Leita í fréttum mbl.is

Et tu Brute?

gæti hafa hvarlað að Steingrími J. Sigfússyni þegar sjálfur Óli kommi, stofnandi og guðfaðir VG, segir sig fra sköpunarverki sínu og gengur úr í eyðimörkina.

Annar stofnandi VG, Hafsteinn Hjartarson úr Kópavogi veltir stöðu sinni fyrir sér: „Ég tel að Vinstri græn hafi svikið öll, eða flest, loforð sem þau gáfu okkur,“

 Áður hafði formaðurinn fengið skeyti frá stjórnum VG-félaga í Skagafirði og Húnavatnssýslu sem " harma valdníðslu formanns VG, Steingríms J. Sigfússonar, vegna áforma um að leggja niður ráðuneyti Sjávarútvegs- og landbúnaðar vegna eindreginnar andstöðu ráðherra við aðildarumsókn að Evrópusambandinu.“

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra Alþýðubandalagsins og einn af stofnendum VG, segir að atburðir undanfarna daga hafi verið í takt við það sem áður hafi gerst innan flokksins. „Þetta er sama áframhaldandi óheillaþróunin og verið hefur. Fólk er að tínast úr flokknum og það segir sína sögu. Það getur ekki talist vera jákvæð þróun fyrir nokkurn stjórnmálaflokk.“

Í venjulegum stjórnmálaflokkum  myndi formaður við svona aðstæður reyna að gera eitthvað til að nálgast flokksmenn sína. Ekki sólkóngurinn Steingrímur J.Sigfússon. Veldi hans er sem aldrei fyrr og teygir sig nú yfir mörg ný ráðuneyti utan þess að hafa yfirumsjón með framvindu efnahagsmála og hagvexti landsins. En líklega hvarflar ekkert slíkt að honum.  Tveggja ára seta á ráðherrastóli virðist hafa nægt Steingrími til að gegnsýrast af sætleika valdsins og rjúfa öll tengsl hans  við raunveruleikann hvað þá uppruna sjálfs sín.

Júlíus Cesar lenti í því að átta sig ekki á hvert hann var kominn á ferli sínum þegar hann stundi upp á banastundinni;  Et tu Brute ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Ágæti Halldór, þú skrifar margt skemmtilegt og nytsamlegt.

Þar að auki slærð þú um þig með útlendum orðum!

Mig langar nú til að spyrja þig hvað þessi setning þýðir: "Et tu Brute?"

Manni er nauðsynlegt að skilja það sem maður les, og því miður er ég ekki eins mikill málamaður og þú.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 5.1.2012 kl. 15:09

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Og þú líka Brútus?

Er þýðingin á "Et tu Brute?"

Theódór Norðkvist, 5.1.2012 kl. 19:46

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Arason biskup svarað með þessari vísu þegar Böðvar nokkur sðurði um latínuþekkingu biskupsins forgföður okkar beggja:

Látína er list mæt

lögsnar Böðvar

Í henni eg kann

ekki par.

Þú þarft þá ekki að vera hissa á að kunna ekki latínu úr því að blessaður biskupinn kunni hana ekki Sigurður Herlufsen.

En þetta tilsvar er varðveitt frá því að samsærismennirnir stungu Júlíus Cesar niður í Öldungaráðinu( 29 fkr.?) og hann varð hissa að sjá Brútus sem hann áleit einskonar fósturson sinn í hópi morðingja sinna.

Halldór Jónsson, 5.1.2012 kl. 21:50

4 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Þetta er hið besta mál Halldór minn.

En pistill þinn hefði verið enn betri ef hin erlenda setning hefði verið á okkar móðurmáli: "Og þú líka Brútus"

Og jafnvel ég hefði skilið hana án aðstoðar þýðenda!

Sigurður Alfreð Herlufsen, 5.1.2012 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418442

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband