Bloggfærslur mánaðarins, júní 2020
11.6.2020 | 15:26
Bravó Bjarni
hvernig þú tekur á máli afturhaldspostulans og staðreyndafalsarans Þorvaldar Gylfasonar. Manni sem er gersamlega fyrirmunað að fara rétt með nokkurn hlut í stjórnmálum vegna pólitísks ofstækis og samviskuleysis gagnvart réttum málum:
Pistill Bjarna í heild sinni:
Það er sennilega til vitnis um það að allt er að komast í sitt fyrra horf, þegar atvinnumál hagfræðings og fyrrverandi stjórnmálaforingja verða að stórfrétt. Ætli maður eigi ekki bara að vera þakklátur fyrir það.
Á Norðurlöndunum er gefið út rit um efnahagsmál sem kallast Nordic Economic Policy Review. Fjármálaráðuneyti norrænu ríkjanna fjármagna ritið, sem er gefið út undir hatti norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta er ekki óháð fræðirit, heldur er því ætlað að styðja við stefnumótun norrænu ríkjanna í efnahagsmálum.
Nú eru sagðar fréttir af því að Þorvaldur Gylfason hafi ekki fengið að vera ritstjóri þessa blaðs. Ástæðan sé sú að starfsmaður íslenska fjármálaráðuneytisins hafi vakið athygli á þátttöku hans í pólitísku starfi og ráðuneytið hafi komið í veg fyrir að hann fengi vinnuna. Þetta eru megindrættirnir í fréttaflutningnum, sem hefur verið hlaðinn rangfærslum og starfsmaðurinn nafngreindur og settur í forgrunn á mjög ósmekklegan hátt vegna ákvörðunar sem var ekki á nokkurn hátt hans. Af þessu tilefni minni ég á að starfsmenn ráðuneyta starfa í umboði og á ábyrgð ráðherra. Þótt ekki séu öll samskipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu tilviki endurspeglast vilji minn um að tilnefna hvorki né samþykkja Þorvald Gylfason til þessara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá möguleiki og enginn nefnt hann við mig.
En þá að kjarna málsins, tilnefningu og ráðningu ritstjóra. Um hana er fjallað í starfshópi sérfræðinga í fjármálaráðuneytum Norðurlandanna. Starfið er ekki auglýst, heldur fer fram umræða í hópnum um þá einstaklinga sem hvert ráðuneyti leggur til. Engar sérstakar hæfniskröfur eru gerðar aðrar en þær að viðkomandi njóti trausts allra sem að valinu koma. Fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins lagði fyrir mína hönd til konu sem hefur mikla reynslu af störfum, rannsóknum og skrifum á þessu fræðasviði. Til vara voru tvö önnur. Hvorugt þeirra var Þorvaldur Gylfason.
Að þessu sögðu vil ég leggja áherslu á að ákvörðun um ráðningu er tekin samhljóða, krafist er samsinnis allra fyrir ráðningu. Ekkert slíkt samþykki lá fyrir þann 1. nóvember sl., þegar Þorvaldi á að hafa verið boðin vinnan, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tímann verið nefnt við fulltrúa fjármálaráðuneytisins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri uppástungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þorvaldar Gylfasonar í efnahagsmálum geti engan veginn stutt við stefnumótun ráðuneytis sem ég stýri.
Það er meira en sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd og rekja þessi sjónarmið nánar. Þá gefst mögulega tækifæri til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæplega eiga samleið með mínu ráðuneyti í þessu verkefni eða yfirhöfuð um önnur stefnumarkandi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögulegt samstarf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hvaða hug Þorvaldur hefur borið til þeirra ríkisstjórna sem ég hef setið í undanfarin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þingnefnd.
Ég mun þá einnig kalla eftir því hvernig fulltrúi Samfylkingarinnar telur það óeðlileg afskipti af ráðningu ritstjóra Nordic Economic Policy Review að fjármálaráðuneytið samþykki ekki umyrðalaust hugmyndina um Þorvald Gylfason. Ekki að ég efist um að hæfnisnefnd Samfylkingarinnar hafi borið Þorvald saman við aðra tilnefnda, en dugar það eitt og sér? Og hvers eiga aðrir þeir sem óformleg tillaga var gerð um að gjalda?
Þegar til kastanna kom var Ísland ekki eina ríkið sem ekki féllst á tillögu um ráðningu Þorvaldar Gylfasonar, eins og starfsmenn norrænu ráðherranefndarinnar hafa upplýst Þorvald um. En telji hann sig eiga eitthvað inni vegna óuppfylltra væntinga þarf hann að reka þau mál við þann sem sendi honum þetta meinta atvinnutilboð, í fullkomnu heimildar- og umboðsleysi. Mögulega mun hann njóta fulltingis einhverra þingmanna Samfylkingar, jafnvel Pírata, á þeirri leið. Spurning er bara hvort það væru ekki óeðlileg afskipti af þeirra hálfu af ráðningu í starf sem aldrei hefur verið auglýst.
Þetta var snöfurlega að verki staðið. Bjarni er ekki eins og Dagur B. Eggertssona sem alltaf flýr í skjól nafnlausra undirmanna til að firra sig ábyrgð.
Pereat Þorvaldur!
Bravó fyrir Bjarna!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.6.2020 | 15:15
Flóttamannabísnessinn
er mörgum Íslendingum uppspretta lífsviðurværis. Með því að þykjast vera öðrum betri sýgur þetta lið til sín opinbert fé í uppskrúfaðri hræsni sinni yfir vondkap heimsins.
Ómar Geirsson, sem er óvenjulega víðsýnn kommatittur af Neskaupsstað skrifa r athyglisverða færslu um þetta mál á síðu sína:
"
Jú, hún er mikilvæg keðja í flóttamannaiðnaðinum sem veltir tugmilljarða árlega.
Hennar hlutverk er að gefa dílerunum meint mannúðarhlutverk á endastöð.
Síðan er það heil atvinnugrein að gera út á niðurstöðu flóttamannaiðnaðarins, þar sem lögfræðingar á fullu kaupi, greitt af sameiginlegum sjóðum, oftast kvenkyns, en vissulega hefur einn og einn karl fundið lykt af gróðavoninni, segja sögur og gera út á samviskubit þjóðarinnar.
Flóttamannabísnessinn á fullu hjá þessum tveimur konum.
Með þeim góða árangri að fullt af konum halda að aðeins þvergirðingsháttur valdamanna með typpi komi í veg fyrir að flóttamannavandi heimsins sé leystur með opnun landamæra Íslands fyrir glæpasamtökum.
Og munum, að jafnvel innflutningur á eiturlyfjum til Vestur Evrópu er ekki eins gróðavænlegur í dag og innflutningur á flóttamönnum sem og mismikið löglegt mannsal í nafni hins frjálsa flæðis.
Það er vissulega til heimskt fólk sem trúir að Sema Erla sé velviljaður sakleysingi í þessari gróðakeðju glæpasamtaka, ekki síður þegar vel borgaður lögfræðingur, á kostnað sameiginlegra sjóða, segir að vel skeggjaður karlmaður, sem segist vera undir lögaldri, að hann eigi að njóta vafans,sem meint barn.
Því hver vill jú vera vondur við börn á flótta.
Eða nýjasta trendið í flóttamannaiðnaði glæpasamtakanna, að höfða til ofsókna á hendur samkynhneigðum eða klæðskiptingum, eða öllu því sem er tabú í hinum múslímska heimi.
Jafnvel tímaspursmál hvenær konur á flótta vísa í að það sé fangelsissök að keyra bíl í olíuríkjum Persaflóa.
Kokgleypt af fólki í blaðamannastétt sem fékk starfið út á skírteini háskólamenntunarinnar en ekki almenna skynsemi eða dómgreind sem í árdaga markaði hinn vitiborna mann frá mannöpum.
En eru ekki einhver mörk á hinu frjálsa flæði flóttamannaiðnaðarins??
Eigum við toppa skinhelgi og hið tvöfalda siðgæði Viktoríutímans í þjónkun okkar við hina meinta rétthugsun sem flóttamannaiðnaðurinn gerir út á??
Er það nóg að heita útlensku nafni, og vera pínu brúnn í framann, að árásirnar á samfélag okkar og menningu sé eins og mælt sé af vörum guðs, og allt er apað eftir??
Hvenær spyrnum við fótum??
Hvenær er okkur nóg boðið??
Hvenær segjum við hingað og ekki lengra??
Að gera grín er hluti af okkar menningu.
Í raun ertu samþykktur þegar einhver nennir að gera grín að þér, þá brosum við og sameinumst.
Það er mikið að í sálu okkar þegar glæpamannaiðnaðurinn fær því breitt.
Það er mikið að þegar síðasta vígi sjálfstæðrar blaðamennsku sameinar sig hópsál sem er ekki aðeins fóðruð af forheimsku rétttrúnaðarins, heldur líka beint af fjárhagslegum hagsmunum fólks sem á einn eða annan hátt felldi dópsölu og dópsmygl úr fyrsta sæti hins arðvænlegustu glæpastarfsemi vestræna heims.
Þó vissulega sé flóttamannaiðnaðurinn aðeins angi af mannsali hins frjálsa flæðis, sem óendanlega útvegar siðblindingjum auðsins bláfátækt vinnuafl, hvort sem það er í undirboð á markaði hins frjálsa flæðis, eða til að yfirfylla elstu atvinnugrein heims að ódýrum þrælum.
Í raun einn svartasti blettur siðmenningarinnar, og þó var samkeppnin hörð á 20. öldinni.
Samt þarf aðeins þekkingu og sið.
Til að sjá í gegnum híalínið sem glæpaiðnaðurinn gerir út, og stjórnar í raun umræðunni í samfélagi þar sem prestar forheimskunnar eru tilbeðnir á stalli skurðgoðanna.
Samt Mogginn!!!
Hvar er Rúv??
Hvar er Fréttablaðið hans Jóns Ásgeirs??, eða skipti hann um kennitölu og heitir Helgi í dag??
Er ekkert viðnám??
Er engin vörn?
Ég spyr.
Kveðja að austan."
Ég held að Ómar tali fyrir munn margra sem ofbýður hvernig þetta mannúðardekur er haft að yfirvarpi til að maka eigin krók eins og til dæmis Helga Vala er samnefnari fyrir.
Hvað skyldi hún Helga Vala samúðarfulla vera búin að þéna margar milljónir á mannúðardekrinu í kring um Rauða Krossinn og öllu því. Fæst það nokkurn tímann upplýst? Það er bara talað um hvað hún sé góð við lygalaupana skeggjuðu sem ekki má spyrja um aldur eða sannreyna.
11.6.2020 | 11:23
Tangarsókn Borgarstjóra
gegn Reykjavíkurflugvelli heldur áfram af fullum þunga.
Markmiðið er að fara gegn einbeittum vilja landsmanna allra til að halda Reykjavíkurflugvelli á sínum stað en gera völlinn smám saman óstarfhæfan með því að reisa sem flestar smáhindranir í umhverfi hans sem rýra notagildið eitt af öðru uns markmiðinu er náð með óbætanlegu tjóni.
Lúalegri starfshættir undirferlis, svika og lyga eru vandfundir.
Marta Guðjónsdóttir vekur athygli á þessum starfsháttum í grein í Morgunblaðinu í dag:
"Eitt helsta pólitíska markmið borgarstjórans er að koma Reykjavíkurflugvelli úr Vatnsmýrinni.
En hvernig ber hann sig að?
Hann vill ekki að borgarbúar fái að kjósa um þetta álitamál því fjöldi skoðanakannana og 70 þúsund undirskriftir frá borgarbúum og landsmönnum gefa ótvírætt til kynna að þeir vilji hafa flugvöllum áfram í Vatnsmýrinni. Hann vill heldur ekki færa rök fyrir þessu markmiði sínu. Of margir sérfræðingar í flugmálum og á sviði almennra samgangna hafa fært of veigamikil og sannfærandi rök gegn áformum hans. Hann er löngu kominn í rökþrot og forðast því alla opinbera umræðu um málið.Hann vill ekki þurfa að svara fréttamönnum um flugvöllinn, skiptast á skoðunum um hann í fjölmiðlum né ræða málið við borgarbúa.
En hann beitir annarri aðferð. Hann hefur staðið fyrir linnulausum árásum á starfsemi Reykjavíkurflugvallar um árabil og reynt að þrengja að vellinum og draga úr flug- og rekstraröryggi hans.Markmiðið er að gera flugvöllinn ónothæfan allri flugvallarstarfsemi svo þar verði sjálfhætt.Jafnvel þótt engin staðsetning um nýjan flugvöll sé í augsýn. Tökum þrjú dæmi.
Ríkisstjórnin fjárkúguð
Íslendingar hafa sinnt flugumsjón yfir Norður-Atlantshafi frá 1946. Flugstjórnarsvæðið er eitt það stærsta í heimi. Á annað hundrað Íslendingar hafa vel launuð störf af þessari þjónustu sem fram fer við Reykjavíkurflugvöll á vegum ISAVIA, en gjaldeyristekjur af henni nema um sjö milljörðum króna á ári. Árið 2013 munaði hársbreidd að Alþjóðaflugmálastofnunin flytti þessa þjónustu til Skotlands. Ástæðan var sú að borgaryfirvöld drógu það úr hömlu, af ásettu ráði, að samþykkja byggingarleyfi fyrir bráðnauðsynlega stækkun á húsnæði ISAVIA. Þegar þau samþykktu loks að afgreiða málið var sú afgreiðsla háð því skilyrði, að ríki og flugmálayfirvöld staðfestu að NA-SV-braut Reykjavíkurflugvallar yrði lögð af innan þriggja ára. Þannig tókst borgarstjóra að loka neyðarbrautinni með hótunum. Ef erlend yfirvöld hefðu beitt íslensk yfirvöld slíkum hótunum hefði það orðið að alvarlegu milliríkjamáli.
Aðför að Fluggörðunum
Sumarið 2014 samþykktu borgaryfirvöld nýtt deiliskipulag fyrir Reykjavíkurflugvöll sem gerði ráð fyrir að Fluggarðarnir við Njarðargötu yrðu að víkja innan tveggja ára, sem og öll starfsemi kennslu- og einkaflugs sem þar hefur aðstöðu.
Um er að ræða 8.000 fermetra af flugskýlum og öðrum byggingum en þar eru geymdar um 80 flugvélar. Þessi breyting á deiliskipulagi kom eins og þruma úr heiðskíru lofti gagnvart u.þ.b. 500 hagsmunaaðilum. Ekkert samráð hafði verið haft við þá við skipulagsgerðina og engin önnur aðstaða var fyrir hendi fyrir þessa starfsemi. Þessi forkastanlegu vinnubrögð voru kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem gerði borgaryfirvöld afturreka með þessa fólskulegu aðför.
Mjög þétt byggð á Hlíðarendasvæðinu var önnur aðför að flugvellinum sem gerði endanlega út um neyðarbrautina. Og nú er komið að enn einni aðförinni; fyrirhugaðri mjög þéttri byggð austur af Stóra-Skerjafirði og auðvitað án nokkurs samráðs við íbúana þar.
Samningsbrot
Í nóvember sl. gerðu ríki og Reykjavíkurborg með sér sérstakan samning sem kveður m.a. á um að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verði tryggt, m.a. með eðlilegu viðhaldi og endurnýjun mannvirkja, svo að völlurinn geti þjónað innanlandsflugi á fullnægjandi hátt á meðan rannsóknir á möguleikum á nýjum flugvelli fari fram. Borgarstjóri stóð ekki lengi við þennan samning.
Hinn 30. apríl sl. var Herði Guðmundssyni, forstjóra flugfélagsins Ernis, tilkynnt á fundi með borgaryfirvöldum að viðhaldsstöð félagsins á Reykjavíkurflugvelli yrði rifin á næstunni, bótalaust! Þar ætti að leggja veg vegna framkvæmda við nýja 5.000 manna íbúðabyggð austan Skerjafjarðar. Hér átti að fara fram eignaupptaka sem stenst ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Ósannindi borgarstjóra
Þegar borgarstjóri var gagnrýndur af fréttastofum, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, Eyþóri Arnalds, og samgönguráðherra bætti hann gráu ofan á svart með vísvitandi ósannindum: Hann sagði þetta allt óþarfa upphlaup og að þetta væri allt á misskilningi byggt það hefði aldrei verið ætlunin að rífa skýlið.
En fundargerðin frá 30. apríl segir annað. Þar segir orðrétt: Fyrir liggur að rífa þarf flugvélaverkstæði Ernis að óbreyttu, þ.e. flugskýli #6 vegna fyrirhugaðrar veglagningar í gegnum flugskýlið.
Það þarf ótrúlegan hroka og óheilindi til að beita fyrir sig pukri, furðulegum afbrigðum stjórnsýslu, hótunum, samningsbrotum og ósannindum til að koma fram ætlunarverki sínu. Ekki síst ef maður veit mætavel að það er gert í andstöðu við hagsmuni, vilja og röksemdir mikils meirihluta samfélagsins"
Hvergi hef ég séð hliðstæðu jafn mikils óheiðarleika, lyga og svika í stjórnmálum eins og Dagur B. Eggertsson beitir með fylgismönnum sínum. Núverandi meirihluta sem situr samt í skjóli minnihluta atkvæða.
Það er eins og að vísvitandi sé stefnt að því að ergja sem flesta borgarbúa og trufla í daglegu lífi. Gildir einu hvort í hlut eiga stíflun Geirsgötu, lokun á umferð að Laugvegsverslunum, eyðilegging Reykjavíkurflugvallar eða hindranir í bílaumferð í gjörvallri Borginni og nágrenni hennar.Allt skal gert til að angra og trufla borgarbúa við daglegt líf. Bullað er um Borgarlínu sem enginn grundvöllur er fyrir og ofuráhersla lögð á hjólreiðar sem Borgarbúar hafa fyrir löngu sett langt að baki fjölskyldubílsins sem ferðamáta sinn. Enda blasir það við hverjum sem er að án bíls getur fjölskyldan ekki þrifist. Samt berst hinn myndskreytti sjóræningi, formaður skipulagsnefndar Sigurborg Ósk, fyrir fækkun bílastæða um alla Borg.Hún er orðinn hreinn meinvættur í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins.
Sé þetta lykillinn að endurkjöri í Borgarstjórn þá mun það sanna fyrir mér það eitt að ég eigi aldrei að skipta mér af stjórnmálum aftur vegna viðblasandi heimsku minnar.Og það mun ég reyna að standa við ef svo skelfilega fer í næstu kosningum. Þá hefur tangarsókn Borgarstjóra tekist.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2020 | 01:04
Hann Óli flóði?
var yndislegur vinur okkar kontóristanna á laugavegi 11 sumarið 1957, Húmoristi og hvers manns hugljúfi.
Hann átti dodsj eða kræðsler 41 eða tvö. Keyrði okkur á rúntinn og lá eins og slytti með hausinn í hliðarrúðunni og hvíslaði uppörvunarorð með draugalegri rödd að fallegum kvenpeningi sem voru tilfallandi á rúntinum. Flóði var stytting á gælunafninu flóðhestur. Ég man ekki hvers son hann var eða meira um hvert hann fór eftir þetta sumar. Ég held samt að hann hafi orðið góður borgari í vinnu hjá honum RARIK vini mínum.
Við vorum allir á leið út í lífið þetta sumar 1957. Skruppum í Húsafell að lyfta hellunni með Jóni Þ. og hjá Guðmundi Páls heljarmenninu frá Hjálmsstöðum í Laugardal sem fór með helluna í kring um kvíarnar eins og að hún væri eintak af Mogganum. Við strákarnir vötnuðum henni aðeins. Skemmtum okkur í nóttlausri voraldar veröld. Sáumst síðan aldrei aftur.
Nú um nótt hálfri öld síðar dettur mér í hug hvort hann Óli Flóði sé lifandi ennþá? Ef hann Flóði skyldi lesa þetta þá sendi ég honum bestu kveðjur um eilífðar útsæinn með þökkum fyrir gengnar gleðistundir þar sem hann var sérstakur meðal skemmtilegra á Laugavegi 11.
10.6.2020 | 13:59
Reykjavíkurflugvöllur
er ómetanlegur hvernig sem á er litið. Varavöllur, samgöngumiðstöð, ósnortin náttúra, fuglaparadís, vatnsbúskapur. Vannýttur til millilandaflugs.
Sjálfstæðismenn af öllu landinu skrifa í Morgunblaðið:
"Flugvöllurinn í Vatnsmýri þjónar mikilvægu hlutverki sem miðstöð innanlandsflugs og sem slík skiptir staðsetning og umgjörð flugvallarins miklu máli.
Enn mikilvægara er þó hlutverk flugvallarins sem miðstöð sjúkraflugs í landinu, en þar er um brýnt öryggismál landsmanna að ræða.
Uppbygging á nýju bráða- og háskólasjúkrahúsi fer nú fram við Hringbraut. Það er lykilatriði að flugvöllurinn, þar sem sjúkraflugvélar lenda með bráðveika sjúklinga, sé staðsettur nálægt okkar sérhæfðustu bráðaheilbrigðisþjónustu á landinu. Sérstaklega þar sem nauðsynleg bráðaþjónusta er illu heilli sjaldnast í boði í heimabyggð á landsbyggðinni.
Reykjavíkurborg er því að bregðast hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna þegar yfirlýst markmið hennar er að flytja innanlandsflugvöll okkar allra burt úr Vatnsmýrinni.
Aðför Reykjavíkurborgar að innanlandsflugi
Fyrirætlanir Reykjavíkurborgar um þvingandi aðgerðir gegn flugfélaginu Erni, sem hefur í áratugaraðir sinnt innanlandsflugi og sjúkraflugi með myndarbrag, eru með öllu óviðunandi. Fyrirhugað var að taka viðhaldsstöð félagsins eignarnámi og rífa niður til að greiða fyrir veglagningu án þess að greiða bætur fyrir.
Þegar fyrirtæki sem gegnir veigamiklu samgönguhlutverki á landsvísu stendur frammi fyrir einu erfiðasta rekstrarári í sögu fyrirtækisins lagði Reykjavíkurborg til enn frekari atlögu gegn starfsemi þess.
Það ætti öllum að vera ljóst að Reykjavíkurflugvöllur hefur í gegnum tíðina verið ákveðinn þyrnir í augum Reykjavíkurborgar og kysi hún að flytja flugvöllinn annað enda landsvæðið í Vatnsmýrinni eftirsótt og verðmætt. Nýleg framkoma meirihlutans í borginni gagnvart flugrekstraraðila er hins vegar svívirðilegt skref að því markmiði.
Landsbyggðinni fórnað fyrir hag Reykjavíkurborgar
Hugmyndir um flutning Reykjavíkurflugvallar voru raunhæfar á sama tíma og staðsetning nýs Landspítala var óráðin. Bráða-, skurð- og fæðingarþjónusta hefur víða um land verið skert eða lögð niður í hagræðingarskyni eða undir því yfirskini að sérhæfða bráðaþjónustu beri að veita þar sem helstu sérfræðingar landsins eru að störfum.
Það er því grunnforsenda að miðstöð innanlandsflugs sé í seilingarfjarlægð frá slíkri sérhæfðri bráðaþjónustu svo að allir Íslendingar eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita líkt og lög kveða á um. Í bráðatilfellum er ljóst að hver mínúta skiptir máli og vegalengdir milli innanlandsflugvallar og bráðasjúkrahúss eru lífsspursmál.
Það er óumflýjanleg staðreynd, sama hversu óþægileg andstæðingum flugvallarins í Vatnsmýri þykir hún. Þegar skóflustunga var tekin í lok ársins 2018 og uppbygging hófst á nýju þjóðarsjúkrahúsi Landspítalans var nauðsyn staðsetningar innanlandsflugvallar í Vatnsmýri fest í sessi. Að öðrum kosti væri verið að fórna heilsu og öryggi íbúa og ferðamanna á landsbyggðinni.
Sterk landsbyggð er allra hagur
Þið veljið að búa þarna eru kjörorð þeirra sem hafa takmarkaða þekkingu á mikilvægi sterkrar landsbyggðar. Mikilvægi dreifðrar búsetu um víðfeðmt landið hefur sjaldan verið jafn augljóst og einmitt við þær krefjandi aðstæður sem við stöndum frammi fyrir í dag.
Með frekari þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu og fjölgun íbúa stendur borgin frammi fyrir vaxandi samgönguvandamálum. Jafnframt eykst samkeppni um störf á höfuðborgarsvæðinu, um grunnþjónustu á borð við leikskólapláss, heilbrigðisþjónustu eða hreinlega að komast á kassa síðdegis á föstudegi í næstu kjörbúð.
Það má leiða líkum að því að lokun á Hreiðrinu, fæðingarþjónustu við Landspítalann, hafi t.a.m. orðið í beinu samhengi vegna vaxandi álags á fæðingardeild Landspítalans í kjölfar skertrar fæðingarþjónustu við landsbyggðina. Samkvæmt ársskýrslum Landlæknisembættisins um barnsfæðingar hefur fæðingum á fæðingarstöðum á landsbyggðinni fækkað um 30% á undanförnum áratug. Það að skera niður þjónustu á landsbyggðinni þýðir nefnilega ekki að þörfin á þjónustunni hverfi.
Skorum á Reykjavíkurborg að láta sér annt um hagsmuni landsbyggðar
Undirritaðir kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins úr öllum landsfjórðungum skora á meirihluta Reykjavíkurborgar að láta af fyrirætlunum sínum á flugvallarsvæðinu sem munu þrengja enn frekar að starfsemi flugvallarins í Vatnsmýrinni.
Við skorum á Reykjavíkurborg að tryggja óskerta starfsemi flugvallarins, fagna mikilvægu hlutverki hans sem miðstöð innanlands- og sjúkraflugs og styrkja uppbyggingu hans með ráðum og dáð í stað þess að leggja í sífellu steina í götu hans.
Við skorum jafnframt á Reykjavíkurborg að axla ábyrgð sína sem höfuðborg allra landsmanna. Það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál allra, ríkis og sveitarfélaga, að tryggja öruggar samgöngur til höfuðborgarinnar, auka ferðafrelsi en um leið tryggja jafnan rétt Íslendinga að bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Saman getum við meira."
Eftir Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, Hafdísi Gunnarsdóttur, Njál Trausta Friðbertsson og Berglindi Hörpu Svavarsdóttur
Hildur er bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Hafdís er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði. Njáll er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Berglind er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði.
Meirihlutinn í Reykjavík sem situr í skjóli minnihluta atkvæða hafði forgöngu um að loka neyðarbrautinni og leyfa Valsmönnum að setja niður ljótustu steinsteypuklessu sem nokkurs staðar sést. Miklu ljótari en gömlu Pólarnir sem voru alltaf málaðir þegar kóngurinn kom.
Nú ætlar hann að eyðileggja völlinn hinumegin frá í skerjafirði, +Það er hrikaleg tað ekki sé hægt að stöðva þennan skemmdarverkaskríl sem er rökheldur í öllum málum sem svarar bara með trúarsetningum um kolefnisspor, hjólhestatrúboð og Laugavegslokanir. Það er eins og þeir vilji egna Borgarana sem allra mest á móti sér.
Reykjavíkurflugvellur er perla Höfuðstaðar allra landsmanna sem þarf að verja fyrir þessari ásókn vinstra tætingsliðsins.
Þetta er flugvöllur allra landsmanna og það þyrfti að greiða þjóðaratkvæði um að hafa hann til afnota um ókomin ár. Það er fáránleg hugmynd meirihlutans í Borgarstjórn Reykjavíkur að halda að þeir geti selt lóðirnar á flugvellinum og stungið í tóman Borgarkassann en látið svo þjóðina byggja flugvöll fyrir 200 milljarða ofan á eldfjallinu í Hvassahrauni.
Vitlausara getur það varla orðið.
Reykjavíkurflugvöllur lifi um ókomin ár.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.6.2020 | 13:33
Black lifes matter!
auðvitað.
En miðað við allan hamaganginn yfir Floyd þá skrifar Ragnhildur Kolka svo:
"Öll þessi eyðilegging í nafni "Black Lives Matter", þegar, í reynd, fólki er skítsama um líf þeirra svörtu.
Síðustu helgina í maí urðu 85 manns fyrir byssukúlu í Chicago - 24 létust.
Þarna eru svartir að skjóta svarta í borg sem á að heita "byssu laus."
Hefur verið minnst á þessa morðöldu í hverfum svartra í Chicago, Baltimore og fleiri bandarískum borgum undir stjórn demókrata, í fjölmiðlum hér á Íslandi?
Ekki aldeilis. Ekki frekar en í öðrum stórum fjölmiðlunum í hinum vestræna heimi. En mantran um að leggja niður löggæslu hljómar nú í hvers manns eyrum. Þetta er menningar bylting ofalinnar æsku með stuðningi fjölmiðla."
Mannkynið er brjálað, það er ekki nokkur vafi.
Að geta tortímt tugum lífa og eyðilagt Macy í New York allt undir yfirskyni samúðar er umhugsunarefni.
Black lifes matter sönglar okkar unga fólk á Austurvelli?
En hvað með okkar eigin hvítu en ekki black líf og ljúgandi hælisleitendur?
10.6.2020 | 01:17
Missum við tökin?
á veiruvörnunum?
Ég fór í minningarathöfn í smekkaðri Grafarvogskirkju. Hundruð manna hvert ofan í öðru. Ég get ekki skilið ef upp hefði komið smit hvernig ætti að rekja það?
Svo koma 3500 mann saman í kös á mótmælum á Austurvelli með lögreglustjórann í miðjunni? Hvernig á að rekja smit þaðan? Er veiran kannski farin úr landi?
Er verið að gera grín að Þórólfi, Ölmu og Víði og storka almenningi sem er búinn að leggja allt þetta á sig?
9.6.2020 | 10:20
Hættum þessum skrípaleik
með Hafró og kvótann.
Það eru hagsmunir kvótagreifanna og hafró að halda fiskveiðum niðri því þá verða forréttindin hærri í verði. Ætti að vera öllum ljóst.
Jón Kristjánsson skrifar góða grein um fiskveiðar í Morgunblaðið í dag:
Jón segir:
"Kreppan mun að öllum líkindum dýpka með haustinu. Ríður því á að auka framleiðslu til að afla þjóðinni gjaldeyris.
Löngum voru sjávarafurðir verðmætasti útflutningurinn en síðustu ár hefur ferðaþjónusta orðið sífellt mikilvægari í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. En hún er horfin, hvarf eins og dögg fyrir sólu á einni nóttu.
Nú þarf að veiða meiri fisk og fyrsta skrefið er að gefa handfæraveiðar alveg frjálsar.
Sjávarauðlindin með fiskinum er enn á sínum stað en hún hefur gengið í gegn um hremmingar, aðallega vegna niðurskurðar í nafni uppbyggingar fiskstofna og misskiptingar, þar sem sífellt meiri hluti aflans hefur færst til stórútgerða á kostnað þeirra smærri og sjávarþorpa landsins.
Þá virðist það vera keppikefli kvótahafa að halda afla niðri, mynda skortstöðu, sem hækkar fiskverð og leiguverð á kvóta.
Niðurstöður úr nýförnu togararalli sýna að þorskstofninn fer hraðminnkandi en vísitala þorsks mældist nú um 25% lægri en í fyrra og um 50% lægri en hún var 2017. Þar sem ráðgjöf um leyfilega veiði byggist á að veidd séu 20% stofnsins er næsta víst að aflaheimildir í þorski muni fara úr 260 þús. tonnum í um 200 þús. tonn, minnka um 60 þús. tonn, beiti Hafró ekki einhverjum reiknibrellum til að fegra myndina um árangur sinn í uppbyggingu fiskstofna.
Þar sem nú er bæði sölutregða og verðfall á fiskafurðum var gefin út reglugerð þar sem heimilt verður að færa 25% af kvóta núverandi fiskveiðiárs yfir á næsta ár. Ef allir nýta sér það verður einungis 15% sókn í þorsk á þessu fiskveiðiári.
Næsta ár, þegar geymslunýtingin bætist við, hækkar veiðihlutfallið í 30% og verður enn hærra ef aflaheimildir verða minnkaðar núna, eins og margt bendir til. Veiðihlutfallið fer jafnvel í 30%. Auk þess rýrnar fiskur við geymslu í sjó eins og dæmin sanna. Það verður úr vöndu að ráða fyrir Hafróið ef þessi staða kemur upp.
Þessi stefna um fast veiðihlutfall í síbreytilegu umhverfi, friðun smáfiskjar, hrygningarstopp og hvað þetta nú allt heitir hefur beðið algjört skipbrot. Þetta eru allir búnir að sjá nema ráðamenn þjóðarinnar, sem leyfa Hafró að dandalast áfram í vitleysunni afskiptalaust.
Síðasti skandallinn er stóra grásleppumálið, þar sem menn voru skikkaðir til að taka upp veiðarfæri í bullandi fiskgengd og sjómenn á vestanverðu landinu komust ekki einu sinni á sjó. Til grundvallar stofnmati var afli í botntroll í togararalli en grásleppa og rauðmagi eru uppsjávarfiskar og eru útbreiddir um allt N-Atlantshaf.
Þegar vegferðin undir þeirra stjórn hófst var lofað 500 þús. tonna stöðugum árlegum afla þorsks en nú fer hann líklega niður fyrir 200 þús. tonn. Í hverra þágu eru ráðamenn okkar að vinna, sem trúa blint á vísindamenn eða réttara sagt láta þá plata sig endalaust?"
Þjóðin er einhuga í að kalla eftir breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Af hverju má ekki byrja með að setja einhvern hluta kvótans á markað til að komast að því hvert raunverulegt verðmæti Samherjakrúnunnar er?
Af hverju erum við að halda þessum skrípaleik áfram með samspili sægreifanna, bankann og Hafró?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.6.2020 | 10:03
Talna Bensi
dr.Benedikt Jóhannesson fyrrum Viðreisnarforingi toppar sjálfan sig í ógáfulegum skrifum um stjórnmál í Morgunblaðinu í dag.
Þar fimbulfambar hann um fasisma Trumps Bandaríkjaforseta og líkir honum við Brennuvarga Biedermans.Hvaðan kemur honum öll þessi viska?
Það væri skelfilegt ef svona þröngsýni kæmist til áhrifa íslenskum stjórnmálum. Jafnvel arftakinn Þorgerður Katrín er ekki fær um svona fáránlegan málflutning.
Mér finnst Morgunblaðið setja niður með að birta greinar eftir þennan Benedikt sem ég kalla Talna Bensa í góðlátlegu gríni svo að ég tali ekki um greinar Leista-Björns Leví sem birtast þarna mér til óblandins ergelsis svo gersamlega sneyddar af öllu viti sem þær nú eru.
9.6.2020 | 09:53
Hvassahraunsbullið
í Degi B. og hans meðreiðarfólks hefur lengi gengið af fram af mér.Tveggja manna samtökin um Betri Byggð hafa reglubundið tekið undir bullið um að leggja niður Reykjavíkurflugvöll. Hagfræðin á bakvið málið er að selja landið undir flugvellinum og setja í tóman og gjaldþrota Borgarkassann en láta ríkið leggja fram 200 milljarða í nýjan flugvöll í Hvassahrauni.
Guðmundur Karl skrifar góða grein um þetta mál í Morgunblaðið í dag
Hann segir:
"Fyrrihluta nóvembermánaðar 2019 hafði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri áhyggjur af því að Reykjavíkurflugvöllur gæti aldrei næstu áratugina komið að gagni sem varaflugvöllur þegar óhjákvæmilegt er fyrir flugmenn sem fljúga mikið milli Evrópu og NorðurAmeríku að hætta við lendingar á Keflavíkurflugvelli vegna versnandi veðurskilyrða.
Þessum ósannindum borgarstjóra vísa íslenskir flugmenn sem vita betur til föðurhúsanna. Fyrir löngu hefði átt að vera búið að gera ítarlegar samanburðarmælingar á veðurfari í Vatnsmýri og Hvassahrauni til að fá skýr svör við spurningunni um hvort flugvöllur á þessum stað, norðan Reykjanesbrautar, verði um ókomin ár 100% öruggur fyrir allt innanlandsflugið og sjúkraflugið þegar hafðar eru í huga snöggar veðrabreytingar sem enginn sér fyrir, þvert á allar veðurspár.
Hingað til hafa Dagur B. og Hjálmar Sveinsson brugðist hinir verstu við þessum spurningum og svarað þeim með hroka og útúrsnúningi þegar þeir halda til streitu kröfunni um flugvallarlest milli Keflavíkur og Reykjavíkur, sem er óhugsandi án neðanjarðarganga, undir allt höfuðborgarsvæðið. Þar er áhættan fyrir svona samgöngumannvirki alltof mikil, vegna jarðskjálfta sem hafa síðustu árin fundist á Reykjavíkursvæðinu og Reykjanesskaganum.
Áður hafa komið fram efasemdir um að heppilegt sé að byggja flugvöll í Hvassahrauni, sem borgarstjóri vill strax fá í stað Reykjavíkurflugvallar án þess að stór hluti Reykjanesbrautar verði fyrst færður suður fyrir Hafnarfjörð.
Fyrr og síðar hafa áhyggjufullir jarðfræðingar ítrekað andstöðu sína gegn byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni og um leið varað við því að þetta svæði norðan Reykjanesbrautar sé alltof nálægt gos- og sprungusvæðum Reykjanesskagans. Hér senda þessir jarðfræðingar skýr skilaboð um að flugvöllur fyrir innanlands- og millilandaflugið eigi ekki heima í Hvassahrauni, sem þeir telja ekki 100% öruggt fyrir eldgosum, fari svo að þar opnist einn góðan veðurdag stórar sprungur, borgarbúum og Suðurnesjamönum til mikillar hrellingar.
Ég spyr:
Hvað kostar það íslenska hagkerfið marga milljarða króna ef náttúruhamfarir á höfuðborgasvæðinu og Reykjanesskaganum eyðileggja Grindavíkurveginn, Suðurstrandarveginn, Reykjanesbrautina og flugvöllinn, sem Dagur B. og Hjálmar Sveinsson vilja fljótlega ákveða í Hvassahrauni, án þess að kynna sér fyrst hvort tjónið á þessum samgöngumannvirkjum geti strax stórskaðað íslenska skattgreiðendur í þessu fámenna landi meira en eðlilegt þykir?
Hér forðast borgarstjóri eins og heitan eld óþægilegar spurningar fréttamanna, sem áður hafa spurt hvort þetta tjón verði nógu mikið til að íslenskir skattgreiðendur stórskaðist um ókomin ár með ófyrirséðum afleiðingum ef ríkissjóður fær skellinn.
Önnur spurning:
Skiptir það andstæðinga Reykjavíkurflugvallar engu máli ef þessi græðgi vinstriflokkanna í Reykjavík kostar vinnandi fjölskyldur um allt land heimilin sín, sem yrðu fórnarlömb siðspilltra óreiðumanna á höfuðborgarsvæðinu?
Fyrri athuganir á veðurfari í nágrenni við Hvassahraun benda til þess að skilyrði til flugs á þessu svæði séu mun lakari en í Vatnsmýri. Það segir ekkert að Dagur B. geti á sínum forsendum skammtað sjálfum sér fullt og ótakmarkað lögregluvald til að ákveða þennan flugvöll norðan Reykjanesbrautar án þess að íslenska ríkið hafi efni á því að standa undir kostnaðinum við þetta samgöngumannvirki.
Tímabært er að Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra geri hreint fyrir sínum dyrum og skipi strax nefnd til að flýta undirbúningi að byggingu nýrrar flugstöðvar fyrir innanlandsflugið í Vatnsmýri, sem gagnast öllum landsmönnum og verður miklu ódýrari en borgarlínuruglið, járnbrautarbullið og nýr flugvöllur í Hvassahrauni.
Á þessum gæluverkefnum borgarstjóra og Hjálmars Sveinssonar höfum við ekki ráð þegar það liggur ljóst fyrir að áætlaður heildarkostnaður er alltof hár og íslenskir skattgreiðendur munu aldrei ráða við hann. Talið er fullvíst að tekjur ríkisins af sölu ríkislandsins í Vatnsmýri muni aðeins nægja til að greiða fjórðung af framkvæmdakostnaði við byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni, sem er ekki í sjónmáli næstu 30 árin."
Gu'ðmundur Karl grípur á kjarna málsins. Veðurskilyrði í Hvassahrauni eru miklu verri en í Reykjavík. Í Reykjavík bíða margir ódýrir stækkunarmöguleikar á n´æuverandi flugvelli þó að Dagur B. sæki skipulega að því að eyðileggja alla þessa góðu kosti.
Hvaða maður er svo vitlaus að honum detti í hug að byggja flugvöll ofan á virku eldfjalli? Hvaða maður er svo vitlaus að hann sjái ekki í gegn um blekkingar og bull Dags B. Eggertssonar um flugmál sem hann hefur akkúrat ekki gripsvit á?
Vonandi tekst að stöðva þennan minnihluta-meirihluta vinstri manna í Reykjavík áður en meiri skaði verður skeður.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 3420880
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko