Leita í fréttum mbl.is

Hvađa Samfylkingu, hvađa Sjálfstćđisflokk

er Ingólfur Margeirsson ađ fjalla um í rógskrifum sínum í Baugstíđindi í dag. 

Ingólfur ţessi er haldinn ţeirri barnalegu firru eins og margir hćlbítar Sjálfstćđisflokksins, ađ flokkurinn sé einver Sfinx í formi steinsteypukassans sem heitir Valhöll. Ađ steintrölliđ sé óbreytanleg myndastytta af Davíđ Oddssyni sem hafi veriđ haldinn einhverri veiki sem Ingólfur kallar nýfrjálshyggju. Samfylkingin er líka svoleiđis apparat í augum Ingólfs, einhver píramídi sem getur beiđst afsökunar og síđan ţrumiđ um eilífđ sem eilífur andstćđingur Sjálfstćđisflokksins ef ţá ekki hćkja.

Í rauninni eru skođanir Ingólfs á stjórnmálaflokkum svo fjarstćđar ađ varla tekur ţví ađ svara ţeim. Stjórnmálaflokkar eru ađeins fólkiđ sem í ţeim er ţá stundina. Rétt eins og KR eđa Fram. Davíđ var formađur í Sjálfstćđisflokknum af ţví ađ flokksmennirnir kusu hann. Hann tengdist samt ekki Engeyjarćttinni beinlínis ţó einstakir fjölskyldumeđlimir hafi komiđ auga á kosti mannsins og stutt hann til góđra verka.

Flokkur Ólafs Thors var annađ fólk en ţađ sem nú mćtir á landsfundi Sjálfstćđisflokksins. Ţađ er bara sjálfstćđisstefnan sem hefur ekkert breyst. Um hana sameinast flokksmenn. Öfugt viđ hlaupastrákaflokk eins og Samfylkinguna, sem enginn veit hvađan komu né hvert ţeir eru ađ fara. Ţeir hafa enga grunnstefnu nema ađ koma sjálfum sér  á opinberar jötur.  Ef ţćr eru girnilegri í útlöndum ţá leggja ţeir um ţessar mundir allt í sölurnar fyrir ađ komast í ţćr. Ţađ er alls ekki víst ađ Emil Jónsson eđa Jón Baldvinsson hefđi stutt ţá vegferđ  ţó ađ Össur, Jóhanna og Steingrímur  geri ţađ.

Á hvađa tíma lifir ţessi Ingólfur?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Grétar Guđmundsson

Sćll Halldór. hér er einn "guđsvolađurhöfuđsnillingur" sem ţakkar fyrir síđast og fyrir málgagniđ sem ţú sendir okkur hjónum, afmćlisrit "Voga" sem hefur veriđ málgagn Sjálfstćđisflokksins í áratugi og ţó nokkurn tíma undir ritstjórn tengdaföđur míns Harđar Ţórhallssonar, sem reyndar dó langt fyrir aldur fram. Ţađ var vissulega gaman ađ fletta blađinu og ekki gat ég annađ en hlegiđ ađ barnalegri sjálfhćlni yfir ţví ađ allt hefđi veriđ í kaldakoli í bćđi skiptin sem Sjálfstćđisflokkurinn komst í meirihluta í Bćjarstjórn Kópavogs, fyrst áriđ 1970 og svo 1990. Mér var vel kunnugt um ađ ţađ var langt frá ţví ađ "allt vćri í kalda koli" 1970 ţví ég sat ţá í Bćjarstjórninni og átti raunar ágćtt samstarf viđ ţá Axel Jónsson (D), Guttorm Sigurbjörnsson (B) og Björgvin Sćmundsson bćjarstjóra.

En ţví miđur er ég ađ heyra ţađ ađ fjármál Kópavogskaupstađar séu nú "kaldakoli" eftir samfellda stjórn Sjálfstćđismanna í 20 ár.

En utanbćjarmađurinn ég ćtla ekki frekar ađ skipta mér af ţví og kveđ ađ sinni.

Sigurđur Grétar Guđmundsson, 9.12.2010 kl. 09:47

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já sćll höfuđsnillingur Sigurđur Grétar og takk fyrir ánćgjulega stund í "Gildinu" eins og ég kalla okkar góđa og virđulega félag í gamni mínu. Gaman ađ ţú skyldir lesa Voga.

Ég segi nú ađ ţađ var allt í kaldakoli ţegar viđ komum til valda 1990 íhaldsmenn. Skolpiđ vall útá leirurnar og engar lausnir voru í sjánmáli, sorpstríđ stóđ yfir viđ Reykjavík og ţeir Guđmundur og Valţór ćtluđ ađ opna sorphauga á Kjóavöllum. Allt var á bullandi dráttarvöxtum hjá bćnum og öngvir peningar til, reksturinn gleypti allt sem inn kom, öngvar lóđir voru til ţví ađ ekkert frárennsli var til.Göturnar ónýtar, vatnsveitan míglek engar gangstéttar né götuljós. Nýjir vendir sópuđu vel. Svo urđu ţeir gamlir líka og hćttu ađ sópa eins vel og í árdaga.Svo kom hruniđ međ lóđaskilunum og skyndilega fór allt í mínus og viđ kosnir frá. Nú heldur ţađ áfram lóđbeint til andskotans ţví vinstri menn eru auđvitađ alltaf vitlausari í peningasökum en međalíhaldiđ, sérstaklega ţegar fleiri koma saman eins og nú er háttađ. Bestu kveđjur til frúarinnar stórćttuđu.

Halldór Jónsson, 9.12.2010 kl. 11:55

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Halldór, ég kannast vel viđ lýsingu ţína á Kópavogi á kommaárunum, ţetta var hrein hörmung ađ aka um ţennan nágrannabć Reykjavíkur. Ég á bróđur, sem bjó viđ algjört úrrćđaleysi kommanna eins og ţú í nćr aldarfjórđung. Ţađ voru grimm örlög fyrir innfćddan Reykvíking ! En svo kom Gunnar Birgisson og ţá varđ breyting til betri vegar.

Kv.,KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 10.12.2010 kl. 18:03

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Nú er Gunnar fallinn og klommarnir teknir viđ. Ţetta sekkur ekki svo glatt á gamla stigiđ. En ţađ tekur viđ tímabil kyrrstöđu og og samrćđustjórnmála í Kópavogi, ţú ţarft ekki annađ en ađ horfa á bćjarstjórnarmeirilhlutann núna til ţess ađ sjá ţađ, ţar er ekki ađ vćnta samstöđu um nýja sókn á komandi tíđ. 

Halldór Jónsson, 11.12.2010 kl. 17:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 3418233

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband