Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2016
7.4.2016 | 08:53
"Guð ég þakka þér
fyrir að ég er ekki Framsóknarmaður" er morgunbæn sem einn vinur minn sagði að hann færi með á hverjum einasta degi.
Mér varð hugsað til þessa þegar ég las viðbrögð Vigdísar Hauksdóttur við ráðherra um aðra afneitun hennar áður en haninn gól. Í stað þess fær ennþá formaður Framsóknarflokssins og ennþá forsætisráðherra að setja inn sérstakan upplýsingafulltrúa sinn í væntanlega ríkisstjórn þeira Sigurðar Inga og Bjarna. Ég man þá daga þegar Baldur hélt í sveifina í baki Konna styrkri mundu og við áheyrendur í Tívólíinu gamla í Vatnsmýrinni veltumst um að hlæja.
Vegir þeirra Framsóknarmanna og flokksforysta eru þvílíkir krákustígar að maður hugleiðir inntak morgunbænarinnar ósjálfrátt með sér. "Guð ég þakka þér..."
6.4.2016 | 12:57
Hversvegna?
lætur Sigmundur svona? Auðvitað veit hann að hann verður að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt áður en annað ráðuneyti verður myndað?
Eða er töfin vgna þess að Ólafur Forseti ætlar ekki að gefa Sigurði Inga umboð til stjórnarmyndunar og framlengja stjórnarsamstarf þessarra flokka heldur Katrínu Jakobsdóttur, sem stendur hans hjarta hugsanlega nær?
Veit einhver hvað er í gangi? Metur Ólafur Forseti möguleika Bjarna Benediktssonar og Ólafar Nordal til að fá frið í ráðherrastóli ekki nægilega mikla til þess að fara þá leið sem þau búast við?
Getur þá Ólafur rofið þingið sjálfur? Hversvegna er þessi hægagangur?
6.4.2016 | 08:24
Hvað kostar Birgitta?
Það er ekki úr vegi að landsmenn velti fyrir sér því hvað er sett í uppnám með því að fela Birgittu að taka við stjórninni.
Óli Björn fer vel yfir stöðu mála í grein í Mbl. sem "enginn les" í dag:
Óli segir:(Bloggari feitletrar að vild)
"Landsmenn hafa enn einu sinni fengið smjörþefinn af því sem koma skal ef draumar stjórnarandstöðunnar um að fella ríkisstjórnina rætast.
Í umræðum um fundarstjórn forseta síðastliðinn mánudag var ekki gengið fram af hófsemd. Stóryrðin og brigslyrðin voru ekki spöruð vegna fjárhagslegra málefna forsætisráð- herra og eiginkonu hans. Og megi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gjöra svo vel að drulla sér úr sínum ráðherrastól sem allra fyrst, sagði Birgitta Jónsdóttir, leiðtogi Pírata á þingi.
Hún var í harðri samkeppni við Guðmund Steingrímsson, fyrrverandi formann Bjartrar framtíðar, sem sakaði forsætisráðherra um að vera frægasta fjárglæframann heimsbyggðarinnar hvorki meira né minna.
Helgi Hrafn Gunnarsson, formaður Pírata, sýndi meiri yfirvegun en flokkssystirin sem að hans sögn hefur opinberlega rægt aðra, þónokkuð oft og mikið.
Pólitísk líflína Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, er sannfærður um að erfið staða forsætisráðherra sé einstakt tækifæri og geti orðið pólitísk líflína í baráttunni við að halda völdum í Samfylkingunni. Líkt og nær allir þingmenn stjórnarandstöðunnar nýtti Árni Páll þingsköp til hins ýtrasta til að kalla eftir afsögn forsætisráðherra í umræðum um fundarstjórn forseta.
Um leið krafði hann stjórnarþingmenn um að þeir upplýstu hverju þeir ætluðu að svara GRECO-nefnd Evrópuráðsins vegna spillingarmála. Árni Páll veit sem er að engar líkur eru á því að nefndin óski eftir skýringum hans eða annarra samfylkinga á baktjaldamakki í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Í bréfi sem Árni Páll skrifaði til félaga sinna í Samfylkingunni 11. febrúar síðastliðinn staðfesti hann að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefði byggt aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi. Formaður Samfylkingarinnar hefur aldrei skýrt út hvað fólst í hrossakaupum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna.
Ekkert liggur fyrir um hvað var selt og hvað var keypt á bak við luktar dyr vinstriflokkanna, sem um leið sammæltust um að koma í veg fyrir að landsmenn kæmu að afdrifaríkri ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu. Árni Páll Árnason fær kærkomið tækifæri til að leggja spilin á borðin í væntanlegri umræðu um vantrauststillögu á forsætisráðherra og ríkisstjórn, sem hann hefur lagt fram í félagi við formenn Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar, auk Birgittu Jónsdóttur.
Stjórnarandstaðan telur nauðsynlegt að rjúfa þing og boða til kosninga sem fyrst. Áður en kjósendur ganga að kjörborði er nauðsynlegt að þeir verði upplýstir um baktjaldamakkið svo þeir geti áttað sig á því á hverju er von ef vinstriflokkarnir komast aftur í ríkisstjórn sem væntanlega verður undir forsæti Birgittu Jónsdóttur, líkt og Össur Skarphéðinsson hefur lagt til.
Erfið staða Engum getur dulist að pólitísk staða forsætisráðherra er erfið. Um leið er tvísýnt um ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Líkt og svo oft áður í stjórnmálum skiptir litlu hvað einstaka þingmönnum, ráðherrum eða stuðningsmönnum ríkisstjórnarflokkanna finnst vera sanngjarnt eða ósanngjarnt. Veruleikinn blasir við og að óbreyttu verður ekki haldið áfram.
Ábyrgð stjórnarþingmanna og ráðherra er mikil. Þeim ber skylda til þess að tryggja að ekki skapist pólitískt upplausnarástand sem grefur undan þeim mikla árangri sem náðst hefur á kjörtímabilinu. Fram undan geta verið þáttaskil við afnám fjármagnshafta sem skapa nauðsynlegar forsendur fyrir frekari framþróun viðskipta- og efnahagslífsins sem er grunnur bættra lífskjara.
Fyrirhugað gjaldeyrisútboð Seðlabankans í maí verð- ur vart haldið í andrúmslofti pólitískrar óvissu. Kostnaðurinn verður borinn af launafólki og fyrirtækjum.
Árangur ríkisstjórnarinnar er óumdeildur. Hagvöxtur er rífandi 4% á liðnu ári og annað eins á þessu ári. Kaupmáttur launa hefur aldrei verið meiri og atvinnuleysi er komið niður í 3,1%. Verðbólga síðustu 12 mánuði er langt undir verðbólgumarkmiðum, eða 1,5%. Síðustu 26 mánuði í liðlega tvö ár hefur verðbólga verið undir markmiðum Seðlabankans. Stöðugt verðlag gerir verðtryggingu óþarfa og óskynsamlega.
Á liðnu ári greiddi ríkissjóður fyrir fram 150 milljarða af innlendum og erlendum skuldum. Að öðru óbreyttu lækka árlegar vaxtagreiðslur um sjö milljarða. Tekist hefur að lækka skuldir ríkissjóðs gríðarlega og verða þær komnar niður fyrir 50% af vergri landsframleiðslu á þessu ári. Þar með hefur verið búið í haginn fyrir framtíðina.
Og þrjú ár í röð hafa fjárlög verið afgreidd með afgangi nokkuð sem fáar þjóðir geta státað af. Stefnt í tvísýnu Samkvæmt fjárlögum 2016 verða útgjöld ríkissjóðs til heilbrigðismála 38,5 milljörðum króna hærri en á fjárlögum 2013. Í undirbúningi er að efla heilsugæsluna verulega og styrkja þar með grunn heilbrigðiskerfisins.
Uppbygging Landspítalans er hafin og í undirbúningi er að innleiða greiðsluþátttökukerfi til að létta byrðum af þeim sem bera þungan kostnað. Öllu þessu er stefnt í tvísýnu. Á valdatíma ríkisstjórnarinnar hafa útgjöld til almannatrygginga hækkað um 27 milljarða króna og frá 2014 til 2016 hafa bætur almannatrygginga hækkað um liðlega 17% á sama tíma og verðlag hefur hækkað um 7%.
Verið er að undirbúa róttækar breytingar á almannatryggingakerfinu einfalda kerfið og bæta hag þeirra sem lökust hafa kjörin. Þær breytingar ná ekki fram í andrúmslofti óvissu og í aðdraganda kosninga. Nauðasamningar þrotabúa bankanna hafa verið staðfestir og stöð- ugleikaframlag innheimt. Þar með hafa forsendur fyrir afnámi fjármagnshafta skapast sem pólitísk óvissa stefnir í óvissu.
Mikilvæg skref hafa verið tekin í skattamálum þó langur vegur sé frá því að ríkisstjórnin hafi undið ofan af you aint seen nothing yet-skattavitleysu Samfylkingar og Vinstri grænna. Sú vitleysa verður endurtekin að loknum kosningum rætist draumar stjórnarandstöðunnar um að ná meirihluta.
Hver og einn þingmaður og ráðherra ríkisstjórnarinnar verður því að spyrja sjálfan sig hvort hann sé reiðubúinn að varðveita mikinn árangur síðustu ára og leggja þar með styrkari grunn að bættum lífskjörum almennings á komandi árum.
Ef svarið er já verður hver og einn að svara annarri spurningu: Hvað get ég gert og hvað verð ég að gera? Svarið kann að vera óþægilegt og ekki sérstaklega sanngjarnt."
Hér liggur varningurinn fyrir. Vilja menn spila úr þessari stöðu eða vilja menn Birgittu og Steingrím J. til að endurskipuleggja?
Það eer vissulega mikið í húfi að við fáum enn frið til að bæta það sem við getum bætt áður en öllu er umturnað eins og við höfum líklega reynsluna af.
Það er nefnilega grundvallar spurning :"Hvað kemur Birgitta til að kosta okkur almenning ?"
5.4.2016 | 22:48
Það eina sem er eftir
er að Sigurður Ingi taki við gula slifsinu af Sigmundi Davíð og að Ásmundur Daði kenni honum að hnýta tvöfaldan Windsor.Er hægt að hafa forsætisráðherra sem gengur til hálsins eins og hann sé að fara í fjósið?
Mér líst bara vel á að fá hann Sigurð í þetta sem eftir er kjörtímabilsins.
5.4.2016 | 13:48
Enn brást Ólafur Forseti rétt við
að taka ekki við "Bunker"-tillögu forsætisráðherra um að þing skyldi rofið af því að hann fær hvergi stuðning innan þingsins til áframhaldandi veru í embætti.Það er eins og honum finnist að þjóðin sé hætt að vera honum samboðin.
Vissulega nokkuð óvenjuleg afgreiðsla Forseta á þingrofsbeiðni forsætisráðherra. En óneitanlega rétt í stöðunni.Bjarni á eftir að skýra sína afstöðu.
Enginn þingmaður er svo stór að hans eigin hagsmunir gangi ofar hagsmunum þjóðarinnar. Sigmundur Davíð sýnist kominn út í horn. Hann fer greinilega ekki neitt með Ólaf Forseta.
5.4.2016 | 07:32
Er ríkisstjórn onemanshow?
Ég hélt að ríkisstjórnir væru byggðar á málefnasamningum flokka fremur en snilld einstakra manna?
Forystumenn flokka væru eðlilega framkvæmdaaðilar samningsins. Ef fulltrúi flokks þarf að hætta þá tekur varamaður við. Þannig hef ég skilið að þetta virki. Eða ætti að virka.
Af hverju þurfa Birgitta eða Helgi Hjörvar að taka við ef núverandi meirihlutaflokkar flokkar þurfa að skipta út einstökum ráðherrum?Stjórnina burt og nýjar kosningar virðist vera aðalslagorðið hjá mótmælendum á Austurvelli. Alveg gildar prívatskoðanir. En ekki neitt lögmál.
Það er hinsvegar hætta á því þegar svona er uppi að til tíðinda dragi milli stjórnarflokkanna. Ef Framsóknarmenn til dæmis gera stuðning Sjálfstæðisflokks við núverandi forsætisráðherra að fráfaraskilyrði er stjórnin komin í vanda.
Fari þessi ríkisstjórn frá yrði það að öllum líkindum að tjóni fyrir lífskjör þjóðarinnar með hagvaxtarstöðvun sem annars yrði ekki að veruleika fyrr en eftir ár eða svo. Núverandi góðæri er engum einstökum þingmanni að þakka heldur stefnubreytingar ogsem varð í síðustu kosningum og líka fleiru.
En enginn má sköpum renna og Íslands óhamingju verður yfirleitt allt að vopni. Onemanshow í pólitík hafa yfirleitt ekki gefist vel á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.4.2016 | 12:26
Skríllinn undirbýr áhlaup
mögulega á Alþingishúsið í dag kl 17.
Nú velti ég fyrir mér hvort eigi að láta grímuklædda glæpamenn hlaupa um átölulaust að baki venjulegra mótmælenda og grýta lögreglu eins og sást í búsáhaldabyltingunni.
Þá sáu menn Álfheiði Ingadóttir hvetja sitt fólk símleiðis innan úr Alþingishúsinu og peningamenn borga fyrir tæki og tól byltingarmanna. Þá sviku kratar ríkisstjórn sína eins og þeirra er háttur. Nú eru þeir sem betur fer utan stjórnar og engin ástæða til að ætla að ríkisstjórnarflokkarnir muni kikna í hnjáliðunum. Allt er betra en að fá byltingarflokkanna aftur til áhrifa.
Nú ætlar að viðra vel til táragass ef skríllinn ætlar að gera stjórnlaust áhlaup á saklausa lögreglumenn og eignir ríkisins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (51)
3.4.2016 | 22:20
Það vitlausasta
í pólitísku stöðunni núna er krafa Birgittu um þingrof og nýjar kosningar. Auðvitað vissi hún ekki hver fer með þingrofsréttinn sem von var og hélt greinilega að hún sjálf færi með hann.
Ég veit ekki betur en að hafi komið til þess að einstakir menn í sveitarstjórnum hafi orðð að standa upp úr sætum sínum af einhverjum orsökum, þá hafi það gerst einfaldlega með því að varamaður á lista kemur inn fyrir þann sem hættir. Engum dettur í hug að kjörtímabilið hafi breyst enda enginn þar með þingrofsrétt.Menn verða að sitja kjörtímabilið. Á Alþingi eru þingflokkar sem ákveða hverjir skipa ráðherrasæti af þeirra hálfu.Aðeins forsætisráðherrann getur breytt kjörtímabilinu sjálfu.
Þetta er eitthvað flóknara á ríkisstjórnarplani þar sem ráðherrar koma úr mismunandi kjördæmum. Ef einstakir ráðherrar vildu fara í leyfi, yrði samið um slíkt innan ríkisstjórnar. Aðeins ef samkomulag væri útilokað myndi ríkisstjórn biðjast lausnar. Þannig hefði ég séð fyrir mér það verklag sem viðhaft yrði.
Það skelfilegasta sem yfir þessa þjóð getur komið er að áhrif borgaralegu aflanna myndu minnka frá því sem nú er. Hvort sem slíkt er á sjóndeildarhringnum á næsta ári eða ekki þá er öll frestun á þvi betri en strax. Áframhald lífskjarasóknar er undir þessu komin. Eitt ár enn í hagvexti býr okkur betur undir það að þola pláguna sem yfir getur dunið í næstu kosningum.
Mú þegar hart er sótt að forsætisráðherra þá skulum við minnast þess sem hann hefur vel fyrir okkur gert með störfum sínum. Skipta þau ekki meira máli en einhverjir draugar úr fortíðinni sem hafa verið til staðar allan tímann þó þeir hafi verið í skugga?
Þjóðin á allt undir því núna að þingmenn sýni ábyrgð og æðruleysi og láti ekki ágjafir hrekja sig af siglingaleiðinni.LSG þá þarf enginn að fá leiðbeiningar hjá Birgittu Jónsdóttur eða álíka stjórnvitringum um uppkoomandi vandamál.
3.4.2016 | 15:06
Gúrkutíð
hjá stjórnarandstöðunni svokölluðu stendur yfir.
Þar sem öll ytri og innri skilyrði í þjóðarbúskapnum eru ýmist í lagi eða batnandi, þá voru þeir komnir í þá stöðu að ekki nokkur maður vildi hlusta á eitt né neitt sem þeir voru að segja. Sama hvort þeir heita, Árni Páll, Steingrímur J., Helgi Hjörvar, Katrín Jakobs, ekki nokkur maður bjóst við að þetta fólk hefði nokkuð fram að færa annað en það sem örugglega yrði til bölvunar fyrr þjóðina.
Ríkisstjórnin hefur fengið óskabyr. Skuldir lækka, þeir hafa efnt eða hálfefnt mörg kosningaloforð sín, gengið hækkar, verðbólgan fer niður þrátt fyrir brjálaðar taxathækkanir, olían lækkaði, það er raforkuskortur til að seðja eftirpurn. Einmitt þegar neyðin er mest þá gefst höggfæri á Sigmundi Davíð.
Nú skal Austurvöllur stormaður og þinghúsið grýtt á morgun.Nú gengur RÚV fram fyrir skjöldu að samræma áróður gegn ríkisstjórn Íslands á öllum rásum erlendra útverpsstöðva. Nú skal allt gert til að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs verði hrakin frá völdum með áhlaupi.
Hvað á að taka við spyr maður sig? Treystir maður Árna Páli, Steingrími J., Helga Hjörvar, Katrínu Jakobs til að stjórna landinu betur? Er þetta fólkið sem við á að taka?
Allt út af einum manni og konu hans.Er Sigmundur Davíð þess virði að fela þessu endemis liði lyklavöldin aftur? Er ekki fullreynt með það? Ef kona Sigmundar er hrægammur er ljóst að hann á í erfiðleikum. Ef allt er satt og rétt sem fram hefur komið er allt í lagi þrátt fyrir ýlfrið í vinstrimönnum.
Örlög þjóðarinnar mega bara ekki verða þau að fljótræðisákvarðanir, jafnvel studdar með ofbeldi, verði til þess að skola þessu botnfalli íslenskra stjórnmála upp í valdastóla landsins í samræmdri gúrkutíð áróðurs og misbeitingar sem er nú í fullum gangi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.4.2016 | 14:49
Stefán Jón Hafstein
fór mikinn á Sprengisandi Sigurjóns í morgun.
Þar greindi hann frá því, að ef enginn frambjóðandi til Forseta kæmi fram sem ætlaði að verða málsvari þjóðarinnar í því að fá samþykkta stjórnarskrána frá Stjórnlagaráði sem 80 % þjóðarinnar hafi samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að skyldi verða stjórnarskrá lýðaveldisins Íslands, þá yrði hann að stíga fram og bjarga þjóðinni með því að bjóða sog fram til Forseta.
Dr. Josef Göbbels var virtur boðberi sannleikans á sinni tíð rétt eins og þeir Stefán Jón Hafstein og dr. Þorvaldur Gylfason sem virðast halda í dag að þeir séu. Dr. Josef sagði líka að endurtæki maður lygi nægilega oft þá yrði hún að sannleika. Þetta hafa hinir tveir síðarnefndu greinileg tileinkað sér því þeir fara seint og snemma með sömu staðhæfingarnar sem eru byggðar á kolröngum forsendum.
Í fyrsta lagi eru 80 % þátttakenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðsins ekki 80 % kjósenda hvað þá 80 % þjóðarinnar.
Í öðru lagi var þjóðaratkvæðagreiðslan ráðgefandi fyrir Alþingi.
Í þriðja lagi var atkvæðagreiðslan úrskurðuð ógild af Hæstarétti.
Í fjórða lagi hefur Alþingi ekki séð ástæðu til að taka þessar tillögur til meðferðar vegna þess hversu þjóðin sniðgekk atkvæðagreiðsluna þegar aðeins minnihluti kjósenda sá ástæðu til að ómaka sig á kjörstað.
Í fimmta lagi sér Alþingi eins og flestir heilvita menn sem hafa lesið tillögurnar að þær eru svo óralangt frá því að geta legið til grundvallar nýrri stjórnarskrá vegna óskýrleika, málskrúðs og mótsagna á yfir hundrað blaðsíðum, að útilokað er að ræða þær sem alvörugrundvöll.
Meirihluti fólks sér að núverandi Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sem var samþykkt með nær öllum greiddum atkvæðum árið 1944 hefur dugað prýðilega til þessa dags með áorðnum lítilfjörlegum breytingum.
Stefán Jón Hafstein hefur enga ástæðu til að hafa áhyggjur af því að mig, sem væntanlegs kjósanda í Forsetakosningunum, vanti leiðsögn í stjórnarskrármálum umfram allt annað.
Hinsvegar má hann mín vegna blanda sér í þann myndarlega hóp fólks sem ekki verður séð að annað erindi eigi í Forsetaframboð en að leita sér að betri og þægilegri innivinnu en það þegar hefur. Ef maður spilar í Lottó getur maður slysast á vinning. Það gerir maður ekki ef maður spilar ekki í Lóttó.
Það hlýtur Stefán Jón Hafstein að gera sér ljóst.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko