Leita í fréttum mbl.is

Að loknum Landsfundi

stendur uppúr hjá mér, sem minna en einum þúsundasta af fundinum, að ég er ánægður með það sem að mér snýr. Lítið peð á átakafundi er ánægt með visku landfundar sem birtist í niðurstöðum fundarins sem allir geta lesið á vef flokksins, www.xd.is.

Landsfundur tekur eindregna stöðu með Reykjavíkurflugvelli og þýðingu hans fyrir höfuðborgina á þeim stað sem hann er og í þeirri mynd sem hann er nú. Landsfundur sýndi sig að sýna hlutverki vallarins fullan flugtæknilegan skilning sem varavöllur fyrir alþjóðaflug. Hann áttar sig á því að Reykjavíkurflugvöllur verður þarna áfram sem miðstöð innanlandsflugs og sjúkraflugs. Allt tal um stórsjúkrahús í Reykjavík er samofið tilvist vallarins. Allar aðrar skipulagshugmyndir verða að víkja fyrir skynseminni og talnaturnar sem reistir hafa verið í óraunsæi ýmsra frammámanna í reykvískum stjórnmálum eru hrundir til grunna.

Hanna Birna Kristjánsdóttir áttaði sig á því, að hún kæmist hvergi á Landsfundinum með því að taka undir fjandskap við tilvist Reykjavíkurflugvallar, sem Gísli Marteinn er helstu samnefnari fyrir. Málflutningur Gísla Marteins um að landsfundur væri í mótsögn við sjálfan sig þegar hann blandaði sér í skipulagsmál sveitarfélags með þessum hætti hafði ekki áhrif til þess að lina afstöðu landsfundarfulltrúa.Var ótrúlegt að verða vitni að eindreginni afstðu fundargesta í þessu máli.

Bjarni Benediktsson var kosinn formaður með 55 % atkvæða á móti 44 % atkvæða Hönnu Birnu.Tæplega annar hver landsfundarfulltrúi treystir Hönu Birnu betur en Bjarna Benediktssyni. Hefðu aðeins 76 landsfundarfulltrúa af rúmum þrettánhundruð breytt nafninu á atkvæðaseðlinum hefði Hanna Birna sigrað. Svo knappt var þetta

Þetta lýtur að vera Bjarna mikil aðvörun um að hann verði bæði að vanda sig og leggja sig enn meira fram til að vinna sér inn aukið traust flokksmanna. Sem hann getur hægleg svo vel gerður maður til munns og handa.

Hanna Birna átti auðvitað undir högg að sækja þar sem hún er ekki þingmaður og fundarmenn margir komu ekki auga á það hvernig formaður flokksins gæti verið utan þings svo vel sé. Hönnu verður ekki skotaskuld úr því að breyta þessu í næstu kosningum hvenær sem þær verða. Hún er og verður stærð sem ekki er auðveldlega litið framhjá í pólitík.

En eins og Ólöf Nordal varaformaður orðaði það, þá kom tími Jóhönnu svo sannarlega í íslenskum stjórnmálum. En það sem verst væri, að í huga okkar ætlaði honum bara aldrei að ljúka og engar kosningar væru í augsýn. Ólöf hlaut svo yfirburðar kosningu í embætti varaformanns.

Davíð Oddsson sem ávarpaði fundinn óvænt við mikinn fögnuð sagði einhvernvegin, að norræna velferðin sem stjórnin hefði lofað að færa Íslendingum væri í reynd sú sú að fara með "Norrænu" á vit velferðarinnar á Norðurlöndum. Og fleira sagði Davíð í gamni og alvöru. Hann er og verður fremstur meðal jafningja í Sjálfstæðisflokknum fyrir leiftrandi fjör og persónutöfra sína. Þar sem hann kemur gerist yfirleitt eitthvað.

Sjálfstæðisflokkurinn lýsti sig reiðubúinn að berjast gegn skuldavanda heimilanna með ráðum og dáð. Hann lofaði að aflétta öllum sköttum sem vinstri stjórnin hefði hækkað og fundið upp sem nýja. Hann lofaði að vinna að atvinnusköpun umfram allt, beisla orkulindirnar og NÝTA TÆKIFÆRIN eins og var yfirskrift fundarins. Hann trúir því að aukin atvinna muni færa ríkinu meiri skatta en sem nemur lækkun gjaldanna. Þar liggur munurinn á stjórnlyndi og frjálslyndi.

Það verður nóg af fýlupúkum í Sundlaugunum og öðrum förnum vegum svo og á samanlögðum fjölmiðlum landsins til að rakka allt þetta niður og reyna að gera alla þessa viðleitni landsfundarfulltrúa fyrirlitlega og fábjánalega. Þetta munum við Sjálfstæðismenn sem lögðum á okkur að vinna að tillögum landsfundar,þola og svara fullum hálsi. Fundur okkar snéri að því að reyna að leysa vandamál, -ekki landsfundarfulltrúaanna eða félaga í Sjálfstæðisflokknum sérstaklega, heldur landsmanna allra. Sjálfstæðismenn trúa á þjóðina, landið okkar Ísland, Sjálfstætt Ísland eins og nafn flokksins okkar ber með sér, og teljum hagsmunum þess, nú sem fyrr, betur borgið utan ESB

Sjálfstæðisflokkurinn vill sækja fram og bæta böl. Það eru skilaboðin frá þessari samkomu í Laugardalshöll. Því það er sagt að ætíð sé betra að veifa röngu tré en öngu og má eiga við þá sem láta dæluna ganga og allt vilja rakka niður í forina sem tengist Sjálfstæðisflokknum. Ríkisstjórnin hefur ekkert tré á loft, aðeins njólarætur og þöngulhausa sem ekkert verður á byggt.

Sjálfstæðisflokkurinn er leiður yfir því virðingarleysi sem Ríkisstjórnin sýnir því góða fólki í Evrópubandalaginu með því að halda áfram viðræðum við það eins og allt sé í stakasta lagi. Sjálfstæðismenn þola ekki slíkt og vilja gera hreint borð og segja við viðsemjendurna, að best sé að fresta frekari viðræðum meðan þjóðin gerir upp við sig hvað hún vilji sjálf.Það er þjóðin sem á síðasta orðið.

Kosningar er krafa Sjálfstæðisflokksins. Fyrr fær þjóðin ekki viðnám fyrir krafta sína til að NÝTA TÆKIFÆRIN.

Það er boðskapur Landsfundar Sjálfstæðisflokksins til þjóðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Góð samantekt hjá þér og fagleg að vanda Halldór.

Ég efast ekki um að "samsömun" flokksfélaga Landsfundarins gæti verið mikil um þá niðustöðu sem flokkseigendafélagið vildi og á "status quoe". Það hlýtur þó að vera áhyggjuefni hvernig þeir sem ekki eru allt of fastið í fortíðinnig og vilja horfa fram, taka þessari niðurstöðu. Kannski verður til út þessu sterku frjálslyndur miðjuflokkur undir stjórn Hönnu Birnu....? Það gæti orðið góð niðurstaða með þeir sem hafa nýja sýn á stjórnmál. Með þessu mætti kannski koma Hannesi Hólmssteini og viðhlæjendum hans endanlega í "pólistíska gröf". Þá hef ég trú á að niðurstaða Landfundar, þó ekki sé hún góð fyrir flokkinn, gæti haft góð áhrif á þjóðmálin til lengri tíma litið.....

Ómar Bjarki Smárason, 21.11.2011 kl. 00:35

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sínum tíma runnu saman flokkur fulltrúa Danska efnahagsbandlagsins og fulltrúar einkaframtaksins sem töldu arðabærar að stunda frjáls skipti við markaðina utan hins litla danska.  Ég á ættir mínar að rekja til beggja þessara flokka.  Nú er heimurinn stærri og reynslan af EES  sannar að þjóðargengið hér hefur hrapað um 40% í samanburði við Íra og Skota,  og flest ríki S og A EU.  Nútíma tækni og lækkunar byggingarkostnaðar skilað sér að fullu inn í þessi ríki en hér ríkti verðtrygginningakrafa á ávöxtunarkröfu lánadrottna,   Heildaneysluvísitala með vægi á sem selst mest óháð raunvirði eða innhaldi pakkninga. Gæða staðlar eru hluti af raunvirðis gengjum á frjálsum mörkuðum sem gefa upp GDP(PPP). Raunkaupmátt og því raunvirði sölu innan hvers ríkis. DEB parity rúmmálslega er KRED parity.

Innan EU gildir eða á gilda  "fair trade" milli Meðlima Markaða, þannig að á öllum 60 mánuðum jafnast allt grunn gengis umfram  út á móti  grunn gengis afföllum. Gróði ríkja sem myndast á þeirra heimamörkuðum er framlag til aukningar á rúmmáli sama ríki og heildarinnar. 

Hér öfugt við Þýskaland er öll áhersla að fjármagna  ábyrgðalausa græðgifulla stjórnsýslu með að fórna langtíma vexti þjóðargengis í skammtíma eyðslu sjónarmið á hverjum tíma. Fleiri erlendar Gular hænur til að borða brauðið heima hjá sér.

Íslenskir hagfræðingar og lögfræðingar eru örugglega ekki 100 % læsir á erlent menntamál.

Ríkið hefur einkaleyfi að markaðasetja mynt gegn sölu neyslu  vöru og þjónustu á sínum markaði og líka að meta raunvirði hennar  á sama markaði.   Krónur seljast á Íslandi  og erlendis verða eignir við sölu. Allar myntir sem breytast í eignir verða svo verðlausar þangað til þær seljast aftur á almennum markaði.    Sjaldgæfar mynt hafa söfnunargildi.  Ríki sem þarf að selja 2000 milljarða af krónum og gerir það hefur þá eignast raunvirði að upphæð 2000 milljarðar á sama uppgjörstímabili til að  tekjufæra  á því uppgjörstímabili.  Ríki sem segist hafa markasett 4000 milljarða og selur ekki nema 2000 miljarða en leggur hitt inn á bók á verðlausar krónur inn á sömu bók.    Láta lífeyrisjóði geyma verðlausar krónur er tíma eyðsla. Það má markaðasetja þessar krónu síðar þegar kaupgengið hefur efni á þeim. Erlendir fjárfestar kaupa ekki svona eignasöfn almennings sem á ekki einu sinn bíl í framtíðinni.

Það verður gaman að fylgjast með sjálfstæðisþingmönnum fram til kosninga.

Hér sagðist aðili hafa haldið að Landsbakinn hefði gengið sjálfvirkt eftir að faðir hans tók við stjórn.  Það gerði Landsbankinn svo sannarlega, hann er bundinn í óstaðlað regluverk sem hefur sett alla útlendinga á hausinn sem hafa komið hingað á skerið, hingað til.

Fé er peningur , bú er peningur. Eyðibýli getur orðið peningur í höndum Kínverja. Það þar að breyta öllu í pening.  Kínverjar falast eftir dollurum og undirbjóða yuang. Íslendingar falast eftir evrum til að geta tekið þátt í innilegri stjórnmálalegri samvinnu um að efla heildargengi EU sama hvað Meðlima Ríki gerir það. 

Júlíus Björnsson, 21.11.2011 kl. 05:45

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Bjarki

Ekki gef ég nú mikið fyrir pælingar þínar í stjórnmálum eins og þessar um að jarða Hannes Hólmstein og fá einhvern nýjan flokk undir Hönnu Birnu. Ég held að þú ættir í alvöru að taka þátt í starfsemi flokksins og spá í fyrir hvað hann stendur áður en þú kemur með svona hugleiðingar sem eru í raun ekki mjög djúpar.

Halldór Jónsson, 21.11.2011 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband