Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2016

Helgi Hjörvar

 

kemur svo í þáttinn hjá ritstjóra 365.

Hann ætlar að verða formaður Samfylkingarinnar og hefur auðvitað minn stuðning til þess.

Honum verður tíðræddast um að ná niður vaxtastiginu án samráðs milli bankanna. Banna verðtrygginguna líka.

Helgi er svo ungur að honum er vorkunn að vita það ekki, að einu sinn var hægt að spara peninga á Íslandi inn á verðtryggðar bækur. Lágir vextir en verðtryggt. Að vísu bundið til einhvers tíma en það var nú hægt að sveigja það. Þegar ég var ungur þá var þetta ekki hægt. Þá var bara hægt að spara i steypu.

Þá fór verðbólgan stundum yfir 100 % sér í lagi eftir að vinstri menn höfðu verið í stjórn. Við þessar aðstæður urðum við að byggja sem vorum ungir þá. Þá þurftum við að vísu ekki að byrja á því að borga 30% út fyrir lóðina eins og núna. En við strituðum sjálfir eins og við gátum og fluttum inn á steininn og hurðarlaust. Með tilkomu rafeyrisútgáfu bankanna er það víst liðin tíð að einhverjir þurfi að spara svo hægt sé að lána út svo Helgi þarf ekki að velta þeirri hlið fyrir sér í sambandi við umhyggju sína fyrir ungu fólki. 

Helgi fimbulfambar um nauðsyn þess að við skipuleggjum allt eftir hans pípu í nýjum bönkum. Hann getur ekki hugsað í öðrum krónum en lánskrónum. Skattlagningu alls til að útdeila styrkjum. Gamla krataformúlan er innbrennd í karatahugsunina.Þó var Helgi einu sinni í gróðafyrirtækinu Arnarson&Hjörvar sem margar fjölskyldur fundu óþyrmilega fyrir á sinni tíð.

Helga þennan Þjóðlífs-Hjörvar endilega sem formann Samfylkingarinnar.


365.

hræran í stjórnarskrárlyginni er tekin rétt í þessu á Sprengisandi hjá Sigurjóni leigupenna samsteypunnar.

Þar fer hann rétt einu sinni með lygina um að 2/3 kjósenda hafi samþykkt stjórnarskrárdrög Þorvaldar Gylfasonar og félaga.Af hverju þurfa þeir nefndarmenn alltaf að fara með lygar þegar þetta mál kemur á dagskrá? 

Það er af því að 365 miðlum og krötum er fullveldisframsalsheimildin ofar öllu svo hægt sé að koma Íslandi inn í Evrópusambandið með öllum brögðum sem hægt er að beita.

Lýðveldisstjórnarskráin okkar frá 1944 leyfir ekki 365 landráð.


Hlustið á Trump

í viðtali við spyrjanda á Fox sem hefur 30 ára reynslu í því að tala við fólk.

https://www.youtube.com/watch?v=jlTwh9Oc1qg

Ætlar einhver að halda því fram að þessi maður viti ekki hvað hann er að tala um?

Hann segir: Ísrael, óttist ekki. Við munum koma ykkur til bjargar ef Íran ræðst á ykkur.

Við munm ekki láta okkar fólk deyja á götum borga okkar af því að það eigi enga peninga.Velferðarkerfið mun verða til staðar þó að Obamacare verði lagt niður.

Ég vil láta Apple framleiða sínar tölvur og síma í Bandaríkjunum. Annars mun ég leggja á influtningtolla á vörurnar.

Ætli framleiðendur loftkælinga að flytja verksmiðjur sínar frá Bandaríkjunum til Mexico í hagræðingarskyni þá horfast þeir í augu við 35 % innflutningstolla til Bandaríkjanna.

Ég ætla að gera Bandaríkin stór aftur. Ég ætla að verja störfin hér innanlands. Ég eyði aðeins mínum peningum aðeins í þessa kosningabaráttu mína og ég eyði minna en nokkur annar. Er eitthvað að því?

Þetta viðtal kostar mig ekkert því það ert þú sem vilt fá mig.

Þessi maður er það sem Bandaríkin þarfnast. Þessi maður er það sem heimurinn þarfnast. Rödd skynseminnar á móti alþjóðlegri kratahræsninni.

Rödd skynseminnar.Það er rödd Donalds Trump.

 

 


Af hverju kjósa menn Trump?

Sameinaðir Besserwisserar á Íslandi hafa skýringar á hverjum fingri á eðlisþáttum  Donald Trump. Maðurinn er brjálaður, Ameríkanar eru brjálaðir, Ameríka er búin að vera. Farið á síðuna http://patent.blog.is/blog/patent/

Þá sjáið þið hvernig sumu fólki líður í þessu samfélagi.

Samt má leita að hliðstæðum í íslensku samfélagi sem orsök fyrir velgengni Trump. Það er að margt fólk er búið að fá yfir sig nóg af meintum lygum og svikum stjórnmálamanna.

Ég held að menn hafi kosið Jón Gnarr og flokk hans að einhverju leyti vegna þessa. Ég hlustaði á manninn á stöð 2 í gær eða hinn. Mér fannst það blasa við hversvegna menn kusu hann frekar en gamla gengið í Borgarstjórn. Og hvernig veran í sviðsljósinu þroskaði sjálfstraust mannsins.

Mér finnst það líka blasa við hversvegna að fylgi Pírata breytist ekki neitt þó að þeir rífist opinberlega innbyrðis og fái sér sálfræðimeðferð. Skráðum fylgismönnunum er slétt sama því þeir sjá sig ekki vera að kjósa þá á kjördegi hvort eð er. Fólkið er að krefjast þroskaðri stjórnmálamanna. 

En Kristján Jónsson á Mogganum er oft glöggur. Hann rekur ástæður fyrir því sem hann sér fyrir fylgi Trumps á eftirfarandi hátt:

" Tor­tryggni í garð þings­ins er mik­il vestra í báðum flokk­um, inn­an við 15% treysta þing­mönn­um. Flest­ir segja þá spillta sér­hags­muna­seggi. Böl­sýni er út­breidd. Marg­ir hvít­ir Banda­ríkja­menn í lægri millistétt sjá ekki leng­ur fram á að gamli, am­er­íski draum­ur­inn um enda­laus tæki­færi og hag­sæld muni ræt­ast fyr­ir þá.

Þeim sem hafa ekki lokið nema skyldu­námi, sem horfa á störf flutt úr landi, sjá inn­flytj­end­um og af­kom­end­um þeirra veitt auk­in rétt­indi og jafn­vel um­svifa­laus aðgang­ur að bóta­kerf­um rík­is­ins finnst þeir skild­ir eft­ir. 

Og hvers vegna er það allt einu orðið skamm­ar­legt í huga og tali margra stjórn­mála­manna, fjöl­miðla- og mennta­manna að vera hvít­ur karl­maður í Banda­ríkj­un­um, spyrja þeir. Er það sann­gjarnt?

Trump höfðar mjög til þess­ara kjós­enda en hann er líka með mest fylgi allra for­seta­efna re­públi­kana hjá nán­ast öll­um hóp­um. Körl­um, kon­um, hvít­um, svört­um, trúhneigðum og lítt trúuðum, menntuðum og ómenntuðum, efnuðum og fá­tæk­um.

En rauði þráður­inn er að stuðnings­mönn­um hans finnst þeir ekki hafa haft nein áhrif. Þeir séu hunsaðir af ráðandi öfl­um, traðkað á þeim. Flokk­ur­inn hafi svikið þá. Svo mik­il eru bræðin og von­brigðin að þeir vilja mann sem bein­lín­is hamp­ar því að hann vilji vera grimm­ur og ill­ur fant­ur. Auðmýkt, mildi og siðfág­un eru ekki leng­ur eig­in­leik­ar sem þetta fólk vill sjá í for­seta sín­um.

Ráðvillt flokks­for­ysta

Engu virðist skipta þótt fjár­málaf­urst­ar eins og hinir frægu Koch-bræður, Sheldon Adel­son og aðrir auðkýf­ing­ar beiti sér gegn Trump, stór hluti flokks­ins hlust­ar alls ekki leng­ur á þá.

Flokks­for­ysta re­públi­kana hef­ur aldrei fengið aðra eins út­reið. For­ystu­menn­irn­ir eru í losti, sum­ir segj­ast ætla að kjósa demó­krata frek­ar en Trump. En þeir munu vafa­laust halda fyr­ir nefið og sam­ein­ast um Trump ef hann verður út­nefnd­ur. Allt er betra en Cl­int­on í þeirra aug­um.

Dav­id Frum, rit­stjóri hins þekkta tíma­rits The Atlantic, var í eina tíð ná­inn ráðgjafi Geor­ge W. Bush for­seta og ræðuskrif­ari hans. Frum seg­ir að upp­gang­ur Trumps sé merki um hrein og klár stétta­átök inn­an re­públi­kana­flokks­ins. Flokk­ur­inn verði að átta sig á einu: Óbreytt­ir flokks­menn séu ekki í reynd hlynnt­ir því að skera niður vel­ferðar­kerfið, það gagn­ist þeim of vel. Og re­públi­kan­ar eigi að hætta að berj­ast gegn al­menn­um heil­brigðis­trygg­ing­um Obama en lag­færa kerfið í staðinn.

Lækkið hæstu skatt­ana minna og notið pen­ing­ana til að hækka bæt­ur til vinn­andi fólks í milli­tekju­hóp­um,“ seg­ir Frum. „Mótið inn­flytj­enda­stefnu sem efl­ir laun­in en gref­ur ekki und­an þeim. Hafið meiri áhyggj­ur af regl­um sem auka við auðæfi þeirra sem þegar eiga mikið en minni áhyggj­ur af regl­um sem minnka svig­rúm til að stunda fjár­mála­brask.“

Frum er tal­inn hægris­innaður re­públi­kani. En hann seg­ir flokks­systkin­um sín­um að horfa til þess hvernig marg­ir nýir hægri­flokk­ar í Evr­ópu, sem kennd­ir eru við lýðskrum, leggi nán­ast all­ir áherslu á stuðning við vel­ferðar­kerfið.

Ef eng­inn sigr­ar...

Marg­ir hóf­sam­ir kjós­end­ur eru í öng­um sín­um yfir fram­gangi Trumps. Auðkýf­ing­ur­inn Michael Bloom­berg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York, velt­ir því fyr­ir sér að bjóða sig fram til for­seta. Ef, öll­um á óvart, at­kvæði skipt­ust þannig að eng­inn hlyti til­skil­inn fjölda kjör­manna, 270, fengi full­trúa­deild þings­ins það hlut­verk að kjósa for­seta. Þar hafa re­públi­kan­ar öfl­ug­an meiri­hluta og nokkuð ljóst að þeir myndu ekki kjósa Trump."

Mér sýnist niðurstaða Kristjáns vera sú að venjulegt fólk sé búið að fá nóg af vonbrigðum. Mér finnst ég skynja það sama hér á landi. Bæði innanbrjósts í mér sjálfum."En rauði þráður­inn er að stuðnings­mönn­um hans finnst þeir ekki hafa haft nein áhrif. Þeir séu hunsaðir af ráðandi öfl­um, traðkað á þeim." Og því hvernig fólk er að tala í kring um mig.

Okkar íslenska fólk er vonsvikið.Því finnst "að gamli, am­er­íski draum­ur­inn um enda­laus tæki­færi og hag­sæld muni ekki ræt­ast" fyrir það sjálft. Það tekur út vonbrigðin á því sem hendi er næst. Jóni Gnarr, Pírötum eða einhverju öðru.

Eru það sömu tilfinningar sem valda þessu umróti í stjórnmálum. Fólki finnst það svikið. Það kaus fólk sem í raun hafði enga köllun nema eigin rassa og vegtyllur. Hvar sjá menn hugsjónamenn á ferð í pólitík lengur? Eru þeir ekki orðnir frekar fágætir?

"Spurðu ekki hvað föðurland þitt geti gert fyrir þig heldur hvað þú getir gert fyrir föðurlandið"

Trump er föðurlandssinni. Það fer í taugarnar á mörgum vitringunum. Hann er ekki að biðja um meira að éta fyrir sig. Hann á nóg. Hann vill gera eitthvað fyrir almenning og meinar það. Og fleiri og fleiri Bandaríkjamenn trúa honum.

Svo standa 101 spekingar uppi á Íslandi og segja þennan mann vera fífl.Hvaðan kemur þeim viska og stærð til að tala svo?

Af því kjósa menn Trump.

 

 


Af hverju spyr enginn?

fjölmiðamaður þeirra spurninga sem Margeir Pétursson skákmeistari spyr í Morgunblaðinu í dag:

Hann segir:(Bloggari feitletrar)

"Á dögunum voru rituð ein athyglisverðustu pólitísku orð þessa árs. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, skrifaði bréf til allra flokksmanna sinna þar sem hann rakti helstu mistök sem flokkurinn hefði gert á undanförnum árum. Þau voru hvorki fá né smá. En það merkilegasta í bréfi Árna Páls voru orð hans um ESBumsóknina, um þá ákvörðun að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu, örskömmu eftir þingkosningarnar 2009 þar sem annar stjórnarflokkurinn hafði einmitt ítrekað lofað að slíkt yrði ekki gert.

Hvað skrifaði Árni Páll?

Í bréfi sínu skrifaði Árni Páll: „Við byggðum aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildarviðræður, sem hefði bundið alla flokka við umsóknarferlið.“ Þetta er mjög merkileg yfirlýsing, sem ekki er gerð að vanhugsuðu máli heldur send út skriflega til hvers einasta félagsmanns í Samfylkingunni.En af einhverjum stórfurðulegum ástæðum láta fréttamenn eins og hér sé ekkert sérstakt á ferðinni.Þeir krefjast ekki skýrra svara frá Árna Páli og samráðherrum hans um þetta baktjaldasamkomulag. Skyndilega hafa fréttamenn engan áhuga þegar formaður stjórnmálaflokks og fyrrverandi ráðherra segist hafa gert „flókið baktjaldasamkomulag“ um afar umdeilt mál. Nú talar enginn fréttamaður um að almenningur eigi rétt á svörum.

Hver er ástæða áhugaleysisins?

Hvernig stendur á því að fréttamenn fjalla ekki um þetta aftur og aftur, þar til skýr svör fást við því hverjir hafi gert þetta „baktjaldasamkomulag“ og hvernig það hafi hljóðað? Væru þeir svona áhugalausir ef aðrir flokkar ættu í hlut? Vinstri grænir lofuðu því ítrekað í kosningabaráttunni 2009 að ekki yrði sótt um aðild að ESB. Steingrímur J. Sigfússon margítrekaði það í síðasta umræðuþætti baráttunnar, kvöldið fyrir kosningar. Strax eftir kosningar var svo mynduð ríkisstjórn um það að sækja um aðild. Tveimur mánuðum eftir kosningar var búið að senda umsóknina til Brussel. Svo kemur núna formaður annars stjórnarflokksins og segir frá því að gert hafi verið „flókið baktjaldasamkomulag“ um málið, en fréttamenn krefjast þess ekki að það verði skýrt í smáatriðum. Hvernig stendur á því?

Einfaldar spurningar sem kalla á svör

Landsmenn hljóta að krefjast þess að aflað verði skýrra svara við mjög einföldum spurningum. Hverjir gerðu þetta flókna baktjaldasamkomulag? Hvenær var það gert? Hvernig hljómaði samkomulagið? Hvers vegna fékk almenningur ekkert að vita? Hvers vegna sögðu forystumenn Samfylkingar og VG ekki frá því að slíkt samkomulag hefði verið gert? Jóhanna, Össur, Árni Páll, Steingrímur J. og Katrín Jakobsdóttir. Fréttamenn hljóta að finna sér tíma til að afla raunverulegra svara við þessum mikilvægu spurningum, jafnvel þótt þeir verði rétt á meðan að taka sér hlé frá sínum eftirlætisvangaveltum þessa dagana:

Hvaða ráðherra Jóhönnustjórnarinnar er vænlegastur sem næsti forseti Íslands? Því auðvitað finnst vinstrimönnum sjálfsagt að einhver úr ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms, einhver sem þrisvar sinnum greiddi atkvæði gegn því á þingi að Íslendingar fengju að kjósa um Icesave-samningana, verði næsti þjóðhöfðingi."

 

Skarpskyggni skákmeistarans bregst ekki. Það er ekki af því að fréttmenn eins og til dæmis Helgi Seljan kunni ekki að spyrja. Það hlýtur þá að vera af því að þeir vilja ekki spyrja um neitt sem kemur vinstri mönnum illa.

Það er stórkostleg og skipulögð þöggun í gangi í hópi hlutdrægra fréttamanna. Almenningur getur ekki treyst fjölmiðlum til að flytja ólitaðar fréttir úr stjórnmálum samtímans nema helst Morgunblaðinu.

Finnst engum þetta vera skefilegt ástand með einni lýðræðisþjóð? Að vera undirseld annaðhvort peningum eða pólitík í fréttamiðlun?

Það spyr enginn að því sem gæti verið óþægilegt að mati spyrilsins. Það skal vandlega þaggað niður.

Þessvegna spyr enginn og lygarar leika lausum hala.


Það hægt að blekkja

marga stundum.Það er ekki hægt að blekkja alla alltaf.

Útvarp Saga spurði: Viltu sjá Katrínu Jakobsdóttur bjóða sig fram til Forseta Íslands?

Nei sögðu 86,6% 1268 atkvæði
 
Já sögðu 10,8% 158 atkvæði
Hlutlaus voru 2,7% 39 atkvæði
 
Og aumingja Katrín sem var farin að segja frá því upphátt að menn hefðu komið að máli við sig osfrv....

Landsmenn virðast sjá í gegn um þessa leikfléttu Steingrims J. Sigfússonar um að hún Katrín verði Forseti um leið og hann tekur við formennskunni í VG aftur.

Það er eins og menn rámi í það þegar hann setti fallegu brúðuna sína fyrir sig í formannsstól VG. Fjarstýringin hefur verið fleirum sýnileg en manni datt í hug. Var þó meira áberandi en hjá þeim Baldri og Konna á sinni tíð.

VG er flokkurinn hans Steingríms sem hann stofnaði og stjórnar með styrkri hendi. Sorrý Katrín mín, þetta er ekki að takast hjá þér.Hlustendur á Útvarpi Sögu virtust sjá rauðu komma-úlfshárin gægjast upp úr kraga Katrínar með Kristsásjónuna.

Það er kannski ekki hægt að blekkja alla endalaust?


Skoðanakönnun á Sögu

um það hvað menn haldi um trúarbrögð Íslendinga í framtíðinni.

skoðanakönnun Kannski  bjánaleg spurning?

Ef við spyrjum hversu margir tilheyra þjóðkirkjunni á Íslandi og hverjir öðrum þá er myndin líklega jafn afgerandi.

Hversvegna líðum við þessum sérvitringabrotum sem eru með þetta siðmenntar- og annarskonarmúður og sértrú að stjórna því hveð kirkjan má og má ekki?

Hvern fjandann varðar þá um það hvort kirkjan boðar trú í skólum landsins? Þeir krakkar sem er bannað að hlusta geta vesgú farið út á meðan. Það var leyft í mínu ungdæmi. Þeir sem vilja ekki éta svínakjöt geta bara étið það sem úti frýs.

Ég er búinn að fá yfir mig nóg af því hvernig fólk er að lefla fyrir þessum vitleysingum  sem þola ekki stjórnarskrána eða eitthvað annað í fari þjóðarinnar. Þeir geta bara pillað sig annað ef þeir geta ekki séð fólkið í stóra meirihlutanum í friði með þess stjórnarskrárvörðu skoðanir.


Tuttugu og átta

ára kín­versk­ur rík­is­borg­ari hef­ur verið ákærður fyr­ir mann­dráp af gá­leysi, fyr­ir að hafa ekið bíl of hratt inn á ein­breiða brú miðað við aðstæður þar sem snjór og krapi var á veg­in­um og án nægi­legr­ar aðgæslu þannig að hann hafði ekki fulla stjórn á bíln­um.

Bíll sem maður­inn ók skall fram­an á vinstra fram­horn bíls sem ekið var í gagn­stæða átt og átti skammt ófarið yfir brúna með þeim af­leiðing­um að bíl­stjóri síðar­nefnda bíls­ins hlaut mikla áverka á brjósti og lést skömmu síðar.

Um er að ræða bana­slys sem varð laug­ar­dag­inn 26. des­em­ber á síðasta ári á ein­breiðri brú á Hólá í Öræfa­sveit.

Þess er einnig kraf­ist að maður­inn verði svipt­ur öku­rétt­ind­um. Málið var þing­fest fyr­ir héraðsdómi Suður­lands í síðustu viku og sæt­ir ákærði far­banni til 22. apríl. "

segir í frétt Morgunblaðsins.

Kannski á maður ekki að blogga um svona hörmulegan atburð sem enginn ætlaði sér að taka þátt í. Sorglegt, hræðilegt.

En það er framhaldið. Hvað bíður Kínverjans heimkomins? 9 mm.? Er einhver sem veit það? Getum við yfirleitt sent hann heim 29 ára gamlan að afplánun lokinni?


Sigmundur klumsar Gylfa

Arnbjörnsson þegar sá býsnast yfir því að sínir umbjóðendur séu bundir af búvörusamningnum sér til kostnaðarauka.  Verslunin fái ekki að flytja inn erlenda landbúnaðarvöru sem með óbreyttri samræmdri krónutöluálagningu yrði ódýrari en hin innlenda.

Sigmundur benti honum vinsamlegast á að íslenskir bændur væru bundnir af þeim kauptöxtum sem Gylfi væri búinn að "semja" um. Bændum stæði til boða að flytja inn miklu ódýrara vinnuafl til sinnar framleiðslu sem gerði þeim kleyft að lækka kostnað verulega.

Gylfi er skiljanlega í vanda eftir þessa ábendingu forsætisráðherra.  Hún á auðvitað líka við um flesta kröfugerðarmenn í íslensku þjóðlífi, frá dr. Kára Stefánssyni niður í nafna Gylfa í álverinu í Straumsvík. En þeim Gylfa tekst væntanlega að loka þessu fyrirtæki farsællega þegar útséð er með að forstjórinn geti náð nægilegum afköstum í útskipun.

Íslensk kjaramálafyrirbrigði eins og þessi Straumsvíkur- Gylfi virðast ekki vita að það er hægt að fá nóg af fólki til að vinna fyrir dollar á dag. Aðeins meðan þjóðin leyfir þessum     stéttarfélagafurstum  að halda byssuhlaupi á gagnauga sínu í svokölluðum "kjaraviðræðum" er þetta ekki notað.

Kjarabaráttubófarnir ásamt fjármálafyrirtækjunum virðast vera einu aðilarnir í markaðshagkerfinu sem njóta algerrar verndar og samkepnnisleysis fyrir sig og sína. Það er almenningur sem er sláturfénaðurinn en ekki endilega bara landbúnaðurinn.

Sigmundur á þakkir skildar fyrir að vekja athygli á þessu grundvallaratriði.  


Ásmundur

vann sér það til óhelgi í augum Unnar Brár að vilja fylgja Landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins, sem Unnur Brá og Áslaug Arna létu samþykkja fyrir nærri tómri Laugardalshöll í bláfundarlok.

Ásmundur vildi sýna hælisleitendum mannúð með því að hætta að láta þá kveljast undir óskilvirkni Útlendingastofnunar þar til að þeir örvænta.

G(G)F undir stjórn Unnar Brár trompast og blása til árása á Ásmund af þessu tilefni.

Ásmundur á sér mikinn stuðningsmannahóp langt út fyrir raðir Sjálfstæðisflokksins. Við þurfum að láta stuðning okkar í ljósi og hætta að láta GGF garga skynsemina niður í þessu þjóðfélagi. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418434

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband