Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2020
4.1.2020 | 11:58
Innflytjendavandinn
heldur áfram að hrannast upp í Svíþjóð sem forystulandi. Ferðamenn hafa jafnvel verið varaðir við að fara til Svíþjóðar vegna hættu á ofbeldi.Og allir vita að það eru ekki upprunalegir Svíar sem standa fyrir þessari breytingu sem orðin er í landinu.En ráðandi öfl setjast á allar upplýsingar um raunverulega gerendur. En lokið fer um síðir af potti sem sýður í.
Ferdinand og Ísabella settu Márum úrslitakosti á sínum tíma. Annaðhvort semjið þið ykkur að okkar siðum eða þið farið í sjóinn þaðan sem þið komuð til okkar lands. Ég gæti trúað að innflytjendum verði settir þeir kostir í framtíðinni að gerist þeir brotlegir verði þeir sviptir innflytjendaleyfinu og sendir vægðarlaust til baka.
Almenningur á Vesturlöndum mun ekki láta fara svona með sig lengur. Uppgangur Síþjóðardemókrata og AfD og svipaðra hreyfinga mun mynda þá veggi sem þarf til að endurheimta hin fornu siði hverrar þjóðar.
Fæstir hafa neitt á móti fólki sem er friðsamt og fellur í fjöldann sem fyrir er. En almenningur lætur ekki beygja sig til að semja sjálfan sig að siðum innflytjenda þó hann þoli þeim býsna margt af fornlegum háttum, sem einskorðast mest við vissa hópa múslíma.En þau fornfræði sýna sig að vera ósamrýmanleg að miklu leyti við flesta vestræna lífshætti.
Og velferðarkerfin standa allstaðar á brauðfótum fyrir þá sem fyrir eru og þola ekki það aukna álag sem fylgir "openborders-stefnunni".
Þess vegna líður óðum að breytingum á innflytjendavanda Vesturlanda.
3.1.2020 | 20:43
Stríðsvindar
eru teknir að blása í MiðAusturlöndum.
Hvort var morðið á Persanum aðgerð í stíl við morðið á Frans Ferdínand eða hefnd fyrir árásir á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad og Libýu og fleiri stöðvar þeirra um heiminn sem rekja má til Persa. Því geta menn haft skoðanir á. En Klerkarnir hóta hefndum sem áreiðanlega verður ekki ósvarað frekar en 1914.
Ef kveikt verður í olíunni í SaudiArabíu um helgina, hver hefnir þá og hvar?
Íranskir Klerkar eiga fáa möguleika í stöðunni aðra en hótanir. Bandaríkjamenn búa nefnilega yfir tækni til þess að drepa þá alla í stafrófsröð hvar sem þeir reyna að fela sig, ofanjarðar eða neðar. Og valdastóllinn undir þeim er ekki aðeins lítið valtur heldur fúinn líka. Það má líklegt teljast að það er ekki mikill stuðningur við klerkaveldið í Íran heimafyrir og ekki munu margir syrgja þá ef þeir hyrfu úr valdastólunum. Það segja fréttir þaðan um mótmælin gegn ófrelsinu og kúguninni sem beitt er.
Íranar vita að Bandaríkjamenn eru ekki óvinir Íransks almennings heldur vilja fremur frið og viðskipti.Og frjáls viðskipti og friður eru undirstaða lífs manna á jörðinni.Sjónarmið vitleysinga eins og Hitlers og Kahmeinis eru úrelt og það er væntanlega að renna upp fyrir mönnum að eins manns líftóra er ekki þess virði að láta fleiri fylgja á eftir.
Eitt er hinsvegar víst að stríðsvindar eru teknir að blása í meira mæli um þessar mundir og þeir eru ekki til að leiða hjá sér án áhrifa hvar sem menn eru staddir í veröldinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2020 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.1.2020 | 20:26
Átakanlegt
er að hlusta á forsætisráðherra Katrínu Jakobsdóttur tala um að stjórnarráðið sé að kolefnisjafna starfsemi sína.
Á netinu má sjá að utanríkisráðuneytið segist blása frá sér vegna flugferða 403 tonnum af CO2.
Á 8 tíma flugferð fram og til baka til Spánar blæs B757 út 10 tonnum x 8 af CO2(3.250kg af þotueldsneyti x 3.16=10 tonn á klukkutíma). Ef 150 farþegar eru um borð er hver ábyrgur fyrir 0.5 tonni af CO2.
Utanríkisráðuneytið hefur þá sent 800 manns í slíkar flugferðir. Katrín Jakobsdóttir hefur því losað 3 tonn af CO2 á ferðum sínum með einni ferð í mánuði. Til viðbótar við losun hvers Íslendings sem losar 20 tonn á ári.
Katla í hvíld andar frá sér 20.000 tonnum af CO2 á sólarhring (20.000 x 365 = 7.300.000 tonn), jafnmikið eins og allir Íslendingar gera á ári. Katla er bara ein af þeim náttúruvættum sem dregur andann af mörgum í íslenskri lögsögu. Allir manngerðir votlendisskurðir Íslands komast þar hvergi nærri.
1 manneskja andar frá sér 0.35 kg af Co2 á sólarhring. 0.1 tonni á ári. Allur búpeningur okkar mun meira.
Kolefnisjöfnun er að það er borgað í sjóðinn Kolvið ákveðið gjald af úrblásnu CO2. Ekkert vísindalega reiknað heldur geðþóttaákvörðun. Á að notast svo samkvæmt geðþóttaákvörðun stjórnmálamanna. Sem enn segjast ætla að nota hann til Landgræðslu og skógræktar.En slíkt getur auðvitað breyst eins og vegagjaldið af bensíninu.
Það er átakanlegt að horfa á sakleysið í andliti Grétu Thunberg tala um væntanlegan heimsendi vegna loftslagvár og hamfarahlýnun af mannavöldum. Eins og hitafar hafi aldrei sveiflast í jarðsögunni fyrir tilkomu manna.Og eins og sólin sé ævinlega hlutlaus fasti.
Og enn átakanlegra að heyra fullorðið fólk eins og Katrínu Jakobsdóttur taka undir þetta tal.
En Kolviður er göfug stofnun sem ég vil styðja og verður vonandi notuð til átaka til að gera Ísland betra eftir rányrkju fyrri alda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2020 kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.1.2020 | 19:33
Frosti Sigurjónsson
var stuðningsmaður kjósum.is hópsins. Hann hætti skyndilega á þingi. Hversvegna?
Var hann nokkuð að fara í fótspor Ólafs Ragnars?
Fátt hefur sparað þjóðinni annað eins af peningum og afleiðingin sem varð af starfi fólks í þeim baráttuhópum hugsjónamanna sem þeir Frosti og Ólafur settu svo mjög sinn svip á sem talsmenn.
Getur verið að hann Frosti fari á móti Guðna Th.í ár?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.1.2020 | 14:00
Þeir björguðu okkur
mennirnir í InDefence og Kjósum.is samtökunum frá dusilmennsku Alþingismanna sem samþykktu Icesave lll af því að það væri svo lítil upphæð að hún skipti ekki máli. Aðeins einhverjir 20-30 milljarðar sögðu þeir sinnum sjö.
Þjóðin sagði 60 % aftur nei í apríl 2011 þrátt fyrir hótanir stórspekinga og vitringa um að við myndum verða Kúba Norðursins eða þaðan af verra ef við ekki greiddum samkvæmt ísköldu mati og myndum tapa í málaferlum.
Þór Whitehead rifjar upp söguna í glöggri grein í Morgunblaðinu í dag. Og vegna þeirra sem ekki lesa Mogga þá er greinin svohljóðandi:
"Veturinn 2008 var illa komið fyrir íslensku þjóðinni. Bankakerfið var að miklu leyti hrunið og bresk stjórnvöld höfðu fryst eignir íslenskra banka í Bretlandi með hryðjuverkalögum. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði Ísland á barmi gjaldþrots og erlendir fjölmiðlar tóku í sama streng. Þeir sökuðu Íslendinga um að ætla að smeygja sér undan alþjóðlegum skuldbindingum við sparifjáreigendur í bankaútibúum erlendis.
Allt lagðist þetta á eitt við að ógna utanríkisverslun Íslands, tefja endurreisn fjármálakerfisins og spilla orðstír íslenska ríkisins og þjóðarinnar um heim allan.
Stjórnvöld sýndust af ýmsum ástæðum treg eða lítt fær um að taka fyllilega á þessum vanda, og það féll í grýttan jarðveg þegar Davíð Oddsson seðlabankastjóri (brátt leystur frá embætti af nýrri ríkisstjórn) lét að því liggja að íslenska þjóðin ætlaði ,,ekki að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum.
Nokkrum framtakssömum mönnum í Reykjavík, sem flestir áttu það sameiginlegt að hafa hlotið háskólamenntun sína í Bretlandi, þótti hér í óefni komið. Þeir stofnuðu með sér samtökin InDefence of Iceland með það að markmiði að virkja almenning til varnar landinu. Íslenska ríkið gæti aldrei náð viðunandi samningum um ágreiningsefnin við Breta og Hollendinga og reist fjármálakerfið úr rústum nema Íslendingar styrktu stöðu sína út á við ekki aðeins gagnvart erlendum stjórnvöldum heldur einnig gagnvart fjölmiðlum og almenningi á Vesturlöndum. Sókn væri besta vörnin, og hana hófu samtökin með því að setja upp frumlega netsíðu, þar sem fram fór undirskriftasöfnun og kröftugur málflutningur gegn ákvörðun Bretastjórnar um að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum bönkum.
Íslendingar vildu virða skuldbindingar íslenska ríkisins við evrópska innstæðutryggingakerfið, en tækist ekki að leysa úr ágreiningi um það efni ætti að vísa málinu til dómstóla eftir hefðum réttarríkisins, undirstöðu vestræns lýðræðis.
Í mars 2009 afhentu forvígismenn InDefence-hópsins breskum þingmönnum undirskriftir rúmlega 83.000 manna gegn beitingu bresku hryðjuverkalaganna gagnvart íslenskum aðilum.
Nokkru síðar, 5. júní 2009, gerðu ríkisstjórnir Bretlands, Hollands og Íslands með sér svonefndan Icesavesamning um uppgjör á bresku þrotabúi Landsbankans. InDefence-hópurinn lagðist eindregið gegn þessum samningi, þar sem hann bryti m.a. í bága við fullveldi landsins og stefndi endurreisn fjármálakerfisins og lífskjörum íslensku þjóðarinnar í hættu.
Íslenska ríkið hefði að ósekju fallist á ábyrgð á ólögmætri Icesave-kröfu Breta og Hollendinga, samningsvextir væru allt of háir og gjaldfellingarákvæði afar varasöm. Þrátt fyrir þessi þungvægu rök töldu þeir félagar ólíklegt að samningnum yrði hnekkt og beittu sér þess vegna fyrir því að Alþingi setti ýmsa fyrirvara við efni hans.
Nú fór svo að ríkisstjórnir Bretlands og Hollands höfnuðu fyrirvörunum, en féllust til sátta á viðaukasamning, Icesave II. InDefence-hópurinn hóf hins vegar harða baráttu gegn þessum samningi með því að hann gerði nánast að engu fyrirvara til að takmarka ábyrgð íslenska ríkisins á umsömdum skuldbindingum.
Stjórnarandstaðan á Alþingi og hluti stjórnarþingmanna undir forystu Ögmundar Jónassonar lagðist á sveif með hópnum og var samningurinn því að lokum samþykktur með aðeins þriggja atkvæða meirihluta á þingi í árslok 2009.
InDefence-hópurinn efndi hins vegar til undirskriftasöfnunar, þar sem skorað var á Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands að synja lögum um samninginn staðfestingar. Þátttaka í söfnuninni reyndist með fádæmum og 2. janúar 2010, fyrir réttum tíu árum, afhentu forsvarsmenn InDefence forsetanum undirskriftirnar, alls 56.089.
Fjöldi manns hafði þá safnast saman úti fyrir Bessastöðum og hafði blys á lofti. Þessi aðgerð átti sinn þátt í að móta það álit erlendra fjölmiðla að meirihluti íslensku þjóðarinnar væri að taka málið í sínar hendur með friðsamlegum og lýðræðislegum hætti, eins og stjórnarskrá landsins tryggði.
Þremur dögum síðar fór forsetinn að áskorun undirskrifenda með þeirri röksemd að vilji þjóðarinnar væri hornsteinn lýðræðisins. Skömmu síðar kom fram að Bretar og Hollendingar væru nú skyndilega reiðubúnir að bjóða Íslendingum hagstæðari samningskjör, enda fór þjóðaratkvæðagreiðslan svo að 98,1% þátttakenda greiddi atkvæði gegn Icesave-samningnum.
Á þesssum erfiðu tímum hafði InDefence tekist að sameina þjóðina um það grundvallaratriði að íslenska ríkið ætti ekki að leggja út fé fyrir skuldum sem það hefði aldrei stofnað til. Samningsstaða Íslands hafði styrkst við sóknina gegn bresku hryðjuverkalögunum og efldist nú enn frekar við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar og skörulegan málflutning forseta Íslands í erlendum fjölmiðlum.
Fjármálageirinn alþjóðlegi hafði augljóslega fengið allt of lausan tauminn og ógnað að lokum sjálfu hagkerfi Vesturlanda með græðgi sinni og hroka.
Allt gróf þetta nú undan kröfugerð Breta og Hollendinga á hendur Íslendingum. Þeim varð ekki lengur lýst sem sérstökum syndaselum, sem flokka bæri með hryðjuverkamönnum.
Eftir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2010 hófust að nýju samningaviðræður ríkisstjórna, sem lauk með þriðja Icesavesamningnum, svonefndum Buchheit-samningi, í desember 2010. InDefence-hópurinn var ekki á eitt sáttur um ýmis ákvæði þessa samnings og tók því ekki sem heild beina afstöðu til hans samkvæmt starfsreglum sínum. Buchheit-samningurinn, sem samþykktur var með yfirgnæfandi meirihluta á Alþingi, þótti almennt til bóta miðað við tvo hina fyrri Icesave-samninga.
Engu að síður ákvað forseti Íslands að fara að áskorunum í víðtækri undirskriftasöfnun nýrra samtaka, kjósum.is, og synja lögunum um samninginn staðfestingar.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu í apríl 2011 var III. Icesave-samningnum síðan hafnað með 60% atkvæða. Þótt InDefence sæti hjá í þessari lotu réðust úrslitin líklega að talsverðu leyti af öflugu kynningarstarfi og málflutningi hópsins gegn fyrri Icesavesamningnum. Þar við bættist skörp gagnrýni sumra félaga úr hópnum á ýmis grundvallarákvæði samningsins.
Eftirlitstofnun Fríverslunarsamtaka Evrópu (ESA) brást hart við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hóf stofnunin málsókn fyrir EFTA-dómstólnum gegn íslenska ríkinu með stuðningi Evrópusambandsins vegna meintra brota á tilskipun þess um innstæðutryggingar bankareikninga.
Í janúarlok 2013 sýknaði dómstóllinn íslenska ríkið hins vegar af öllum kröfum þessara aðila, eins og alkunna er. Með þeim dómi hafði málstaður InDefence hlotið endanlegan sigur.
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, komst síðar svo að orði í blaðaviðtali að III. Icesave-samningurinn hefði verið ,,skrifaður á máli Versalasamninganna, sem bundu enda á fyrri heimsstyrjöld. Rök hafa verið færð fyrir því að Versalasamningarnir séu einhverjir ógæfulegustu nauðungarsamningar veraldarsögunnar. Orð dómsforsetans sýna því skýrt hvílíkt nauðsynjaverk þeir menn unnu sem með stuðningi forseta Íslands tryggðu íslensku þjóðinni lokaorðið um Icesave-samningana.
Í krafti þessarar baráttu og fullveldis landsins gat ríkissjóður krafið þrotabú föllnu fjármálafyrirtækjanna (að mestu í eigu erlendra vogunarsjóða) um svokölluð stöðugleikaframlög af útgreiðslum andvirðis eigna í íslenskum krónum.
Sl. haust námu tekjur af þessum framlögum alls 445 milljörðum króna, þar af hafði um 200 milljörðum verið varið til greiðslu ríkisskulda.
Til viðbótar því eru aðrar greiðslur föllnu fjármálafyrirtækjanna til hins opinbera og áætlað er að framlögin geti numið að minnsta kosti 600 milljörðum króna.
Stöðugleikaframlögin eiga því ríkan þátt í hinni einstöku endurreisn íslenska fjármálakerfisins, en ekki er minna um vert hvernig óeigingjörn barátta InDefence hópsins reisti við heiður þjóðarinnar gagnvart umheiminum.
Íslendingar eiga forvígismönnum hópsins mikla þökk að gjalda og framtaks þeirra verður minnst á meðan þjóðin telur það nokkurs virði að fá ráða mikilvægustu hagsmunamálum sínum."
Í stað þess að verða af með hundruð milljarða fengu Íslendingar inn 600 slíka og og munar um minna en þá sveiflu.
Mikið af þeim dusilmennum sem þá sátu á Alþingi og ætluðu að þvinga þennan myllustein um háls þjóðarinnar situr þar enn og greiddu atkvæði um 3. orkupakkann hvað sem kjósendur sögðu. Væri vert að kjósendur rifjuðu upp nöfn þeirra við næstu prófkjör.
Barátta InDefence hópsins bjargaði þjóðinni frá Alþingi 2010 með 98% atkvæða og sparaði henni á endanum með aðstoð samtakanna Kjósum.is, en 42.000 manns höfðu skrifað á lista þeirra samtaka þegar Forsetinn ákvað nýja þjóðaratkvæðagreiðslu, líklega hátt í þúsund milljarða.
Og það sem meira er að þessir aðilar líklega afstýrðu inngöngu Íslands í ESB sem veruleg hætta var á að dusilmennin stefndu hraðbyri til þótt margir sigldu þar undir fölskum flöggum og geri jafnvel enn ef svo ber undir.
Forvígismenn InDefence voru: Agnar Helgason, Davíð Blöndal, Eiríkur S. Svavarsson, Jóhannes Þ. Skúlason, Kristján Gíslason, Magnús Árni Skúlason, Ólafur Elíasson, Ragnar F. Ólafsson og Sigurður Hannesson sem tók við Fálkaorðunni fyrir þeirra hönd á nýjársdag.
Það þarf líka að minnast forsvarsmanna seinni samtakanna, Kjósum.is þar sem Frosti Sigurjónsson var í forsvari. Þeir söfnuðu tugþúsundum undirskrifta til Forsetans, dr. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hvergi bilaði í vörninni fyrir Ísland allan þennan tíma. Þar er verðugt pláss fyrir Fálkakrossa.
Ólafs Ragnars Grímssonar mega allir landsmenn minnast með þakklæti fyrir þá vörn sem hann hélt uppi fyrir land og þjóð í þessari styrjöld allri.
Þessir menn allir björguðu þjóðinni frá dusilmennunum á Alþingi Íslendinga og fá þeir þeim það seint fullþakkað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.1.2020 | 21:25
Furðuleg flottheit
í íslensku sjónvarpi þegar margar mínútur eru notaðar til að láta lista yfir öll nöfn sem nálægt hafa komið gerð einhverrar myndar sem verið var að sýna rúlla yfir skjáinn.
Sæju menn þetta gerast í Bandaríkjunum þar sem hver mínúta kostar og auglýsingatími er dýr?
Varðar einhvern áhorfanda um hvað hver statisti heitir sem nálægt gerð myndarinnar kom, hver klippir, hver er læknir á tökustað og svoleiðis upplýsingar?
Svanurinn heitir mynd sem var verið að sýna var og var dæmi um svona furðulegt bruðl. Þvílík endaleysa að sýningu lokinni?
Svona furðuleg flottheit án kostnaðravitundar kostuðu íslenska skattgreiðendur fúlgur fjár í þessu tilviki í ekki neitt sem skiptir máli.
1.1.2020 | 18:30
Jæja
þá er maður ekki lengur á höfuðbólinu heldur í hjáleigunni.
Samkvæmt könnuninni fengi Samfylkingin 19,0 prósenta fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn 17,6 prósent og Viðreisn og Píratar fengju hvor um sig 14,0 prósent.
Miðflokkurinn mælist í könnuninni með 12,1 prósent atkvæða, Vinstri græn 11,7 prósent og Framsóknarflokkurinn 7,4 prósent.
Flokkur fólksins fengi 4,1 prósent. Samanlagt eru það 99,9 prósent.
Ekki kemur fram í frétt Stöðvar 2/Vísis hver skekkjumörk könnunarinnar eru. Hún var unnin um miðjan mánuðinn og svöruðu um 60 prósent af 914 sem haft var samband við. "
Flokkur fólksins dettur út sem er viss lækkun á flækjustiginu.En stjórnarflokkarnir eru komnir í öruggan og traustan minnihluta. Hvað sem öllum uppáliggjandi hagvísum líður.
Gengi Pírata er vaxandi og fylgi við inngöngu í ESB er þar með hugsanlega innan seilingar eftir því hvernig vindar blása í öðrum flokkum.
Jæja, þá veit maður það.
1.1.2020 | 13:54
Reisnin
í heiminum(Eleganzinn)er hvergi meiri en í henni Wien frá keisaratímanum sagði hinn forni vinur minn og leiðbeinandi Sveinn B.(jarnþórsson) Valfells frá Grenjum á Mýrum og hafði hann nú séð sitthvað.
Þau orð komu mér í hugann nú fyrir hádegið þegar ég horfði á og hlýddi á nýárskonzertinn hjá Philharmoníuhljómsveit Wienarborgar í húsi Gesellschaft der Musikfreunde(https://www.geschichtewiki.wien.gv.at/Neues_Musikvereinsgeb%C3%A4ude)í Wien.
Stjórnandinn Andris Nelsons hélt í fullu tré við fyrri stjórnendur hljómsveitarinnar sem maður hefur fylgt í gegn um árin og fór létt með að taka salinn á vald sitt áður en lauk í Radetzky-Marsinum.
Tónlistin var eins og áður stórkostleg og sýningaratriðin staðfestu það að gamli Sveinn hafði rétt fyrir sér með Reisnina eins og reyndar í flestu öðru sem hann hafði álit á.
Það er alltaf stórkostlegt að horfa á samkunduna þar sem aðeins örfáir gestir eru klæddir samkvæmt Alþingistízku Pírata og Borgarhreyfingarinnar en þó eiginlega allir í hvítum skyrtum og auðvitað yfirgnæfandi með bindi og vel klæddir og auðvitað enginn á malbikunarjakka það ég sá.
Mér fannst Asíubúar vera meira áberandi í salnum en áður og er það sjálfsagt í stíl við uppganginn þar í sveitum.Asískar konur á þjóðbúningum margar settu svip á salinn.
Svo náði ég að hlusta á Forsetann okkar lýsa því yfir að hann gæfi kost á sér til endurkjörs. Þar með þurrkaði hann út ónauðsynlegar hugleiðingar margra sem vilja þangað seilast.
Hann endaði mál sitt með reisn sem fór vel í mig.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko