Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2013

Íslenska glæpasamfélagið

birtist okkur á öldum ljósvakans í kvöld.

Það er ekki nautakjöt í nautahakkinu. Það var þá ekkert af því sem var logið að okkur neytendum á innihaldslýsingunum frá kjötframleiðendunum í pökkunum. Ekkert kjöt í kjötinu. Allar innihaldslýsingar eru falsaðar.  En þetta er bara brandari.Þeir seku bara mótmæla og þar við situr.  Þetta er nógu gott í kjaftinn á ykkur segja menn stundum. Hvað er annars þetta MAST? Eine Masthuhn? Eða þannig?

Það var líka logið að okkur að vð værum tryggð fyrir því óvænta hjá SJOVÁ.  Þrír bísnessmenn, Karl Wernerssson, bróðir hans sem ég man eki nafnið á og Þór Sigfússon Johnsen forstjóri úr Vestmannaeyjum höfðu séð tl þess að við viðskiptavinirnir hjá Sjóvá vorum í raun ótryggðir í langan tima  því þeir höfðu fyrir löngu organisérað Bótasjóði  tryggingafélagsins SJÓVÁr í burtu sem landsmenn treystu. Félags sem naut lotningar almennings löngu áður en hugtakið skítseiði var fundið upp.

Bótasjóður er heilög eign hvers tryggngafélags, myndaður af skattfrelsi og því þjóðareign að hluta. Nú er talað um þessa nýju tryggingamenn eins og þer séu bara  misskildir stórlaxar og athafnamenn. Fínir menn sem rífa kjaft og er allt í lagi með. Sem gamall maður hef ég samúð með foreldrum þeirra allra sem var sannt heiðursfólk.

Enginn af þeim situr í fangelsi fyrir þessa gjörninga sem við blasa þessari miklu réttvísi Íslands sem þarf að skrifa nýja stjórnarskrá utanum svo vel sé að sögn Saari.

Væri þetta svo í USA?  Vitið  þið það að mér er það til efs þó að kommarnir okkar segi að USA sé svona og svona. Bandaríkjamenn  segja upphátt að glæpamenn eigi að vera í fangelsum. Punktur.

Það virðist vera hérna að það sé sama hvað skálkar af öllum gerðum, kjötfalsarar, laukfalsarapr,og tryggingafalsarar  geta komist upp með í þessu landi kunningsskaparins, -Íslandi. Það er bara allt í lagi.

Er Ísland orðið  gersamlegt bananalýðveldi þar sem réttvísin virðist afstæð og afgangsstærð sem ekki ræður við neitt yfir innbrot í sjoppu?

Íslenskt glæpasamfélag er mjög sérstakt því glæpamenn eru víst bara bísnessmenn í þeim skilningi. Það virðist er engin heiðarleikahefð til lengur á bak við vörumerkin.  

 


Og svo Serbarnir!

Svo stendur á Pressunni:

 

"  Fólk frá Serbíu á enga möguleika á að fá hæli í Danmörku og mál þeirra eru afgreidd kerfisbundið. Nei er svarið og tekur það yfirvöld aðeins nokkra daga að klára mál þeirra. Þá ættu hælisleitendur frá Serbíu með réttu að fara heim aftur en það er nú ekki alltaf tilfellið. Stór hluti þeirra spilar á kerfið að sögn Ekstrabladet.dk með því að notfæra sér glufu í lögunum og óska eftir dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Til að sú ósk þeirra sé tekin til greina segist fólkið að þjáist af hinum ýmsu sjúkdómum sem það þarfnast lyfja við sem ekki fást í Serbíu. .."

 

Ef Króatar koma hingað fá þeir sérmeðferð. Hvað með Serbana?  Hvað með okkur? 


Bloggvinur Jóhann Kristinsson

er ekki par hrifinn af innflytjendastraumnum. Hann skrifar svo á sitt blogg:

",,,Hvenær fara íslendingar að opna augun og koma sér úr Schengen og hætti að taka á móti fólki sem er að ljúga sig inn í landið á fölsuðum eða engum skilríkjum?

Þetta að á Íslandi er tekið á móti svona afbrota manneskjum með opnum örmum og ausið í það peningum og fær íbúðir að kostnaðarlausu fer eins og eldur í senu um afbrotaheiminn.

Það er erfit að breyta svona afbrotamönnum og þeir/þau gera það sem þeim finnst auðveldast og eru atvinnumenn í, það er að stela. Þessir þjófar vita það líka að það er enginn refsing þó svo að þau verði gripin við verknaðinn, þetta hefur fréttst erlendis og þjófagengi streyma til landsins.

Og hver borgar svo skaðann, auðvitað íslenzkur almenningur í hærra vöruverði, því að einhver verður að greiða fyrir þjófnaði upp á miljónir, annars fer fyrirtækið á hausinn og starfsmenn missa atvinnuna.

Íslendingar standið upp og krefjist þið að Schengen samkomulagið verði endurkallað, svona þjófa alda getur ekki gengið mikið lengur.

Kveðja frá Houston. .."

Það eru æði margir sem maður heyrir í sem vilja breytingar á þessu Schengen. Einstöku ráðamenn eins og Björn Bjarnason verja það af hörku. En í augum margra er þetta kerfi að leiða óárán yfir okkar þjóð. Okkur svíður að verða sjálf að veifa pössum mörgum sinnum ef við förum til útlanda meðan allskyns pamfílar geta komið hingað passalausir og æpt ASYL ASYL og komið sér til vistar á okkar kostnað til margra ára. Hóta að drepa sig ef við hlýðum þeim ekki.

Er ekki hægt að breyta þessu af því að Björn er á móti? Er alvega sama hvað við sauðsvartir tuðum við erum ekki virtir viðlits, hvað þá heldur svara eða útskýringa?

Ég er sammála Jóhanni bloggvini mínum.

 


Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins

er allrar athygli vert sem oft áður.

Þar er á yfirvegaðan hátt farið yifr feril ríkisstjórnarinnar og reynt að gera sér grein fyrir því hversvegna henni er svo margt mótdrægt og mislagðar hendur hennar verið.

Ég hef lengi hallast að því að persónueigindir fólks ráði oft miklu um pólitíska afstöðu þess. Kvartsárt fólk finnst mér oft vinstrisinnað. Einnig þrætugjarnt fólk sem lemur sínar skoðanir fram og vill engar tilslakanir gera. Neitar að leiða hugann að því sem mögulegu að nokkur fótur geti verið fyrir öðrum skoðunum hvað þá að um eitt eða neitt geti verið að semja.
 
Skortur á sjálfsgagnrýni finnst mér stundum vera er oft líka einkenni á fólki sem er í senn steigurlátt, drembið og óeirið við náungann. Dramb og sjálfshól finnst mér sömuleiðis algengara hjá vinstrisinnuðu fólki. Heimtufrekja eins og ríkið eigi , bærinn eigi osfrv. að gera... er líka algengari þeim megin. Allskyns kvartanir yfir ástandi í stað þess að reyna að laga það til eða gera eitthvað.

Þetta rann í gegnum hugann við lestur bréfsins. Ef til vill aðeins sönnun á minni eigin heimsku og fordómum  munu vinstrimenn segja. En mér er þá slétt sama. Það er enginn annar sem er heimskur fyrir mig.
 
Ég dundaði mér við að taka  einstakar setningar úr Reykjavíkurbréfinu og velta þeim fyrir mér. Þá geta læðst að mannii hugsanir í þessa sömu veru og maður fer að velta karakterunum fyrir sér. Ég tek fram að ég þekki flest  þetta ráðafóllk á vinstra vængnum ekki hætishót og byggi því ekki á neinu nema minni eign heimsku.
 
 Tökum dæmi:




"......Þau Jóhanna og Steingrímur geta ekki neitað því, en flýja jafnan í sömu skýringuna á því hvernig komið sé. Þau hafi þurft að fást við yfirþyrmandi verkefni og fái litlar þakkir fyrir frá kjósendum.....

.......... En vonbrigðin beinast að vinnubrögðum, framgöngu, forgangsröðun og sviksemi valdhafanna. Taumlaust sjálfshól í bland við kvartanir um yfirgengilegt álag og óvenjulega óeigingjarna fórnfýsi fyrirmennanna er einnig ógeðfellt. Og það er ekki einu sinni fótur fyrir þeim þættinum. Það er að renna upp fyrir sífellt fleirum að verkstjórn landsins, sem sjaldan hafði verið mikilvægari, hefur verið í molum allt kjörtímabilið. Og sjálfshólið er einnig haldlaust. Ákallið um vorkunnsemi eða auðmjúka þakkargjörð fyrir þrotlausa vinnu »umfram aðra menn«, eins og Steingrímur orðaði það í viðtali, er óviðeigandi og innistæðulaust..........

........Fyrst er til að taka að viðbrögðum við bankahruninu hafði þegar verið stýrt í tiltekinn farveg í öllum meginatriðum þegar þau tvö hlutu sín miklu völd í kjölfar óeirðanna vorið 2009. Þær ákvarðanir höfðu verið teknar næstum hálfu ári áður. Jóhanna lagði ekkert til þeirra mála á seinustu dögum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og Steingrímur lagðist gegn flestu því sem best gagnaðist.
 
Jóhanna hafði verið þversum í stjórninni sem mynduð var 2007, eins og hún hefur gjarnan verið í þeim ríkisstjórnum sem hún hefur átt sæti í, jafnvel einnig þeirri sem hún sjálf stýrði, a.m.k. að forminu til. Þegar bankakerfið þandist upp úr öllu hófi, samhliða húsnæðiskerfinu, var lögð áhersla á að ríkisvaldið legðist ekki á sömu sveif.
 
Ríkisstjórnin frá 2007 náði ekki árangri í slíkum efnum, m.a. vegna andspyrnu Jóhönnu Sigurðardóttur og tillitssemi (ótta) samfylkingarráðherra og þingflokks við hana. Þetta er ekki aðeins þekkt vegna upplýsinga innanbúðarmanna heldur skýrt og greinilega skjalfest, m.a. í Rannsóknarskýrslunni.
 
En þessi fortíð þeirra Jóhönnu og Steingríms var þó ekki meginástæða þess að pólitískur stuðningur þeirra þvarr svo ört á starfstíma ríkisstjórnarinnar og breyttist í tortryggni, svo í trúnaðarbrest og loks almenna fyrirlitningu. ......


..........Hvað eftir annað voru haldnir fjölmennir fundir þar sem alþýðuhetjur skjaldborgarinnar, norrænu velferðarforingjarnir, böðuðu sig í kastljósum fjölmiðlanna og boðuðu aðgerðir eftir fáeinar vikur eða í mesta lagi mánuði. ..........

.........Ríkisfréttastofan spurði ekki gagnrýnna spurninga í fjögur ár. Hver man ekki eftir sýningunum frá stjórnarráðinu, ráðherrabústaðnum og ekki síst þjóðmenningarhúsinu? Og það vantaði ekki að allir sem vettlingi gátu valdið væru kallaðir til skrafs. Eða var það bara til skrauts? Hagsmunasamtök af alls konar tagi, bankastjórar, aðilar vinnumarkaðar og forsprakkar lífeyrissjóðanna, svo fáeinir fastagestir séu nefndir. Það var varfærnislaust kynt undir væntingum og vonum fólks um að raunverulegar áþreifanlegar lausnir væru í farvatninu. Lausnirnar koma í ljós »á næstu vikum«, var hin hefðbundna tilkynning forsætisráðherrans. Kannski héldu einhverjir að sér höndum vegna þessa sjónarspils. Og kannski sukku margir þeirra enn dýpra ofan í fenið af þeim ástæðum og enn örðugra varð um nokkurt bjargræði. En minna en ekkert gerðist................

Það eina sem hafði raunverulega þýðingu fyrir marga voru dómar Hæstaréttar um gengisbundnar kröfur...... 

............. Hvernig gat ein ríkisstjórn haldið svo á málum að fyrirheit eins og »norræn velferð« og að »slá skjaldborg um heimilin« urðu að skammaryrðum og enduðu með því að höfundar þeirra þorðu ekki lengur að taka þau sér í munn? 

Og hvernig stóð á því að hverri »sátt« af annarri var sópað út af borðinu. Hver man ekki eftir að ríkisstjórnin þóttist mánuðum saman vera að vinna af heilindum að því að »ná sátt um sjávarútveginn«. Mörgum þótti það fagnaðaefni þegar tilkynnt var að sáttin hefði náðst. Sú gleði stóð í dagpart eða svo, en þá hljóp sjálfur formaður sáttanefndarinnar, Guðbjartur Hannesson, frá sáttinni vegna þess að sjálf stjórnarforystan lagðist gegn henni! 

................ Ríkisstjórnin gerði hvern sáttmálann af öðrum við »aðila vinnumarkaðarins«. Þeir voru hlaðnir loforðum. Þau áttu að tryggja stöðugleika. En svo var upplýst að varla nokkurt einasta loforð hefði verið efnt. Slík staða er óþekkt í áratugasamskiptum þessara aðila við ríkisvaldið. Hefur einhver gleymt hrópunum, stóryrðunum og svívirðingunum úr munni Steingríms J. Sigfússonar þegar talsmenn »aðilanna« upplýstu um svikin? Þau voru slík að Björn Valur Gíslason hefði verið fullsæmdur af þeim..............

..................Stjórnarforystan lætur gjarnan eins og enginn íslenskur stjórnmálamaður hafi sinnt sínu starfi jafnötullega og hún hafi gert. Sífellt er verið að barma sér yfir því að ráðamenn séu að sligast af þreytu. Við hvað var verið að hamast? Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var ekki fylgt eftir í samræmi við samhljóða samþykkt þingsins. Atli Gíslason, sem stýrði viðbragðavinnu Alþingis, hefur staðfest að ríkisstjórnin hafi gjörsamlega brugðist í þeim efnum. Alls konar rannsóknarnefndir aðrar hafa hins vegar verið skipaðar. Hvað hefur komið út úr þeim? 

..... Landsdómsaðförin steytti á grjóti og sá kostnaður nam einnig hundruðum milljóna króna. Önnur aðför, í þetta sinn að sjálfri stjórnarskrá landsins, er vonandi einnig að renna út í sandinn. Kostnaðurinn við það fáránlega brölt er að verða um 1.500 milljónir króna.

Án boðlegra heimilda voru vogunarsjóðum og hrægömmum afhentir tveir stærstu bankar þjóðarinnar. Þjóðin er byrjuð að súpa seyðið af því, en hefur þó aðeins rétt dreypt á, enn sem komið er. Sparisjóðaklúðrið, sjóvárdæmið og allt hitt er ónefnt. En það sérkennilegasta og skaðlegasta af öllu var að láta undan sérvitringsafstöðu eins flokks og hefja í óðagoti og heimildarleysi aðlögunarferil stjórnskipunarinnar að ESB og efna þar með til sundurþykkju með þjóðinni þegar hún þurfti mest á samstöðu að halda. Og ekki þarf að nefna delludansinn í kringum »icesave«, með hundraða milljóna króna kostnaði, sem þó var aðeins brotabrot af þeim útgjöldum sem tókst að afstýra........"

Þegar maður horfir á þetta svona samandregið í Reykjavíkurbréfinu , þá meira en hvarflar að manni að skapgerð fólksins sé að einhverju leyti að birtast í árangrinum.
 
Þetta varð svona af því að þau eru bara svona innréttuð? 
 
Fyrir utan þessar spekúleringar mínar fannst mér  þetta Reykjavíkurbréf athyglivert svona sem yfirlit  kjörtímabilsins. Það eru jú að koma kosningar.

Fram, fram fylking

forðum okkur hættu frá. Þetta sungum við á Barnaböllunum hjá Frímúrurunum sem hann afi bauð okkur á í gamla daga.

Undir Sigmundi Davíð verður líklega næsta ríkisstjórnarsamfylking með Árna Pál, þá orðinn  ESB-andstæðingur og Katrínu Jakobsdóttur sem ætlar heldur ekkert í ESB þó hún vilji halda áfram aðildarviðræðunum.

Framsóknarhjartað slær yfirleitt alltaf fyrst til vinstri. Sigmundur var líka guðfaðir núverandi ríkisstjórnar.Þó hann hafi verið fúll yfir því að þau skildu hann eftir utangátta eins og Ísleif á Völlunum, þá er hann löngu kominn yfir það sér í lagi þegar afrekaskráin þeirra er skoðuð.

Því miður lítur ekki út fyrir að þau Bjarni og Hanna Birna hafi unnið hug og hjarta kjósenda. En allt getur samt skeð og vika getur verið langur tími í pólitík.

En fram fram fylking. Fullnóg er af fyrirséðum hættunum framundan. 


Hvað með næsta þing?

Hvað gerir það við þetta stjórnlagaráðsfrumvarp? Hugsa  stjórnarskrárspekingar eins og Þór Saari aldrei út í það að næsta þing geti hreinlega fellt þetta stjórnlagafrumvarp þó það yrði samþykkt núna?

Þetta er ekki plagg sem þjóðin er sátt við. Fólk kærir sig kollótt eða er á móti þessu brölti. Það er allt í lagi að hafa gömlu skrána áfram, það er ekkert stórvægilegt að henni sem ekki má redda ef þarf.

Svo til hvers er þessi leiksýning við Austurvöll?  Til hvers er hann Þór Saari að tala um vantraust á dauða ríkisstjórn?

Ég myndi hafa meiri áhyggjur af því hvernig næsta þing verður-án Þórs Saari. 


Margföldun hælisleitenda

segir í Mbl. 83 frá áramótum. Sérstaklega frá Króatíu sem er að detta inn í ESB. Eru þeir í sérstakri lífshættu í íslenskri ferðamannaparadís?

Þeir í Reykjanesbæ hafa loks séð að það  er ekki hægt að hleypa þessu liði beint inn á íslenskan almenning. Samkvæmt Evrópureglum sem ég hef best skilið má girða þetta fólk af. Ég sá ekki betur en að á Keflavíkurflugvelli stæði fullt af flottum auðum hermannablokkum. Dýrustu hús á Íslandi þegar þau voru byggð. Má ekki geyma þetta fólk þar?

Af hverju er verið að veltast með mál hvers og eins í 300 daga í þessari Útlendingastofnun? Er enginn sendur beint til baka eins og var í tíð hans Árna stóra? 

Hvar á þetta að enda? 83 frá áramótum?

Má þetta bara margfaldast án þess að neinn geri neitt? 

 


Ónýtir vegir

leyfir Vegagerðin  sér að segja okkur landsmönnum.

Komnir á tíma!

Halda þeir að landsmenn séu hálfvitar? 

Svo koma myndir af flutningatrukkunum á 24 hjólum vaðandi áfram án þess að borga nokkurn skapaðan hlut miðað við það sem þeir slíta vegunum. Búnirað útrýma strandsiglingunum vegna þess að þeir keyra frítt á vegunum okkar sem við höfum striðað við að byggja í áratugi.

Tíföldum þungaskattinn á trukkunum.  

Það er þeir sem eru að gera vegina okkar ónýta. 

 


Framsókn flýgur upp

í hæstu hæðir meðan Íhaldið mitt dalar niður undir 30 %.

Ég hef því miður heyrt of margar raddir sem segja að Sjálfstæðsflokkurinn hafi valdið unga fólkinu vonbrigðum með loðmulluegri afstöðu sinni í verðtryggingarmálum heimilanna. Fólkið snýr sér annað.

 Við þorðum ekki að stíga djarft skref fram af því að við þorðum ekki annað en þjónka bankavaldinu og ÍLS. Hræddir við tölur eins og Jón Ásgeir hefur varað við að vera. Við erum ekki á leiðinni í stjórn með þessu áframhaldi.

Sigmundur Davíð er maður fólksins um þessar mundir. Maður sem fólkið segir mann sem þorir. Hann þorði líka 2009.Gleymum ekki að hjarta Framsóknar slær til vinstri.

Sjálfstæðísflokkurinn þorði ekki að lofa upp í ermina á sér og er þess vegna ekki að seljast.

Þess vegna flýgur Framsókn hátt  


« Fyrri síða

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband