21.1.2010 | 22:55
Ætla þau bara að horfa á ?
Ætlar þessi skjaldborgarvinstrinorrænavelferðarríkisstjórn bara að horfa á þegar upplausn samfélagsins hellist yfir ?
Maður horfir á sýslumennina hampa bláleitum bunkunum með hundruðin nauðungarsöluskjalanna. Hafa menn hugleitt hvaða afleiðingar það muni hafa ef þetta gengur fram ?
Millistétt Íslands verður útrýmt. Þúsundir fólks missir aleiguna og verður sett á vergang í umboði fjármagnseigendanna. Hvað eru þeir að hugsa í lífeyrissjóðunum, nýju bönkunum, og íbúðalánasjóði. Er kreppan og atvinnuleysið bara búið af því að það er búið að hækka skattana og brennivínið? Og vístöluna til þess að lánin hækki í takt. Vístalan er heilög stærð og ekkert fær breytt útreikningi hennar hvað sem þjóðfélagsástæðum líður.
Getur sama fólkið bara borgað núna sem gat það ekki eftir hrunið og uppsagnirnar ? Var bara nóg að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum og Davíð úr Seðlabankanum ? Átti þá allt að lagast af sjálfu sér eins og mannvitsbrekkurnar Hörður Torfason, Sturla lúðurþeytari og Hallgrímur Helgason boðuðu sem ákafast í stjórnarbyltingunni? En gerði það það?
Ég hefði haldið að skuldbreytingar, frysting uppboða, og frestun afborgana séu ennþá nauðsynlegri núna en nokkru sinni fyrr. Hvað ætla bankar eða lífeyrissjóðir að gera með þúsund íbúðir ofan á þær sem þeir eiga fyrir ? Það eru takmörk fyrir því hvað alþigismenn og frændur þeirra komast yfir að kaupa af bankaeignum, jafnvel þó vel sé slegið af. Það er huggulegt að hugsa til þess að lífeyrissjóðurinn þinn hirði ofan af þér íbúðina þín núna með huggunarorðum um að hann muni hugsanlega seinna geta látið þér líða skár í ellinni. Það er nú aldeilis munur að hugga sig við það.
Árið í ár verður núll ár. Það gerist ekkert sem breytir neinu. Ástandið bara versnar. Atvinnuleysið og vandræðin vaxa. Alveg þangað til að fólkið áttar sig á því hvaða ráðleysislið það er búið að leiða til valda og lemur stjórnina út eins og köttinn úr tunnunni.
Ætla þau í ríkisstjórninni bara að horfa á uppboðin fara fram ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 3419867
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hvað er þetta Halldór, ertu ekki verkfræðimenntaður. Ráðherrarnir í ríkisstjórninni segja okkur að uppbyggingarstarfið sé á fullu. Það er eitthvað svekkelsi í fólki, sem vill sjá skjaldborgina um heimilin í landinu. Samkvæmt mínum síðustu upplýsingum sem ég veit að eru áreiðanlegar er teiknivinnu við skjaldborgina að ljúka. Þá á eftir að vinna verkfræðivinnuna og bjóða skjaldborgina út. Það segir mér hugur að uppbygging skjaldborgarinnar muni hefjast þegar þessi ríkisstjórn fer frá, og þá verði þessi ,,hönnunarvinna" ekki notuð.
Sigurður Þorsteinsson, 21.1.2010 kl. 23:14
Þau hætta ekki fyrr en þau verða tekin og borin út með valdi. Þessi ríkisstjórn er annars ekkert annað en setulið í stjórnarráði íslands. Þau sitja þar og það fellur á þau rykið, Steingrímur kemur fram með sínar endurtekningar og klæðist sínum mölétnum sovésku jakkafötum. Þessi ríkisstjórn er að verða þjóðinni hreinlega hættuleg, svo miklar skemmdir eru þau að vinna á samfélaginu með aðgerðaleysi eða heimskulegum fálmkendum smáskammtalækingum. Árna Pál er alveg sama um heimilin, hann hefur meiri áhyggjur af hárgreiðslunni en heimilunum. Þegar útburðurinn hefst, þá mun draga til tíðinda. Það munu verða átök, fjölskyldufeður munu taka líf sitt og börnin horfa upp á það. Svo mun það gerast að lögreglan fæst ekki í þetta. Hef góð sambönd inn í æðstu raðir lögreglunar og þar veit ég að stór hluti lögreglunar hvorki vill eða getur farið í þennan útburð. Eins ef að það kemur til meiriháttar óeirða, þá bakkar lögreglan enda er hún svo fámenn og undirmönnuð. Það mátti engu muna nóttina 22 janúar 2009 þegar lögreglan beitti táragasi við alþingi að þeir yrðu yfirbugaðir, eins og í Gúttó slagnum 9 nóvember 1932
Daníel Sigurbjörnsson, 21.1.2010 kl. 23:53
Var það ekki Peter Sellers sem sagði í einhverju hlutverkinu sínu: "I like to watch"....?
Ómar Bjarki Smárason, 22.1.2010 kl. 00:05
Verður þú aldrei leiður á þessarri voðalegu neikvæðni.....heldur þú að 20 ára eyðilegging sé rétt við á einu ári...??? Ári sem þínir menn hafa notað til að lama Alþingi og framkvæmdavaldið, með málþófi. Ykkur er alveg sama um þjóðina, svo lengi sem þið sitjið vi "Háborðið".... :-/
Snæbjörn Björnsson Birnir, 22.1.2010 kl. 01:58
Þetta er NorRÆNULAUS HELFERÐARSTJÓRN.!
100 daga aðgerðarleysi Geirs og Sollu eftir hrun, var ekki ásættanlegt, Vanhæf ríkisstjórn var öskrað..
Núna eru liðnir rúmlega 400 dagar og ekkert hefur gerst, og öðru hvoru heyrist þvaður eins og hér færslunni fyrir ofan (Snæbjörn), um að tíminn sé svo stuttur liðinn eftir öll þessi ár. Þvílík afneitun!!
Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 08:04
Það er gott fyrir ríkisstjórnina að hugga sig við að það eru enn stuðningmenn hennar eins og Snæbjörn Björnsson Birnir sem vilja bíða eftir að Eyjólfur hressist.
Ég hallast nú frekar að hún sé í ætt vuð það sem Pétur nefnir hana. Mér finnst ekki þurfa neikvæðni til að sjá það fyrir hvað gerast mun eins og Daníel lýsir.
Það er nefnilega það sem ég var að tala um. Þjóðfélagsbyltingu eins og í Frakklandi 1789-1799 þegar fólkið gat ekki fellt sig við rukkanir aðalsins lengur. En því miður var uppskeran harðstjórn Napoleons og styrjaldir hans því allar byltingar éta börnin sín.
Sigurður þú hittir naglann á höfuðið eins og oftast. Það eru þessi samræðustjórnmál og umræðustjórnmál sem valda því að ekkert gerist nema teikniborðsvinna og vangaveltur um hárgreiðslu og sólbrúnku.
Halldór Jónsson, 22.1.2010 kl. 11:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.