Leita í fréttum mbl.is

FBA

verður Styrmi Gunnarssyni að yrkisefni Í Morgunblaðinu í dag.

 

"Í fyrradag, fimmtudag, birtist í ViðskiptaMogganum fróðlegt samtal, sem Sigurður Nordal, umsjónarmaður blaðsins, hafði átt við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um stöðuna á fjármálamarkaðnum, stöðu slitabúanna og hugsanlega sölu banka í ríkiseign. Í þessu viðtal spurði Sigurður eftirfarandi spurningar:

 

»Er eitthvað í framkvæmd einkavæðingar bankanna fyrir hrun, sem við getum dregið lærdóm af við sölu bankanna núna?«

 

Og Bjarni svarar:

 

»Tvímælalaust. Í fyrsta lagi tel ég að það hafi verið óþarfi að byggja söluáætlun banka á því, að það þurfi að vera mjög stór kjölfestufjárfestir. Í fámennu samfélagi eins og okkar kann þvert á móti að vera mikill ávinningur af því að kerfislega mikilvægir bankar séu í dreifðri eignaraðild. Við eigum tvímælalaust að stefna að dreifðu eignarhaldi á bönkunum.«

 

Þessi orðaskipti þeirra Sigurðar og Bjarna gefa tilefni til að rifja upp litla en fróðlega sögu.

 

Á árinu 1997 voru þrír sjóðir, Fiskveiðasjóður, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður, sameinaðir í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., FBA. Á svipuðum tíma voru Landsbanki Íslands og Búnaðarbanki Íslands gerðir að hlutafélögum.

 

Síðan ákvað þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að selja FBA en í dreifðri eignaraðild.

 

Hinn 8. ágúst 1998, birtist hér í Morgunblaðinu viðtal við þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, og þar sagði:

 

»Davíð sagði, að þó nú sé í tízku að tala um kjölfestufjárfesta telji hann að í bankastofnun geti alveg dugað að stærstu eignaraðilarnir, sem komi til með að hafa leiðbeinandi forystu um reksturinn, eigi eignarhluti á bilinu 3% til 8% til dæmis. Hann telji hins vegar ekki æskilegt að einn aðili eða skyldir aðilar ráði 30-40% eignarhlut í bankastofnun...Þó það hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn telji hann það koma fyllilega til álita að tryggja það með lagasetningu að eignarhald í bönkunum, þegar ríkið sleppi af þeim hendinni, verði dreift.«

 

Þetta var stefnumarkandi samtal við þáverandi forsætisráðherra og tveimur mánuðum síðar ákvað ríkisstjórnin að selja 49% hlut í FBA. Almenningi yrði boðið að skrá sig fyrir hlutum að hámarki þremur milljónum króna.

 

Hvað gerðist þá? Og þar er komið að kjarnanum í lykilspurningu Sigurðar Nordals til Bjarna Benediktssonar um hvað mætti læra af einkavæðingu bankanna fyrir hrun.

 

Bankar og fjármálafyrirtæki hófu svokallaða kennitölusöfnun. Þessir aðilar keyptu hluti í umboði einstaklinga á grundvelli samninga um að viðkomandi einstaklingar seldu þeim hlutina.

 

Fjórum mánuðum eftir hið stefnumarkandi viðtal við forsætisráðherra landsins hér í Morgunblaðinu var sú stefnumörkun ríkisstjórnar, sem byggðist á lýðræðislegu umboði kjósenda til þingmanna stjórnarflokkanna brotin á bak aftur með valdi peninga.

 

Hvað gerðist svo?

 

Rétt fyrir jól sama ár (1998) skýrði Morgunblaðið frá því að Viðskiptastofa SPRON hefði fyrir hönd sex sparisjóða og Sparisjóðabankans keypt um 9% hlut í FBA af Búnaðarbanka Íslands. Kaupþing, sem þá var í eigu sparisjóðanna átti fyrir önnur 9% og réð að auki yfir 5% fyrir hönd annarra hluthafa. Sparisjóðasamsteypan hafði á skömmum tíma eignast um fjórðungs hlut í FBA, sem ríkisstjórn landsins hafði ákveðið að skyldi verða í dreifðri eignaraðild.

 

Þessum hlut var komið fyrir í hlutafélagi í Lúxemborg, Scandinavian Holdings SA.

 

Hvað gerðist svo?

 

Hinn 4. ágúst 1999 var skýrt frá því hér í blaðinu, að Scandinavian Holdings hefði selt hlut sinn í FBA, sem nam 22,1% til eignarhaldsfélags, sem bar heitið Orca SA og var líka skráð í Lúxemborg. Það félag keypti einnig hlut af öðrum og var samtals komið með 26,5% hlut í FBA. Ekki var gefið upp hverjir væru eigendur Orca SA.

 

Hvað sagði Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, þegar hér var komið sögu?

 

Í samtali við RÚV tveimur dögum síðar sagði hann:

 

»Það má vel vera að staðan sé sú, að sú aðferð okkar að reyna að koma hlutabréfunum út með dreifðum hætti haldi ekki til lengdar og þá þarf kannski að kanna, hvort aðrar lagaforsendur þurfi að vera fyrir hendi, sem tryggi hreinlega að eignaraðild að fjármálakerfinu í þessu landi sé dreifð.«

 

Framhaldið af sögu FBA varð svo, að bankinn sameinaðist Íslandsbanka um aldamótin og varð eins konar stökkbretti fyrir helztu eigendur FBA til þess að ná yfirráðum yfir Íslandsbanka næstu árin á eftir.

 

Hér liggur fyrir skýrt dæmi um það hvað hægt er að læra af því, sem gerðist í einkavæðingu bankanna fyrir hrun.

 

Það er ekki hægt að einkavæða ríkisbanka á ný í góðri trú um að dreifð eignaraðild, sem stefnt er að í upphafi, haldi. Það verður hreinlega að tryggja það með löggjöf.

 

Bjarni Benediktsson hefur alveg rétta sýn á þessa stöðu, eins og hún kemur fram í samtali þeirra Sigurðar Nordals. En það er alveg ljóst að áður en ráðizt verður í nýja einkavæðingu bankanna verður Alþingi að ganga tryggilega frá því með löggjöf að sagan verði ekki endurtekin.

 

Í samtalinu víkur Bjarni líka að því hvernig hinir einkavæddu bankar voru notaðir til að breyta eignarhaldi á stórum fyrirtækjum í landinu. Sá þáttur málsins er sérstakt umhugsunarefni.

 

Það er líka vert fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk að huga að því að í ljósi fenginnar reynslu skiptir máli fyrir þá flokka hvernig haldið verður á þessum málum nú."

 

Forsaga málsins er "stóra þjófaveislan" sem haldin var þegar Iðnlánasjóði og hinum sjóðunum raunar líka, var stolið frá eigendum sinum sem myndað höfðu hann með Iðnlánasjóðsgjöldum sem voru ígildi skattlagningar.

Yfir þessa sjóði voru yfirleitt settir allskyns fósar gjarnan með áhuga á félagsmálageiranum. Þeir sáu um að gefa hundunum að éta rófuna af þeim sjálfum með fjárfestingarlánum sem engin voru fáanleg úr samfélagsbankakerfinu. En því var þá stjórnað pólitískt af Alþingi og lánuðu því mest til Framsóknarmanna og SÍS í hlutfalli við atkvæðavægið.

Allt þetta fé var gert upptækt og sett í FBA sem skyldi verða í eigu sjóðsfélaganna. Allt var það auðvitað svikið strax. Yfir bankann var settur ungur maður með próf án þess að vera af bankaættum. Enda var ekkert spurt hvort væri siðsýnn- eða blindur. Allt um það tókst honum fljótlega að eignast bankann að hluta og gerast einn af auðjöfrum landsins. Hann gerði tilraun til að setja Hagkaup og Bónus á markað en gömlu eigendurnir náðu því fljótlega undir sig aftur og mynduðu Baugsveldið.

Bónus var rekinn í fjölda ára og lýðurinn hélt að hann væri að fá vörur á afsláttarverði. Það var ekki fyrr en í hruni að hann almenningur komst að því að var hann sjálfur sem var látinn borga allan afsláttinn en höfuðsvindlararnir sluppu flestir og og eiga enn fyrir dietpepsi.

 

Nú er verið að reyna að koma Arajón-banka í hendur hinu nýja fjármálaveldis.  Með gömlum utanrimla starfsmönnum frá útrásinni á að framkvæma skuldsetta yfirtöku á bankanum með peningum lífeyrissjóðanna sem bréfaguttar sem enginn kaus ráða. Eða ef maður veltir fyrir sér orðum Bjarna og les þau aðeins með öðrum möguleika.."hvernig hinir einkavæddu bankar(les einkavæddir LÍFEYRISSJÓÐIRNIR) voru notaðir til að breyta eignarhaldi á stórum fyrirtækjum í landinu. Sá þáttur málsins er sérstakt umhugsunarefni."

Og nú byrjar allt upp á nýtt. Kratar sem ekki geta rekið einn einasta hlut og skilja aldrei upp né niður í neinu  varðandi fjármál frekar en öfundarkommarnir eru nú að búa til nýja samfélagsbanka með velvild og heimsku kjósenda hverra fjármálaspeki er hægt að kynna sér á innhringiþáttum á Útvarpi Sögu. Þó skal viðurkennt að Pétur Gunnlaugsson leiðir marga  á betri brautir með sinni alþýðufræðslu.

Þó svo að þessi ríkisstjórn geti komið einhverjum umbótamálum til leiðar þá munu, líklegra en ekki, kratar og hverskyns kommadót, setja hér á samstjórn óskhyggju og fávita eftir næstu kosningar og keyra landið í nýtt samdráttarskeið ef kerfið ekki verður hrunið þá með samstilltu átaki þjóðarinnnar í kjaramálum.

Já er bara ekki saga FBA og alls þess sem á eftir kom umhugsunarefni líka í dag eins og þá? 


Fjörtíuþúsund fífl?

fara með Degi Bé. á ráðstefnu í París til að ræða loftslagshlýnun af mannavöldum. Líklega flest á opinberu fé eins og okkar fríði flokkur.

Það hefur ekki mælst nein vísindaleg hlýnun af mannavöldum. Það getur alveg eins verið kólnun framundan. Vonum ekki því það mætti mín vegna gjarnan hlýna svolítið á Íslandi fyrir minn smekk.

Og varðandi gróðurhúsaloftegundirnar þá mætti reikna út fyrir þetta lið hversu mikið af CO2 og H2S og fleiri gösum kom upp í Holuhrauni. Og hversu mikið flugvélin sem flytur þetta lið á kongressinn spýr út af brunarestum af JetA1. Dagur getur kannski látið dæla því niður í jörðina í Hellisheiðarvirkjun svona með öðru?

Sem Sjálfstæðismanni finnst mér raunalegt að sjá fulltrúa flokksins míns leggjast svo lágt að ferðast með þessum siðblinda borgarstjórnameirihluta fyrir lánsfé á kostnað skattborgara á svona mýrarljósasamkundu sem þessi loftslagsráðstefna er. Ef þeir borguðu sjálfir skyldi ég þegja. En Dagur þarf að slá  lán í tvo klukkutíma til að borga kostnaðinn. Og þá er þagað um dagpeningana og vinnutapið sem verður líka að slá lán fyrir

Ríchard Björgvinsson í Kópavogi borgaði alltaf sinn ferðakostnað sjálfur þegar hann fór að erinda fyrir bæinn sinn. Hans ættu Sjálfstæðismenn að minnast betur en gert er.

Ráð fjörtíuþúsund fífla mun gefast því verr sem fleiri koma saman. 


Allt á hausnum allstaðar

og ekkert nema aurafæð allstaðar segja sveitarfélögin hvert í kapp við annað. Allt ríkinu að kenna segja þau líka, það lét okkur hafa verkefni án þess að peningur fylgdi með.

Afleiðingin er að Borgin tapar 15 milljörðum á rekstri og Reykjavíkingur skuldar meira en 2 milljónir hver maður. Kópavogsbúinn og Hafnfirðingurinn skulda 1.2-1.5 milljón á mann og allur rekstur þeirra fer versnandi í ár.

Borgin getur hinsvegar látið hin sveitarfélögin borga sitt tap með sér í gegn um Orkuveituna og einkaleyfi sitt. Ríkið er með afgang segir Fjármálaráðherra en það vantar að borga í lífeyrissjóði opinberra starfsmanna í B-deild. Þar er til dæmis þau Steingrímur Jóhann og Jóhanna líklega inni ásamt fleirum.

Björgvin hinn gamli rekur skerðingar eldra fólksins í enn einni greininni í Fréttablaðinu í dag.Seigur er karlinn sjötugur... En RSK segir vera aukningu í öllum tryggingabótum langt umfram launahækkanir. Sem sagt allt á hausnum allstaðar. Er ekki eini myndarlegi vöxturinn í fjölda öryrkja og lífeyrisþega? Og svo kemur fullt af flóttamönnum bráðum til að bæta haginn.

Hver á þá að borga meira? Er ekki Ríkið  að tala um að  lækka skatta, fella niður tolla og vörugjöld? Ríkisútvarpið ohf. er á hausnum líka. Er það hugsanlega útgerðin sem er sá eini atvinnuvegur sem ekki er á hausnum? Og ferðamannaiðnaðurinn kannski þó að opinberar tölur vanti sumstaðar nema um fjölda ferðamanna. Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0.25% og ljósmæður vantar líka pening.

Ég og mínir  þurfa líklega allir að borga meira og þú líka. Það er til gamalt lag sem fellur að lokalínunum og getur þá orðið nýr þjóðsöngur Íslendinga: Það er allt á hausnum allstaðar....

 

 

 


Að RÚVera eða ekki RÚVera?

það er spurningin. 

Við þessu er einfalt svar. RÚVera skal meðan það lýtur stjórn vinstri manna. RÚVera hægri manna eru árásir á stofnunina og útvarpskommana sem hana eiga óskipt.

Óli Björn veltir þessu fyrir sér í Morgunblaðinu í dag.

Grunnspurningar Eyþórs Arnalds og samnefndarmanna hans  eru þessar:

  • Er ohf. rekstrarformið heppilegt fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins?
  • Á Ríkisútvarpið að vera á auglýsingamarkaði?
  • En líklegt er að eftirfarandi spurningar, sem eru áleitnar, valdi mestu um geðshræringuna:
  • Er Ríkisútvarpið best til þess fallið að ná fram markmiðum ríkisins sem snúa að íslenskri menningu, tungu og lýðræðisumræðu?
  • Er hægt að fá betri nýtingu á fjárveitingar ríkissjóðs?
  •  Miðað við síðasta rekstrarár (1. september 2014 til 31. ágúst 2015) runnu því a.m.k. 2,3 milljarðar króna í annað en innlenda dagskrá.
  • Frá því að opinbert hlutafélag var stofnað um Ríkisútvarpið hefur rekstur þess ekki verið sjálfbær.
  • Gjöld hafa verið meiri en tekjur og taprekstur verið á fjórum árum af þeim átta sem félagið hefur starfað - alls 813 milljónir króna.
  • Innheimt útvarpsgjald hefur ekki runnið óskipt til Ríkisútvarpsins.
  • Mikil fjárbinding er í stóru og óhentugu húsnæði.

Eyþór Arnalds hefur fyrir löngu sannað að hann hefur vit á rekstri.Bæði í einkarekstri og opinberum rekstri. Hann skilur að debit og kredit eru algerlega ópólitísk hugtök í daglegu lífi. Því  er hinsvegar öðruvísi farið í hugarheimi  vinstri manna að þar gilda önnur lögmál um útgjöld og tekjur. Samanber myndir af Degi Bé og fréttum af kassastöðunni hjá honum í Reykjavík. Þar er eina vandamálið að útgjöldin eru meiri en tekjurnar sem þá verður að auka.

Ef ég á að svara spurningum um RÚV þá geri ég það svo:

  • RÚV fyrirtækið að afla sér þeirra tekna sem það getur á auglýsingamarkaði eða annarsstaðar.RÚVera í botn.
  • RÚV má gera það sem það vill meðan það  lifir innan fjárlaga sem Alþingi setur.
  • RÚV er betur komið í eigin húsnæði en í okurleigu hjá lífeyrissjóðunm.  
  • RÚV á ekki að þurfa að borga lífeyrismál útvarpskommanna sem OHF  frekar en ráðuneytin sinna manna. 
  • Útvarpsstjóri á að vera bissnessmaður en ekki menningarviti.Til dæmis hlutlaus útlendingur.
  • RÚV heyri beint undir Alþingi.
  • Ekkert RÚVráð.

Ef svona er staðið að málinu þá vil ég RÚVera áfram.

 

 


218.000 í október

til viðbótar áður komnum flóttamönnum sigla á land í Evrópu.Hver þessa fólks kostar Evrópu 31000 evrur. 7 milljarða evra verða evrópskir skattgreiðendur að borga fyrir október einan.Og þeirra ráðamenn virðast allir ráðalausir.

Hvað skyldi Evrópusambandið ætla að gera? Senda þá til Íslands?

Í hádeginu  var fundað í Norræna Húsinu og talað um nauðsyn þess að taka við kvótaflóttamönnum? Er Evrópusambandið að úthluta Íslendingum kvóta af flóttamönnum svona rétt eins og Makrílnum nema kannski í öfugu hlutfalli? Höfum við ekkert um þetta að segja?

Hvenær sjá menn að það verður að hindra það að þessir bátar leggi af stað. Glæpamennirnir gera það gott í bátasölunni og líklega eru bátarnir og mótorarnir framleiddir í ESB. Fyrir okkur sem ekki trúum á ESB sannar þetta allt sem við héldum um það samband. Þetta samband getur ekki tekið ákvörðun um neitt sem skiptir máli frekar en Samfylkingin, hvað þá  VG. Þessvegna getur Evrópusmabandið aldrei tekið við hlutverki Bandaríkjanna á heimsvísu. Bandaríkin eru  það eina afl sem gætu gert eitthvað í þessu máli. En þeir hika við.

Það verður að friða Sýrland. Líklega sjá það bæði Pútín og Obama. Arabalönd geta ekki búið við lýðræði. Þetta fólk er ekki á því menningarstigi og trúarvitleysan byrgir þeim sýn alveg eins og okkur fyrir mörg hundruð árum. Þeir Pútín og Obama saman gætu verið fljótir að stilla til friðar. En þeir geta ekki fengið sig til að vinna að því saman.

Á meðan vex vandamálið um 7000 manns á dag og það eru langt í frá allt flóttamenn frá stríði. Þetta er fólk í leit að betra lífi. Er frú dr. Merkel hætt að fagna þessu fólki sem nýjum starfsfúsum höndum sem Þjóðverjar eru hættir að framleiða?

Hver er okkar kvóti af þessum 218.000 manns?


Skynsamlega skrifað um skatta

af honum frænda mínum á Mogganum, Stefáni Gunnari Sveinssyni í dag.

Stefán skrifar:

"Sú stórmerkilega frétt birtist um helgina að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, væri nú loksins farinn að borga aftur skatta í Svíþjóð, eftir að hafa flust þaðan árið 1973. Í fréttinni var það sérstaklega tilgreint að hann hefði flutt til Sviss til þess að forðast hina háu skatta sem lagðir eru á efnafólk í Svíþjóð. Núna hefði hins vegar hægri stjórn lækkað skattana, og það ásamt andláti konu hans árið 2011, hefði sannfært Kamprad að nú væri rétti tíminn til að snúa aftur heim.

 

Ég verð að játa að ég þurfti nánast að lesa þessa frétt tvisvar, svo mikið brá mér. Eftir að hafa lifað í landi, þar sem stjórnmálastéttin nánast í heild sinni hefur talað um »hámörkun skattstofna« eins og sjálfsaflafé almennings sé ekkert nema tala í Excel-líkani, vildi ég varla trúa því að sjálfur IK í EA væri »skattaflóttamaður,« í hópi með æði skuggalegum kónum eins og Gerard Depardieu, Tom Jones og Rolling Stones.

 

Það var þá ekki rétt, sem íslenskir skattspekingar hafa haldið fram í öll þessi ár, að skattgreiðendur væru eins og svampur, sem einungis þyrfti að kreista nógu mikið. Það var þá ekki rétt að alltaf mætti hækka skatta og gjöld, án þess að það hefði nokkur áhrif á hegðun almennings, að þessu sinni með því að viðkomandi hreinlega fluttist búferlum erlendis og bjó þar bróðurpart ævinnar.

 

Í þessu samhengi má geta að auðæfi Kamprads eru metin á um fjóra milljarða Bandaríkjadala og hann borgaði að þessu sinni um 2 milljónir Bandaríkjadala, eða um 17,7 milljónir sænskra króna til sænska ríkisins. Það er hægt að kaupa nokkrar Billy-hillur fyrir það.

 

Það liggur við að það sé ótrúlegt að þurfa að nefna hin sjálfsögðu sannindi sem felast í Laffer-kúrvunni víðfrægu, nefnilega að þegar skattar eru of háir, dragast tekjurnar af þeim saman. Að sama skapi þegar hinir of háu skattar eru lækkaðir aukast tekjurnar, þar sem fleiri eru þá tilbúnir til þess að greiða þá og verða um leið ólíklegri til þess að reyna að víkja sér undan þeim, eða hreinlega að svíkja undan skatti.

 

Stundum þegar skattamál eru rædd er notuð samlíking af tíu manns á veitingahúsi sem skiptir reikningnum eftir efnahag. Ef reikningnum er skipt nægilega ójafnt þannig að hinn efnamesti telji sínum hag betur borgið annars staðar þá fer hann og borðar þar. Hinir níu sitja eftir með sárt ennið. Það má því segja að í þessu dæmi hafi Ingvar Kamprad ákveðið að snúa aftur til borðsins.

 

Sett fram á annan hátt: Hvað skyldi Svíþjóð hafa orðið af miklum tekjum frá Ingvari Kamprad á þessum 42 árum sem hann hefur búið erlendis? Með því að hrekja hann (og eflaust marga fleiri) annað hefur byrðin á þá sem eftir voru aukist nokkuð, þar sem það hefur þurft hærri skatta á þá sem eftir stóðu til þess að ná inn sama fé. Væntanlega hefur það ekki verið hugmyndin þegar skattarnir voru hækkaðir til að byrja með. <netfangið>sgs@mbl.is"

Skyldi einhverjumm sossanum í Svíþjóð ekki detta í huga að rukka karlinn afturábak? Ekki myndi ég útiloka það að óreyndu.

Við Íslendingar munum eftir því þegar tollar voru lækkaðir  af úrum þá fóru menn að kaupa þau innanlands og ríkið fékk tekjur af úrainnflutningi sem voru engar áður. Eins var með nælonsokkana, allt í einu fengust þeir í búðum. Þegar álagning var gefin frjáls skræktu kommarnir að allt myndi rjúka upp í verði. Innflutningsverð lækkaði hinsvegar því menn þurftu ekki lengur að taka "kommissjónina"  erlendis til að bæta upp tapið á innanlandsversluninni þar sem álagningin var ákveðin á skrifstofu Kristjáns verðlagsstjóra. Það var margt fleira lygilegt í þessa veru í gamla daga sem ég man ekki í svipinn.

Hugleiðing Stefáns er því þörf upprifjun fyrir Sjálfstæðismenn, sér í lagi í sveitarstjórnum, sem eru víða farnir að tala áberandi mikið og hátt um nauðsyn meiri tekna til að standa undir hinu og þessu. 

Það eru mörg dæmi til frá því í gamla daga um deyðandi skattlagningu svipað og Kamprad flýði á sínum tíma."Steingrímskan" lifir enn góðu lífi á Alþingi Íslendinga. Það þarf að skrifa og tala skynsamlega um skatta á Íslandi sérstaklega í skugga vaxandi verðbólgu og kerfismennsku.


Gagnkvæmni

á að ríkja í mannlegum samskiptum eða hvað?

 

bikini

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Er þá ekki rétt að banna þá sem aðhyllast fegurðina meira á neðri myndinni?

Á ekki að ríkja gagnkvæmni í mannlegum samskiptum?


Fundur um flóttamenn og hælisleitendur

Mánudaginn 2. nóvember kl. 12.00 til 13.30 verður í Norræna húsinu opinn fundur um flóttamenn og hælisleitendur.

Erindi flytja Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lögmaður og Skúli Á. Sigurðsson. verkefnisstjóri hjá Útlendingastofnun.

Þátttakendur í pallborði verða Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður, Arndís A.K. Gunnarsdóttir lögfræðingur og Guðbjörg Ottósdóttir, aðjunkt við HÍ.

Fundarstjóri verður Bogi Ágústsson fréttamaður. Fundurinn er öllum opinn.

Þessi tilkynning er í Morgunblaðinu.

Ekki er greint frá því á hvers vegum þessi fundur er eða hvað niðurstöðu hann á að skila.

Er Bogi Ágústsson sendur af RÚV til að blása upp samúð með innflytjendunum sem eru að koma?

Ætlar Unnur Brá að dansa um sviðið og hrópa alla niður sem eru á öðru máli eins og hún lét á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins þegar málefni flóttafólks fengust ekki rædd vegna skrílsláta hennar og ungliða?

Til hver er þessi fundur? Áreiðanlega ekki til að rökræða eitt eða neitt. Aðeins spurningar sem rétt eru fram bornar og lúta að framkvæmdinni má bera upp?

Hver borgar svona fund? Hverjir standa á bak við fund um flóttamenn og hælisleitendur á morgun?


Hvað er að heyra?

Er söngurinn um það hvað Íhaldið og Framsókn séu að fara illa með aldraða og öryrkja sem dynur á hlustunum frá öllum rásum bara í falsetto?

Tímaritið Tíund sem Ríksiskattstjóri gefur út verður seint ásakað um hægripólitík. Þetta er hið vandaðasta tímarit sem maður handfjatlar sér til ánægju þó óneitanlega sé sumt efnið í þurrara lagi fyrir meðalsnotra.

En Davíð Oddsson er fundvís maður og athugull. Hann segir svo í niðurlagi Reykjavíkurbréfs sín í gær:

"Embætti ríkisskattstjóra stundar ekki vinsældakapphlaup, þótt það vilji augljóslega vera í góðu sambandi við almenning í landinu. Það gefur út ritið Tíund, sem birtir fróðlegt efni sem tengist verksviði embættisins. 

Í nýjasta heftinu segir þetta: »Tryggingastofnun ríkisins greiddi rúma 73,7 milljarða í dagpeninga, dánarbætur, ellilífeyri, endurhæfingarlífeyri, foreldragreiðslur, heimilisuppbót, maka- og umönnunarbætur, mæðra- og feðralaun, örorkulífeyri og örorkustyrki og ýmsar aðrar greiðslur árið 2014. Greiðslur frá Tryggingastofnun voru rúmum sjö milljörðum eða 10,5% hærri en árið áður. 

Það er athyglisvert að greiðslur frá Tryggingastofnun hafa hækkað um 27,2% að raunvirði frá árinu 2010 á sama tíma og laun hafa hækkað um 14,4%. Þá lækkuðu tryggingabætur ekki í hruninu, ólíkt launum. Þær hafa hækkað um 27,1% ef miðað er við árið 2007 en launagreiðslur eru enn 8,2% lægri en þær voru þá.«

Þá segir í sömu grein: »Það er athyglisvert að frá árinu 2010 hefur þeim sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun fjölgað um 8.815, eða tæp 19,7%, en á sama tíma hefur framteljendum á skattgrunnskrá fjölgað umm 11.042 eða um 4,2%. Þeir sem fengu greidd laun voru hins vegar aðeins 6.679 fleiri árið 2014 en 2010 og hafði aðeins fjölgað um 3,8% á þessum tíma.«

 

Upplýsingar af þessu tagi, með nauðsynlegu talnaefni, kunna að fara fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum. En þær eru himinhrópandi og ættu því að hljóta mikla athygli og skapa umræður. 

Fyrir það fyrsta þá er meintum sannleika, sem hamrað hefur verið á af ákefð og varla nokkur hefur þorað að andæfa, hrundið af stalli með dynk.

Hvernig stendur á því að þingmenn og ráðherrar hafa ekki látið málið til sín taka með afgerandi hætti? Hvernig getur það gerst, að á aðeins fjórum árum hefur þeim sem þiggja bætur frá Tryggingastofnun fjölgað um 19,7% á meðan »vinnandi fólki sem stendur að mestu undir velferðinni í landinu«, eins og það er orðað í Tíund, hefur aðeins fjölgað um 3,8%? Faraldrar hafa ekki geisað né landið setið undir loftárásum og sprengjuregni.

 Ekki þarf að kunna mikið annað en margföldunartöfluna til að sjá að þessi þróun leiðir í ógöngur haldi hún áfram.

 Upplýsingar af þessu tagi hrópa á að við þeim sé brugðist. Og það fast.

 Þeir lesendur þessa bréfs, sem hafa trú á því að sú verði raunin, rétti upp hönd.

 Já, því miður þá kemur þessi nær samhljóða niðurstaða ykkar ekki á óvart. "

Eru þá allar ræðurnar á Útvarpi Sögu um illsku fjórflokksins sem fer illa með þá sem minnst mega sín bara bull og vitleysa. Örorka og bótaþega er sú grein virðist vera sú grein í þjóðfélaginu sem er í hvað örustum vexti eins og ferðamannaiðnaðurinn. Hverjir eiga svo að borga þegar allir eru hættir að vinna?

Ja hérna, hvað er að heyra.


 


Hrafnaþing

var vel lukkað á ÍNN í gær þó að gulleit froskaásjóna stjórnandans Ingva Hrafns með milligöngu Skype sé pirrandi til að byrja með. Reksturinn er greinilega að verða mjög arðbær úr því að menn geta haft fasta búsetu erlendis og send spekina í gegn um netið. Er ekki bara betra að senda viðmælendurna til Key Largo og taka þættina upp þar? Allir jafn sólbrenndir og sælir? Jæja annars, ég er bara að stríða Ingva kallinum sem er ágætur og honum sé lof og prís fyrir þessa hvað mest vitrænu þætti sem sjást og heyrast i íslenskum fjölmiðlum.Þetta er ágætt hjá honum og nýjung líka. Það sem þar er sagt á Hrafnaþingum væri verra ósagt.

Ingvi Hrafn kom með spurningu sem ég skildi vel. Af hverju mega menn ekki setja niður ódýran sökkul á höfuðborgarsvæðinu og setja þar ofan á gámahús eða slík einföld hús svipað og háskólinn á Bifröst gerði á sínum tíma. Svo má bara taka húsin og flytja þau. Leysa húsnæðisvandræðin á verði sem ungt fólk getur borgað? Setja svo ekki evrópska byggingareglugerð sem keyrir upp byggingakostnað um 15%?

Ég er búinn að reyna að ná eyrum bæjarpólitíkusa árum saman með einhverjar svona hugmyndir en algerlega án árangurs. Þeir sjá ekkert annað en fallbyssuheld steinsteypuvirki til fimmhundruð ára og yfirtökugjöld sem taka til sín þriðjung eða helming byggingarkostnaðarins áður en skóflu er dýft í jörð. Tala svo fjálglega um að leysa þurfi húsnæðismál unga fólksins svo það fari að kjósa Sjálfstæðisflokksins en ekki Pírata.

Það er á sveitarsjórnarstiginu sem húsnæðisvandamálin byrja og eru. Hvort sem er í þeim bæjarfélögum þar sem villtu vinstrin ráða eða íhaldið. Ég er hættur að nenna að ræða þetta á þeim vettvangi svo forstokkaður sem fulltrúarnir yfirleitt eru.

Jón Kristinn Snæhólm var glöggskyggn að vanda þegar hann ræddi vanda Sjálfstæðisflokksins. Það er nokkuð ljóst að flokkurinn nær sér aldrei á strik ef rétt er að fylgi hans sé  komið niður í 17 % í Reykjavík. Sé flokkurinn í meira en tuttugu prósent á landsvísu bendir þetta þá ekki til að sérstök vandamál blasi við flokknum í Reykjavík? Fulltrúarnir séu hvorki  að ná til fólksins sem kaus þá hvað þá annarra?.

Er ekki Sjálfstæðisflokkurinn allt í kringum Reykjavík með mun meiri hundraðshluta?  Myndi maður yfirleitt láta sjá sig meðal almennings ef maður væri borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík með þetta rekord? Kannski skýringin á því að maður fréttir lítið til þeirra yfirhöfuð? Einhver minnimáttarkomplEss þjaki þá um hábjartan Daginn eins og ýmsa unglinga í gamla daga?

Þannig er ekki aðeins að búast við öðru en að niðurlæging Sjálfstæðisflokksins haldi áfram  það sem lifir þessa kjörtímabils og heldur það næsta líka vegna venjulegrar sjálfsánægju fólks sem gerir það blint á sjálft sig í pólitík. Forsendur framfara láti því bíða eftir sér til tjóns fyrir þjóðina.Því hér á landi hafa aldrei orðið teljandi framfarir nema  áhrifa Sjálfstæðisflokksins gæti sem víðast.

Björn Jón Bragason íþróttakappi, sagn-og lögfræðingur,magister í "Steingrímsfræðum" eins og Jón segir, var einnig í þættinum og lagði gott til. Hann er manna fróðastur um fyrirbrigðið Steingrím J. Sigfússon og VG. Allir eru þeir sammála um að þetta tvennt hafi aldrei verið aðskilið. Steingrímur er flokkurinn og ræður öllu. Þessvegna er Björn Valur kjörinn varaformaður og fulltrúa unga fólksins hafnað.Við áhorfendur hljótum að fagna kjöri varaformanns VG alveg ógurlega.

Bjön Jón er að verða ritstjóri vikublaðsins Reykjavíkur.Blað langafa míns Jóns Ólafssonar hét þessu nafni og ég forsómaði að taka þetta nafn þangað til Ámi umboðsmann  tók það til sín. Svona blað hefði geta orðið baráttutæki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem bitið hefði.En borgarfulltrúarnir höfðu engan áhuga á slíkum tillögum.

Undir ritstjórn Ingimars Karls hefur þetta blað verið vinstrisinnað blað sem hefur gapað upp í borgarstjórnarmeirihlutann í Reykjavík og Hjálmar Sveinsson, sem er mesta ógæfa í skipulagsmálum sem dunið hefur yfir nokkra borg að margra dómi. Vonandi verða nú þáttaskil í stefnu blaðsins og flatbyggðarsjónarmið þeirra EssBjarnar, Hjálmars og Dags Bé. í skipulagsmálum fari að víkja fyrir nútímanum með nýjum ritstjóra.

Birni Jóni er óskað velfarnaðar með sitt blað(hann mætti senda eintak í Kópavog) og vonandi heyrum við fljótt aftur í honum og Jóni Kristni á Hrafnaþingi hjá farfuglinum Ingva Hrafni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Nauðganafaraldur í Þýzkalandi

http://www.gatestoneinstitute.org/6527/migrants-rape-germany

Samkvæmt Gatestone Institute, Soeren Kern, gengur nauðgunarfaraldur yfir Þýzkaland.

Hér eru samandregnir punktar úr mun lengri frétt:

 

"Þótt nauðgunin ætti  sér stað í júní, þá þagði lögreglan um það í næstum þrjá mánuði, þar til  héraðsblað fjölmiðlum birt frétt um  glæpinn.  Samkvæmt ritstjórnarathugasemd í blaðinu Westfalen-Blatt, er lögreglan að neita að upplýsa  almenning um glæpi sem varða flóttamenn og innflytjendur vegna þess að þeir vilja ekki að gefa gagnrýnendum  fólksflutninganna tækifæri.

 

 13-ára gamall Muslima- stúlku var nauðgað af öðrum hælisleitanda  á hæli fyrir  flóttamenns  í Detmold, borg í vestur-Mið Þýskalandi. Stúlkan og móðir hennar flýðu að  sögn frá heimalandinu til a‘ flýja menningartengt kynferðisofbeldi.

 

Um 80% flóttafólks / innflytjenda á skjól í Munchen eru karlkyns ... verð fyrir kynlíf með kvenkyns hælisleitenda er tíu evrur. - Bavarian Broadcasting (Bayerischer Rundfunk).

 

Lögreglan í Bæjaralandi  í bænum Mering, þar sem 16 ára gamla stúlka var nauðgað 11. september, hefur  gefið út viðvörun til foreldra um  að leyfa börnum sínum ekki að fara út án fylgdar. Í Bæjaralandi í bænum Pocking hafa stjórnendur á Wilhelm-Diess-Gymnasium varað foreldra að láta  dætur sínar klæðast ögrandi fötum  í því skyni að koma í veg fyrir "misskilning".

 

"Þegar Múslima unglingspiltar fara á útibaðstaði, þeir dámar þeim óvart þegar þeir sjá stelpur í bikiní. Þessir strákar, sem koma úr umhverfi  þar sem það hneykslar  að sýna nakta kvenmannshúð,  elta stelpur og angra þær  án þess að  átta sig á því. Auðvitað, þetta veldur ótta. " – Bæjara- stjórnmálamaður, vitnað um í Die Welt.

 

A lögreglu árás á  flóttamannabúðir í Munchen kom  í ljós að verðir sem voru ráðnir til að veita öryggi stóðu í  mansali  og eiturlyfjasölu  og vopnasölu og þóttust ekki sjá vændisstarfsemina.

 

Á sama tíma eru  nauðganir  þýskra kvenna af hælisleitendum  að verða daglegt brauð."

Það er greinilegt  að fréttir af vandamálum vegna innflytjendanna hennar frú Merkel eru skipulega bældar niður af yfirvöldum.( After several blogs (here, here and here) drew attention to the letter, the LandesFrauenRat (LFR) Hessen, a women&#39;s lobbying group that originally uploaded the politically incorrect document to its website, abruptly removed it on September 14, without explanation.) 

Þessar frásagnir staðfesta að ofbeldi hefur vaxið mjög við innflutning þessara villmanna sem streymt hafa yfir landamærin. Þetta er fólk sem er á svipuðu eða lægra menningarstigi en Egill Skallagrímsson myndi vera ef hann birtist hjá okkur í nútímanum.

Við fáum sýnishorn í desember af fólki sem talar ekkert mál sem við skiljum. Þeir í hópnum sem tala einhverja ensku eiga að hjálpa hinum.  Stjórnvöld halda að það gangi bara allt vel hjá okkur. Við erum svo spes.

Við bara bíðum.


Þjóðflutningar okkar tíma

er grein í síðasta hefti ÞJÓÐMÁLA  sem ég leyfi mér að vekja athygli á ef einhverjir fá ekki það ágæta tímarit. Óli Björn Kárason hefur nú tekið við ritstjórn þess af stofnandanum Jakobi F. Ásgeirssyni sem er búinn að ritstýra því frá upphafi með miklum glæsibrag.Ekki er að efa að Óli Björn mun halda uppi merkinu af sínum alkunna dugnaði og baráttugleði.

Grein prófessors dr. Bents er löng en þess eðlis að þar er engu ofaukið af fræðilegri þekkingu. Hún hljóðar því svo með yfirskriftinni

"Þjóðflutningar okkar tíma: 

 

Eftir Bent Jensen

 

Að baki því sem hér segir er rökstudd skoðun um að gömlu Evrópuþjóðirnar séu á hraðri leið til sameiginlegs sjálfsmorðs.

Þetta hljómar ógnvekjandi og finnist ein-hverjum að í orðunum felist móðursýki getur sá hinn sami einfaldlega látið eftirfarandi ólesið.  Vegna sjálfs sín ætti hann þó ekki að gera það, um langa hríð hefur ekki verið unnt að horfa fram hjá staðreyndunum: Spáin er raunsæ.

Þegar maður horfir út um gluggann á húsi sínu eða bílnum er enn margt sem virðist stöðugt og kunnuglegt en sá er óvenjulega illa upplýstur eða haldinn víðtækum skorti á veruleikaskyni sem sér ekki skriftina á veggnum: Elíturnar í (Vestur-) Evrópu hafa látið af viljanum til að verja evrópska menningu og siðmenningu.

Nótt sem nýtan dag flæðir stór straumur fólks án persónuskilríkja eða með fölsk skilríki inn yfir óvarin landamæri Evrópu. Í gamla daga, þ. e. a. s. fyrir fáeinum árum, hefði lögregla, landa-mæraverðir eða hermenn stöðvað fólkið og sent það til baka. Nú á okkar tímum eru evrópsk herskip notuð til að fylgja hinum ólöglegu innflytjendum örugglega í næstu höfn þar sem þeim er séð fyrir mat og drykk, gistingu og umsóknareyðublöðum um hælisvist.

Yfirvöldunum er fullljóst að í hópi hinna óboðnu eru hryðjuverkamenn með reynslu af stríði, félagar í samtökum sem hafa nú árum saman lagt stund á að skera friðsama borgara á háls af því að þeim líkar ekki við þá. Nú geta bæði hryðjuverkamenn og friðsamari borgarar sem halda yfir landamærin farið hindrunarlaust áfram til þess lands innan ESB þar sem búseta kemur þeim best. Þar geta þeir síðan dvalist frjálsir og án eftirlits.

Fyrr á árum litu Danir á þjóðflutninga sem atburði löngu liðins tíma. Við lærðum um þá í skólanum – um Kimbra, Tevtóna, Gota og aðra germanska þjóðflokka sem héldu í suður og eyðilögðu Rómarríkið. Nú búum við sem betur fer við friðsamlegar aðstæður, er okkur sagt, her landsins stendur vörð um Dani og aðra evrópska ríkisborg-ara gegn ytri ógn og lögreglan gegn innri ógn.

Auðvitað hefur komið til þjóðflutninga síðar. Fólk fluttist til Bandaríkjanna, Kanada og Ástralíu frá Evrópu, það voru einskonar þjóðflutningar við breyttar aðstæður. Menn gátu þó ekki bara komið á staðinn og krafist inngöngu. Allt varð að fara eftir bókinni, menn áttu að vera frískir og vinnu-færir. Náið var farið í saumana á högum þess sem óskaði eftir landvist. Þá var ekki heldur um það að ræða að frá og með fyrsta degi ættu menn rétt á að njóta víðtæks velferðarkerfis á kostnað íbúa móttökulandsins. Þetta gilti einnig um fólk sem vildi setjast að í Danmörku, þ. á m. gyðinga frá Austur-Evrópu fyrir fyrri heimsstyrjöldina.

Á 20. öldinni kom einnig til mikilla búferlaflutninga eða þjóðflutninga í Evrópu sjálfri: Eftir fyrri heimsstyrjöldina voru kristnir Grikkir reknir frá Tyrklandi; fjöldi Rússa neyddist til að yfirgefa Rússland eftir borgarastríðið 1918-1920; milljónir sovéskra borgara voru fluttar nauðungarflutningi innan landamæra Sovétríkjanna; milljónir evrópskra gyðinga voru sendar í útrýmingarbúðir; milljónir Þjóðverja flúðu eða voru reknar á brott eftir að Þýskaland tapaði annarri heimsstyrjöldinni; eftirlifandi gyðingar flýðu Evrópu og héldu til Ísraels; arabar flýðu til arabískra nágrannaríkja undan stríðinu við ríki gyðinga.

Það er með öðrum orðum ekkert nýtt að mikill fjöldi fólks flytjist eða sé fluttur frá einum stað til annars. Þjóðflutningar líðandi stundar eru hins vegar að mörgu leyti ólíkir því sem áður var. Í fyrsta lagi er um að ræða fólk með menningu og af menningarsvæði sem er mjög frábrugðið hinu evrópska, fólk sem hvorki óskar né vill laga sig að hinu evrópska heldur krefst sérmeðferðar. Í öðru lagi er hugsanlega um að ræða ótölulegan fjölda fólks sem mun eyðileggja hið evrópska samfélag takist ekki að setja skorður við þessu flóði sem nú er stjórnlaust.

Þjóðflutninga samtímans má rekja til þriggja grunnþátta: 1) Sprengingar, án hliðstæðu í mannkynssögunni, í fólksfjölda í nágrenni Evrópu– á svæðum þar sem ríki hafa hrunið eða eru að hruni komin auk innbyrðis hugmyndafræði/trúarbragða átaka og borgarastyrjalda. 2) Góðra tækifæra til að flytjast til Evrópu og viðskiptalegs skipulags við undirbúning brottfarar þangað. 3) Landamæra- og varnarlausrar Evrópu sem stendur til boða eins og aðlaðandi hlaðborð þar sem hver og einn getur valið úr réttunum.

Með netinu og farsímum má upplýsa hvern og einn um öll réttindi sem njóta má jafnskjótt og maður stígur fæti á komulandið. Opinberar og einkareknar stofnanir í víðtæku neti sjá um að aðstoða, veita ráð og sinna komumönnum. Þeim  stendur til boða húsnæði, klæðnaður, peningar, heilsugæsla, lögfræðiþjónusta auk annars. Hreyfi einhverjir í komulöndunum gagn-rýni eru þeir barðir til hlýðni af  stjórnmála- og fjölmiðlaelítum landanna, dugi það ekki er gripið til refsilaganna.

Fyrir skömmu hlakkaði í dömu sem sagði við mig að nú væri bara komið að skuldadögunum fyrir nýlendustefnu okkar. Þetta er vitleysa reist á vanþekkingu á sögunni og ber auk þess vott um sektarkennd í bland við sjálfspyntingu sem alið er á í menntakerfinu. Jafnvel þó þetta væri rétt kemur það ekki að neinu gagni við úrlausn hinna óviðráðanlegu vandamála sem fólksstraumurinn og aðgerðarlausir stjórnmálamenn skapa. Það má ef til vill segja okkur „ábyrg“ fyrir offjölgun fólks í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku í þeim skilningi að hinar stórstígu framfarir í heilbrigðismálum megi rekja til evrópsku nýlenduveldanna. Áhrifin má meðal annars greina í hinum heilbrigðu og sterkbyggðu ungu körlum sem eru í fylkingarbrjósti þeirra sem við sjáum nú koma.

Með öðrum orðum, hér er ekki um að ræða þjóðflutninga eða flóttamenn í hefðbundnum skilningi. Hér er um það að ræða að andstöðulaust sýna Evrópumenn undirgefni gagnvart fólki með framandi menningu sem á ekki heima í Evrópu en vill gjarnan njóta ávaxtanna af dugnaði og sköpunarmætti Evrópumanna.

Sé málum í raun þannig háttað að Evrópumenn séu um það bil að fremja sameiginlegt sjálfsmorð liggur beint við að spyrja hvers vegna þeir hristi ekki bara af sér slenið og geri ráðstafanir til hindra þær hörmungar sem skella á þjóðum Evrópu áður en langt um líður.

Fölsk sektarkennd elítunnar, gildahöfnunin, barnaskapurinn og sögu-vanþekkingin hafa þegar verið nefnd. Rannsókn á hinni óttalegu þróun í Svíþjóð bætir vænum efnivið í svarið. Svíþjóð hefur sérstöðu en sænsku veikinnar verður vart í öllum (vestur-) evrópskum lönd-um. Í Svíþjóð hefur vanhelgu bandalagi frómra stjórnmálamanna og vægðarlausra fjölmiða (gagnvart Svíum) tekist að spenna íbúana í heljargreipar sínar, þeir horfa nú möglunarlaust á fyrrum vel skipulagt þjóðfélag sitt breytast í samfélag þar sem enginn getur lengur talið sig öruggan.

Nýleg aftaka fyrir opnum tjöldum án dóms og laga [í IKEA-verslun 10. ágúst 2015] á konu og syni hennar er ekki annað en síðasta drama-tíska dæmið um sænska ástandið.

Svipaðir hlutir gerast í Danmörku, Hollandi, Frakklandi og Englandi. Í Frakklandi tryggja mörg þúsund sérþjálfaðir lögreglumenn röð og reglu á strætum og torgum, þeir sporna gegn ofbeldi og hryðjuverkum. Á Englandi undirbúa yfirvöld sambærilegar aðgerðir. Borgarastríðið í Evrópu er sem sagt fyrir löngu hafið, það er hluti þriðju heimsstyrjaldarinnar milli Evrópu/Vesturlanda og árásargjarnra hryðjuverkasamtaka múslíma.

Í raun ætti engan að undra þótt mið-austurlenskt ástand skapist í evrópskum borgum eftir innflutning á milljónum múslíma frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

Evrópska elítan og herskari hennar af „sérfræðingum“ og fulltrúar góðmennskuiðnaðarins trúa þó enn að þeir geti talað eða keypt (að sjálfsögðu á kostnað skattgreiðenda) sig frá vandanum með enn fleiri sjóðum, enn fleiri uppeldisfræðingum, enn meiri „samruna“.

Við erum vitni að því sem aldrei fyrr hefur gerst í sögunni: sjálfviljugri uppgjöf siðmenningar.

Greinin birtist upphaflega
í Jyllands-Posten 22. ágúst 2015."

 

Hér er kveðið fast að orði. En það væri mikið andvaraleysi að velta ekki atburðum samtímans fyrir sér þar sem þetta snertir okkur öll á Vesturlöndum. Það sem gerist í dag verður ekki svo auðveldlega dregið til baka. Ég hugsa að margur Þjóðverjinn velti því fyrir sér núna hvernig sé hægt að draga gerðir Merkel kanslara til baka, þegar afleiðingarnar blasa við hvarvetna í Þýzkalandi.

Það er því rétt að við Íslendingar hugsum okkar ráð áður en við stígum skref í "flóttamannaviðtöku" sem ekki verður auðvelt að stíga til baka ef þjóðflutningarnir flæða yfir Ísland.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband