Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.11.2021 | 16:11
Andstæðingar sóttvarna
fara mikinn á blogginu.
Ein þeirra er Kristín Inga Þormar.
Á henni er mér helst að skiljast að aukaverkanir af bólusetningum valdi því að fólk eigi ekki að láta bólusetja sig þó að sannað sé að það dregur úr skaða?
Hún skrifar til dæmis:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2021 | 13:11
Ömurlegur endir
í leikhúsi fáránleikarans í Gljáskógum. Menn eru ekki sammála um neitt nema að allt sé í merinni og ekkert gangi upp í bullinu um CO2 og manngerða hamfarahlýnun.
Kínverjar, Kanar og Indverjar glotta í gluggann og halda ótrauðir áfram að kynda með kolum, Pútín brennir gasinu aldrei minna og Ástralir selja kolin sín sem aldrei fyrr. Þýskarar endurræsa gömlu kolakyntu rafmagnsverin sin og Kínamenn byggja eitt nýtt á hverri viku. Aldrei er dælt upp öðru eins af olíu í Arabaríkjunum eftir grátbænir Bidens. En Fransmaðurinn hugsar um sig eins og venjulega og byggir kjarnorkuver til að selja rafmagn sem er það mest raunhæfa í stöðunni.
Þvílíkt prump og plat og núll.
Nema kannski að minnka methanið og messa um framtíðina sem enginn sér. Framhaldsbull fjörtíuþúsund fíflanna frá París fyrir fimm árum sem fáu félegu skiluðu.
Við Íslendingar gátum þó skemmt okkar fimmtíu fulltrúum svo um munaði á ríkisins kostnað og kannski kolefnisjafnað flugið þeirra úr sama kassa.
Umhverfisráðherrann okkar, sem enginn kaus, ber sig illa yfir því að geta ekki tilkynnt um einhverja stórkostlega fjárbrennslu úr ríkiskassa Íslands. En það er hvort sem er ekkert hægt að gera meðan Biggi Ármanns útskrifar ekki talningabrandarann í Borgarnesi og engin ný ríkisstjórn Kötu tekur við að laga loftslagið svo um munar fyrir heiminn.
Orti ekki séra Hallgrímur; Sjá hér hve illan enda, ódyggð og svikin fá..
13.11.2021 | 03:31
Það eru vandamál
í heiminum sem eru risavaxin vegna hlýnunar.
Myndir frá Bangladesh sýnir hvernig hækkuð sjávarstaða hefur eyðilagt lífsdrauma fólksins. Fjölskyldur með 10 börn horfa á eftir húsunum sínum í hækkandi vatnsborð. Getur Glasgow-ráðstefnan ráðið við þetta? Eru draumarnir um 10 börn og hús á vatnsbakka á undanhaldi?
Hitabreytingar eiga sér stað í heiminum en svo er annað mál af hverju þær stafa. En afleiðingarnar eru augsýnilegar á landamærum þar sem fólkið flýr neyðina í aðra neyð.Í Mexico og Belarus.
Og bráðum rísa bylgjur i Asíu þaðan sem fólk vill flýja en hefur ekkert að flýja til nema Íslands og annarra afkima heimsins.
Ágúst H. Bjarnason vekur athygli á skrifum Judithar Curry:
(Skynsemisskrif Dr. Judith Curry fyrrum loftslagsfræðiprófessors við Georgia Tech. :Nýja hreina orkuhagkerfið, sem ríkisstjórnir og herferðamenn lofar að bjarga okkur frá umhverfishamförum. En áhyggjur vaxa um að við gætum verið að stefna í nýja framtíðarkreppu. Eftir áratugi munu rífast við munum eiga erfitt með að hafa miklar umhverfisskemmdir af völdum milljarða mjög eitraðra og óendurnýjanlegra sólarsella og bílarafhlaða, ásamt nýskipuðum kjarnorkuverum, á meðan internetið sjálft, bitcoin námuvinnsla innifalin, neytir óstjórnlegs magns af orku.Eru vandamál umhverfisins enn meira áþreifanlegri en við höldum? Mun nýja hagkerfið bjarga okkur, eða eru núverandi tæknilausnir skammtíma lagfæringar? Er óleyst neysla og vöxtur sjálfum sér um að kenna í umhverfismálum okkar? Eða getum við reitt okkur á getu mannkynsins til að leysa næstu kreppu sem við gætum verið í því ferli að valda núna? ")Bangladesh fólkið er í óbreyttri stöðu hvað sem Glasgow líður.Stórar fjölskyldur eru draumar allra þar austur frá. Aðstæður í náttúrunni eru hinsvegar ekki fyrir hendi til að draumar fólksins geti ræst þar austur frá. Sekkir af korni frá S.Þ fresta bara vandanum þar, í Ethiopíu, Madagascar og Afgahnistan. Hvað þá í Yemen þar sem túlkunin á orðum spámannsins er ofar öllu.Trúarbrögðin er sem fyrr ein mesta bölvun mannkynsins eins og Lenin gerði sér ljóst.Sveiflur í lifsskilyrðum jarðar eru hinsvegar eitthvað sem við okkur blasirVandamálin eru hinsvegar óleysanleg með óbreytta mannfjölgunina sem náttúran er hugsanlega að byrja að reyna að leysa með Covid19 eða því sem næst kemur?.
12.11.2021 | 19:01
Haustlegir Gljáskógar
eru eftir þegar þotureykinn og kokkteilþefinn leggur frá.
Þetta var allt bull og vitleysa í aðalatriðum.
Sem betur fer er ástandið ekki kolsvart þótt margt megi bæta.Umhverfissóðaskapur er vondur og þeir seku eiga að bæta sig.
500 vísindamenn hafa skrifað S.Þ. og bent á staðreyndir málsins.
https://www.aei.org/carpe-diem/there-is-no-climate-emergency-say-500-experts-in-letter-to-the-united-nations/
"Here are the specific points about climate change highlighted in the letter:
1 Natural as well as anthropogenic factors cause warming.(Náttúrlegir sem og manngerðir þættir valda hlýnun)
2. Warming is far slower than predicted.(Hlýnun er mun hægari en spáð var.)
3. Climate policy relies on inadequate models.(Loftslagspár byggja á ófullkomnum líkönum)
4. CO2 is not a pollutant. It is a plant food that is essential to all life on Earth. Photosynthesis is a blessing. More CO2 is beneficial for nature, greening the Earth: additional CO2 in the air has promoted growth in global plant biomass. It is also good for agriculture, increasing the yields of crops worldwide.(CO2 er ekki mengun heldur plöntufæða sem er nauðsynleg öllu lífi á´jörðinni. Meira CO2 í andrúmsloftinu er jákvætt fyrir náttúruna. sem grænkar jörðina: meira CO2 í loftinu hefur stutt við aukningu á lífmassa plantna heimsins. Það er einnig gott fyrir landbúnaðinn og eykur uppskeru heimsins.)5. Global warming has not increased natural disasters.(Heimshlýnun hefur ekki aukið magn náttúruváarviðburða)
6. Climate policy must respect scientific and economic realities.(Loftslagsstefna verður að taka tillit til vísindalegra og hagrænna raunveruleika.)
7. There is no climate emergency. Therefore, there is no cause for panic."Það er engin loftslagshamfaravá.Þessvegna er engin ástæða til skelfingar)Öndum með nefinu þó tekið verði í skattnefið okkar og okkur snýtt duglega af sanntrúuðum í ríkisstjórn Íslands.
Það er gott að þetta glamurþing er búið í Glasgow sem Bjarni Jónsson þýddi sem Gljáskóga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2021 | 13:52
Netalögn í neyð?
í Reynisfjöru gæti hugsanlega verið nothæf leið?
Ef lagt væri net með flotholtum og sökkum meðfram fjörunni á kannski fráfallsmörkum gætu landeigendur fengið fisk í soðið upp í kostnað.
En manneskja sem hefði tekið út í öldu gæti kannski fest hönd á lögninni í nauðungarferð sinni út?
Þyrfti þetta að vera svo mikil sjónmengun? Bjargvesti á ferðafólk væru líka hugsanlega skynsamleg.
Þau eru hörmuleg þessi slys sem þarna hafa orðið og gott ef einhverja neyðarráðstöfun væri hægt að gera sem ekki þarf að kosta allt of mikið.
10.11.2021 | 14:30
Taliban exchange
food for your guns.
X tonnage guns and ammo versus Y tonnage of food.
That is the Taliban exchange for hunger relief.
9.11.2021 | 13:13
La Tour Eiffel
hef ég fyrir talsvert fyrir augunum þar sem ég horfi mikið á France24.
Ég hef komið í Eiffelturninn einu sinni. Núna hugsa ég talsvert um það hvílíkt afrek það var hjá Gustav Eiffel og félaganum Nouguier að hanna þennan turn og láta byggja hann 1889. Úr járni en ekki stáli. Úr steypujárni frekar en prófílum. Með hnoðum en ekki suðu.
Hafandi aðeins blýant og pappír og engar tölvur. Ekki gæti ég gert þetta svo mikið er víst.
Þvílíkt afrek er la Tour Eiffel.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.11.2021 | 12:36
Nú tekur á hjá Talibönum
sem kunna helst ekkert annað en að drepa sitt eigið fólk.
Nú er ekkert til að éta hvað þá annað í Afganistan. Þá bjóða Talibanar bara byssurnar sínar fram. Þessi ómenntaði skríll hefur ekki yndi af neinu nema manndrápum og nauðgunum.
Nú eiga Ameríkanar líklega að senda mat til Afganistan í nafni mannúðar.Mikið þyrfti að losna við svona 40 þúsund Talibana og vopnin þeirra ef á að koma einhverju skikki á landið.
Nú tekur í hjá Talibönum ef þeir eiga að gera eitthvað annað en að stúta almenningi.
9.11.2021 | 11:22
Á Líf að ráða
fyrir mig? Ef ég er með bíladellu af hverju á það að vera geggjað fyrir mig að keyra í strætó eða Borgarlínu?
Þessi Borgarstjórnarkommi skrifar svo í Fréttó:
"Það er bara geggjað að vera í strætó.
Maður fær ógeðslega mikinn tíma og svo er frítt wi-fi. Bara alger læfseifer, sagði 11 ára dóttir mín þegar við vorum að ræða fyrirkomulagið á gítartímanum hennar.
Hún hefur lært á gítar í tvö ár og í fyrstu skutlaði pabbi hennar henni með tilheyrandi vinnuraski og umhverfisálagi.
Frá því í janúar hafa börn 11 ára og yngri fengið frítt í Strætó. Síðan þá hefur hún sjálf séð um að koma sér í og úr gítartímum. Dóttir mín hefur ekki látið staðar numið við gítartímana heldur fer hún miklu víðar, stundum ein en oftar í félagsskap vina sinna, til að sinna sínum ýmsu hugðarefnum.
Nútímakrakkar eru þaulvanir farsímum og eiga auðvelt með að skipuleggja ferðir sínar og komast þangað sem þau vilja. Hún og aðrir krakkar í kringum hana upplifa því frelsið sem fylgir því að komast ferða sinna sjálf með almenningssamgöngum sem gerir þau vonandi að framtíðarnotendum.
Smávægilegar breytingar á þjónustu eða verkefnum geta orðið til stórra breytinga á umhverfi okkar og hegðun. Ákvörðun Strætó um að niðurgreiða ferðir 11 ára og yngri hefur fjölgað notendum í þeim hópi. Það er mín skoðun að við eigum að niðurgreiða almenningssamgöngur og aðra vistvæna ferðamáta og halda gjaldtöku í lágmarki, ekki síst fyrir þau sem nýta sér þær að staðaldri.
Við þurfum að vinda ofan af áratugalangri áherslu á einkabílinn sem okkar helsta samgöngumáta. Hingað til hefur niðurgreiðsla á öllu sem að honum snýr numið milljörðum króna í formi ókeypis bílastæða, mislægra gatnamóta, vegaframkvæmda og annarrar þjónustu.
Ofan á allan þann kostnað úr almannasjóðum bætist svo annar kostnaður sem bíleigendur greiða úr eigin vasa. Það er pólitísk ákvörðun að niðurgreiða samgöngur og morgunljóst að sú niðurgreiðsla á að beinast að almenningssamgöngum, innviðum göngu- og hjólastíga og fjölbreyttari ferðamátum.
Sú fjárfesting skilar sér margfalt til umhverfisins og ánægðari íbúa sem elska að vera í strætó þegar byrjar að dimma, eins og hún dóttir mín. "
Af hverju eiga svona kommar og krakkarnir þeirra að ráða fyrir mig? Ég vil minn bíl . Það er minn lífsstíll.
Ég vil ekki láta Líf ráða fyrir mínu lífi.
9.11.2021 | 10:41
Er þetta leið?
út úr loftslagsþversögbninni?
Fá orkugjafa sem ekki blæs út CO2?
Guðmundur Pétursson rafmagnsverkfræðingur skrifar merka grein fyrir mig í Morgunblaðið í dag.
Þar segir hann:
"Metan er innlent og ódýrt eldsneyti og er kolefnishlutlaus orkugjafi.
Bensín er nú næstum 100% dýrara en metan til notkunar í farartækjum og munar um minna í rekstrarkostnaði. Tæplega 400 farartæki eru nú knúin metani á Íslandi.
Fyrir utan bensín og dísilolíu er metan (CH4) algengasta eldsneyti á Íslandi í dag. Metaneldsneytið sem í boði er hér á landi í dag er hreinsað hauggas frá Sorpu á Álfsnesi og nýju GAJA-gasgerðarstöðinni þar eða frá sorpstöðinni á Akureyri.
Mögulegt er hins vegar að nýta útblástur á koltvísýringi (CO2) frá jarðgufuvirkjunum og iðjuverum, t.d. kísilmálmverum, svo og grænt vetni frá rafgreiningu vatns til framleiðslu á metanrafeldsneyti (CH4).
Jarðgufuvirkjanirnar losa talsvert mikið magn af CO2 auk annarra gastegunda, t.d. brennisteinsvetnis (H2S), og eru því í raun ekki eins hreinar og umhverfisvænar og yfirleitt er gefið í skyn. Þær losa nú samtals um 170 þúsund tonn af CO2 á ári, eða um það bil 20% af heildarlosun frá vegasamgöngum hér.
Þéttleiki CO2 í útblæstri frá jarðgufuvirkjunum er um 75%, frá kísilmálmverksmiðjum um 3,5%, álverum um 2% en í andrúmsloftinu aðeins 0,04 %. Það hlýtur því að vera tiltölulega umfangsmikið og dýrt að fanga og vinna CO2 úr andrúmsloftinu en það er hægt eins og Climeworks hefur sýnt. Ofangreint ferli nefnist á ensku Power-to-Gas með Sabatieraðferð og hefur undirbúningur að slíkri framleiðslu hér á landi þegar staðið í nokkur ár á vegum svissneskra aðila, Nordur Power SNG/ Swiss Green Gas International AG.
Þessir aðilar eru í eigu öflugra svissneskra orkufyrirtækja en bakgrunnurinn að þessum fyrirætlunum er orkustefna og markmið Sviss fyrir árið 2030. Þá eiga 30% prósent af allri gasnotkun í Sviss að vera af endurnýjanlegum og kolefnishlutlausum uppruna. Því takmarki munu þeir ekki ná á heimavelli eingöngu og leita því til Íslands og Noregs (EFTA) þar sem góðir möguleikar eru fyrir hendi á slíkri framleiðslu.
Þessi tækni hefur þegar verið þróuð og reynd þar ytra með góðum árangri þótt í smærri stíl sé en hér er áformað. Stærðareining á hverjum stað hér væri 25-50 MW í rafafli með þörf fyrir 25-50 þúsund tonn af CO2 á ári. Rekstur og orkunotkun slíkrar framleiðslu er mjög sveigjanleg og gerir kleift að aðlaga sig einstaklega vel orkuframboði.
Þessi undirbúningur hefur átt sér stað í góðri samvinnu við öll stóru jarðvarmaraforkufyrirtækin á Íslandi svo og ýmsa aðra aðila og standa vonir til að bráðlega verði hægt að hefja raunverulega framleiðslu. Undirritaðar hafa verið viljayfirlýsingar og gerð samkomulagsdrög um ýmislegt varðandi samstarf á þessu sviði og er þetta mál vel kunnugt fjölmörgum aðilum hér og m.a. opinberum aðilum. Engir endanlegir samningar varðandi aðstöðu, orkuafhendingu og annað hafa þó verið undirritaðir enn.
Rafgert íslenskt metan (sem við höfum kallað megas, með fullri virðingu fyrir skáldinu) er skilgreint sem endurnýjanlegt grænt eldsneyti og getur því stuðlað að tilsvarandi minnkun á notkun jarðefnaeldsneytis og jarðgass í Sviss.
Svona tilbúið metangas má hæglega vökvagera hér en við það minnkar rúmmál þess 600-falt og þannig má auðveldlega flytja það út í tönkum. Mjög tryggur og stór markaður er fyrir slíkt endurnýjanlegt vökvagert gas í Sviss, bæði fyrir almenna gasdreifikerfið og áfyllistöðvar fyrir flutningabíla.
Tilfinnanlega vantar þó enn samræmda (evrópska) reglugerð hvað varðar viðurkennda skráningu á slíkri kolefnisnýtingu og tilfærslu (CCU: Carbon Capture and Utilisation). Einnig er stefnt að því að bjóða megas til sölu hér á Íslandi eins mikið og markaður verður fyrir og þá einnig á vökvaformi fyrir farartæki til vöru- og fólksflutninga, svo og einnig fyrir skipin.
Framleiðsla og notkun á metanrafeldsneyti er tvímælalaust mjög vænlegur kostur af mörgum ástæðum. Það sparar innflutning á jarðefnaeldsneyti og eykur orkuöryggi landsins. Það dregur verulega úr mengun og útblæstri.
Getur verið ábatasamur útflutningur á raforku og stuðlar að uppbyggingu á grænum iðnaði hér. Tími er kominn til að hefjast handa á þessu sviði."
Eina sem ekki gengur upp í mínum huga og þekkingarbanka er vetnisframleiðslan.Rafgreiningin gengur víst ekki upp kostnaðarlega. Það vantar ódýrt vetni sem er ekki í boði. En finnist aðferð til þess þá væri björninn unninn.
Ég hef heyrt ávæning af við að Pútin hafi gert eitthvað raunhæft til að vinna vetni úr gasi en brestur þekkingu til að ræða það.
Aðalatriðið er að mannkynið ferst án orku. Og orka kemur ekki án útblásturs. Og útblástur verður mestur við bruna jarðefnaeldsneytis, olíu, gass og kola.
Ef við finndum leið til að framleiða vetni á hagkvæman hátt þá væri metanið líklega leiðin þó að Dagur B.kaupi rafmagnsstrætóa eftir sem áður.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko