Bloggfærslur mánaðarins, október 2021
31.10.2021 | 13:05
Sæstrengur eða ekki?
nú hefur leiðtogi minn og samherji í mörgu Ólafur Ragnar Grímsson
opnað á umræðu um sæstreng.
Hér á eftir koma hugleiðingar um sæstrengi almennt sem ég hef hirt einhversstaðar upp:
"Í umræðunni undanfarið hefur ítrekað verið látið að því liggja að innleiðing svonefnds orkupakka þrjú feli það í sér að íslenska ríkið verði skuldbundið til þess að leyfa lagningu sæstrengs um flutning raforku til annars ríkis. Jafnframt er gefið í skyn að synjun orkupakkans jafngildi ákvörðun um að sæstrengur verði ekki lagður.
Orkupakkinn fjallar ekki um sæstreng
Hið rétta er að orkupakki þrjú fjallar ekki með neinum hætti um skyldu ríkjanna til að koma á eða leyfa samtengingu um flutning orku sín á milli. Þær yfirþjóðlegu heimildir ESA/ACER, sem lögfræðinga greinir vissulega á um hvort samræmist íslenskri stjórnskipun, ná þannig ótvírætt ekki til ákvarðana um hvort byggja skuli ný grunnvirki sem fela í sér tengingu orkumarkaða tveggja eða fleiri ríkja.
Það er því einungis við þær aðstæður að slík tenging liggur þegar fyrir að þessar heimildir verða virkar. Stjórnskipuleg álitamál lúta að þessum (yfirþjóðlegu) heimildum en ekki að hugsanlegri skyldu til að leyfa sæstreng. Um þetta tel ég t.d. að við Stefán Már Stefánsson og Friðrik Hirst séum sammála þótt annað hafi verið gefið í skyn um efni álitsgerðar þeirra.
Skylda samkvæmt almennum reglum EES?
Ef skylda hvílir á íslenska ríkinu til að heimila lagningu sæstrengs getur sú skylda ekki leitt af orkupakkanum. Koma þá til skoðunar almennar reglur EES-samningsins, einkum 11. og 12. gr. samningsins sem banna magntakmarkanir á inn- og útflutningi svo og allar ráðstafanir sem hafa samsvarandi áhrif.
Þetta eru reglur sem við höfum verið bundin af í röskan aldarfjórðum án þess að því hafi nokkur tíma verið hreyft, af eftirlitsstofnunum eða einkaaðilum, að í þeim fælist einhver skylda til að heimila lagningu sæstrengs og er hugmyndin um streng þó ekki ný af nálinni.
Ekkert aðildarríki ESB lítur svo á að í sambærilegum reglum sáttmála ESB felist téð skylda gagnvart þeim. Af reglum ESB sjálfs verður einnig dregin ályktun um að þetta atriði sé ótvírætt á forræði ríkjanna. Gildir þá einu þótt styrking orkunets Evrópu (þ.á m. með samtenglum milli ríkja) sé, almennt séð, í samræmi við orkustefnu ESB, sbr. sbr. einkum reglugerð nr. 347/2013/ESB um viðmiðunarreglur fyrir sameiginlega orkuinnviði Evrópu.
Fyrir skyldukenningunni, sem raunar virðist bundin við Ísland og ákveðna hluta Noregs, finnst heldur engin stoð í dómum Evrópudómstólsins, EFTA-dómstólsins eða gögnum frá Framkvæmdastjórn ESB. Þvert á móti hefur yfirmaður orkumála hjá framkvæmdastjórninni áréttað gagnvart Íslandi að ákvörðun um þetta atriði sé og verði hjá ríkinu. Við þetta bætist að öll EFTA-ríkin hafa lýst sömu afstöðu í sameiginlegu EES-nefndinni.
Skúli magnússon
Skylda myndi heyra til stórtíðinda
Mér er ekki kunnugt um neinn fræðimann á sviði evrópuréttar sem heldur því fram að í ofangreindum reglum EES-samningsins eða sambærilegum reglum ESB-réttar felist hugsanleg skylda aðildarríkjanna til að heimila lagningu samtengils, svo sem sæstrengs. Það myndi augljóslega sæta stórtíðindum ef einhver af stofnunum EES/ESB myndi snúa við blaðinu að þessu leyti.
Vafalaust myndu Íslendingar, og væntanlega einnig Norðmenn, íhuga vandlega sinn gang í EES-samstarfinu ef svo afar ólíklega færi að EFTA-dómstóllinn féllist á slíkan málflutning í máli sem ESA hefði höfðað gegn Íslandi eða vísað hefði verið til dómstólsins af hálfu íslenskra dómstóla. Um slíka aðstöðu og möguleika Íslands í því sambandi væri auðvitað hægt að skeggræða lengi. Hér verður látið nægja að benda á að slík niðurstaða myndi aldrei hafa bein eða milliliðalaus áhrif að íslenskum rétti.
Á forræði Alþingis
Samhliða innleiðingu orkupakkans stendur til að slá því föstu í orkulögum að ákvörðun um sæstreng verði ekki tekin án samþykkis Alþingis. Með innleiðingu orkupakkans væri því ekki mörkuð sú stefna af hálfu íslenskra stjórnvalda að heimila lagningu sæstrengs. Án tillits til þessarar breytingar er raunar erfitt að sjá fyrir sér að unnt sé að heimila lagningu sæstrengs án þess að hugað sé lagaumgjörð slíks verkefnis en það krefst einnig aðkomu Alþingis.
Spurningin um hvort ráðast eigi í lagningu sæstrengs, eða heimila slíka framkvæmd, er því mál sem Íslendingar eiga við sjálfa sig og eigin stjórnarstofnanir, einkum Alþingi, en ekki stofnanir í Evrópu.
Synjun við orkupakkanum engin trygging
Eins og staðan er í dag er líklegast að ákvörðun um lagningu sæstrengs hefði ekkert með EES-reglur gera enda er Bretland á leið úr ESB svo sem kunnugt er. Þær stjórnunarheimildir gagnvart samtengli milli ríkja sem orkupakkinn felur í sér eru því, þegar af þessum ástæðum, afar ólíklegar til að koma nokkur tíma til framkvæmda gagnvart íslenskum hagsmunum. Öllu líklegra er, ef til lagningar sæstrengs kæmi, að um slíkar heimildir yrði samið á grundvelli tvíhliða samnings við Bretland.
Hvað sem þessu líður ætti öllum að vera ljóst að ákvörðun um lagningu sæstrengs getur verið tekin hvort heldur orkupakki þrjú er innleiddur eða ekki og hvort heldur Bretland verður áfram í ESB eða ekki. Þetta virðist þó fara verulega á milli mála í umræðunni um orkupakkann.
Hver og einn á rétt á því að hafa sína skoðun á því hvort rétt sé að heimila lagningu sæstrengs um flutning raforku til og frá Íslandi svo og taka þátt í umræðu um það efni. Hver og einn á einnig rétt á því að hafa sína skoðun á því hvort orkupakki þrjú sé samþykktur eða innleiðingu hans synjað með beinum og óbeinum afleiðingum fyrir þátttöku Íslands í EES-samstarfinu sem sumir telja e.t.v hvort sem er að tímabært sé að endurskoða frá grunni.
Það er hins vegar villandi að láta að því liggja að synjun við innleiðingu orkupakka þrjú veiti einhverja tryggingu gagnvart ákvörðunum Alþingis um heimild til lagningar sæstrengs."
Ef ég reyni að hugsa kalt og yfirvegað, sem er mín veika hlið, um hvort lagning sæstrengs sé æskileg, þá finnst mér helst koma til álita:
1. Orkuverð til almennings hér er lægra en í ESB Við hvaða verð á að miða?
2. Enginn sæstrengur þýðir að öll orka okkar verður að notast innanlands. Er ávinningur af því ávallt meiri en útflutningur um sæstreng?
3.Sæstrengur þýðir mikla viðskiptasamninga sem geta bundið hendur okkar til langframa.
4.Innanlands nýting orkunnar sýnist kalla á fleiri störf en sæstrengur.
31.10.2021 | 09:41
Greiðum fyrir G20 !
Boris Johnson segir að leiðtogar G20 ríkjanna treysti sér ekki til að garantéra að halda hlýnuninni 2050 niðri.
Katrín Jakobsdóttir treystir sér til þess og ætlar að skattleggja okkur Íslendinga í því skyni.
Við tökum garantíið með Grétu Thunberg sem glennir sig í Glasgow.
Þeir sem að greiða fyrir gasútstreymið erum við en ekki G20.
30.10.2021 | 14:29
Gatar formaðurinn?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu.
Formaður Viðreisnar sem hefur 5 þingmenn á Alþingi er í viðtali hjá Pétri á útvarpi Sögu þar sem farið er vítt og breitt fyrir stjórnmálasviðið.
Það eru ekki mikil líkindi til að þessi örflokkur verði mikið spurður ráða á næsta kjörtímabili.
En ég lagði á mig að hlusta á viðtalið.
Ég er undrandi yfir því hversu stefnumál flokksin eru óskýr og þokukennd.
Stundum finnst mér hreinlega að flokkurinn skilji málin ekki sjálfur. Hvernig á ég þá sem óbreyttur kjósandi að skilja um hvað er verið að tala.
Það sem ég náði að festa mér í minni er þetta:
Hún er spurð útí stefnu flokks síns ef hann ætti aðild að ríkisstjórnarmyndun.
Formaðurinn sagðist styðja við að skattar hækkuðu ekki og ekki yrði ráðist í mikil ný útgjöld.Hann nefnir eins og í framhjáhlaupi að upptaka nýs gjaldmiðils myndi lækka vaxtakostnað landsmanna en er ekki látin skýra það frekar hvernig.
Hún gerir ekki ráð fyrir að koma Íslandi í ESB. Hún sér fram á vaxtahækkanir á seinni tíma kjörtímabilsins skv. spám bankanna.
Hún vill selja Íslandsbanka en að ríkið eigi áfram kjölfestuhlut í Landsbanka. Tilgang þessa útskýrir hún ekki nánar.
Hún vill styðja við samkomulag á vinnumarkaði til stöðugleika og fyrirsjáanleika..Hún vill auka hagvöxt. Hún styður því virkjanir í því skyni .
Ég heyrði kannski ekki ekki allt viðtalið nægilega vel en mér fannst hún ekki vera spurð að því sem mestu máli skipti, hvernig upptaka nýs gjaldmiðils myndi leiða til lækkaðs vaxtastigs almennings . Né heldur er hún spurð um það hvernig þessi gjaldmiðilsskipti myndu fara fram.
Á hvaða gengi til dæmis yrði sparifé landsmanna verða skipt í nýjan gjaldmiðil og hvernig yrðu vextir á sparifé og húsnæðisskuldir reiknaðir?
Viðreisn lofar ekki að lækka skatta né heldur að fara í stórfelldan niðurskurð. Þess í stað á upptaka nýs gjaldmiðils að auðvelda rekstur ríkissjóðs. En hvernig er ósagt látið.
Viðreisn gerir sér ljóst að hún getur ekki fengið inngöngu í Evrópusambandið í gegn en hún mun halda áfram að tala fyrir því.
Þessar spurningar eru samt svo þýðingarmiklar að nauðsynlegt sýnist að fá frekar útskýringar á þessum tæknilegu smáatriðum sem eru engin smámál í framkvæmd.
Það er varla viðunandi að stjórnmálamenn slái fram svona stefnumálum án þess að verða krafðir um nánari skýringar.
Án slíkra skýringa er hætt við að menn geti ekki mótað sér afstöðu í kosningum. Fallandi fylgi Viðreisnar bendir til þess að forystumönnum hafi ekki tekist til þessa að sannfæra kjósendur um skýra sýn flokksins á þessa stefnu
Formaðurinn er spurður um meirihlutasamstarf í Reykjavík í ljósi komandi kosninga í sveitarstjórnum.Hún tekur fram að Reykjavíkurborg hafi betra hlutfall eigna og skulda en önnur sveitarfélög þar sem Sjálfstæðismenn stjórna.
Þorgerður sagði að flokkurinn hefði valið fremur að starfa með núverandi meirihluta heldur en að ganga til liðs við margklofinn Sjálfstæðisflokk.
Það er ekki skortur á íbúðum í Reykjavík.Hún er ánægð með þennan meirihluta í heildina tekið en útilokar ekki aðra möguleika. En henni hugnast ekki að semja við margklofinn Sjálfstæðisflokk og er ánægð með framgöngu Pavels og Þórdísar Lóu.
Hún hvetur til Covid19 bólusetninga en ekki þvingaðra og dóttir sína 18 ára hvatti hún til þess..
Þegar maður lítur yfir viðtalið saknar maður þess að Viðreisn sem flokkur geti skýrt hvernig Ísland taki upp annan gjaldmiðil.
Hvernig fer það fram er ekki útskýrt heldur aðeins sett fram sem eitthvað stefnumál til síðari tíma.
Flokkurinn virðist skilja það að þetta mál komist hreinlega ekkert fram með fylgi kjósenda. Það taki því ekki að reyna að útskýra það nánar sem það er auðvitað illskilgreinanlegt ef menn hugsa málið til enda.
Á því gatar formaðurinn og flokkurinn allur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.10.2021 kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.10.2021 | 11:42
Loftslagsbullið
ríður húsum á Íslandi. Forsætisráðherrann virðist andsetinn af þessu sem forgangsmáli þjóðarinnar sem er mér óskiljanlegt þegar bróðurpartur af orkunotkun landsins sem hún á að leiða kemur frá brennslu jarðefnaeldsneytis.
Nú er talað um að banna innflutning á bílum sem brenna slíku eftir örfá ár.Það er ekki einu sinni staðfest að rafbílar séu kolefnisvænir. Hvað þá að íslendingar eru aðeins 350.000 á móti 15.000.000.000 Kínverjum sem ætla akkúrat ekkert að gera í útblæstri næstu árin. Við eigum að ganga á undan með góðu fordæmi segir hún.
Kolefnisjöfnun er eitthvað ógurlega göfugt.CO2 er ástæða fyrir því að mannkynið á grænni jörð og ræktar meira en það gerði.Auðnin verður arðgæf.
Það mannfjölgunin sem er skelfingin. Náist ekki tök á henni er allt annað hjómið eitt til lengri tíma.
Vegna trúarinnar hjá forsætisráðherra er ekki varist með tiltækum ráðum eins og aðrar þjóðir gera heldur aðeins gefið eftir eða örvast í vitleysunni.
Einar S. Hálfdánarson veltir þessu fyrir sér í Morgunblaðið dagsins:
"Flestir Íslendingar eiga auðvelt með að lesa færeysku, svo mjög er hún skyld íslensku.
Tummas Justinussen skrifaði fína grein um ESB-þjóðina Dani og bar saman við fiskveiðiþjóðina Færeyinga. Danir eiga fimmta stærsta kaupskipaflota í heimi. Sá floti er ekki talinn með þegar skuldbindingar Dana í loftslagsmálum eru reiknaðar.
Dönskum vöruflutningabílum er ekið um alla Evrópu. Akstur þeirra utan Danmerkur telst ekki með í losun Dana.
Flug með dönskum flugfélögum skilst mér á honum að sé líka undanskilið ef það er innan Evrópu. En Færeyingar búa við allt annars konar útreikning líkt og við Íslendingar.
Fiskveiðar Færeyinga
Fiskveiðar eru meginatvinnuvegur Færeyinga. Meira en 97% afurðanna er neytt utan Færeyja.
En gagnstætt danska kaupskipaflotanum reiknast losun færeyska fiskiskipaflotans Færeyjum á versta veg.
Er einhver lógík í þessu? Ekki segir Tummas og hann færir góð rök fyrir sínu máli.
Íslenski fiskiskipaflotinn lýtur sömu reglum. Væri nú ekki ráð að skrá íslensku togarana sem evrópsk kaupskip? Þá er Ísland búið að standa sína loftslagsplikt um langa framtíð.
Staða Íslands
Frammistaða Íslands í loftslagsmálum er í einu orði sagt frábær. Endurnýjanleg orka er 85% af orkunotkun Íslands. Ef aðrar þjóðir stæðu sig eins vel væri enginn loftslagsvandi, hvað þá -vá. Samt er mikill hljómgrunnur fyrir því að Ísland geri meira í loftslagsmálum en okkur ber skylda til. Til hvers?
Jú, til að mengunarsóðinn Kína geti t.d. gert enn verr. Er það verðugt markmið?
Eins og önnur lönd á Ísland að standa við skuldbindingar sínar. Höfum við í hyggju að gera betur eigum við að velja okkur markmið og verja til þess þeim fjármunum sem við getum til að ná sem mestum árangri. Ekki til að líta vel út. Enginn vafi leikur á að nýting fjár er margföld ef mengunarmarkmið með árangur að markmiði eru tekin fram yfir að gera betur en Parísarsamkomulagið.
Eigum við ekki öll að sættast á að rýra ekki lífskjör á Íslandi að nauðsynjalausu og minnka mengun jafn mikið og unnt er? Þetta tvennt fer auðveldlega saman.
Parísarsamkomulagið er ósanngjarnt
Ósanngirni Parísarsamkomulagsins í garð fiskveiðiþjóða á borð við Ísland og Færeyjar blasir við. Meðal annars þess vegna á alls ekki að fórna íslenskum hagsmunum og fórna lífskjörum okkar og barnabarna okkar til að gera meira en krafist er af okkur.
Næst þegar sest verður að samningaborðinu eigum við að gera tvær sanngjarnar kröfur: Að íslenski fiskiskipaflotinn fái sömu stöðu og kaupskipafloti ESB og að flugumferð til og frá Íslandi reiknist með sama hætti og flug innan Evrópusambandsins.
Á slíkar ráðstefnur má ekki senda menn með hugarfar Indriða Þorlákssonar; að Ísland hafi bara gott af því að borga fyrir aðra."
Við Íslendingar höfum svo til engin áhrif á útblástur heimsins.Það er aðallega Katrín Jakobsdóttir og Gréta Thunberg sem telja okkur vandamál í loftslagmálum heimsins.
Erum við tilbúnir að játast undir skattlagningu á lífsafkomu okkar þegar Kínaverjar og Indverjar fara sér að engu óðslega með sína milljarða fólks?
CO2 í andrúmsloftinu er ekki vandamál og það hefur verið miklu meira í jarðsögunni. Þar að auki stjórnum við ekki sjónum eða eldfjöllunum.
Loftslagsbullið er algerlega órökstudd trúarbrögð eins og ISLAM sem er einiungis til vandræða um heim allan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.10.2021 kl. 07:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
28.10.2021 | 08:39
Athyglisvert viðtal
Tengsl Íslands og Póllands hafa orðið æ nánari undanfarna áratugi, einkum vegna þess mikla fjölda Pólverja sem sest hafa að hér á landi um lengri eða skemmri tíma. Fyrir sitt leyti fengu Íslendingar kærkomna staðfestingu á þeim vináttuböndum í miðju bankahruninu, þegar Pólverjar voru auk Færeyinga einir þjóða til þess að rétta Íslandi fjárhagslega hjálparhönd þegar önnur nágrannaríki og bandamenn sneru við því baki og þjörmuðu raunar sum að því.
Síðustu vikur hefur pólska ríkið hins vegar átt í erjum við Evrópusambandið, sem á yfirborðinu snúast um valdmörk ríkisins og rétt borgaranna. Af hálfu pólskra stjórnvalda er þar hins vegar um fullveldi ríkisins að tefla, gildi pólsku stjórnarskrárinnar og eðli aðildar Póllands að Evrópusambandinu. Af því tilefni ræddi Morgunblaðið við sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszyñski.
Við Pólverjar erum miklir Evrópubúar og stuðningur við Evrópusambandsaðild er nánast hvergi jafnmikill eða um 85%. Það er meira en í Frakklandi eða Þýskalandi. En 78% Pólverja eru jafnframt þeirrar skoðunar að stjórnarskrá Póllands sé æðri Evrópurétti.
Pólland hefur notið góðs af E
vrópusambandinu á ótal sviðum. Það hefur gert okkur kleift að ná örum efnahagsframförum eftir að landið öðlaðist frelsi á ný eftir 1989 [þegar kalda stríðinu lauk], opnað nágrannaríkin fyrir okkur og opnað Pólland 40 milljóna manna markað fyrir fyrirtækjum frá öðrum Evrópusambandsríkjum. Og ekki aðeins frá Evrópusambandinu (ESB) heldur einnig öðrum ríkjum eins og Íslandi, því Íslendingar eiga t.d. fiskvinnslu í Póllandi.
Það hefur fært okkur frjálsa för fjármagns, vöru, þjónustu og fólks. Fyrir 1989 sögðum við að Pólverjar sem komust vestur yfir hefðu náð að flýja. Núna er það orðið alvanalegt að pólskt fólk fari til annarra landa að vinna í 5-10 ár, kannski lengur, og snúi svo aftur heim.
Pólskir Íslendingar
Það kemur líka til Íslands.
Já, Pólverjar eru langstærsti minnihlutahópur á Íslandi. Og það má finna Pólverja um allt land í alls konar störfum. Mikið í fiskvinnslu hringinn um landið og í sumum fiskiðjuverum eru nær einvörðungu Pólverjar að störfum. Margir hafa fest rætur, börnin þeirra eru í íslenskum skólum og tala íslensku, en við höfum sums staðar skipulagt pólska skóla á laugardögum til þess að kenna pólsku, pólska sögu o.s.frv.
Svo er líka gaman að nefna hitt, að í Póllandi eru nokkur þúsund ungra Pólverja sem hafa flutt þangað aftur með foreldrum sínum, en kunna íslensku og sumir nota hana áfram sín á milli, hafa tileinkað sér íslenska menningu og halda sambandi við vini á Íslandi. Margt af þessu unga fólki hefur svo komið aftur hingað til Íslands þegar það er orðið fullorðið. Það á sér þannig tvö heimalönd og löndin tvö eiga að rækta með sér þetta sérstaka samband.
Sjálfstæðið og Evrópa
Þið metið sjálfstæðið mikils.
Já, og einmitt þess vegna er þessi deila við Evrópusambandið svo erfið. Eftir allt það sem á undan er gengið í sögu landsins tökum við fullveldið ákaflega alvarlega. Við erum heilshugar í Evrópusambandinu og eftirlátum því og stofnunum þess margvísleg völd. En í fullveldinu felst einnig ýmist vald, sem við viljum ekki og getum ekki framselt.
Er Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, ekki að ögra ESB?
Nei. Þegar um er að ræða úrskurð stjórnlagadómstóls Póllands um hvar dómsvaldið liggur, þá hefur hann ekkert val um það.
En þá má ekki heldur gleyma því að aðrir stjórnlagadómstólar í Evrópu hafa áður komist að sams konar niðurstöðu. Það hefur þýski stjórnlagadómstólinn hvað eftir annað gert og sömuleiðis í Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Danmörku og svo framvegis.
Hvað er þá málið?
Þessi deila hófst með dómi stjórnlagadómstólsins um fóstureyðingar fyrir réttu ári. Á málinu geta menn haft ýmsar skoðanir, en í dómnum var vísað til afdráttarlausra stjórnarskrárákvæða um friðhelgi mannslífsins. Þá er deilan um hvenær mannslífið hefst og þá vandast í því, þar sem Pólland er að miklu leyti kaþólskt land og mistök að líta fram hjá því.
Gagnrýnendur benda á að stjórnarflokkurinn hafi skipað dómara sér hliðholla í réttinn.
Dómarar í hann eru valdir með nákvæmlega sama hætti og verið hefur allar götur frá 1989, en þingið velur þá. Þess vegna hafa þar oft verið dómarar sem taldir eru hinnar og þessarar skoðunar, en þeir dæma eftir stjórnarskránni og um það er ekki deilt.
Hins vegar er deilt um það hvort í Póllandi sé það pólskt dómsvald og pólsk stjórnarskrá sem ráði, eða hvort Evrópurétturinn sé þeim æðri. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík mál koma fyrir réttinn, það gerðist líka 2005 og aftur 2010 þegar allt aðrir dómarar skipuðu réttinn, en niðurstaða þeirra var hin sama um gildi stjórnarskrárinnar.
Hver er þá munurinn?
Munurinn er sá að nú vill Evrópusambandið setja sig ofar fullveldi Póllands og á það er ekki hægt að fallast.
Ekki á förum úr ESB
Þarna eru fleiri mál sem hafa valdið úlfúð í Brussel og víðar, t.d. um réttindi kynsegin fólks, tjáningarfrelsi og fleira. Hefur Pólland anað út í menningarstríð við önnur lönd ESB?
Mögulega, en í Brussel verða menn samt sem áður að sætta sig við að skoðanir Pólverja séu eins og þær eru. Þær kunna að breytast með tímanum, en hér erum við samt, hér og nú.
Þið eruð ekkert á förum þegar 85% styðja aðild?
Nei, alls ekki. Við eigum heima í Evrópusambandinu og þar viljum við vera.
Sem skerpir skilning á skilyrðum Evrópusambands aðildar sem forkólfar fullveldis framsalsins á Íslandi virðast ekki skilja. Þýlyndi þeirra er svo algert að þeir sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Krefjast algerrar tilbeiðslu.
Það er þjóðernisvitundin sem verður ekki upprætt. Það eru 27 fánar sem blakta í Evrópu Samvinna í atvinnumálum og verslun er allt annað og getur alveg þrifist án þess að ríkin verði Bandaríki Evrópu með einn fána einn her og alríkislög.Það skilur ekki Samfylkingin né Viðreisn. En svona samband verður aldrei án hnökra vegna þjóðarstoltsins á hverjum stað.
Fólkið segir hingað en ekki lengra.
27.10.2021 | 11:43
Plentí skæs.
hefði manni einhvern tímann þótt skrítin latína í kosningabaráttu hjá íhaldinu. Sífelld dauðans angist við að kosningasjóður væri tómur en margt ógert sem réði kannski úrslitum. Betlandi styrki út um allt til að reyna að heilla kjósendur.Skuldir eftir kosningar.
Ekki í Reykjavík.
Hér í Kópavogi dettur inn litprentaður bæklingur 64 síður um hversu gott sé að búa í Reykjavík og hversu mikið sé byggt þar af húsnæði. Hvert hverfið öðru glæsilegra þó bílastæðalaus séu. Ætli þessu sé ekki dreift víðar en hér?
Ef ég ætti að giska á útgáfukostnað af svona glæsilegu riti myndi ég nefna 2-300 milljónir í það minnsta.Ekki einu sinni einn braggi. Maður hefði verið lengi að safna fyrir því í gamaldags kosningabaráttu. Það er auðveldara að fara bara neð lúkuna í bæjarkassann og ausa.
Þetta rit sem er ein lofgjörð um starfsemi meirihluta Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar með myndum af Degi Bergþórusyni út um allt,er kyrfilega merkt útgefanda sem er Reykjavíkurborg. Allstaðar er Borgarlínan svífandi yfir vötnunum, sem skýrir bílastæðafækkun og að tími mislægra gatanamóta sé liðinn. Ekki er einu sinni minnst á að aðrar tillögur hafi fram komið í Borgarskipulagi Pavels og Hjálmars.
Nú getum við öll flutt til Reykjavíkur aftur eftir landflóttann frá skipulega lóðaskortinum hjá íhaldinu í gamla daga.
Og það er enn hálft ár til kosninga. Við eigum væntanlega eftir að sjá margt glæsilegt frá meirihlutanum fyrir kjördag þegar menn hafa plentí skæs í Borgarkassanum svo til skuldlausum.
25.10.2021 | 14:26
Xi er kjaftfor
í meira lagi. Hann hótar kjarnorkustríði við USA ef þeir ætla að skipta sér af vörnum Formósu Chang Kai Chek. Kínverjar vilja endilega komast yfir eyjuna aftur og sjálfsagt er þar margt girnilegt til að hramsa fyrir þjófa og bófa.
Hvað fólkið þar vill heyrist ekki mikið?
Frekar en í Hong Kong?
Xi hótar USA kjarnorkustríði við ef þeir ætla að verja Taívan.
Þurfa þeir í Peking að ekki spá í hvor þjóðin gæti drepið hærri prósentu af þjóð hins, USA eða Kína, með nýjustu græjum? Eru ekki fleiri á flatareiningu í Kína?
Stæði slíkur útreikningur fyrir Xi og hans klíku?
Eða hugsar hann eins og Hitler að Þýskaland væri einskis virði án sín og megi því tortímast?
Einar Björn Bjarnason veltir þessu fyrir sér:
" Mér virðist ef maður ber saman nýlegar tilraunir Kína - við tækni-tilraunir Bandaríkjanna. Að Bandaríkin séu enn með umtalsvert geim-tækni-forskot á Kína.
Tilrauna-flug Kína nýlega, virðist hafa verið á einhvers konar - ómannaðri geimskutlu.
Að hafa hana ómannaða, hafi gert Kína fært að -- hanna inn styrk, svo unnt sé að taka óvenju þröngar beygjur á MAC 5 - skv. því er virðist hafa sést á radar.
--Það sé líklega útilokað að það faratæki geti verið mannað, vegna þess hve miðflótta afl mundi verða mikið innan-borðs í slíku faratæki, langt umfram þ.s. mannlegur líkami geti líklega þolað.
Á sama tíma séu Bandaríkin líklega nálægt því að taka í notkun ofurhraðskreiða Supersonic Ramjet flaug eða SRAM flaug, er væri ný kynslóð stýriflauga Bandaríkjahers.
Er hefðu færni til flugs í lofthjúp á bilinu MAC 5 - MAC 10.
Ég hugsa að slík stýriflaug sé mun hættulegra vopn.
En lítil geimskutla sem einungis geti svifið í átt að skotmarki."
Svo er stórmennið sléttgreidda í Norður Kóreu að blanda sér í svona mál sem maður skilur nú varla til hvers þegar landið sveltur og er efnahagslega eins og kerti sem hægt er að slökkva á með smáblæstri
Bandaríkin eru máttugri en maður gerir sér ljóst daglega til að framleiða og finna upp allt mögulegt. En Xi er kjaftfor í besta lagi.
Liggur ekki von manankyns í því að Xi sé meiri í kjaftinum en tökkunum. Og hann virðist langt frá því að vera alvitlaus ef maður horfir til þess hvernig hann getur haft algera stjórn á landi sínu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.10.2021 | 13:52
Vetnisdraumurinn
er það sem marga dreymir um.
Kílógramm af vetni inniheldur 2.6 sinnum orku eins kílós af orku þotueldsneytis, sem er kerosene eða líklega steinolía.
Hinsvegar er vetni rúmmálsfrekasta lofttegund alheimsins og þar sem lítrinn af því við stofuhita og þrýsting inniheldur aðeins einn þrjúþúsundasta hluta af orku steinolíunnar. Til þes að hækka orkuinnihaldið þarf að þrýsta því saman og kæla niður í -253°C sem er ekkert smá fyrirtæki.
Svo er eldhættan ef við minnumst Hindenburg loftfarsins.
Að auki er of dýrt að vinna vetni með rafgreiningu.
Það þarf að finnast ný og einföld aðferð til að vinna vetni svo að draumurinn geti ræst.
24.10.2021 | 13:46
Hlusta á Björn Leví
í fyrsta sinn þegar verið er að ræða sölu á Mílu til fransks sjóðs.
Er eitthvað verið að efla þjóðarhag með sölunni? Er ekki bara verið að setja peninga í vasa einkaaðila sem gagnast ekki almenningi hið minnsta.
Ættu ekki byggðasjónarmið að koma til álita í innviðagerð eins og fjarskipta?
Það var að var búið að einkavina-og einokunarvæða Símann og Míluna fyrir löngu. Hvað varðar mig um söluverðið?
Villum setur traust sitt á regluverk og lög.Að það sé óhætt að selja þetta.
Ég hlustaði á Björn Leví og raunar Helgu Völu líka og er ekki eins viss.
23.10.2021 | 15:33
Samhæfing Orkufyrirtækja
um að gefa almenningi helst ekki upplýsingar um verðskrár.
Prófið að fara á Google og leita að orkuverði í Englandi, Þýzkalandi, Íslandi eða Frakklandi.
Maður fær sem svör bara kjaftæði og málskrúð um orku en hvergi neina tölu. 1kwh=XEur/$, með eða án skatts, dreifingar og annarra gjalda.
Mjög furðulegt hvað Orkufyrirtækin eru samtaka um að gefa ekki upplýsingar með svona algerri samhæfingu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko