Bloggfærslur mánaðarins, mars 2020
30.3.2020 | 14:02
Mr.Trump
please do something to have the Chinese mend their ways in the thousands of open air food markets where most of the deadly viruses originate and now the Wuhan virus which all mankind is now locked with in a deadly struggle.
Until this Chinese menace is cleaned up nobody is safe on this planet.
Mr. Trump, you are the only one who can achieve something about this to help the Chinese people out of this dangerous situation that prevails in their food markets.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.3.2020 | 10:22
Óstöðvandi?
flaumur hælisleitenda hingað þrátt fyrir ferðabann?
Í Morgunblaðinu stendur:
"Alls bárust 176 umsóknir um alþjóðlega vernd til Útlendingastofnunar fyrstu tvo mánuði ársins, 88 umsóknir í hvorum mánuði um sig. Af þeim voru 68 frá Venesúela, 15 frá Afganistan og 11 frá Írak. Sömu mánuði 2019 bárust alls 146 umsóknir um alþjóðlega vernd. Rúmlega 50 umsóknir um alþjóðlega vernd hér bárust á fyrstu þremur vikum marsmánaðar, að sögn Þórhildar Hagalín, upplýsingafulltrúa Útlendingastofnunar.
Tvær umsóknir höfðu borist í gær frá því að ferðatakmarkanirnar tóku gildi 20. mars. Ferðabannið hefur áhrif Danir og fleiri þjóðir hafa tilkynnt að flutningi hælisleitenda til annarra landa á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar hafi verið hætt tímabundið til að draga úr hættu á því að dreifa kórónuveirusmiti.
Þórhildur sagði að íslensk stjórnvöld hefðu ekki gefið sambærilega yfirlýsingu en í ljósi ferðatakmarkana væri ekki verið að senda fólk á milli landa að svo stöddu. Framkvæmdin hér er því í raun hliðstæð við það sem gildir hjá nágrannaþjóðunum.
Hún sagði að Útlendingastofnun hefði frá upphafi fylgt tilmælum sóttvarnalæknis við móttöku nýrra umsækjenda. Umsækjendur sem komið hafa undanfarið og munu mögulega koma núna fara í sóttkví og er haldið aðgreindum frá þeim sem dvelja í úrræðum stofnunarinnar á meðan þeir eru í sóttkvínni. Fyrstu tvo mánuði þessa árs var 89 veitt hér alþjóðleg vernd, umsóknum 29 var synjað, 19 voru sendir til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, 23 fengu vernd í öðru ríki og mál 18 fengu önnur lok. Var því samtals 178 málum lokið. "
Hvernig stendur á að þetta fólk kemst hingað? Hvernig stendur á því að það er bara einstefna í hælisleitendamálum?
Er þetta óstöðvandi?
30.3.2020 | 10:14
Kína er sökudólgurinn
með sóðaskap sínum. Flestar pestir heimsins eiga upptök sín á svínslegum sóðamörkuðum Kína.Þeim verður að loka í núverandi mynd.
Jónas Haraldsson lögfræðingur skrifar þarfa hugvekju í Morgunblað dagsins:
"mannlífið meira nú um þessar mundir en sú veira, sem kom upp á útimarkaði með fisk og ferskar kjötvörur í Wuhan í Kína, sem er borg á stærð við London. Talið er að um 20 þúsund slíkir matarmarkaðir séu í Kína í dag. Ekki vitum við eðlilega nú hvenær linnir þessu veirusmiti sem er að tröllríða heiminum eða hve margir veikjast eða deyja eða hversu gífurlega miklu fjártjóni veiran muni valda um allan heim þegar upp verður staðið. Verður hér á eftir reynt að hugleiða hvers vegna þetta gerist en vitað er þó með nokkurri vissu að veira sem þessi muni að óbreyttu skjóta aftur upp kollinum og hvers vegna það gerist og hvar það verður.
Veira nr. 1
Árið 2002 kom upp veirusýking á matarmarkaði í suðurhluta Kína, svonefnd SARSveira. Hún breiddist til 26 landa og smituðust 8.098 manns og 774 dóu. Hún var yfirstaðin árið eftir. Á þessum matarmörkuðum eru seld dýr til slátrunar af ýmsum tegundum, t.d slöngur, refir, apar, eðlur, leðurblökur og ýmis sjaldgæf villt dýr í útrýmingarhættu auk annarra dýra. Sóðaskapurinn er oft og tíðum slíkur að menn hafa talið þessa matarmarkaði vera smitsjúkdómabæli, tifandi tímasprengju, eins og í tvígang hefur komið í ljós. Talið var að leðurblaka hefði smitað svokallaðan þefkött og þaðan í mann. Til stóð að banna eða láta draga úr starfsemi þessara matarmarkaða, en þó ekki eingöngu vegna smithættu, heldur einnig með dýravernd í huga og jafnframt verndun villtra dýra í útrýmingarhættu. Því miður fjaraði þetta út með hryllilegum afleiðingum síðar fyrir umheiminn.
Veira nr. 2
Sú veira sem kom upp á matarmarkaði í Wuhan í Kína og nú geisar er talin hafa borist frá leðurblöku í svokallað hreisturdýr, sem er mauraæta, og þaðan í mann. Á þessum mörkuðum geta menn fengið ferskt kjöt og orðið vitni að því þegar dýrunum er slátrað og gert að þeim, þar sem blóð, saur og annar úrgangur flýtur oft um gólf þótt reynt sé að skola slíkt í burtu með vatnsslöngu. Þá hefur iðulega sést að verið er að nota sama hnífinn á eitt dýrið af öðru án hanska, svo eitthvað sé nefnt um vinnubrögðin þarna. Í stuttu máli þá er sóðaskapurinn á þessum matarmörkuðum oft og tíðum skelfilegur og ekki fyrir viðkvæma að fylgjast með aðförunum við slátrun og aðgerð á dýrunum. Sumir markaðanna eru undir berum himni og hreinlæti oftar en ekki af skornum skammti og þrifnaður ekki í hávegum hafður. Að geta rústað umheiminum eingöngu með eigin sóðaskap er áhyggjuefni.
Veira nr. 3?
Til þess að reyna að koma í veg fyrir að umheimurinn fái þriðju veirusendinguna frá Kína þurfa þjóðir heims að standa fast saman og sjá til þess að Kínverjar banni með öllu þessa áðurnefndu matarmarkaði. Því verði fylgt fast eftir, hvað sem hefðbundnum matarvenjum Kínverja líður. Of mikið er í húfi fyrir heimsbyggðina og þá sjálfa til að þessir matarmarkaðir fái að starfa áfram. Að lokum má velta því fyrir sér hvort stjórnvöld í Kína hafi hugleitt að bæta þjóðum heims þótt ekki væri nema lítinn hluta af því gríðarlega fjártjóni, sem þessi kínverska veira nr. 2 er að valda og mun valda.
Mannfallið verður þó aldrei bætt eða eyðileggingin á daglegu lífi fólks og mannlegum samskiptum. Auðvitað skal þökkuð sú aðstoð með upplýsingum og gögnum sem kemur frá Kína. Maður spyr sig þó hvort það væri t.d. nóg að sá sem veldur gríðarlegum eldsvoða sem leiðir til mikils manntjóns og fjárhagstjóns, verði þar með laus allra mála sökum þess að hann slökkti sjálfur eldinn í húsinu sínu. Jafnframt því að hann tók þátt í því að veita upplýsingar um hvernig best væri að slökkva í eldinn í hinum húsunum, sem eru að brenna í allri borginni af hans völdum.
Nú er bara að vona að þessi veira sem nú gengur yfir verði sem fyrst yfirstaðin og heimurinn nái sér að mestu leyti aftur, þótt hann verði líklega aldrei samur og áður. Slík verður eyðileggingin af völdum þessarar veiru sem mun koma niður á hverju einasta mannsbarni í heiminum með einhverjum hætti og jafnframt rústa fjárhag þjóðanna.
Of mikið er í húfi fyrir heimsbyggðina og þá sjálfa til að þessir matarmarkaðir fái að starfa áfram.
Jónas Haraldsson Höfundur er lögfræðingur"
Það er óskandi að Trump Forseti skoði þessa grein Jónasar og grípi til ráðstafana gegn Kínverjum. Það er ekki hægt að verðlauna þá með viðskiptum ef þetta svínarí er ekki hægt að stöðva með einhverjum ráðum.
Það var að vonum að gamli komminn Hjörleifur Guttormsson dregur þá ályktun í grein í sama blaði, að það sé kapitalismanum að kenna hvernig komið er í heiminum. Engu gleymt né ekkert lært.
Kína er sökudólgurinn á bak við heimsfaraldurinn og þeir eiga að gjalda fyrir það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.3.2020 | 13:12
Jón Magnússon
hæstaréttarlögmaðurinn góði setur eftirfarandi áherzlu í bloggi sínu:
"...Það sem við vitum fyrir víst um þessa veiru í dag er að hún er fyrst og fremst hættuleg fyrir fólk sem hefur náð sjötíu ára aldri og þaðan af meira og er með undirliggjandi sjúkdóma.
Er þá ekki mikilvægast að reyna eftir megni að koma þeim þjóðfélagshópi í var, en láta þjóðfélagið ganga að mestu leyti sinn gang að öðru leyti?
Fólkið sem hefur verið í framlínunni hjá okkur í baráttunni við þessa veiru hefur staðið sig vel og gert sumt best af því sem gert hefur verið í heiminum. Það kemst þó ekki hjá því að verða fyrir áhrifum stöðugt harkalegri aðgerða sem gripið er til annarsstaðar, sem og ákalli öfgafólks um að lokað verði á alla mannlega starfsemi í landinu. En þar reynir á, að það sé gert sem þarf, en frjóangar atvinnulífsins séu ekki drepnir eða settir í dvala umfram það sem brýna nauðsyn ber til."
Þau okkar sem tilheyra þessum áminnsta aldurshópi gera áreiðanlega best í því að reyna að halda sig sem mest út af fyrir sig og fara helst hvergi.Birgi sig upp með Bónussúpur og 1944 úrval,G-mjólk, brauð og smér, sápu og spritt á hurðarhúna sem aðra snertifleti utan íbúðar.En yngra fólkið sýnir áfram sinn hetjuskap og fórnfýsi eftir föngum sem hið daglega líf krefst.
Þetta er algert skelfingarástand og hvergi von um linun í augsýn því miður. Boris telur að ástandið muni aðeins geta versnað áður en það getur besnað. Það er hugsanlega ár í bóluefni fyrir þá sem þá ekki hafa tekið veiruna.Efnahagur heimsins er hruninn og enginn sér fyrir hvað verður.Líklega hefði séra Sigvalda þótt ástæða til að fara að biðja Guð að hjálpa sér.
En við hinir eldri skulum taka mark á orðum Jóns Magnússonar lögmanns og vanda okkur sem aldrei fyrr og reyna að þrauka.
29.3.2020 | 11:06
Enn bréf frá Gísla
Holgerssyni, þeim þjóðlega manni sem margir þekkja. Hann setur fram ýmsar hugmyndir sem vert er að lesa. Hann segir:
BREYTINGAR VERÐA Á LANDINU OKKAR Í LOK CORONA VEIRUNNAR FRÁ KÍNA:
LANDIÐ OKKAR VERÐUR EFTIRSÓTT VEGNA ALLS ÖRYGGIS MEÐAL KRISTINNAR ÞJÓÐAR MEÐ GÓÐUM,
GESTRISNUM ÍSLENDINGUM.
SAGA OKKAR ER EINSTÖK OG RITSTÖRF FRÁ FYRSTU DÖGUM Á ÍSLANDIi. SJÓMENNSKA, VÍKINGAFERÐIR
OG LANDNÁM ERLENDIS ER SAGAN OKKAR. SÖGUMENN ERU OKKAR LANDKYNNING.
VERUM EKKI ALÞJÓÐLEG . VERUM ÍSLENDINGAR.
BLÁVATNIÐ, ÓBYGGÐIRNAR OG LANDIÐ ÓMENGAÐ, FOSSAR, FLÚÐIR OG GRÆN ORKAN ÁSAMT
HEITAVATNINU, GERA BÆNDUR AÐ STÓRBÆNDUM VARÐANDI DILKAKJÖTIÐ OG ALLA ÚTIRÆKTUN Á
ÖLLU KÁLI OG BLÓMKÁLI. GRÓÐURHÚSIN GETA ORÐIÐ OFURFRAMLEIÐENDUR FYRIR STÓRMARKAÐI OG
GRÆNMETISMARKAÐI ERLENDIS.
FLUGVÉLAR Í NORÐURLJÓSALITUM LITU GLÆSILEGA ÚT VIÐ AÐ DREIFA AFURÐUM OKKAR TIL
STÓRBORGA EVRÓPU OG AMERÍKU. BLIKKANDI STÉL MEÐ ÍSLANDSFÁNA GERÐI KOMU
FRAMLEIÐSLU BÆNDA OG GRÓÐURHÚSA ATHYGLISVERÐA-ÁBERANDI Á ERLENDUM FLUGVÖLLUM.
SJÁVARÚTVEGUR Á ÍSLANDI ER TIL SÓMA Á ÍSLANDI MEÐ ENGA OPINBERA AÐSTOÐ. ÖLL ÞESSI
FRAMLEIÐSLA ÍSLENDINGA FER VEL SAMAN TIL DREIFINGAR ERLENDIS.
BÆNDABLAÐIÐ OG NÝR FORMAÐUR BÆNDA VILL AÐ ALLIR BÆNDUR SAMEINIST Í SAMTÖKUNUM
BÆNDA. GUÐNI ÁGÚSTSSON OG NÚ SÍÐAST NÚVERANDI LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKI VILJA AÐ VIÐ KAUPUM ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLU.
GUÐNI VILL HOLLVINASAMTÖK VIÐ LANDBÚNAÐINN OG SVEITIRNAR. FLESTIR KAUPA ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLU Í VERSLUNUM FRÁ BÆNDUM OG LEGG ÁHERSLU Á ÍSLENSKT GRÆNMETI.
ÍSLAND ER EINSTAKT LAND!.
ÉG ÍTREKA: BÆNDUR, GRÓÐURHÚS OG SJÁVARÚTVEGUR ÁSAMT ÖLLU ÖÐRU, SEM VIÐ HÖFUM
FUNDIÐ UPP OG FRAMLEIÐUM ÁSAMT HUGVERKUM UNDIRSTRIKA SJÁLFSTÆÐI ÍSLENDINGA.
ALLIR ÍSLENDINGAR LÁTI SKRÁ SIG MEÐ LÁGU GJALDI , SEM HLUTHAFA Í FRAMLEIÐSLU ÓMENGAÐRAR
FRAMLEIÐSLU ÍSLENDINGA. FYRIR ÞAÐ FÁUM VIÐ LÆGRI VERÐ Á ÍSLANDI OG SJÁUM ÁRABÁTA AÐ
NÝJU INN Á FJÖRÐUNUM OKKAR, LANDSMÖNNUM TIL GÓÐS.
.
TÖKUM EKKI SKIPUNUM FRÁ EMBÆTTISMÖNNUM Í BRUSSEL, ÞVÍ SJÁLFSTÆÐI OKKAR ÍSLENDINGA ER Í
HÆTTU , JAFNVEL VOÐA, VEGNA HÚSKARLA OG STJÓRNMÁLAMANNA OG FLOKKA, SEM VILJA GANGA
Í ÖLLU TIL SAMVINNU VIÐ ESB SINNA Í BRUSSEL, SEM SVÍKUR OKKUR, SEM ÖNNUR LÖND. ÞARNA RÁÐA
EMBÆTTISMENN, EN EKKI ÞJÓÐARLEIÐTOGAR .
KVEÐJA - GÍSLI HOLGERSSON.
Það eru skemmtilegar hugmyndir hans um flugvélar okkar með blikkandi fánum á stéli. Það er alltaf hressandi að fá bréf frá Gísla.
27.3.2020 | 14:28
Samgöngubætur
eru mjög aðkallandi á Íslandi með sína óblíðu náttúru sem allir þekkja frá þessum vetri.
Ég var að horfa á þátt um samfélagsleg áhrif jarðganganna í Héðinsfirði fyrir byggðirnar þar. Þessar framkvæmdir voru umdeildar á sínum tíma. Svo hefði ekki verið ef ákveðið hefði verið strax í upphafi að gjald væri tekið af jarðgöngum allstaðar. Engar deilur.
Þá mætti fara að huga að Fjarðarheiðargöngum sem eru löngu tímabær.
Ómar Þ.Ragnarsson skrifar þarfa hugvekju um flugmál á blogg sitt.
" Varaflugvellir hér á landi fyrir flugvélar af millistærð, sem algengastar eru, eru aðeins þrír, í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum, og allir með sínum takmörkunum.
Oft kemur það upp í umræðunni að fjölga þurfi íslenskum varaflugvöllum, og eyða jafnvel morðfjár í nýjan flugvöll í Hvassahrauni, en það yrði óráð að eyða fé í slíkt, heldur er og hefur verið brýn nauðsyn á því að endurbæta vellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.
Vegna þess hve umhverfis Akureyrarflugvöll eru há fjöll getur það takmarkað notagildi hans.
Á Egilsstöðum er flugbrautin full stutt og myndi það auka mjög gildi hans að lengja hana og bæta aðflugið og fráflugið við syðri enda vallarins.
Lenging austur-vestur brautarinnar í Reykjavík gæfi langódýrasta kostinn til þess að uppfylla þá nauðsyn að hafa tvo góða alþjóðaflugvelli við Faxaflóa.
Umbætur í millilandaflugi Íslendinga er ekkert einkamál ferðaþjónustunnar, þótt það út af fyrir sig sé mikilvægt atriði.
Rétt eins og ótryggar og ófullnægjandi samgöngur frá okkar afskekktu eyju við nágrannalöndin var ein höfuðástæðan fyrir því að við misstum sjálfstæðið 1262, eru öruggar, tryggar og góðar flugsamgöngur lykilatriði í því að halda bæði sjálfstæði og góðum kjörum við hér á landi. "
Lenging a-v brautarinnar í Reykjavík er svo sjálfsögð með Suðurgötuna í stokk undir, að það þarf meira en meðalkjark til að leggja til að byggja flugvöll í Hvassahrauni ofan á virkum eldfjöllum í stað þessa. Líklega myndu göngin drena sig sjálf út í sjó án þess að ég fullyrði það sem gerði allt einfaldara.Þar hefðum við varaflugvöll og millilandaflugvöll fyrir Reykjavík. Algert lykilatriði að framkvæma þegar við losnum við núverandi eyðingaröfl úr Borgarstjórn.
Róm var ekki byggð á einum degi en Reykjavík hefur verið eyðilögð af einum Degi segja þegnar hans við Miðbæinn.
Það er mest aðkallandi að efla samgöngur allsstaðar á Íslandi, ekki hvað síst í Reykjavík.
27.3.2020 | 13:51
Blaðamannafundur Trump
vegna veirunnar stóð í meira en klukkutíma og talaði Trump helminginn af tímanum en Pence og sérfræðingar hitt.
Það er skemmtilegt að lesa skilning Íslendinga á því þegar Trump segir að við séum að gera góða hluti. Þeir túlka það sem hann sé að hrósa sér sjálfum þegar morgunljóst er að hann er að tala um bandarísku þjóðina. En það passar ekki fyrir Ómar og góðafólkið hérna.
Þar talaði einn maður sem sagði að langt yrði í bóluefni sem væru mörg í þróun svo ekki var það uppörvandi fyrir mann að heyra.
Trump sagði að við yrðum að koma atvinnulífinu í gang, með einhverjum hætti.Lagði áherslu á alþjóða samvinnu, ekki hvað síst við Kína sem hefði lengi verið að mergsjúga USA með viðskiptahalla sem hann væri að vinna gegn.
Þetta var góður blaðamannafundur hjá Trump mínum þó langur væri.
27.3.2020 | 10:32
Grænsápa?
Þorsteinn Siglaugsson, 24.3.2020 kl. 19:59
Þetta hef ég aldrei heyrt um Þorsteinn. Það væri fróðlegt að fá eitthvað nánar að heyra um þessar refsingar frá Þorsteini Siglausgssyni sem er margvís maður þar sem ég finn ekkert um þetta né hef heyrt um það.
Grænsápa er unnin úr fitu og pottösku, K2CO3. Óeitruð efni.Pottaska var stundum notuð í bakstur sem lyftiduft. Krakkarnir hafa þá líklega ekki eitrast af því að tyggja grænsápu. Spyr sá sem ekki veit en ekki hefði vírusinn lifað lengi í munni krakka sem var látinn setja grænsápu upp í sig.
Prófessor Palli lýsir því hversu COVID19 fer illa út úr viðskiptum við sápu sem eyðileggur lipid-himnuna utan um hann.
Getur verið að úr sápu sé hægt að vinna eitthvað meðal sem ræðst á vírusinn? Náttúrlegt efni sem ekki þyrfti FDA hugsanlega? Þarna verður að spyrja einhverja sem eitthvað vita en ekki ófróða eins og mig. Hvað skyldi Kári klári segja um slíka möguleika?
Íslenskur prófessor (frá Refsstað) heimsfrægur fyrir handþvott
professor palli thordarson soap
Það skyldi þó ekki vera að í einhverjum gömlum siðum og húsráðum leynist lausn?
1/25 Part 1 - Why does soap work so well on the SARS-CoV-2, the coronavirus and indeed most viruses? Because it is a self-assembled nanoparticle in which the weakest link is the lipid (fatty) bilayer. A two part thread about soap, viruses and supramolecular chemistry #COVID19
26.3.2020 | 14:53
Erum við of linir?
á ráðstöfunum gegn veriunni?
Ómar Geirsson setur þetta fram:
"Ísland. Smit 648 eða 1.899 per milljón íbúa. Dauðsföll 2 eða 6 per milljón íbúa.
Singapúr. Smit 558 eða 95 per milljón íbúa. Dauðsföll 2 eða 0,3 per milljón íbúa.
Hong Kong. Smit 387 eða 52 per milljón íbúa. Dauðsföll 4 eða 0,5 per milljón íbúa.
Taivan Smit 235 eða 10 per milljón íbúa. Dauðsföll 2 eða 0,08 per milljón íbúa."
Borið saman við Singapore
Frá og með 2359 hours on 23 March 2020:
- Allir skammtríma gestir:
- Enginn aðgangur eða gegnum ferð í Singapore
- Atvinnuleyfishafar:
- Aðeins endurkoma fyrir nauðsynlegustu störf og fjölskyldu þeirra
- Allir þegnar Singapore, stöðugir íbúar , og langtíma vegabréfshafar :
- From Hubei Province: 14-day quarantine
- From all other countries: 14-day Stay Home Notice (SHN)
- Leikskólar opnir aftur
Fáum við kannski öll smit fyrr eða síðar eða er sjans að H=1-1/Ro fari niður fyrir 0.6 og þá hverfi faraldurinn?
Erum við kannski of linir í strangleika Islendingar?
26.3.2020 | 12:56
Loftslagsváin
fær myndarlegan skerf af björgunarfé ríkisstjórnarinnar. Svo segir í Mogga:
"Gert er ráð fyrir að á árinu 2020 verði um 2 milljörðum króna af 15 milljarða fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar varið til verkefna sem eru á ábyrgðarsviði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Tillögu til þingsályktunar um fjárfestingarátakið var dreift á Alþingi í gær en átakinu er ætlað að auka opinbera fjárfestingu vegna kórónuveirunnar.
Til orkuskipta, grænna lausna og umhverfismála, verði varið ríflega 1.350 m.kr. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að verja 500 m.kr. til loftslagsmála, bæði orkuskipta í samgöngum og í höfnum landsins og til aukinnar kolefnisbindingar með landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis.
Í öðru lagi er lagt til að auka framlög á þessu ári til uppbyggingar á friðlýstum svæðum umfram þann milljarð sem tilkynnt var um fyrr í mánuðinum. Þetta eru rúmar 650 m.kr. til annars vegar göngustíga, bílastæða og annarra innviða, svo sem við Jökulsárlón, á Þingvöllum og Friðlandi að Fjallabaki, og hins vegar verði varið fjármagni í uppbyggingu á aðstöðu og þjónustu fyrir ferðamenn, en þar eru sérstaklega til skoðunar Skaftafell og Mývatnssveit. Í þriðja lagi er lagt til að 200 m.kr. verði varið til að styðja við framkvæmdir í fráveitumálum sveitarfélaga, en mikil þörf er á átaki í þeim málum..."
Ég hef verið að velta því fyrir mér versvegna Vatnajökull hét Klofajökull til forna og að þjóðbraut er sögð hafa legið yfir hálendið á milli jökulhlutanna?
Sömuleiðis hvort og til hvaða ráðstafana þjóðin geti gripið vegna þeirra 20.000 tonna af CO2 sem streyma upp úr Kötlugíg á hverjum sólarhring þó að 100 ár séu nú liðin frá síðasta gosi?Og líka hvort hægt sé að mæla hvað Eyjafjallajökull andar miklu frá sér af þessari lofttegund? Það ætti kannski að vera óhætt að áætla Holuhraunsútblásturinn út frá þeim tölum? Að maður tali ekki um Mið-Atlantzhafs-sprunguna?
Já,loftslagsváin er eitthvað sem fólki ber að hafa áhyggjur af segir hún Gréta Thunberg.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Jeta grænsápu Halldór, eins og óþekkir krakkar voru látnir gera í gamla daga þegar þeir létu eitthvað óguðlegt út úr sér