú verðir sjálfsagt ekki þvílíkt stórmenni og hann var. En í dag ertu hinsvegar nútíðin sem ég og aðrir landsmenn verða að búa við. Vonandi endar þessi nútíð samt einhvern tímann og fórnarlömb þín fá uppreisn æru áður en það verður of seint eins og í tilfelli Búkharíns. 


Verum túristavæn

sem við erum bara alls ekki.

Ég var í för með túristum í gær. Á aðalstöðum sem farið er á, vantar víða að gefa til kynna að þeir geti fengið endurgreiðslu á 15 % af vöruinnkaupum yfir 4000 kr. Það er vandséð að kaupmenn hafi hag af því að leyna þessu?

Ennfremur eru víða leiðbeiningar á íslensku um hitt og þetta. Sumstaðar á ensku líka. En Þjóðverjar skilja bara ekki allir ensku og þeir eru einna fjölmennastir ferðamanna.

Svo ættum við að hætta að halda því fram að lögberg sé við flaggstöngina. Enginn sem ætlaði að halda þarna fund og hefði ekki gjallarhorn myndi standa þar og gala uppí suðaustan þræsuna og slagveðrið, þegar hann gæti setið í gjánni í skjóli  og  notað gjávegginn sem hljómbotn til að ná til áheyrendanna. Enda er búið að finna það að við þann vegg er aðflutt fylling og maður skilur auðveldlega að þar hafi verið áheyrendabekkir.

Getum við ekki lagað þetta og verið svolítið túristavæn í eiginhagsmunaskyni?


Svei mér þá Jóhanna !

Ósköp er að vita hvernig er farið með þig.


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband