Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Verðbólgutíðindi

berast nú víða að. 3.2 % í Bretlandi, yfir 5 % í Bandaríkjunum.

Þorsteinn Pálsson, Ole Bieltvedt og ámóta hagspekingar  láta að því liggja að upptaka Evru  sé trygging fyrir stöðugleika.Heilir stjórnmálaflokkar, Viðreisn og Samfylking, syngja viðlagið undir eins og þetta sé stórisannleikur.

En halda menn að almenningur hér muni upplifa gengisstyrkingar og lækkun vöruverðs eins og hér hefur orðið ef menn leggja trúnað á jarmið í þessu liði um hina ónýtu íslensku krónu?

Hvort trúa menn Ragnari Önundarsyni í grein hans hér að framan betur eða þessu liði?

Verðbólgutíðindi berast ekki bara úr Seðlabanka Íslands. 

 


Góð grein Ingibjargar

Gísladóttur um Loftslagsmálin.

"Var júlímánuður 2021 sá hlýjasti frá upphafi mælinga? Getur það verið? Allir helstu fjölmiðlar heims virtust sammála þeirri niðurstöðu IPCC en af því að við erum á sólarskeiði 25 og sérfræðingar NASA og fleiri höfðu spáð óvenju lítilli útgeislan sólar næstu tíu árin þá leyfi ég mér að efast.

Gervihnattastöðin í Huntsville, Alabama hefur mælt innrauða geislun frá jörðinni frá 1979 og nær að mæla næstum því alla jörðina, fyrir utan svæði næst pólunum, öfugt við hefðbundna mæla sem finnast helst á þéttbýlissvæðum. Það var vegna gagna frá stöðinni sem menn hættu að tala um hlýnun jarðar og fóru að tala um loftslagsbreytingar í staðinn því mælingar stöðvarinnar sýndu „pásu“ frá 1998-2012 og viti menn, á þeim tiltölulega stutta tíma er þær mælingar hafa staðið yfir hafa margir júlímánuðir mælst heitari.

Sjá má nýjustu tölur hverju sinni (latest global temps) hjá Roy Spencer.

Með reglulegu millibili gera fjölmiðlar heims (sem flestir eru í eigu auðkýfinga) átak í því að sannfæra okkur um nauðsyn þess að grípa til róttækra aðgerða svo veröld okkar líði ekki undir lok sakir hamfarahlýnunar af mannavöldum. Það er fólk sem hefur takmarkaða þekkingu á loftslagsvísindum sem fræðir okkur. Fyrst varð það áberandi með mynd Als Gores, An Inconvenient Truth (2006), og gengu stórstjörnur á borð við Leonardo DiCaprio til liðs við hann. Graf er sýndi að hlýnun jarðar og CO2- magn í lofthjúpnum færi saman síðustu 1.000 árin var kynnt sem fullgild sönnun.

Ég samþykkti þessar hugmyndir um hlýnun jarðar af mannavöldum og las bækur um efnið, m.a. bók James Hansens, The Storms of My Grandchildren, en það var hann sem vitnaði fyrstur vísindamanna fyrir Bandaríkjaþingi og kom þar með lífi í loftslagsbaráttuna. Sama hvað ég las vildi dæmið ekki ganga upp. Samkvæmt James fylgdi hækkun CO2 hækkun á lofthita gegnum jarðsöguna en ekki öfugt og á grafið sem Al Gore sýndi vantaði bæði Landnámshlýskeiðið okkar og Litlu ísöldina sem gerði landið okkar nær óbyggilegt.

Ég las mér til um hvernig hokkíkylfugrafið hans Michaels Manns var tilkomið og sá að það byggðist á gögnum um trjávöxt, sem eru ekki örugg fræði, því þurrkar hafa áhrif á trjávöxt rétt eins og hitastig. Enn þann dag í dag hefur Mann ekki fengist til að veita fræðimönnum aðgang að rannsóknum sínum og í Climategate-hneykslinu kom í ljós að loftslagsvísindamenn eyddu frekar gögnum sínum en að veita aðgang að þeim. Menn áttu bara að trúa á þá og trúa þeim.

Ég las mér einnig til um IPCC og komst að því að Landnámshlýskeiðið og Litla ísöldin voru í skýrslu þess 1990 og talin ná yfir allan heiminn. „Vísindamenn“ IPCC leggja ekki fram neinar sannanir, bara mismunandi spár, sem fjölmiðlar semja hræðsluáróður upp úr, og að baki þessu öllu standa peningamenn sem ætla sér að hagnast á grænu byltingunni, Kyoto-aflátssölunni og sektum vegna Parísarsamkomulagsins auk hugsjónamanna sem vilja koma kapítalismanum á kné og dreifa veraldlegum auði jafnar um heiminn.

Já, en þetta er á vegum SÞ segja sumir en Mannréttindaráðið (þar sem helstu mannréttindabrjótarnir ráða ríkjum) og WHO er það líka. Þar er við stjórnvölinn maður sem þaggaði niður kólerufaraldra í landi sínu og vildi gera þrjótinn Mugabe að góðgerðarsendiherra.

Vísindamenn eru ekki allir sammála um að hlýnun jarðar frá Litlu ísöld hafi eitthvað með CO2 að gera en það er reynt að þagga niður í þeim og gera þá tortryggilega sem leyfa sér að efast, rétt eins og í þeim sem leyfa sér að efast um að bólusetningar og örvunarskammtar séu eina leiðin til að fást við Kóvid 19. Jafnvel dr. Satoshi Ömura fær ekki að tjá sig um lyfið sem hann fékk Nóbelsverðlaunin fyrir að þróa. Okkur er sagt að niðurstaðan sé komin og hún sé endanleg. Slík hugsun er ekki vísindaleg, heldur í anda kaþólsku kirkjunnar á miðöldum – skylt er að trúa á kenningar sem ekki má vefengja. Hvert er annars eðlilegt hitastig jarðarinnar?

Vita menn það nokkuð? Hefði ekki haldið áfram að hlýna eftir 1850 án viðbætts CO2? Er það öruggt að við séum ekki að styrkja auðugustu aðila heimsins vegna misskilinnar ábyrgðar á hækkuðum gildum CO2, sem reyndar valda því að allur gróður vex betur og jörðin grænkar, sem sjá má af gervitunglamyndum, og plöntur verða ekki eins viðkvæmar fyrir þurrki því þær missa ekki eins mikinn raka út um loftaugun í CO2-ríku umhverfi? James Hansen hafði áhyggjur af því að með stöðugt auknu magni CO2 myndi jörðin ofhitna og verða eins og Venus en ýmsir sérfræðingar mótmæla því; áhrif CO2 til hlýnunar séu lógaritmísks eðlis.

Nefna má William Happer prófessor við Princeton og með því að gúgla The Logarithmic Effect of Carbon Dioxide má sjá skýringamyndir á www.wattsupwiththat.com. Ekki hefur þó tekist að þagga niður í öllum.

Nýlega birtist í raajournal grein tuttugu og þriggja vísindamanna, þar á meðal Connolly-feðganna og Willies Soons, þar sem þeir veltu fyrir sér áhrifum sólarinnar á hitastig á norðurhveli og báru saman niðurstöður mismunandi rannsóknaaðferða. Þeir líta ekki svo á að málið sé útkljáð."

Sífellt fjölgar í athugunum hugsandi fólks sem vill ekki gleypa fullyrðingar loftslagskirkjunnar hráar. Enn frekar mega skattgreiðendur á Íslandi því fyrir sér til hvers þeir séu að þrengja mittisólar sínar þegar Kínverjar með alla sína milljarða ætla ekkert að gera um næstu ár til að draga úr sinni mengun.

Það er vel að hugsandi fólki eins og Ingibjörgu Gísladóttur sé ofboðið  gagnrýnileysi kolefniskirkjunnar.

 


Loftslagsmál

Á Vesturlöndum syngur samróma kór undir stjórn Grétu Thunbeg og ámóta vísindamanna unm loftslagsvána.

Forsætisráðherra Íslands virðist andsetin af niðurstöðu hinna 40.000 fífla sem komu saman í París til að að tala hvert annað í æsing út af því að útblástur á CO2 sé að orsaka hamfarahlýnun um alla jörð,. Ekkert er hlustað á vísindamenn sem segja að sannanir skorti fyrir fullyrðingunum eins og Prof.Lintzen og fleiri samherja hans.

Ekkert er gert með þá staðreynd að 84 % af orkunotkun mannkyns kemur frá jarðefnaeldsneyti og mest af því fer fram utan lögsögu Íslands.

Friðrik Daníelsson og Sigurbjörn Svavarsson rita skynsamlega um þessi mál í Morgunblað dagsins. Þar segja þeir:

"Maður gengur nú undir manns hönd hjá stjórnmálaflokkunum að gefa loforð í loftslagsmálum. Mörgu ægir þar saman en aðallega er rætt um aðgerðir til að sporna við notkun eldsneytis vegna þess að það gefur af sér koltvísýring sem sagt er að valdi hlýnun loftslags. Við þetta er ýmislegt að athuga. Í fyrsta lagi hefur reynst torvelt að finna vísindalega sannað samband koltvísýrings og loftslags þó vitað sé að hann auki gróðurvöxt og bæti þannig veður staðbundið. Sagt er að koltvísýringur af mannavöldum valdi hlýnun um 1 eða 1,5 gráður á öldinni, sem er ágiskun en ekki vísindaleg niðurstaða. Klifað er á að veðurlag sé hamfarakenndara en ekkert bendir til þess að það sé óvenjulegt. Frumkvæði og markmið í „loftslagsmálum“ eru ekki frá íslenskum stjórnmálamönnum heldur frá ESB.

Sérstaða Íslands

Ísland hefur sérstöðu á heimsvísu, um 85% af frumorkunotkun Íslands eru úr vatnsföllum og jarðvarma en einungis 20% orkunotkunar ESB eru „græn“ orka. Það voru dýrkeypt mistök að láta aðgerðir í loftslagsmálum falla undir ESB, á því var engin þörf samkvæmt þeim loforðum sem Ísland hafði gefið á alþjóðavettvangi. Kyoto- eða Parísarsamkomulagið kalla ekki á að ESB stjórni orkunotkun á Íslandi, Íslendingar geta sjálfir stjórnað henni. Augljós leið til þess að binda koltvísýring er ræktun. Það er nauðsynlegt að almenningur átti sig á að megnið af útblæstri lofttegunda kemur frá stórþjóðum (Kína, Indlandi o.fl.) en þær hafa ekki lofað miklum niðurskurði á næstunni. Hlutdeild Íslands er agnarsmá þó vissir stjórnmálamenn og fjölmiðlar hér á landi segi að Íslendingar mengi mest. Ef ESB tekst niðurskurðurinn verða það ESB/EES-lönd sem taka á sig efnahagslega hrörnun. Bandaríkin eru reyndar á sömu leið eftir síðustu stjórnarskipti þó ekki sé líklegt að það vari lengi.

Ísland: Kaldasta tímabil síðustu 10.000 ára

Vísindarannsóknir á loftslagi langt aftur í tímann sýna að loftslagssveiflur hafa verið óháðar koltvísýringnum. Flestar fréttir sem við fáum af hlýnun eru erlendar og er erfitt að staðreyna. En svo vill til að Ísland liggur á mörkum kuldabeltisins í miðju úthafi þannig að loftslagsbreytingar sjást vel hér. Virtir íslenskir vísindamenn hafa rannsakað loftslagsbreytingar á Íslandi, þeir hafa m.a. sýnt fram á að loftslagið nú á dögum er 3-4°C kaldara en það var að jafnaði síðustu 10.000 árin en kólnaði síðustu aldir og varð kaldast á vesturfaratímanum síðla á 19. öld (Áslaug Geirsdóttir et al. 2020). Hitamælingar á Íslandi, með þeim fáu mælum sem geta sýnt loftslagsbreytingar, þ.e. hafa verið í óbreyttu umhverfi í öld eða meir, sýna að hitinn við meginsvæði Norður-Atlantshafsins, á suðurströndinni, náði hámarki um 1940. Hæsti hitinn á landinu mældist 1939. Mælingar Hafró á sjávarhita við strönd sýna að hitastigið hefur farið lækkandi frá 2003. Hafísinn hefur verið í vexti síðustu 9 árin og minna talað um „opnun siglingaleiða“ en áður.

Græn atvinnusköpun

Hver stjórnmálaflokkurinn á fætur öðrum lofar nú „grænni uppbyggingu“ eða „grænni nýsköpun“. Þessi loforð eru mjög varasöm, byggð á vanþekkingu bæði á framkvæmd og afleiðingum. Stór hluti af því sem kallað er grænt er umhverfisspillandi og yrði baggi á efnahag landsmanna. Hér er hafin niðurdæling koltvísýrings í berg og lofað er hundraða milljarða iðnaði og innflutningi mengunar. Almannasjóðir verða að borga. Ein nýsköpunin er „rafeldsneyti“, þ.e. eldsneyti sem framleitt er með rafmagni, en framleiðsla þess yrði gífurleg eyðsla raforku og fjármuna, Aðallega er átt við vetni, hættulega og orkulitla gastegund sem kostar allt að 10- sinnum meira á orkueiningu en aðrar brennslugastegundir. Einnig er sagt að það sé „grænt“ að framleiða eldsneyti úr því, sem dæmi tréspíra úr vetni og koltvísýring sem skilar ekki helmingi af raforkunni sem fer í framleiðslu vetnisins hvað þá öðrum kostnaði – ósjálfbær starfsemi.

Græn orka

Til þess að útvega raforku fyrir þessa ósjálfbæru framleiðslu eru svo hugmyndir ESB/EES-fyrirtækja að reisa hér stóra vindmyllugarða sem hafa hlotið lof ráðherra og sveitarstjórnarmanna þó þeir hafi sýnt sig að vera eyðilegging á landi almennings en styrktir með peningum almennings. Þær spilla umhverfi og fuglalífi, gefa stopult, óöruggt og dýrt rafmagn á kostnað almannasjóða eins og reynsla nágrannalandanna sýnir. Þær eru dýrar, viðhaldsfrekar, endingarlitlar og hættulegar starfsmönnum sínum og nágrönnum og lítið endurnýtanlegar. Enn ein „græn“ orkuskipti eru að láta rafhlöður flytja rafmagn í tæki sem annars ganga örugglega og hagkvæmar á eldsneyti. Framleiðsla og eyðing rafhlaðna er mjög umhverfisspillandi, þær eru mjög þungar og orkulitlar, innihalda minna en 2% (1/50) af orkumagni eldsneytis. Þær eru óhandhægar og hættulegar við slys.

Ástæða loftslagsmála ESB

ESB-lönd eiga ekki miklar auðlindir af jarðefnaeldsneyti. Því er eðlilegt að þau reyni að verða minna háð því og minnka notkun þess. Staða Íslands er allt önnur. Ísland notar lítið af jarðefnaeldsneyti og hefur lítil áhrif á framboðið sem flest bendir til að verði nægilegt um langa framtíð."

 

Það er eiginlega ergilegt að þessar raddir skuli ekki heyrast á vettvangi stjórnmálaflokka sem eru líklegir til að hafa áhrif eftir kosningar og við myndun ríkisstjórna heldur einskorðast við jaðarflokka sem eru líklegri en ekki til algers áhrifaleysis á opinberum vettvangi eftir kosningar.

Það skortir sárgrætilega á það að innan starfandi stjórnmálaflokka láti slíkir málsvarar í sér heyra en að trúboðahópar eins og VG einoki ekki orðræðurnar og stórkarlalegar  fjárveitingar til hverskyns mýrarljósa sem engin áhrifa hafa á heildar búskap heimsins í CO2 hvað þá methanmengunar.

Bara Fagradalseldgosið er búið að losa margfaldan útblástur íslenskrar umferðar til margar ára á þeim stutta tíma sem það hefur staðið. Og á sama tíma eru birtar stórfréttir um það að niðurdæling á 4000 tonnum af CO2 sé í bígerð á Hellisheiði sem breyti því í berg. Til viðbótar eru ráðgerðir stórkostlegar brennslur á fjármunum við Straumsvík þar sem svipaðar aðgerðir eru í undirbúningi.

Loftslagsmál eru því mður aðeins Pótemkíntjöld um trúaratriði sem enga vísindalega sönnun hafa að baki sér.


Frjálshyggja og fullveldi

er nafn á grein eftir Ragnar Önundarson bankastjóra í Morgunblaði dagsins.

Satt að segja er langt síðan ég hef lesið eins skýrt yfirlit um gengismál Íslands og þennan pistil.

Ég vildi óska að þeir sem fjálglegast tala um ónýtu krónuna okkar og nauðsyn þess að tilheyra  öðru efnahagssvæði myndi lesa þetta.

Líklega yrði það  of mikil tilætlunarsemi að óska þess að þeir reyndu að setja sig inn í röksemdir Ragnars sem mér finnst að höfði til mín í einfaldleika sínum samanborðið við vandamál evrusvæðisins sem eru sýnu meiri en dollarans.

En Ragnar skrifar svo:

"Hin svart-hvíta umræða einkennist af því að þeir sem eru ófróðir eru vissir í sinni sök, gallharðir, en þeir sem hafa þekkingu og sjá alla myndina eru hikandi, því fæst mál samfélags eru einföld. Samfylkingin vill aðild að ESB og evru. Viðreisn vill byrja á að tengja krónuna við evru. Sú hugmynd er háð þeim annmarka að jafn auðvelt er að afnema tenginguna og að koma henni á. Það yrði gert næst þegar þjóðin skiptir milli sín meiri tekjum en þjóðartekjurnar leyfa eftir tenginguna.

Einhæfni og óstöðugleiki okkar efnahagslífs hindrar að við notum gjaldmiðil sem ekki tekur neitt tillit til þessa. Átökin um tekjuskiptinguna eru viðvarandi, þeim linnir ekki við upptöku evru. Engri athygli er beint að þeirri staðreynd að markaðsbúskapur, þar sem nánast engir virkir markaðir eru, er háður miklum annmörkum. Hinn kosturinn, áætlanabúskapur, var reyndur í stórum hlutum veraldarinnar, með miklum hörmungum fyrir fólk. Við verðum því að greina og takast á við annmarka þá sem smæð okkar samfélags, dreifbýli og fjarlægð frá virkum mörkuðum valda.

Dollar og evra

Dollarinn er frá 1775, jafn gamall Bandaríkjunum og iðnbyltingunni. Þróun atvinnulífsins varð skv. landkostum, með hliðsjón af dollarnum sem gefinni stærð. Þetta hefur staðið í 250 ár og er allt annar og gjörólíkur ferill en þegar evran var tekin upp. Undanfari hennar var nefndur ERM, evrópska myntsamstarfið, kennt við Maastricht, sem hófst árið 1979 og var til aðlögunar að upptöku evru. Tveir áratugir voru gefnir til að koma á evrópskri mynt hliðstæðri dollarnum.

Þrátt fyrir að ríkin hafi öll verið með fjölbreyttara atvinnulíf en okkar, varð aðlögunin sársaukafull. Stóru iðnríkin í miðjunni högnuðust á sölu alls konar iðnvarnings og þess sem var „munaðarvara“ til jaðarríkjanna.

Stórbankar þeirra lánuðu fyrir kaupunum. Þessi ráðstöfun verðmæta var víða ómarkviss, munaðarvaran entist stutt og löndin urðu skuldug og víða voru veittar ríkisábyrgðir.

Þetta eru sömu árin og við fórum flatt fyrir hrun í gleðilátum lágra vaxta.

Til varð nýr „grískur harmleikur“ sem allir muna og sú þjóð þjáist enn undan.

Gríðarleg eignatilfærsla varð frá jaðarríkjunum til miðríkja ESB. Við náðum að koma okkur undan með neyðarlögunum. Bönkum höfðu ekki verið veittar ríkisábyrgðir og við vorum ekki í ESB.

Óskiljanlegt er að nokkrum manni skuli detta í hug að farsælt sé að Ísland „taki upp evru“ sísvona „eins og að drekka vatn“.

Forsendubrestur

Til grundvallar Maastrichtsamkomulaginu lá sú tröllatrú að lögmál markaðarins tryggi að hagkerfin rétti sig sjálfkrafa af og að aldrei eigi að taka fram fyrir hendurnar á þeim.

Vesturlönd voru heilluð af svonefndri nýfrjálshyggju. Menn álitu nóg að stofna sérstakan sameiginlegan seðlabanka Evrópu og setja strangar reglur um ríkisfjármál, en skeyttu ekkert um að fjórfrelsið olli hraðri tilfærslu á vinnuafli og verðmætum, sem fólu í sér röskun á stöðu og högum fólks, m.ö.o. því sem við nefnum velferð. Markaðirnir runnu saman.

„Veraldarvæðingin“ hófst, mikilvæg framleiðsla fluttist frá gamla heiminum til nýmarkaðslanda. Í þessu ferli varð hið sígilda markmið hagstjórnar undir, sem er að hámarka nýtingu framleiðslutækjanna, halda atvinnuvegunum gangandi, en sveigjanlegt gengi var helsta tækið til þess.

Við sjáum hvað mundi gerast hér, ef við gengjum þessari hagstjórn á hönd með aðild að ESB og upptöku evru.

Ísland yrði uppspretta hráefna og orku til útflutnings.

Atvinnutækifæri tengd orku landsins mundu fylgja.

Gengi evru tæki ekkert tillit til einhæfni og óstöðugleika okkar atvinnulífs.

Fullveldið

Ef við stjórnum efnahagsmálunum ekki sjálf, tryggjum ekki fjárhagslegt sjálfstæði okkar og búum ungu fólki ekki störf hér heima, höfum við gefið eftir mikilvægasta þátt fullveldisins.

Þjóð er ekki sjálfstæð og fullvalda nema vera fjárhagslega sjálfstæð. Eftir sæti stjórn staðbundinna mála innan ramma leikreglna sem við ráðum engu um. Málið snýst ekki eingöngu um sveigjanlegt gengi gjaldmiðilsins heldur líka möguleikann til að nota ríkisfjármál til hagstjórnar.

Glænýtt dæmi um gildi þess er vel heppnuð viðbrögð stjórnvalda við áfallinu vegna kóvíd. Við erum komin farsællega áleiðis gegnum næstalvarlegasta samdráttarskeið síðari tíma, einmitt með því að skuldsetja og reka ríkissjóð með miklum halla, sem við vitum að gengur til baka.

Land tækifæranna

Það er við hæfi að nefna Ísland „land tækifæranna“. Þess vegna er landið með marga erlenda íbúa, sem leita hingað eftir betra lífi. Það búa ekki allir vel að sínum.

Vitað er að erlendu starfsmennirnir búa margir við þröngan kost, á lægstu launum. Þeir keppa við þá sem hér eru fyrir um störfin.

Stjórnmálamenn eru sumir farnir að tala um „velsæld“ fremur en „velferð“ í uppgjafartón, við vitum að velsældinni er misskipt. Það er eðlilegt og skiljanlegt að stjórnmálaflokkar aðgreini sig með hugmyndafræði, en eftir kosningar þarf að mynda samsteypustjórn og þá þarf að „svíkja loforðin“ og gera þess í stað það sem er skynsamlegt.

Sú bábilja að peningamarkaðir rétti sig sjálfkrafa af er enn útbreidd. Það er furðulegt að líta til baka og sjá að slík trú skyldi lögð til grundvallar og evrunni þröngvað upp á fjölmenn samfélög á þessum stutta tíma. Við getum vonandi lært af mistökum annarra.

Frjálshyggja, gömul og góð

Sú frjálshyggja sem þeir Ólafur Björnsson og Jónas Haralz rökstuddu svo vel er í fullu gildi. Þeir töldu stjórn peningamála og ríkisfjármála verða að vera undir harðri stjórn, rétt eins og um löggæslu væri að ræða. Ástæðan er einföld, peningar eru hvorki vara né þjónusta, þeir eru ávísun á öll þau gæði sem hugurinn girnist.

Engin náttúruleg takmörk eru á eftirspurninni. Við verðum að gera greinarmun á hugmyndafræði og hagfræði. Hin fyrrnefnda nýtist fyrir kosningar, sú síðarnefnda verður að ráða eftir kosningar,"

Hvernig má það vera að heilir stjórnmálflokkar íslenskir telji það til frjálslyndis að Ísland tengist tollabandalagi 27 ríkja ESB á móti hundrað öðrum þjóðríkjum heims?

Jón Sigurðsson sem lifði á þarliðinni öld gerði sér ljóst að Íslendingar myndu eiga mest undir verslunarfrelsi um víða veröld. Hann hefði trautt skilið kosti þess að múra sig inni í ákvarðanatöku annarra þinga en íslenskra og meðal regluverks í viðskiptum og dómsmálum annarra ríkja.

Að því leyti er mér illskiljanlegt hvernig forystumenn íslenskir séu haldnir slíkri vanmetakennd að þeir telji slíkt til framfara að tengjast slíkum kerfum og vantrú á eigin dómgreind.

Og það sem verra er að telja slíkt til frjálslyndis og fullveldis


Sofum við?

á meðan viðskiptatækifæri í virkjunum blasa við?

Hvar eru næstu virkjunaráform Íslendinga til stóriðju? Ekki bara  smávirkjanir heldur stórvirkjanir í stað hálendisþjóðgarða kommanna.

Barni Jónsson rafmagnsverkfræðingur,sá sívirki eldhugi, hefur áhyggjur af því að við sofum á verðinum í virkjanamálum eftir að við fengum martröð nýlega um að Straumsvík myndi loka vegna verðlækkana á áli.

Hann segir:

 

"Álverðstenging raforkuverðs hefur undanfarið lyft raforkuverðinu vel yfir 40 USD/MWh hérlendis, sem mundi líklega duga til að gera alla orkuverskostina í 3. áfanga verndar- og nýtingaráætlunar, bið og nýtingu, arðsama. Hann vitnar til Jesse Gary  forstjóra Century Aluminium á Grundartanga.

"Við hjá Century Aluminium teljum okkur vel búin undir að auka framleiðsluna.  Við erum að auka framleiðsluna í álverinu við Mt. Holly í Suður-Karólína og í álverinu í Hawesville í Kentucky. 

Afkastagetan í Kína var umfram eftirspurn, en er mögulega að ganga til baka nú, þegar eftirspurnin er mikil og vaxandi.  Við sjáum því tækifæri til að auka framleiðsluna og erum því að auka hana í þessum tveimur áður nefndu álverum. Fyrir utan það má auka framleiðsluna í Bandaríkjunum enn frekar, og hér á Íslandi höfum við skoðað leiðir til að auka verðmætasköpunina á Grundartanga." 

Norðurál ætlar að umbylta steypuskála sínum í líkingu við það, sem ISAL gerði fyrir áratug, þ.e. að taka upp framleiðslu þrýstimótunarsívalninga, sem eru núna og oft með miklu verðálagi ofan á LME-verðið á mörkuðum, svo að afurðaverðið er nú komið yfir 4000 USD/t. Þetta er sennilega mesta gósentíð í sögu ISAL. Steypuskálaumbyltingin á Grundartanga er mrdISK 15 fjárfesting og útheimtir um 10 % fjölgun starfsmanna, en sáralitla viðbótar orku. Hins vegar áformar Norðurál framleiðsluaukningu upp á 10 kt/ár upp í 330 kt/ár. 

Hjá ISAL er öllum kerum haldið gangandi og styttist í hámarksstraum í öllum kerskálum, sem gefur ársframleiðslugetu um 215 kt/ár.  Tekjuskattur af fyrirtækinu verður drjúgur í ár, því að hagnaður júlí-ágúst 2021 nam um MUSD 40  eða rúmlega mrdISK 5,0. 

 "Ég get reyndar vart hugsað mér betri stað til að framleiða ál en Ísland.  Hér er framleitt hágæðaál og magn kolefnis, sem fellur til við framleiðsluna, er með því minnsta, sem þekkist.  Það er jafnframt gott að starfa á Íslandi. 

Þróunin á orkumörkuðum mun hafa áhrif í þessu efni. Það er síðan spurning, hvernig Íslendingar sjá fyrir sér orkumarkað sinn í framtíðinni.  Ég segi sem framleiðandi, að Ísland er afar ákjósanlegur staður fyrir álframleiðslu."

Skýrar getur Jesse Gary ekki tjáð sig á þá lund, að hann hefur hug á frekari fjárfestingu og framleiðslu áls á Íslandi.  Til að samningar náist þarf hins vegar 2 til.  Íslandsmegin er vart að sjá nokkurt lífsmark í þá veru að vilja selja álfélagi enn meiri orku og fá hingað tugmilljarða fjárfestingu. 

Deyfð og drungi afturhaldsins hefur eitrað út frá sér.  Nú vantar baráttumenn til að brjóta hlekki hugarfarsins, eins og á 7. áratug 20. aldar, þegar innflutningshöft voru afnumin og stórfelld iðnvæðing hafin með Búrfellsvirkjun og iðjuverinu í Straumsvík. "

Verðum við ekki að vakna og endurvekja virkjana og stóriðjuáhuga landsmanna. Nóg verður um úrtöluraddir af vinstri vængnum sem allt vilja drepa í dróma.Einn spekingurinn af þeim kanti lagði til í alvöru að leysa orkuvandann með því að loka Straumvíkurálverinu.  

Það tekur tíma að vinna á þessum röddum og niðurrifsöflum.Hefjum baráttuna strax og hættum að sofa á verðinum.

 


Vantar mig ekki vélbyssu

og vefjarhött?

Getur Gunnar Smári komið fram þeim breytingum sem hann boðar á þjóðfélaginu öðruvísi? Fær hann Björn Bjarnason til að sleikja kamrana í Valhöll öðruvísi? Getur hann stungið út úr Hæstarétti öðruvísi?

Stefnufesta mannsins og hugmyndaflug er með ólíkindum. Ekki er að efa að fylgi sópast að honum eins og Vilmundi heitnum Gylfasyni sem var stormsveipur á sinni tíð þótt stórum lygnari væri en fjögurra blaða Smárinn úr Arnarnesi.

Hann er spurður áhugaverðra spurninga í Dagmálum Morgunblaðsins.

"Nú varstu sjálfur hallur undir frjálshyggju á árum áður, stór-kapítalisti árin fyrir hrun, gekkst næst í múslimafélagið, vildir ganga Noregskonungi á hönd og nú Sósíalistaflokkinn. Finnst þér skrýtið þó sumir spyrji hvort þér sé alvara eða hvort þetta sé bara langdreginn gerningur? "

"En þú hafnar því að hafa verið kapítalisti þegar þú varst að vinna með mönnum sem höfðu tugmilljarða umsvif, þú varst að kaupa stórfyrirtæki hér heima og erlendis, ferðaðist í einkaþotum, á forstjóralaunum og forstjórajeppum. Snýrð svo við blaðinu og talar um að það þurfi að brjóta niður stórfyrirtæki vegna þess að fólk hafi það ekki nógu gott í samfélaginu."

"Það er mjög alvarlegt mál ef maður sem er að fá fljúgandi fylgi í könnunum og koma mörgum þingmönnum inn, sé með það að stefnu að ryðja Hæstarétt og að því er virðist stjórnkerfið, af því að sá hópur er skilgreindur sem valdaklíka. Þetta eru rosaleg orð. „Það hefur gerst í sögunni, þar sem fólk hefur misst samfélag sitt í svona, að þá hefur verið gripið til þess ráðs að búa eitthvað til eins og 2. lýðveldið. Við erum gerspillt samfélag.“

Telurðu að dómsvaldið sé spillt? „

Ég tel að það hafi skipulega verið settir inn menn í Hæstarétt, sem eru líklegir til þess að verja meint eignarhald stórútgerðarinnar. Að það sé skipulagt samsæri. Og ef það er þannig, að Hæstiréttur stoppar það að almenningur fái að nota sínar auðlindir, þá verðum við að bregðast við því. Ég er að benda á að aðrar þjóðir hafi brugðist við því að stofna nýtt lýðveldi.“

Bíddu við, þú segir að það sé skipulegt samsæri hvernig Hæstiréttur hafi verið skipaður til þess verja eitt tiltekið mál."

Þessi maður er sannarlega að draga að sér skoðanabræður sem nægja honum til framfærslu næstu 4 ár á Alþingi. Þó að hann verði ekki ráðherra í næstu ríkisstjórn þá ætti hann að hafa tryggt sér afkomu með digurmælum sínum.

Sem er virðingarvert þótt vefjarhött og vélbyssu vanti í Talibanastíl.

 


Hvað hugsa Norðmenn í orkumálum?

Björn Bjarnason gefur  yfirlit yfir stöðuna í norskum stjórnmálaum í aðdraganda kosningannan þar af sinni þekktu yfirsýn. 

Björn er talinn vera einn helsti talsmaður þess á Íslandi að ekki þurfi að hrófla við EES samningnum sem sé meiri blessun en  minni fyrir Ísland. Ekki eru allir sammála þeirri afstöðu Björns og telja ástæðu til að hafa andvara á ýmsum atriðum.

Það er hollt að líta til frænda okkar og reyna að setja sig inn í  það hvað þeir eru að hugsa með afbragðs greinargerð Björns um norsk orkustjórnmál.

Björn skrifar á vefsíðu sína í dag eftirfarandi:

Orkuverð verður til umræðu þegar Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, tekur til við stjórnarmyndun að kosningum loknum.

Kosið er til norska stórþingsins á morgun og talið að borgaralega stjórnin undir formennsku Ernu Solberg falli eftir að hafa farið með stjórn landsins í tvö kjörtímabil.

Fyrir rúmum tveimur árum fór starfshópur sem vann að skýrslugerð um EES fyrir íslensk stjórnvöld að beiðni alþingismanna á fundi Osló með embættismönnum stjórnmálamönnum, forystumönnum atvinnulífs og launþega auk annarra sérfróðra manna og baráttuhópa með og gegn samstarfi við ESB, meira að segja gegn aðild Noregs að EES. Af fundunum mátti álykta að í aðdraganda kosninganna nú yrði vegið að EES-aðild Noregs af einhverjum stjórnmálaflokkanna, einkum Miðflokknum (Senterpartiet, SP) sem átti samleið með Nei til EU-samtökunum í andstöðu við þriðja orkupakkann.

B2345f4d-2e31-4b1b-a27f-f4fb2b578775Trygve Slagsvold Vedum, formaður Miðflokksins, fremst á myndinni. Í bakgrunni Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, og Erna Solberg, formaður Hægriflokksins, núverandi forsætisráðherra Noregs.

Hæstiréttur Noregs samþykkti í vor að taka til meðferðar mál andstæðinga þriðja okurpakkans í Noregi sem snýst um hvort stórþingið hafi staðið rétt að samþykkt málsins. Hæstiréttur hefur ekki leitt málið til lykta.

Á lokadögum norsku kosningabaráttunnar leggur Trygve Slagsvold Vedum, formaður SP, þunga áherslu á að orkuverð sé of hátt í Noregi og lofar niðurgreiðslum til að jafna verð til þeirra sem bera þyngstu byrðarnar vegna flutningskostnaðar á orku. Varið skuli milljörðum til að jafna þenna mun. Þetta verði tvímælalaust eitt helsta málið við gerð fjárlaga fyrir árið 2022.

Audun Lysbakken, leiðtogi SV, Sósíalíska vinstriflokksins, segir að veita eigi um 90.000 móttakendum búsetustuðnings í Noregi sérstakan raforkustyrk. Vedum telur það ekki nóg. Það verði að líta til mun stærri hóps.

Ágreiningurinn um þetta er fyrirboði þess sem verður til umræðu þegar Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, tekur til við stjórnarmyndun að kosningum loknum.

Spurning er hvort Bjørnar Moxnes, leiðtogi flokksins lengst til vinstri, Rødt, verður kallaður til viðræðna um myndun vinstri stjórnar í Noregi. Hann er sömu skoðunar og Vedum að almennt eigi að auka niðurgreiðslur á raforkuverði.

SP og Rødt vilja einnig takmarka á sölu raforku frá Noregi til Bretlands og ESB-ríkja. Bent er á að í stað þess að skera á raforkusölu til útlanda megi virkja meira í Noregi. Sé það rætt leggst Rødt gegn vindorkuverum bæði á sjó og landi. Vedum sættir sig við vindorkuver á hafi úti og betri nýtingu vatnsafls en hann er andvígur vindorkuverum á landi. Þá vill hann að norsk stjórnvöld hafi meira að segja um orkustreymið um sæstrengi til annarra landa. Hann vill að hætt verði við áform um NorthConnect, 650 km sæstreng milli Noregs og Skotlands. Fyrr á árinu var gert hlé á viðræðum um framkvæmd áætlana um hann.

Vedum boðar „stóran slag“ á stórþinginu um fjórða orkupakkann. Frekara valdframsal til ESB komi ekki til greina. Í viðræðum um stjórnarmyndun verði rædd leið til að Norðmenn segi sig frá Acer, fagstofnun ESB um raforkumál. SP vilji ekki evrópskt orkuverð í Noregi. Bjørnar Moxnes í Rødt tekur undir gagnrýni Vedums á Acer. EES-aðildina eða ESB-aðild bar ekki hátt í norsku kosningabaráttunni, orkan fór í annað."

Ég hef velt því fyrir mér hvort þeir Alþingsimenn íslenskir sem harðast gegnu fram í í að lögleiða 3. orkupakkann á þeim grundbvelli að shnn skipti engu máli fyrir Ísland. Þer sömu nenntu ekki einu sinni að rökræða málið við okkur kjósendur og flokksmenn en sögðu okkur að  éta pakkan með því sem úti frysi. Skyldi Birgir Ármanns ætla að beita sömu aðferð á okkur þegar kemur að 4. pakkanum?

Við erum margir flokksmenn ekki þeirrar skoðunar að fyrirkomulag orkumála á Íslandi sé allt önnur en í Noregi þar sem  við seljum enga orku beint til útlanda um sæstrengi sem Norðmenn gera.En á EES samningurinn að vera heilagri hér á Íslandi heldur en í Noregi? Má hér hvergi hugsa eða rökræða?

Við Íslendingar vorum velkomnir til náms og starfa í Þýskalandi þegar við fórum þangað jafnaldrarnir 1957. Þjóðverjar vildu þá allt fyrir okkur gera. Ég seldi þangað íslenskar gærur minnir mig tollfrítt á þeim árum. Hvað var svona erfitt að allt þetta EES vesen þyrfti í viðbót, hvað þá að taka hér upp EVRU? 

Norðmenn virðast geta lifað við sína norsku krónu og Svíar við sína. Af hverju ekki við með okkar krónu og orku?

 


9/11

er minnst víða um heim og skiljanlega sárast í Bandaríkjunum.

3000 manns týndu lífi í þessari svívirðilegu árás sem gerð var á saklaust fólk í Bandaríkjunum í nafni Islam af Osama bin Laden og hans mönnum.

Honum tókst að leynast árum saman fyrir öflugasta herveldi heims. En að síðustu fannst hann og var lógað umsvifalaust eins og hundi. Var það refsing í hlutfalli við glæpinn?

Mér hefur fundist að flest verstu hryðjuverk heimsins og ógæfa tengist Islam á einhvern hátt. Eru aðrir trúarhópar sem eru jafn áberandi í hinum verstu verkum?

Eru trúarbrögð almennt notuð sem afsökun fyrir illsku? Er Islam ekki þar í sérflokki?

Einhvernvegin finnst manni að Islam sé mest áberandi þegar kemur að mannlegum meinum. Manni finnst færri sögum fara af kærleiksverkum á þeirra vegum en því mótsetta.

Af hverju eru Íslendingar að halda því fram að að þessi trúarbrögð eigi að efla og styðja? Þau séu jafnrétthá og  önnur?

Eru ekki ár og dagur síðan að við á Vesturlöndum hættum að brenna fólk fyrir galdra eða drepa villutrúarmenn?

Margir hafa því andvara á sér gagnvart Islam. Finnst okkur ekki  að á Vesturlöndum stafi okkur meiri hætta af þeim trúarbrögðum heldur en öðrum? Með réttu?

Er ekki svo að sé kærleikurinn skilyrtur þá fellur hann úr gildi? Þannig skildi ég Pál að minnsta kosti.

Hugsum til þeirra sem misstu nest.

9/11 var skelfilegur atburður sem er því miður sífellt að endurtaka sig án þess að við fáum rönd við reist.  


Furðufugl í pólitík

 

Ég var að hlusta á Brynjar Níelsson og Gunnar Smára á útvarpi Sögu í viðtali við Pétur Gunnlaugsson.

Brynjar er skynsamur maður og er illt ef hann fær ekki sæti á Alþingi.

En með Gunnar Smára gegnir öðru máli.

Glórulaust hatur á öllu sem skilar arði, jafnvel bændum sem eiga beljur. Bara hatur á öllu sem hreyfist við annað en að taka við annarra manna aflafé. Burt með öll fyrirtæki sem skila arði því arður er illur. Gerum allt upptækt og skattleggjum allt sem hreyfist.

 

 

Ég held að hann myndi sóma sér vel í hópi Talibana. Nóg er hatrið og illskan yfir því hversu honum mistókst að verða ríkur í þjónustu auðvaldsins og Jóns Ásgeirs. En þar hann endaði hann með 4 alþjóðlegum gjaldþrotum þegar hann var sjálfur búinn að sleikja allt þurrt og fljúga með einkaþotum því honum lá svo á.

Þvílíkur veraldar furðufugl er þessi maður í pólitík.

Hann er vitnisburður um óraunsæi þeirra sem kjósa hann. Þessi maður er bara á eftir annarra manna fé fyrir sjálfan sig hvar sem honum tekst að uppdrífa það.

Hann er ekki að vinna fyrir neinn annan en sjálfan sig og þessi Sósíalistaflokkur hans er bara hans leið til að komast sjálfur í opinbert fé eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem sleikir slíkt  fé mér til sárrar skapraunar.

Í stað þess ætti stjórnmálaflokkur eingöngu að reiða sig á styrktarmannakerfi sem allir flokkar ættu að lifa á. Þá væri ekki þessi skelfingar glundroði á Alþingi þegar menn yrðu að bera ábyrgð á sjálfum sér og sínum kjafti í stað þess að blaðra vitleysu sem þeir þurfa aldrei að standa við frekar en Halldóra Mogensen, Gunnar Smári  og ámóta blaðurskjóður.


Los Angeles skyldubólusetur

skólabörn 12 ára og eldri.

Af hverju gera þeir það?

Af hverju krefst Joe Biden þess að allir opinberir starfsmenn í 100 manna fyrirtækjum verði bólusettir?

Af hverju segir hann að hópar Bandaríkjamanna séu að hindra það að tök náist á faraldrinum með því að láta ekki bólusetja sig?

Er veiran eitthvað öðruvísi á Íslandi en í Bandaríkjunum?

Af hverju eru Bandaríkjamenn svona harðir með skyldubólusetningar?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband