Leita í fréttum mbl.is

Hverskonar flokkur er VG ?

Grímur Atlason veltir fyrir sér hlutum sem þvælast fyrir mér. Munurinn er sá að hann er félagi í VG sem ég er ekki ennþá. En ég hef hugsað mér að ganga í flokkinn fyrir næsta prófkjör. Ég ætla líka að ganga í aðra flokka þar sem það er ekki verjandi að láta þá eina um að velja sér forystumenn. Það er mál mitt og þjóðarinnar að hafa áhrif í þá veru að til forystu veljist jafnan hæfast fólk. Þessvegna ætla ég örugglega að mæta á slíka fundi og gera skyldu mína. Það er ekkert sem bannar mér að vera í feliri flokkum en einum.

Grímur segir á vefsíðu sinni:

"Lilja Mósesdóttir segir Magma ævintýrið hafa kostað fylgi í borginni. Það er vissulega rétt að þingflokkur VG hefur brugðist þegar kemur að Magna og fleiri málum og þar er Lilja ekki undanskilin.  Það er þó ekki víst að fólk sé að yfirgefa flokkinn vegna Magna. Lilja gæti allt eins þurft að líta sér nær þegar hún leitar skýringa á ógengi flokksins í borginni og víðar.

VG er flokkur sem hefur logað í deilum síðustu misseri. Margir hafa misst trúna á starfhæfni flokksins enda virðist fólk meira og minna ósammála innbyrðis. Það væri kannski í lagi ef fólk deildi innbyrðis ef það leiddi síðan málin til lykta. Það er heilbrigt að deila en það er óheilbrigt að ræða aldrei við þann sem þú deilir á. Lilja Mósesdóttir og nokkrir félaga hennar virðast ekki rætt deilur sínar nema í gegnum fjölmiðla. Þess vegna lekur fylgið af VG – Magma var bömmer en fylgishrun í borginni tengist Magma lítið sem ekkert.

Ég veit ekki hvernig ríkisstjórnin á að geta starfað áfram við þau skilyrði sem aðstandendur hennar hafa sett henni. Þingflokksfélagar í VG tala greinilega ekki saman og sjálfshyggjan, sem VG hefur iðulega fordæmt, virðist öllu ráða. Það er afskaplega „klént“ að senda út ályktanir eftir á eða hafna því sem orðið er. Lilja er svo sannarlega ekki undanskilin þegar kemur að þessum eftiráatkvæðagreiðslum. Af hverju nýtti hún ekki tækifærin áður en ákvarðanir voru teknar? 

Þetta fólk, sem kost til valda í kjölfar hruns einstaklingshyggjunnar, verður að láta af þessum endalausu leiðindum og taka ábyrgð á stöðu mála. Verkefnin verða ekki leyst með sundurlyndi og sérgæsku.

Hvers vegna ætti fólk að kjósa VG? Fyrir hvað stendur flokkurinn? Er flokkurinn þjóðernissinnaður íhaldsflokkur? Frjálslyndur félagshyggjuflokkur? Grænn umbótaflokkur eða eitthvað annað?  Það er of stórt gat í hugmyndafræðinni sem aftur ruglar fólk í ríminu. Það er ekki bara nóg að segja: Við erum hrein og bein og sváfum ekkert hjá fyrir hjónaband. Það dugar bara einu sinni – núna þarf flokkurinn að sýna hvað í hann er spunnið. Þjóðin verður að fá að sjá að þarf fari flokkur sem getur leyst úr sínum málum. 

Þvílík vonbrigði að horfa upp á þessa vitleysu!"

Ef Grímur veit þetta ekki, hvernig á ég þá að vita þetta ? Verð ég ekki að hjálpa VG til að skilja sjálfa sig ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband