Leita í fréttum mbl.is

Óhugnað

setur að manni að sjá hversu langt kommúnisminn er kominn á Íslandi þegar Geir H.Haarde kemur fyrir Landsdóm. Á sífelldum ómerkilegum uppákomum þrífst þessi ömurlegasta af öllum ríkisstjórnum í sögu lýðveldisins og notar fjölmiðla sína til að draga athygli almennings frá getuleysi sínu til að þjóna þjóðinni. Öll vandamál hennar eru óleyst eins og allstaðar hefur gerst undir ráðstjórn. Landsdómsuppákoman er ein slíkrar tegundar en sker sig úr fyrir það hversu andstyggileg og rætin hún er.

Við skulum aldrei gleyma nöfnum þeirra þingmanna sem stóðu að samþykktinni um málshöfðunina gegn Geir á Alþingi. Geir á hinsvegar skilið þakkir þjóðarinnar fyrir leiðsögn sína á erfiðum tímum. hann gerði allt sem í hans valdi stóð til að forða landinu frá bráðum voða.

Kommúnistarnir og kratarnir á Alþingi sem samþykktu þennan óhugnað mega ekki gleymast.

Nöfn þeirra munu vekja hugsandi mönnum óhugnað í íslenskri stjórnmálasögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég get tekið undir það með þér. Ég hef megnusta viðbjóð á þessum mönnum,er nema von að fólk sýni Alþingi sáralitla virðingu.  

Helga Kristjánsdóttir, 9.3.2011 kl. 03:01

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Kommarnir slátruðu Keiasaranum. En rauður ráðgjafi vinnur í baklandinu og heldur áfram í þjónustu nýju herranna.

Júlíus Björnsson, 9.3.2011 kl. 07:11

3 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Mikið er það ljótt að hrekkja Eymingjann hann Haarde, eins góður maður og hann er. Þetta er auðvitað afkomendur Stalíns og Hitlers sem eru að þessu.

Það var ekki Geir að kenna hvernig fór. Auðvitað gerði hann allt sem í hans valdi var til að fá Guð til að blessa Ísland.

Þótt hann væri framkvæmdastjóri einkavinavæðingar bankanna fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, er hann alsaklaus eins og þú segir, hann vissi ekki betur en allt væri í himnalagi. Hrunið einhverjum ljótum köllum í útlöndum að kenna. Hann naut jú hlýjunnar frá Sollu kommúnista síðustu átján mánuðina sem hann stjórnaði með Guðs hjálp.

Það er alveg rétt að hann Geir minn er alsaklaus til dæmis eins og hann þarna dýralæknirinn í Hafnarfirði sem var fjármálaráðherra þeirra Geirs og Sollu. Hann vissi ekkert um þetta svokallaða hrun. Hann fór bæði í austur og vestur til að sannfæra fólk um að bankar á Íslandi væru traustir. Enda er hann alsaklaus, hrunið er ekki mér að kenna sagði hann, ég gerði bara eins og Dabbi sagði mér að gera.

Það ætti að draga helvítið hann Grím fyrir alþýðudómstólinn fyrir að hafa ekki gert neitt til að koma vitinu fyrir bankayfirvöld, djöfuls komminn allt honum að kenna

 

Ragnar L Benediktsson, 9.3.2011 kl. 10:44

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Já og helvítin þá Halldór Jónsson og ragnar L.Bnediktsson fyrir að hafa ksið þessa andskota. Það byrjaði altt klabbið með ofurtrú fólksins á Dabba olg alla sælutíðina sem fólkið upplifði í 16 ár undir hans forystu ?

Halldór Jónsson, 9.3.2011 kl. 13:12

5 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Já maður lifandi þá var nú sælutímar, allavega fyrir einhverja, en þeir og hinir sem sælan fór framhjá fá nú aldeilis að borga fyrir sæluna. Verst fyrir þá sem aldrei fundu sæluvímuna en sitja uppi með timburmennina.

Ragnar L Benediktsson, 9.3.2011 kl. 13:34

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þér leið mikklu betur Ragnar en þér leið áður, þú varst blindfullur eins og aðrir meðan veislan stóð. Þú gleymdir bara að leggja afréttarann tl hliðar.

Halldór Jónsson, 9.3.2011 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband