Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2018

Marvin Mökkurkálfi

er kynntur sem raunveruleg persóna í DV og leiddur fram sem raunverulegur heimildamađur ađ Klaustursnjósnunum. Fyrir manni rifjast upp ummćli Trump um falsfréttir

Ţađ er mikil tilćtlunarsemi ađ ćtlast til ţess ađ menn taki ţessa frásögn DV trúanlega af ţessum Marvin. Hann gćti alveg eins veriđ tilbúningur eđa gervimađur eins og Mökkurkálfi. Engin sönnun er fyrir ţví hver hann er eđa hvort hann tengist DV eđa Stundinni á einhvern hátt. Sem vćri fróđlegt ađ vita.

Lesandinn er engu nćr um ţađ hvort hann Marvin er tilbúningur eđa á viđ rök ađ styđjast.Svo furđuleg er sagan í DV  nema ađ upptakan er líklega raunveruleg úr margendurhlöđnum síma á rafmagni Klaustursins vćntanlega. Og mikiđ siđferđiströll  má ţessi Marvin vera ef menn hugsa um ađ ađ hann ţekkir ekki fyllibytturnar nema eina viđ nćsta borđ.  

Svona fréttamennsku mega ţeir trúa sem treysta sér til ţess.Ţennan Marvin Mökkurkálfa ţekki ég allavega ekki.


Reykinn leggur frá

Klausturskandalnum.

Mađur veltir fyrir sér hvort Stundin standi á bak viđ skipulagđar persónunjósnir og hvort ţeir séu studdir af pólitískum öflum.Sem eru líklega ekki á vegum Sjálfstćđisflokksins né Framsóknarflokksins.

Inga Sćland stađfestir ţá mynd sem menn hafa af henni ađ hún sé fyrst og fremst tilfinningavera en stjórnist ekki endilega  af rökhyggju. Mörgum finnst hún hafa beinlínis skćlt sig inn á Alţingi í stjórnmálaumrćđum fyrir kosningarnar fremur en ađ hafa sannfćrt kjósendur međ málflutningi.

Ţegar hún rekur dr. Ólaf Ísleifsson úr ţingflokknum fyrir ađ hafa yfirgefiđ fylleríiđ á Klaustrinu og ekki sagt neitt óviđurkvćmilegt ţá sýnist manni ţađ ekki skynsamleg stjórnmálaleg ákvörđun fyrir Flokk Fólksins, Ekki hef ég heldur heyrt eitthvađ rosalegt haft eftir sýslumanninum Karli Gauta  sem réttlćtir slíkan brottrekstur. Afleiđingin er sú ađ mest af vitinu er fariđ úr ţessum flokki sem á bara vćlukjóataliđ í formanninum eftir, sem bara endurtekur síg í sífellu og fólk nennir varla ađ hlusta á lengur.

Ţessir ţingmenn geta ekki myndađ nýjan ţingflokk og virđast ţá eiga skammt ófariđ yfir til Miđflokksins fremur en ađ sitja sem óháđir.

Öđru máli gegnir um Bergţór Ólafsson. Hann hefur afhjúpađ sig sem frekar fágćta persónu, sem er óvíđa í umferđ međal siđmenntađra manna ţađ ég ţekki. Talsmáti eins og hann notar er ekki notađur međal fólks sem ég umgengst gjarnan. Gunnar Bragi sagđi líka margt sem ekki er sćmandi séntilmönnum, hvorki fullum né ófullum.

Sigmundur Davíđ, sem njósnari Stundarinnar  segir svo ósannfćrandi ađ hann sé sá eini sem hann hafi ţekkt í sjón og ţess vegna hafi hann teipađ selskapiđ í 4 klukkutíma, sleppur ef til vill frá ţessu, Nema ađ ţví leyti ađ hafa sýnt dómgreindarleysi međ ţví ađ hafa setiđ til borđs međ ţessum slordónum og fíflum sem hćst fóru.

Svo hver er niđurstađan?

Almennt séđ er ţađ ávallt happ fyrir fólkiđ ţegar stjórnmálamanni er velt af stalli međ einhverjum hćtti. Hann er ţá bara yfirleitt ađ hljóta makleg málagjöld fyrir blekkingar sínar varđandi eigin karakter.

 

Varanleg veiking Flokks Fólksins er stađreynd og mátti hún alveg verđa ađ skađlausu. Hugsanleg styrking Miđflokksins nema ef dr. Ólafur og jafnvel Karl Gauti  fćru frekar yfir til Bjarna en Sigmundar. En ţađ er ekki alls fyrirséđ hvort Bjarni vilji ţá ţar sem orđsporiđ orkar tvímćlis ađ minnsta kosti enn sem komiđ er.

Píratar hafa sjáanlega ekki grćtt neitt á ţessu. Ţannig verđur hugsanlega heildarniđurstađan, ţegar reykinn leggur frá,sú ađ  Alţingi styrkist frekar en veikist,sem mörgum hefur fundist löngu tímabćrt.

 


« Fyrri síđa

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband