Leita í fréttum mbl.is

Stöðvum kratavitleysuna !

Nú er allt kratarnir vitlausir út af því hversu hægt uppskipting orkufyrirtækjanna HS Orku og HS Veitu gengur. Þar á bæ vilja menn þráast við af tillitssemi við almenning sem á að bera kostnaðinn.En kratarnir vilja auðvitað sífellt fleiri opinberar stöður fyrir sig og sína og þessvegna láta þeir öllum illum látum 

Þetta er allt byggt á einhverjum reglum frá Evrópusambandinu sem Íslendingum bar engin nauðsyn á að taka upp frekar en okkur passaði.  Við skiptum á þessum grundvelli RARIK upp í Orkusöluna og gamla RARIK.  Þarna urðu auðvitað til tveir forstjórar, tveir jeppar, tvö fótboltafélög að styrkja,tvær skrifstofur og auðvitað lagðist kostnaðurinn í formi tveggja gíróseðla ofan á mig, sem kaupi rafmagnið.

Svo ættum við að hætta að hlusta á þetta Samkeppnisráð, sem til afskaplega takmarkaðs gagns fyrir almenning.  Við eigum að leyfa OR að eiga hlutinn í HS Orku sem hún vildi. Orkufyrirtækin eiga að vera í eign fjöldans í gegnum opinber fyrirtæki.

Sameinum RARIK og Orkusöluna aftur og spörum þær stöður sem þar urðu til. RARIK var fínt fyrirtæki og vel rekið áður en þessi kratavitleysa kom til.

Leggjum niður þetta Samkeppniseftirlit og spörum það. Dómskerfið og almenningur getur alveg séð til þess að skera úr samkeppnismálum á grundvelli laga. Það þarf engin opinber apparöt til að leita uppi samkeppnislögbrot eins og málefni Múrbúðarinnar og Húsasmiðjunnar til dæmis.

Samkeppniseftirlitið hleypti Baugsskrímslinu út á sínum tíma á almenning með sameiningu Bónusar og Hagkaups. Við glímum enn við uppvakninginn Haga og svo allt ríkisapparatið í formi reksturs Mest, BM Vallá, Pennans,Eymundsen, Húsamiðjunnar, Blómavals, N1, Landsbankans,  BYR,Íslandsbanka, Nýsis,N1,Skeljungs, Fréttablaðsins, 365 Miðla, Vodafone,  já listinn er miklu lengri en ég kann að rekja því ég er orðinn algerlega dofinn í hausnum af þeim framgangi kommúnismans sem ég verð vitni að á Íslandi á þessum tímum.

Stöðvum  kratavitleysuna meðan þess er nokkur kostur.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er fínt og gagnast framleiðslufyrirtækjum að hámarka arðsemi og almennum neytendum að stuðla með vali að hækkun á mörkuðum að eiga orkuauðlindir sameiginlega og dreifingu þeirra. Plottið hjá hæfum meiri hluta í EU er augljóst. Opna leiðir sumra að sölsa allt undir sig í örðum  Ríkjum. Með því að einkavæða allt á þann hátt að allt sé bútað niður og gert sjálfsábyrgt til hindra mótstöðu við vilja sama hæfa meirihluta sem ætlar sé sér greinilega að stjórna öllu í gegnum skuldþræla net undir drottnunarvaldi Seðlabankakerfis undir Umboði sama hæfa meirihluta.

Dreyfa völdum og ábyrgð. Samkeppni á að vera að hækka verð á mörkuðum með betri gæðum vegna auðalegðar almennra neytenda.

Júlíus Björnsson, 16.8.2010 kl. 11:24

2 Smámynd: Kristinn Pétursson

Rarik - Landsnet - og Orkusöluna.. með tilheyrandi hryllilegum kostnaði og hækkun á raforku - + hækkun á "flutningskostnaði" raforku...

Kristinn Pétursson, 16.8.2010 kl. 11:26

3 Smámynd: Elle_

Halldór, ég held ekki að við ættum að losna við Samkeppniseftirlitið, held þó að bæta þurfi eftirlitið með þeim sjálfum og herða lögin sem þeir fara eftir.  Þeir gera of oft skelfilegt ógagn eins og í dæminu sem þú lýstir og eru alltof vægir.

Elle_, 16.8.2010 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418282

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband